Morgunblaðið - 24.05.1980, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ1980
33
„Þessi fór í óveðrinu mikla í vetur,“ sagöi Baldur Halldórsson 2.
stýrimaóur á Óóni, og sýnir blaðamanni Mbl. eftirstöðvar eins fánans.
Sófus Alexandersson bátsmaður hellir steinolíu yfir fánana.
reglum þar fylgt út í yztu
æsar. Ónýtist þar margur
fáninn í vondum veörum viö
íslandsstrendur.
í för varpskipsins Óöins
fyrr í vikunni meö eftirlits-
menn Slysavarnarfélagsins
á Hornstrandir notuðu
varöskipsmenn tækifærið í
einni skýlaferöinni til aö
brenna um tuttugu ónýta
fána, og voru þá meðfylgj-
andi myndir teknar.
Hvalir:
Langreyður í stærsta
hvalahópnum við landið
ENGAR öruggar tölur liggja
fyrir um fjölda hvala við ísland,
en talið er að um nokkra tugi
þúsunda geti verið að ræða. Mest
mun vera af langreyði en þar er
talið að um 3—10 þúsund dýr
geti verið að ræða. Langreyður,
sandreyður, búrhvalur og hrefna
eru þær hvalategundir við landið
sem veiddar eru, um fjögur
hundruð hvalir á hverju ári.
Aðrar hvalategundir við landið,
svo sem steypireyður, hnúfubak-
ur og sléttbakur, eru friðaðar, en
t.d. mun mjög lítið vera eftir aí
sléttbak.
Hvalastofninn við ísland er
angi af Atlántshafsstofninum og
sumar tegundirnar koma hingað
við ákveðnar kringumstæður. T.d.
er talið að búrhvalirnir séu tarfar
sem hafi verið hraktir frá fjöl-
skyldulífi hvala sunnar í hafinu.
Hvalveiði við Island byggist á 6
ára kvóta og er aflamagni hnikað
til milli ára þannig að ef mikið
veiðist eitt árið er minna veitt það
næsta.
Samkvæmt áliti vísindamanna
er ekki talið að stofninn hér við
Island sé í hættu, en engar
óyggjandi sannanir liggja fyrir
þar að lútandi.
Á þessari sérkennilegu mynd sem Kristján Magnússon ljósmyndari tók fyrir Vesturlandi eru þrír hvalir
uppi.
eru Eyjamenn stórtækir miðað
við aðra staði á landinu enda eru
margir bjargveiðimenn þar, eða
um tvö hundruð talsins. Þegar
maí er genginn í garð kemur
eggjahljóð í mannskapinn og
fiðringurinn sem fór um bjarg-
veiðimennina þegar lundinn kom,
magnast nú allur og björgin eru
sótt heim, klifin og sigin. Með-
fylgjandi myndir tók Sigurgeir í
Eyjum af nokkrum bjargveiði-
mönnum sem sækja í Súlnasker
og Geldung fýlsegg og svartfugls-
egg (langvíuegg). Fýllinn byrjaði
að verpa 13. maí, en svartfuglinn
þann 17. í fyrsta varpi, en hann
verpir aftur séu eggin hirt. Við
sáum nokkrar tegundir af eggjum
í glugga hjá Kjötverzlun Tómas-
ar við Laugaveginn og þar á
meðal voru fýlsegg og svartfugls-
egg frá Vestmannaeyjum. Stykk-
ið kostar 400 kr. og þau skal sjóða
á eftirfarandi hátt. Þegar suða er
komin upp á vatni í- potti eru
eggin sett í og skulu þau soðin í 7
mínútur og 13 sekúndur.
Fengnum landað á Bæjarbryggj-
unni og vinir og vandamenn fá
smakkið — undirstrikunina á
sumarkomuna og gang mannlífs-
ins yfirleitt.
Þjálfun:!
Flugfreyjur í björgunaræfingum
í Laugardalslauginni
NÆR tvö hundruð flug-
freyjur og um hundrað flug-
menn hjá Flugleiðum fara
árlega í þjálfun vegna
brunavarna og björgunar-
aðgerða um borð í flugvél-
um fyrirtækisins. Áður fyrr
fór slík þjálfun fram með
allt að nokkurra ára milli-
bili, en nú eru námskeið
haldin árlega samkvæmt
íslenzkum lögum og reynd-
ar alþjóðalögum um flug-
Ein af flugfreyjum Flug-
leiða í fullum herklæðum,
þ.e. á björgunaræfingu í
Laugardalslauginni.
starfsemi. íslenzku fluglið-
arnir taka bókleg próf einu
sinni á ári í því sem varðar
starf þeirra og öryggi og
verklega hliðin eru bruna-
æfingar og björgunaræf-
ingar bæði um borð í flug-
vélunum og einnig í sund-
laug þar sem gúmmíbjörg-
unarbátur er blásinn upp
með öllu tilheyrandi. Með-
fylgjandi myndir tók ljós-
myndari Mbl. af nokkrum
flugliðum á námskeiði í
Laugardalslauginni í
síðustu viku.
í hverri Flugleiðavél eru margir gúmmíbjörgunarbátar sem
geta rúmað tugi manna hver, en þarna eru flugliöar á æfingu í
Laugardalslauginni aö undirbúa það að setja tjald á bátinn.