Morgunblaðið - 24.05.1980, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 24.05.1980, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ1980 LISTAR BRETLAND Litlar plötur 1 ( 2) WHAT’S ANOTHER YEAR...Johnny Logan 2 ( 1) GENO Dexy’s...Midnight Runners 3 ( 3) COMING UP.....Paul McCartney 4 (—) MIRROR IN THE BATHROOM....The Beat 5 (—) SHE’S OUT OF MY LIFE...Michael vJ ackson 6 ( 9) NO DOUBT ABOUT IT..Hot Chocolate 7 (—) HOLD ON TO MY LOVE.Jimmy Ruffin 8 (—) I SHOLDA LOVEDYA. Narada Michael Walden 9 (10) MY PERFECT COUSIN..Undertones 10 ( 5) SILVER DREAM MACHINE ...l......................David Essex BRETLAND Stórar plötur 1 ( 2) THE MAGIC OF BONEY M........ 2 ( 1) SKY 2....................... 3 (—) JUST ONE NIGHT.....Eric Clapton 4 ( 3) GREATEST HITS......Rose Royce 5 ( 5) DUKE.................Genesis 6 ( 4) SUZI QUATRO’S GREATEST HITS. 7 ( 6) 12 GOLD BARS.......Status Quo 8 (—) SPORTS CAR.........Judie Tzuke 9 (10) HEAVEN AND HELL ....Black Sabbath 10 ( 8) HYPNOTISED........Undertones BANDARÍKIN Litlar plötur 1 ( 1) CALL ME..............Blondie 2 ( 2) RIDE LIKE THE WIND.Christopher Cross 3 ( 3) LOST IN LOVE........Air Supply 4 (—) FUNKY TOWN............Lipps Inc. 5 ( 4) WITH YOU l’M BORN AGAIN..Billy Preston/Syreeta 6 ( 8) SEXY EYES.............Dr Hook 7 ( 9) YOU MAY BE RIGHT.....Billy Joel 8 ( 9) DON’T FALL IN LOVE WITH A DREAMER........Kenny Rogers/Kim Carnes 9 ( 5) ANOTHER BRICK IN THE WALL.. Pink Floyd 10 (—) BIGGEST PART OF ME....Ambrosia BANDARÍKIN Stórar plötur 1( 1) AGAINST THE WIND Bob Seger & The Silver Bullet Band 2 ( 2) THE WALL............Pink Floyd 3 ( 3) GLASS HOUSES.........Billy Joel 4 ( 4) MAD LOVE........Linda Ronstadt 5 (—) JUST ONE NIGHT.....Eric Clapton 6 ( 8) WOMEN AND CHILDREN FIRST. Van Halen 7 ( 9) CHRISTOPHER CROSS........... 8 (_) GO ALL THE WAY....Isley Brothers 9 ( 6) OFF THE WALL...Michael Jackson 10 ( 5) LIGHT UP THE NIGHT...Brothers Johnson Tveir tugir laga á nýrri plötu Melchiors Af Bubba Morthens og Utangarösmönnum Blúsinn gefur svo mikla möguleika Frá vinstri: Michael, Daniel, Bubbi, Rúnar og Magnús. í þeirri miklu ládeyðu lifandi tónlistar, sem nú ríkir, þykir tilkoma nýrra hljómsveita ætíð viðburður, einkum og sér í lagi ef um er að ræða hljómsveit, sem leikur „óvenjulega" tónlist. Ein slík skaut upp kollinum fyrir stuttu, Bubbi Morthens og Utangarðsmenn, en sú hefur sérhæft sig í „gúanó-rokki". Bubbi Morthens og Utan- garðsmenn er tveggja mánaða gömul hljómsveit, en hún varð til fyrir tilviljun. í janúarmán- uði ákvað Bubbi að sig langaði til að gera plötu, og án þess að hafa frekari formála á því, labbaði hann inn í stúdíó Svav- ars Gests og hófst handa við upptökuna. Síðasta lagið sem hann tók upp hét „Jói pönkari" og með honum léku í því Magnús Stefánsson, trommuleikari, Rúnar Erlingsson, bassaleikari, og bræðurnir Michael og Daniel Pollock, sem spila á gítara. Þeir stofnuðu síðar hljómsveit og Utangarðsmenn varð nafn hennar. Þess má geta að þá höfðu Bubbi, Rúnar og Magnús aðeins þekkzt í tvo daga. „Síðan má segja að við höfum verið sainan 24 tíma á sólar- hring,“ segir Bubbi. Iðunn dreif- ir plötunni, en ég kostaði sjálfur alla upptökuvinnu. Platan er tvískipt, á annarri hliðinni eru „gúanó-rokklög“, en hinum meg- in eru flest lögin „acoustic", þ.e. éjg syng og spila undir á gítar. Astæðan fyrir því að ég tók plötuna upp hjá Svavari var sú að ég vildi hafa hana hráa, í Hljóðrita hefði „sándið" orðið allt of dempað. A plötunni leika margir hljóðfæraleikarar, sumir með öllu óþekktir. Lögin eru flest tekin upp „live“ og það var ofsa stemmning í stúdíóinu, þegar platan var tekin upp. Þetta var eins konar „happen- ing“. Séríslenzk tónlist „Ég hef verið að semja lög í fimm-sex ár, „ísbjarnarblúsinn" var fyrsta lagið sem ég samdi. Núna sem ég aðallega reggae- lög og „gúanó-rokki", en ég á einnig dobíu af melódískum lög- um. „Gúanó-rokk“ er alveg séríslenzk tónlist að mínu mati. Við í hljómsveitinni höfum allir verið farandverkamenn, ég hef unnið í frystihúsum og verið á sjó og Danni og Mikki hafa unnið í verksmiðjum og textarn- ir eru sprottnir upp úr því umhverfi. Allir landsmenn þekkja farandverkamennsku, af afspurn, eigin reynslu eða þá að einhver ættingi, afi eða pabbi, hefur verið farandverkamaður. Ég sem texta um þessa reynslu mína af starfinu, ég er að túlka eigin tilfinningar og segja frá farandverkamennsku, eins og hún kom mér fyrir sjónir. Þetta er ekki pólitískt í þeirri merkingu að ég sé að boða einhverja ákveðna línu, en mig langar að tala við kollega mína í farandverkamennskunni gegn- um textana. Þetta eru engir þungir, menningarlegir textar, ég hef alltaf verið heldur lélegur íslenzkumaður og textarnir eru á einföldu máli. „Gúanó-rokk“ er blús-rokk með þessum text- um.“ Forfallinn blúsisti „Ég hef alltaf verið forfallinn blúsisti og þegar ég var smápolli heyrði ég íslenzka poppara vera að segja að ekki væri hægt að syngja rokk á íslenzku. Þá ákvað ég að sýna þeim, að það væri hægt. Blúsinn gefur svo mikla möguleika, hann er svo sterkur og einfaldur og það er svo mikil tilfinning í honum. Ég nota alveg hinn hefðbundna þriggja hljóma blús, nema hvað ég nota ekki viðlög. Leadbelly heitir Bandaríkjamaður, sem hvað mest áhrif hefur haft á mig. Hann dó 1948, en varð frægur fyrir að syngja sig út úr fangelsi. Leadbelly hafði verið dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir morð, en söng lag fyrir fylkisstjórann sinn og var náðaður fyrir. Lead- belly hafði mikil áhrif á hljóm- sveitir á borð við Rolling Ston- es.“ Eitt stórt útbrunnið element „Rokkbransinn hérna í dag er alveg hrikalega þreyttur. Hann er í raun aðeins eitt stórt útbrunnið element. Það eru ofsalega fáir sannir tónlistar- menn eftir og við byrjuðum að spila til að reyna að lífga svolítið upp á bransann. Við erum anzi „aggresívir" upp á sviði, ef við höfum nóg svigrúm, þá keyrum við á þúsund og við höfum heyrt margt fólk hneykslast á þessu. Málið er það að íslendingar eru svo koplexer- aðir, þeir þurfa alltaf að vera að passa sig á almenningsálitinu. Það er alveg ótrúlegt að sjá muninn á hljómleikum hérna og úti í löndum. Þar er alveg brjálæðisleg stemmning, en hérna sitja menn hver við sitt borð. Það er alveg ljóst mál að tónlistarmenn mega ekki missa tengslin við fólkið, annars endar þetta sem peningabisness og iðnaður." Til Færeyja og út á land „I sumar er ætlunin að fara í landreisu með hópi af farand- verkamönnum og nokkrum leik- urum úr Alþýðuleikhúsinu. Þá ætlum við að skreppa til Fær- eyja, en hvenær vitum við ekki. Við höfum gert talsvert af því að spila á böllum, bæði hér í bænum og úti á landi og yfirleitt höfum við fengið góðar viðtökur. Annars er munurinn á afstöðu borgarbúa og landsbyggðarinn- ar mikill. Um daginn fórum við norður í land og spiluðum þar, og gamla fólkið, sem textarnir eru um, tók okkur illa. Sakaði okkur um klám og pólitík og annað í þeim dúr. En því yngra fannst tónlistin okkar þrælgóð. Annars langar mig til að spila á Austfjörðum, ég var einu sinni að vinna þar, og fólkið þar er ákaflega gott.“ Fyrir tveimur árum kom út platan „sifurgrænt ilmvatn" með hljómsveitinni Melchior. Síðan hef- ur verið heldur hljótt um hljóm- sveitina en nú geta aðdáendur hennar tekið gleði sína aftur, því nýkomin er út ný breiðskífa með henni. Hún heitir „Balapopp" og hefur að geyma hvorki fleiri né færri en 22 lög. Melchior er nú þriggja manna hljómsveit, en hana skipa Hróðmar Sigurbjörnsson, Hilmar Oddsson og Karl Roth Karlsson. Auk þeirra kemur fram fjöldi hljóðfæraleikara á plötunni og má nefna Ólaf „Kannski ekki þjóðfé- lagsádeila, en mannlifs- ádeila í léttum dúr.“ melchior leita uppruna síns á „Bala- popp“. Frá vinstri: Hróð- mar, Karl og Hilmar.______________ Flosason, Gunnar Hrafnsson, Eggr ert Þorleifsson, Kristínu Jóhanns- dóttir og Helgu Þórarinsdóttur. Platan var tekin upp að Bala í Mosfellssveit og sáu þeir í Melchior sjálfir um upptöku og klippingar, en við fyrrnefnda atriðið aðstoðaði Garðar Hansen. Lögin eru öll frumsamin og hafa þremenn- ingarnir samið þau í sameiningu, en textar eru eftir Hallgrím Helga- son og Melchior. Eins og áður sagði er lögin 22 og heita þau nöfnum á borð við „Ábendingavísur", „Eg gæti gengið um stund fyrir þig, elskan mín“, „Flugulagið", „Jón- arnir", „Leikhúsreglan" og „Think

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.