Morgunblaðið - 24.05.1980, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 24.05.1980, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ1980 22% samdráttur á gasolíusölu FYRSTU fjóra mánuði ársins 1980 varð samdráttur á sölu gasolíu hér innanlands sem nam um 22% miðað við sömu mánuði í fyrra. Margar ástæður eru fyrir minnk- andi notkun gasolíu, að sögn Indriða Pálssonar forstjóra Skeljungs hf. Nefndi hann að hitaveitufram- kvæmdir hefðu verið miklar milli þessara tímabila. Mörgum togurum og kaupskipum hefði verið breytt svo að þau brenndu svartolíu í stað gasolíu, rafhitun hefði aukist, ekki síst með tilkomu Austurlínu, vetur- inn hefði verið mildur og síðast en ekki síst hefði áróður fyrir orku- sparnaði vafalaust haft sitt að segja. Hækkar EBE tolla á fiski? StrasbourK. 23. maí. AI*. EVRÓPUÞINGIÐ í Strasbourg gerði í dag ályktun, þar sem krafizt er hækkaðs verðs á fiski, scm fluttur er inn til cfnahagsbandalagsríkjanna. Framkvæmdanefnd EBE tilkynnti í dag að hún hefði gert tillögu um að 15% tollur yrði lagður á innfluttan bolf isk frá og með 1. júlí nk. James Provan, þingmaður frá Norðaustur-Skotlandi sagði að tollahækk- unin mundi ná til bolfisks, sem keyptur væri frá íslandi, Kanada og Noregi. Hann sagði að innflutningur fisks til Bretlands hefði aukizt um 59% á fyrstu þremur mánuðum þessa árs. Framkvæmdanefnd EBE getur við vissar aðstæður gripið til verndarað- gerða í þágu tiltekinna atvinnugreina án þess að leita samþykktar aðildarríkjanna. Provan sagðist hins vegar búast við því að haft yrði samráð viö ríkisstjórnir aðildarríkjanna áður en framkvæmdanefndin gæfi þinginu skýrslu um málið í júní. Kemur á óvart og tek fréttiiuii með fyrirvara — segir Þórhallur Ásgeirsson í FRAMHALDI af þessari frétt AP-fréttastofunnar sneri Mbl. sér til Þórhalls Ásgeirs- sonar ráðuneytisstjóra í við- skiptaráðuneytinu. Sagði Þórhallur að þessi frétt kæmi sér mjög á óvart og hann tæki henni með fyrirvara. Hann sagðist ekkert hafa heyrt um efni þessarar fréttar áður og sagðist því vilja bíða með umsögn sína þar til hann hefði heyrt nánar um þetta. Þórhallur sagðist telja óeðli- legt, að þingið í Strasbourg skyldi koma með slíkar tillögur og það væri ekki ákvörðunarað- ili. Fréttin um hvernig fisk væri átt við væri óljós og ekki kæmi fram hyort átt væri við frystan fisk eða ísaðan. Ef um ákveðið lágmarksverð væri að ræða eða viðmiðunarverð væri ekki um alvarlegt mál að ræða því íslenzkar afurðir hefðu ver- ið seldar talsvert fyrir ofan lágmarksverð. Um 15% toll sagði Þórhallur, að hann sæi ekki hvernig annar aðilinn gæti tekið einhliða ákvörðun um slíkt, það væri brot á samning- um. Hluti stúdentanna sem útskrifuðust frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, Fjölbrautaskólinn í Breiðholti: 47 nýstúdentar útskrifaðir Frá uppsogn Fjölbrautaskólans i Breiðholti í Bústaðakirkju í gær. 125 NEMENDUR tóku próf frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti í ár en skólanum var sagt upp í gær. 47 stúdentar útskrifuðust frá skólanum en auk þess 43 stúdentar sem stundað hafa nám í Ármúlaskólanum. 19 stúdentar útskrifuðust af almennri bóknámsbraut, 6 af heilbrigðissviði, 2 af hús- stjórnarbraut, 3 af lista- sviði, 2 af tæknisviði, 1 af uppeldissviði og 13 af við- skiptabraut. Hæstu einkunn á stúdentsprófi hlutu Svandís Sverrisdóttir sem útskrifaðist af tæknibraut og hlaut 185 einingar og 447 stig og Ólafur Gíslason sem útskrifaðist af al- mennri bóknámsbraut og hlaut 143 einingar og 410 stig. Þá útskrifuðust frá Fjöl- brautaskólanum í Breiðholti 29 nemendur af 3ja ára braut, 13 tóku sérhæft versl- unarpróf, 10 luku sveins- prófi, 7 í rafvirkjun og 3 í húsasmíði en 6 luku námi á matvælabraut hússtjórnar- sviðs og eru það þeir fyrstu sem ljúka því prófi og kallast matartæknar. Þó eiga fjórir nemendanna eftir hluta af verklega náminu. 34 nemendur útskrifuðust af 2ja ára námsbraut, 25 tóku almennt verslunarpróf á viðskiptasviði, 3 luku grunnnámi á myndlista- og handíðabraut listasviðs og 6 nemendur luku grunnnámi á uppeldissviði á fóstru- og þroskaþjálfabraut. 8 nem- endur luku prófi af eins árs brautum, 7 af matvælabraut, 1 á hússtjórnarsviði og 1 lauk grunnnámsbraut raf- iðna. Þá lauk einn nemandi 4 ára námi á listasviði án þess að taka stúdentspróf. Stúdentarnir 69 sem útskrifuðust frá Menntaskólanum í Kópavogi í gær. LjóHm. Kristinn. 69 nýstúdentar f rá Menntaskólanum í MENNTASKÓLANUM í Kópavogi var slitið í gær í Kópavogskirkju og útskrif- uðust 69 nýstúdentar. Hæstu einkunn hlaut Þór- unn Guðmundsdóttir en hún tók próf úr máladeild. Illaut hún einkunnina 9,2. Við skólaslitin var frum- flutt kórverk eftir Guðstein Ólafsson nemanda í öðrum bekk M.K. og stjórnaði hann sjálfur flutningnum. Kór Menntaskólans flutti verkið ásamt 14 manna strengjasveit úr Tónlistar- skóla Reykjavíkur en ein- söngvari var einn kennara skólans. 181 stúdent útskrifað- ist frá M.S. MENNTASKÓLANUM við Sund var sagt upp sl. föstu- dag og 181 stúdent útskrif- aður. Hæstu einkunn á stúd- entsprófi hlaut Sigríður Árnadóttir af náttúrufræði- sviði, einkunnina 9,0. Af málakjörsviði útskrifuð- ust 29 stúdentar, Hulda Hjartardóttir og Þórey Frið- björnsdóttir hlutu báðar 8,6 sem var hæsta einkunnin á því sviði. Af félagssviði mála- deildar útskrifuðust 48 stúd- entar, hæstu einkunn hlaut Ásrún Rudolfsdóttir, af fé- lagssviði stærðfræðideildar útskrifuðust 24, Kristín Jóns- dóttir hlaut hæstu einkunn, 8,3, af náttúrufræðisviði út- skrifuðust 52 stúdentar og hlaut Sigríður Árnadóttir þar hæstu einkunn eins og áður hefur komið fram, og af eðlis- fræðisviði útskrifuðust 28 stúdentar en þar hlaut Sig- mundur Guðmundsson hæstu einkunnina, 8,9.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.