Morgunblaðið - 24.05.1980, Page 45

Morgunblaðið - 24.05.1980, Page 45
HVAÐ ER AÐ GERAST UM HELGINA? MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ1980 45 Selfoss: Málverkasýning í Saínahúsinu ELFAR bórðarson frá Stokkseyri opnar málverkasýningu í Safna- húsinu á Selfossi i dag, laugardag- inn 24, maí kl. 14. Þetta er 6. einkasýning Elfars en auk þess hefur hann tekið þátt i nokkrum samsýningum. Á sýningunni á Selfossi verða 52 olíu-, vatnslita- og pastelmyndir og eru þær allar málaðar á síðustu 2 árum. Sýningin verður opin til 1. júní kl. 20—22 virka daga en kl. 14—22 um helgar. Elfar Þórðarson við nokkrar mynda sinna. X § s5 ;T. f? : ;t § ’ g f t * * A si«A m ■ 1 4 • * r-; *§ í i; w • f r r r ' , ■ fe ^ 1 , n « Skagfirzka Söngsveitin. Tónleikar: Skagíirska söngsveitin syngur í Austurbæjarbíói Eyjar: Steinunn sýnir leirmuni STEINUNN Marteinsdóttir leir- kerasmiður opnar sýningu á list- munum úr leir í Akogeshúsinu í Vestmannaeyjum laugardaginn 24. maí kl. 4. Mun sýningin standa yfir til n.k. mánudagskvölds. ÁRLEGIR vortónleikar Skagfirzku söngsveitar- innar verða að þessu sinni haldnir í Austurbæjarbíói miðvikudaginn 28. maí kl. 19. Á efnisskrá eru m.a. lög eftir tónskáldin Pál ísólfsson, Skúla Halldórsson, Sigfús Halldórsson, Franz Schubert, Jóhann Strauss auk þjóðlaga frá ýmsum löndum. Frumflutt er lag eftir Skúla Halldórsson við ljóð Þuríðar Kristjánsdóttur, sem þau tileinka söngsveitinni sérstaklega. Skagfirzka söngsveitin fer norð- ur í Skagafjörð um mánaðamótin og heldur þar þrenna tónleika: í Höfðaborg, — Hofsósi föstudag- inn 30. maí kl. 21, Bifröst, Sauð- árkróki laugardaginn 31. maí kl. 15 og Miðgarði sama dag kl. 21. Eftir samsönginn þar verður svo dansleikur. Söngsveitin er nú að vinna að útgáfu nýrrar hljómplötu, sem væntanleg er á markaðinn bráð- lega. Frú Snæbjörg Snæbjarnar- dóttir er stjórnandi kórsins og Ólafur Vignir Albertsson leikur með á píanó. I Skagfirzku söngsveitinni eru 60 félagar. Formaður kórsins er Rögnvaldur H. Haraldsson. Snæbjörg Snæbjarnardóttir, söng- stjóri. Orgelverk eftir Bach DR. Orthulf Prunner endurtekur orgeltónleika sína á annan í hvítasunnu, mánudaginn 26. maí kl. 20.30 í Háteigskirkju. Á efn- isskrá eru eingöngu orgelverk eftir J.S. Bach, Toccata, Adagio og Fúga í C-dúr, Choralfantasia: I dauðans böndum drottinn lá, Tríó- sónata í C-dúr, Sálmaforleikur: Guð miskunni nú öllum oss, Pass- acgila og Fúga í C-moll. Allur ágóði af tónleikunum rennur til styrktar kaupum á altaristöflu í Háteigskirkju. Myndlist: Sýning í Djúpinu BRESKI listamaðurinn Miles Parnell opnar sýningu á verkum sinum i Gallerí Djúpinu laugar- daginn 24. mai, en sýningin verð- ur opin daglega til 4. júni, frá 10 til 23.30. Miles Parnell er frá Windsor í Englandi og stundaði nám við listaskólana St. Martins og Leicest- er. Hann kenndi við listaskóla í Nottingham að námi loknu og vann einnig sem sjálfstæður teiknari í London. Hér hefur hann dvalist í fjögur ár og unnið á auglýsinga- stofum. Þessi sýning er sú þriðja sem Miles Parnell heldur hér á landi og að þessu sinni sýnir hann eingöngu myndir úr dýraríkinu. í myndum sínum notar hann blandaða tækni, litað blek, vatnsliti, gowache og litblýanta. Miles Parnell við eitt verka sinna. Ljósm. Mbl. Kristján. Tónleikar: Kórarnir þrír á æfingu sl. föstudag. Ljósm. Kristinn. Samsöngur barna- og unglingakóra ÞRÍR barna- og ungl- ingakórar halda samsöng í Háskólabíói laugardaginn 24. maí kl. 14. Kórarnir eru Kór Hvassaleit- isskóla, stjórnandi Herdís Oddsdóttir, Kór Mýrarhúsaskóla, stjórnandi Hlín Torfadóttir og Skólakór Garðabæjar, stjórnandi Guðfinna Dóra Ólafsdóttir. Um það bil 150 börn og unglingar á aldrinum 7-rl6 ára koma fram á tónleikunum. Píanóleikari verður Jónína Gísladóttir. Með samsöng þessum er verið að koma á kynnum milli hluta þeirra ungmenna sem leggja á sig mikla vinnu við að þjálfa söng- raddir sínar við iðkun tónlistar. Til þess að tengjast betur syngja kórarnir stóran hluta efnisskrár- innar saman. Kórarnir dvöldu í æfingabúðum austur að Flúðum í Gnúpverjahreppi helgina 2.-4. maí sl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.