Morgunblaðið - 24.05.1980, Page 46

Morgunblaðið - 24.05.1980, Page 46
46 Norðmenn unnu Búlgari NORÐMENN unnu athyglis- verðan og góðan sigur á Búlgörum í landsleik í knattspyrnu sem íram fór í Ósló i fyrrakvöld. Paul Jak- obsen skoraði sigurmark Norðmanna á 35. mínútu, spyrnti þéttingsfast í netið af 12 metra færi. Búlgarir þóttu lélegir í leiknum. Vilmundur Vilhjálmsson. Vilmundur ekki með í sumar „ÉG verð ekki með í keppn- um i sumar. Þú mátt hafa það eftir mér,“ sagði frjáls- íþróttamaðurinn Vilmundur Vilhjálmsson KR í samtali við Morgunblaðið í vikunni, en hann hefur dvalið við æfingar og keppni í San Jose í Kaliforníu frá því i janúar. Vilmundur, sem verið hef- ur fremsti spretthlaupari íslendinga um áraraðir, varð fyrir slæmum meiðsl- um i Kaliforníu í vetur. llefur hann verið í meðferð hjá miklum sérfræðingum vestra og er á batavegi. Hann hefur þó ákveðið að keppa ekki i sumar á hlaupabrautinni, heldur fá sig góðan af meiðslunum, og reyna þá að taka til við æfingar næsta haust. Sjón- arsviptir er að þessum skemmtilega keppnismanni. — ágás. Óskar og Friörik atkvæöamiklir ÓSKAR Jakobsson ÍR var atkvæðamikill fyrir skóla sinn í Austin i Texas á svæðismeistaramóti banda- riskra háskóla í frjáls- íþróttum um fyrri helgi. óskar varð númer tvö i kúluvarpi með 19,57 metra, sem er hans næstbezti ár- angur, og sló hann næst bezta kúluvarpara Banda- rikjanna, Mike Carter, við. í kringlukasti varð Óskar einnig i öðru sæti með 59,80 metra, og þá kastaði hann spjótinu einu sinni og lenti einnig þar í öðru sæti, kastaði 69,00 metra. Skólabróðir óskars, Frið- rik I>ór óskarsson ÍR, varð framarlega í langstökki og þristökki, stökk 7,05 metra í langstdkki og 15,07 metra í þristökki. Ilin ágæta frammistaða óskars og Friðriks dugði þó ekki til, þar sem skóli þeirra varð í öðru sæti i stigakeppninni. Skólinn vann keppnina í fyrra. — ágás. MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ1980 Dan Halldórsson er að verða einn af bestu kylfingum í Ameríku Tíu ár eru liðin frá því Dan Halldorson sigraði í Meistarakeppni unglinga i Manitoba í Kanada, þá aðeins 17 ára. Nokkru síðar tók hann þátt í opna unglingamótinu í Kanada, en þá gekk honum illa. Hann meiddist smávegis og það háði honum í keppninni, og hann lék illa. Þetta gramdist honum mjög, og hann var svo miður sín við heimkomuna að hann hét því að spila aldrei golf framar. Og hann lét ekki standa við orðin tóm heldur tók allar golfkylfurnar sínar og tróð á sköftunum á þeim, þar til þær voru ónýtar. Þremur vikum seinna fór hann með þær allar og lét setja á þær ný sköft. • Tekst Dan Halldórssyni að verða einn af þeim bestu? Dan Halldorson er, eins og nafnið bendir til, af íslenskum ættum. Hann fæddist í smábæ, Sandy Hook, sem er um það bil 70 kílómetra norður af Winnipeg, og skammt suður af Gimli, og stend- ur við Winnipegvatn suðvestan- vert. Faðir hans var umsjónar- maður á golfvellinum í plássinu. Þótt ekki væru þarna nema fá hús, þá var þar auðvitað golfvöllur, það má heita aumt þorp í Kanada, sem ekki getur státað af að minnsta kosti einum níu holu golfvelli. Dan var ekki nema sex ára gamall, þegar hann fór að slá golfbolta á blettinum fyrir framan hús fjölskyldunnar, og níu ára gamall var hann farinn að keppa við stráka, sem komu alla leið frá Winnipeg. Um þetta leyti fluttist fjölskyld- an til Brandon, sem er 35 þúsund manna bær um það bil 200 km fyrir vestan Winnipeg. Rauðhærði freknótti strákurinn frá Sandy Hook hafði ekki náð fermingar- aldri, þegar hann hafði fengið orð fyrir að slá golfkúlu lengra en allir aðrir strákar í bænum. Stefna boltans var kannski ekki alltaf alveg eins og hún hafði verið hugsuð, og lappirnar á stráknum snerust ekki alveg eins og þegar alvörukylfingar voru að verki, en það voru smámunir hjá því að geta slegið golfkúluna allt að fjögur hundruð metra vegalengd í einu höggi. Dan gerist atvinnumaður Árið 1975 ákvað Dan Halldor- son að reyna fyrir sér í Bandaríkj- unum, og freista þess að komast í keppni með atvinnumönnum. Það er ekki hlaupið að því, og margir eru þeir kylfingarnir sem gjarnan vilja vera með í keppninni um dollarana og frægðina. Á hverjum degi stilla þeir sér upp á golfvöll- um um gjörvöll Bandaríkin í von um að ná góðum árangri, og á hverjum mánudegi er á vegum Frjálsíþrótta- fölk til Englands STÓR hópur ungs frjálsíþrótta- fólks úr Reykjavíkurfélögunum ÍR og Ármanni heldur í lok maímánaðar til Englands til æf- inga og keppni. Dvelur íþrótta- fólkið ytra fram í miðjan júní, eða í rúmlega tvær vikur. Rúm- lega 30 manns taka þátt í þessum ferðum ÍR-ingar halda 27. maí til borg- arinnar Durham í norðaustur- hluta Englands, en 15 kílómetra þar frá er Gateshead, ein helzta miðstöð brezkra frjálsíþrótta í dag. Fyrir ÍR-hópnum verða þeir Guðmundur Þórarinsson þjálfari ÍR-inga, og Ágúst Ásgeirsson, en alls verða í ferðinni 18 einstakl- ingar. Ármenningarnir halda utan 31. maí, að sögn Stefáns Jóhannsson- ar þjálfara hjá Ármanni. Verður dvalið í Birmingham í miðhluta Englands. Stefán verður fýrir Ármannshópnum, en alls verða í ferðinni um 15 einstaklingar. Golfsambands atvinnumanna (PGA) háð 18 holu keppni, sem um hundrað kylfingar taka að jafnaði þátt í hverju sinni, og fimm til sex bestu þeirra fá rétt til þess að vera með í næstu keppni atvinnumann- anna. Raunar er þetta flóknara en lítur út hér að framan, en gefur ef til vill nokkra hugmynd um hina gífurlegu samkeppni, sem ríkir meðal fremstu kylfinga Ameríku. Flestir reyna þessir menn að fá fyrirtæki, eða einstaklinga til þess að borga með sér, en stundum verða þeir að gera það sjálfir. Og þetta er dýrt spaug. Margir þeirra verða að ferðast langar dagleiðir á milli golfvalla til þess að geta tekið þátt í þeim mótum, sem mestur akkur er í. Þá búa þeir gjarnan í bílunum sínum og lifa á ódýrasta fæði, sem hægt er að fá, skítafæði (junk-food). Engu að síður er kostnaður þeirra allhár, með þátttökugjöldum o.fl. getur hann hæglega orðið um þúsund dollarar á viku, eða fast að hálfri milljón króna. Og það eru ekki margir, sem halda það út lengi, ef ekkert kemur tekjumegin í lífinu. Dan Halldorson Dan komst í keppni atvinnu- mannanna árið 1975, en strax árið eftir missti hann réttindin. Ástæðan var einföld, — hann var ekki nógu góður. Hann þurfti meiri reynslu. Til þess að spjara sig í keppni atvinnumanna í golfi, og til þess að vinna peningaverðlaun, þá þarf að spila snilldarlega, og til þess að bera sigur úr býtum í slíkri keppni þarf að leika óaðfinnanlega. Dan hefur nú öðlast meiri reynslu, en það sem talið er mest um vert fyrir hann er það, að hann hefur nú öðlast trú á sjálfan sig, — hann hefur á því bjargfasta trú, að sér eigi eftir að takast að bera sigur úr býtum í einu af mestu mótum þeirra atvinnukylfing- anna. Og það var einmitt þetta, sem var talið standa honum fyrir þrifum, hann hafði ekki nógu mikla trú á sjálfum sér. Dan Halldorson er rólegur maður að eðlisfari, og hann lætur sjaldan tilfinningar sínar í ljós. Strákurinn, sem einu sinni traðk- aði á golfkylfunum sínum, sýnir varla svipbrigði í keppni, hvort heldur honum gengur vel eða illa. Einn af hans sterku eiginleikum í keppni er þolinmæði, sem hann segist hafa lært á golfferð í Austurlöndum. Golfklúbbarnir Sumir golfklúbbarnir í Ameríku eru svo fínir og snobbaðir, að það er ekki nema á ríkra manna færi að nálgast þá. Á vegum þessara klúbba er svo efnt til keppni atvinnumannanna, og eru þá pen- ingaverðlaunin oftast ofurháar upphæðir. Aðkomumenn, sem vilja fylgjast með keppninni á staðnum, þurfa venjulega að aka um sérstök hlið, t.d. á Harbor Town golfvellinum, þar sem ör- yggisverðir gera skyldu sína, síðan þarf sérstakt leyfi til þess að fara af bílastæðunum á golfsvæðið, og ef einhvern skyldi langa inní klúbbhúsið, þá þarf hinn sami að eiga slatta af seðlum. Annars eru atvinnumennirnir ekkert sérstaklega hrifnir af því að keppa á svona stöðum. Allt um kring eru uppstrílaðir spjátrungar af báðum kynjum, íklædd nýjustu golftískunni, peysum með litla krókódílsmerkinu vinstra megin í barminum. Allir eru með bourbon. Og það vappar um í klúbbhúsinu og þar fyrir utan. Síðan fara flestir í humátt á eftir keppendun- um, og þegar líða tekur á daginn og keppnina, er venjulega margt áhorfenda við þrjár síðustu hol- urnar. Flestir orðnir vel hífaðir og byrjaðir að drekka bjór. Og þá er það venjulega sem aðalvandræðin „NÚ GETUR maður sagt að keppnisformið sé að koma. Ég vonast til að ógna íslandsmetinu eftir nokkrar vikur,„ sagði Gunn- ar Páll Jóakimsson frjálsíþrótta- maður úr ÍR í spjalli við Mbl. í gær, en í vikunni náði hann sinum bezta árangri í 800 metra hlaupi í rösk tvö ár, hljóp á 1:51,1 m°>Au. Bezti árangur Gunnars er 1:50,2 minútur. Gunnar Páll náði þessum ár- angri í keppni í borginni Modesto í Kaliforníu á miklu frjálsíþrótta- móti, þar sem viðstaddir voru tugir þúsunda áhorfenda. Kúlu- varparinn Brian Oldfield varpaði 21,61 metra á móti þessu og Mac Wilkins, fyrrum heimsmethafi í kringlukasti, kastaði 69,74 metra í kringlukasti. Þá var gerð hörð byrja hjá keppendunum. Áhorf- endur eiga það nefnilega til, og það ekki sjaldan, að veðja á drævið (upphafshöggin) hjá þeim. Og háreystin fer ekki framhjá keppendunum, og truflar þá auð- vitað, sem reyndar er ekki það alversta, því oft hefur það komið fyrir, að þeir, sem tapa veðmálun- um láta það bitna á keppendunum, meðal annars með því að grýta þá með bjórdósum. Það kemur sem betur fer ekki oft fyrir að slys verða vegna þessa, og enda þótt svona komi ekki fyrir í hverri keppni, þá er hér um að ræða vandamál í Ameríku. Tekst Dan Halldorson að verða meðal þeirra bestu? Eða er hann e.t.v. þegar orðinn það? Hann tók þátt í opnu móti fyrir skömmu, Joe Garagiola Tuc- son Open. Þar lék hann af mikilli snilld og var sigurstranglegur allt til loka, en varð að láta sér nægja annað sætið á eftir kappanum Jim Colbert. Önnur verðlaun Dan’s námu 32 þúsund dollurum. Markmið hans nú er að vinna sér inn að minnsta kosti 70 þúsund dollara á þessu ári, og takist honum það, þá þarf hann ekki á næsta ári að keppa um réttindi til að vera með í aðalkeppni atvinnu- mannanna. Strákurinn frá Sandy Hook, Halldórssonurinn frá íslandi, hef- ur þegar skráð nafn sitt á lista með fremstu golfsnillingum Am- eríku, og þótt víðar væri leitað. Spurningin er aðeins, hvort þetta nafn verður skráð með gullnu letri í nánustu framtíð. já. atlaga að heimsmetinu í stang- arstökki á móti þessu, en það stóðst átökin. Tveir beztu 800 metra hlauparar Bandaríkjanna undanfarin ár Mark Enyart og James Robinson urðu í öðru og þriðja sæti í 800 m hlaupinu, hlupu á 1:48,2 og 1:48,4 mínútum, en hlaupið vannst á 1:48,1 mínútu. Robinson hefur m.a. unnið sér það til frægðar að verða fyrstur til að sigra Kúbu- manninn Juantorena í 800 metra hlaupi eftir Ólympíuleikana í Montreal, en það afrek vann hann í fyrra. Gunnar Páll hefur dvalist við æfingar og keppni í San Jose í Kaliforníu frá því 10. janúar síðastliðinn. Hann kemur til Islands um miðjan júnímánuð. — ágás. Gott 800 m hlaup hjá Gunnari Páli

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.