Morgunblaðið - 24.05.1980, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1980
47
r
i
r,
Landsliðshópurinn valinn
Teitur fékk ekki
leyfi hjá Öster
Við munum hefja undirbúninginn fyrir landsleikinn við Wales
núna um helgina sagði Guðni Kjartansson landsliðsþjálfari er Mbl.
ræddi við hann í gær i tilefni þess að landsliðsnefnd KSÍ var að
tilkynna þá 22 leikmenn sem valdir voru vegna leiksins. — Ég reikna
með því að við munum hefja leikinn á leikaðferðinni 4—4—2 sagði
Guðni. Við verðum að spila leikinn eins og styrkleiki okkar leyfir.
Verðum að reyna að leika sterkan sóknarleik þegar við höfum
knöttinn, og jafnframt að reyna að vera fleiri í vörninni en
sóknarleikmenn Wales þegar þeir sækja. Guðni var spurður að því af
hverju Teitur Þórðarson væri ekki í hópnum.
— Teitur fékk ekki leyfi frá
félagi sínu Öster. Teitur hafði
mikinn áhuga á því að koma í
leikinn, en þar sem hann á að leika
með öster tveimur dögum eftir
landsleikinn sagði þjálfari hans
þvert nei. Teitur á vonandi eftir að
koma inn í landsliðshópinn seinna
í sumar, sagði Guðni.
Þá mun vera óvíst hvort Ásgeir
Sigurvinsson geti leikið á móti
Wales. Takist liði hans Standard
að komast í úrslitaleik belgísku
bikarkeppninnar verður Ásgeir
ekki með. Hinsvegar munu Arnór
Guðjohnsen, Pétur Pétursson,
Janus Guðlaugsson og Karl Þórð-
arson mæta í landsleikinn. Eru
þeir allir væntanlegir til landsins
29. maí og munu æfa með hópnum
fram að landsleiknum. Janus hef-
ur átt við meiðsli að stríða að
undanförnu en er nú orðinn góður.
Til gamans skulum við stilla upp
hugsanlegu byrjunarliði á móti
Wales. Markvörður verður Þor-
steinn ólafsson, í öftustu vörn
verða Janus Guðlaugsson, Mar-
teinn Geirsson, Sigurður Hall-
dórsson, og Sævar Jónsson eða
Trausti Haraldsson. Á miðjunni
ieika Ásgeir Sigurvinsson, Atli
Eðvaldsson, Guðmundur Þor-
björnsson og Karl Þórðarson og í
framlínunni verða þeir Pétur Pét-
ursson og Arnór Guðjohnsen.
Verði Ásgeir ekki með er hugsan-
legt að Olafur Júlíusson eða Al-
bert Guðmundsson komi inn í
byrjunarliðið í hans stað.
Eftirtaldir 22 leikmenn hafa verið valdir vegna leiksins gegn WALES
2. júni n.k.
1. Þorsteinn ólafsson Gautaborg
2. Bjarni Sigurðsson ÍA
3. Guðmundur Baldursson Fram
4. Trausti Haraldsson Fram
5. Sævar Jónsson Valur
6. Marteinn Geirsson Fram
7. Dýri Guðmundsson Valur
8. Sigurður Halldórsson ÍA
9. Janus Guðlaugsson Fortuna Köln
10. Atli Eðvaldsson Valur
11. Ásgeir Sigurvinsson Standard Liege
12. Arnór Guðjohnsen Lokeren
13. Karl Þórðarson La Louviere
14. Ólafur Júlíusson ÍBK
15. Árni Sveinsson ÍA
16. Pétur Pétursson Feyenoord
17. Guðmundur Þorbjörnsson Valur
18. Sigurlás Þorleifsson ÍBV
19. Albert Guðmundsson Valur
20. Kristján B. Olgeirsson ÍA
21. Pétur Ormslev Fram
22. óskar Færseth ÍBK þr.
Hefur sigrað
í 40 hlaupa-
keppnum í röð
W
Englendingurinn Sebastian
Coe heimsmethafi i 800 m, 1500 m
og miluhlaupi keppti i fyrsta
sinn á sumrinu í fyrrakvöld og
keppti þá i 800 metra hlaupi.
Sigraði Coe auðveldlega á timan-
um 1.48,1 min. Coe hafði ætlað
sér að keppa í miluhlaupi en
hætti við á siðustu stundu til þess
að þurfa ekki að keppa á móti
helsta andstæðigi sinum Steve
Ovett. Ég er að undirbúa mig
undir ólympiuleikana og er ekki
tilbúinn til þess að fara út í
hörkukeppni á þessu stigi sagði
Coe. Ovett sigraði auðveldlega i
miluhlaupinu á 4.00,6 mín. Ovett
hafði i fyrra sumar sigrað í
miluhlaupi á sama velli á timan
um 3.49,6 og var nálægt þvi a<
taka heimsmetið af Coe. Ei
heimsmet Coe i 800 metrunum e:
1:42,4 í 1500 m 3.32,03 og
milunni 3.49,0 min.
Hlaup Steve Ovett var þ
merkilegt þrátt fyrir slakan tím
á hans mælikvarða. Þetta var 4C
hlaup Ovett í röð án þess að ham
tapaði. Og er það heimsmet út a
fyrir sig í þessum greinuir
Gamla metið 39 hlaup i röð átl
Ástraliumaðurinn Herb Elliot
sem var besti millivegalengdai
hlaupari áranna i kring um 196<
til '65.
íslandsmótið í knattspyrnu:
Stórleikir á
hverju strái
ÞAÐ verður nóg að gera i
knattspyrnunni um helgina, þó
svo að sjálfur Hvitasunnudagur-
inn verði rólegur. í dag, laugar-
dag, fara fram tveir leikir i 1.
deild, auk þriggja i 2. deild. Þá
má einnig geta þess, að 3. deildin
fer heldur betur af stað með 7
leiki í dag.
ÍBV og í A leiða saman hesta- ’
sína í Eyjum klukkan 14.00, þ.e.
a.s., ef flugfært verður til Eyja.
Þetta ætti að verða tvísýnn leikur
íslandsmeistara síðasta árs og
liðsins sem varð í öðru sæti. Á
Laugardalsvelli mætast Þróttur
og Fram, hefst leikurinn einnig
klukkan 14.00.
í 2. deild eigast við í dag Haukar
og Fylkir á Kaplakrikaveili klukk-
Laugardagur:
an 14.00, Völsungur og Austri á
Húsavík klukkan 15.00 og Þróttur
og ísafjörður á Norðfirði klukkan
14.00.
Á mánudaginn leika í 1. deild
ÍBK og KR á Keflavíkurvelli og
hefst leikurinn klukkan 16.00.
KR-ingar hafa enn ekki hlotið stig
í mótinu og það sem meira er, liðið
hefur enn ekki skorað mark. Má
því búast við hörkuviðureign, því
með sigri, eiga heimamenn alla
möguleika á því að vera með í
baráttunni um efsta sætið.
Valur og Breiðablik leika síðan
á Laugardalsvelli á þriðjudags-
kvöldið klukkan 20.00 og ætti það
að geta orðið hin skemmtilegasta
viðureign, tvö léttleikandi lið. Að
lokum skulum við renna yfir þá
leiki sem á dagskrá eru í 3. deild.
A-riðill Fellavöllur Leiknir—Léttir kl. 16.00
A-riðiIl Vikurvöllur Katla—óðinn kl. 16.00
A-riðilI Kópavogsvöllur ÍK — Hekla kl. 16.00
B-riðill Gróttuvöllur Grótta-UMFA kl. 16.00
B-riðiIl Hveragerði Hveragerði—Stjarnan kl. 16.00
C-riðill ólafsvík Vikingur 01—Reynir H kl. 16.00
Þórdís felldi
1,85 naumlega
„ÞÓRDÍS var óheppin að hækkað
var úr 1,80 metrum í 1,85, því
hefði ráin verið á 1,83 eða 1,84
hefði hún farið yfir, svo naum-
lega felldi hún 1,85,“ sagði Gunn-
ar Páll Jóakimsson ÍR í spjalli
við Mbl. í vikunni, en á móti í
Kaliforníu í vikunni jafnaði
Þórdís Gisladóttir ÍR íslandsmet
sitt i hástökki, 1,80 metra, og var
mjög nálægt því að bæta það um
fimm sentimetra og stökkva 1,85
metra, sem er hinn frambæri-
legasti árangur á alþjóðlegum
mælikvarða.
Gunnar sagði að Þórdís hefði
átt’ góðar tilraunir við 1,85, og
kæmi það sér ekki á óvart þótt
hún stykki þá hæð í hástökkinu í
sumar. Þórdís hefur frá því i
október dvalist við æfingar og
keppni fyrir vestan haf, fyrst í
grennd við Toronto í Kanada, eh í
byrjun marz hélt hún til San Jose
í Kaliforníu.
Þórdís er væntanleg
til landsins um miðjan næsta
mánuð.
— ágás.
• Þórdis Gisladóttir i keppni.