Morgunblaðið - 12.06.1980, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ1980
25
Listahátíð:
L.A. sýnir Beðið
eftir Godot í Iðnó
Einn færeysku rækjutojfaranna, sem stunda veiðar á Dohrnbanka. Ljósm. Mbl. Tómas Helgason.
Þrjú íslenzk skip á djúp-
rækjuveiðum á Dohrnbanka
LEIKFÉLAG Akureyrar mun
sýna leikritið Beðið eftir Godot
eftir Samuel Beckett i Iðnó dag-
ana 13., 15. og 16. þ.m. Sýningar
þessar eru á vegum Listahátíðar
og er uppselt á þær allar. Leikfé-
LKwm Mbl. KrÍHtinn
Oddur Bjðrnsson, leikstjóri og
Svanhildur Jóhannesdóttir, að-
stoðarmaður leikstjóra.
laginu hefur verið boðið til ír-
lands 1,—9. ágúst og mun það
sýna leikritið á Becketthátið i
Cork.
Leikritið Beðið eftir Godot var
sýnt af Leikfélagi Reykjavíkur í
Iðnó 1960. Einn leikaranna á
þeirri sýningu, Árni Tryggvason,
leikur með Leikfélagi Ákureyrar
nú og fer hann með sama hlut-
verk, Estragon. Aðrir leikendur
eru Bjarni Steingrímsson, Viðar
Eggertsson, Theodór Júlíusson og
Laurent Jónsson. Leikstjóri er
Oddur Björnsson, leikhússtjóri
Leikfélags Akureyrar. Svanhildur
Jóhannesdóttir hefur umsjón bún-
inga með höndum en er jafnframt
aðstoðarmaður leikstjóra.
Oddur Björnsson, leikstjóri,
segir að uppfærsla leikritsins að
þessu sinni sé mjög með öðrum
hætti en hjá Leikfélagi Reykjavík-
ur á sínum tíma. í formála
leikskrár eftir Odd segir m.a. um
leikritið: „Um leikritið Beðið eftir
Fyrirlestrar
um hugleiðslu
KVENJÓGINN Ac Maniisha er nú
staddur hérlendis á vegum Systra-
samtaka Ananda Marga. Mun
hann ferðast um landið og halda
fyrirlestra um hugleiðslu. Verður
fyrsti fyrirlesturinn á fimmtudag
að Aðalstræti 16 kl. 20.30, en síðan
mun hann flytja fyrirlestra á
Akureyri, Húsavík, Egilsstöðum,
Seyðisfirði, Norðfirði, Höfn og Vík
í Mýrdal.
Nýr formaður
kjörinn hjá
Ljósmæðra-
félaginu
AÐALFUNDUR Ljósmæðrafé-
lags íslands var haldinn 18. maí
s.l. að Hótel Esju.
Steinunn Finnbogadóttir lét af
formannsstörfum eftir níu ára
forystu, og er hinn nýkjörni for-
maður Vilborg Einarsdóttir.
Á næsta ári er áætlað að
stéttartal Ljósmæðra komi út, og
nefnist það „Ljósmæður á ís-
landi". Spannar þetta tal yfir árin
1761 til 1979, eða allt frá fyrstu
lærðu ljósmóðurinni. Fræðslu-
fundur var haldinn í tengslum við
aðalfundinn um „Mæðravernd á
íslandi".
Godot hef ég fátt eitt að segja
utan það sem fram kemur í
þessari sýningu. Ég vildi þó leggja
áherslu á að leikurinn snýst fyrst
og fremst um biðina. Hann endur-
speglar umkomuleysi mannlegrar
tilveru í guðlausum heimi. Við
bíðum eftir Godot, bíðum í von-
inni um að hann komi á morgun
... Verkið er m.ö.o. orðið til úr
trúarlegum hugsunarhætti, þótt
við blasi blákaldur „existensjal-
ismi“ tilveru sem endist varla
meira en heilasóla. — Samt eru
áhrif þessa verks jákvæð.
I þessari sýningu höfum við
reynt að forðast að þröngva fram
skoðunum eða persónulegum
skilningi. Við höfum unnið út frá
því sem við höfum fundið í
textanum, sem hefur reyndar —
burt séð frá árangrinum — verið
uppspretta óþrjótandi rökræðu og
hugmynda. Leikurinn er fullur af
músik, ljóði og látbragði í anda
þeirra gömlu meistara komedí-
unnar. Raunar er heildarbygging
verksins meira í ætt við sinfónisk-
an strúktúr en hefðbundna
dramatiska uppbyggingu."
ÞRJÚ islenzk skip stunda um
þessar mundir djúprækjuveiðar á
Dohrnbanka rétt um 120 sjómil-
ur vestur af Bjargi, Dalborg EA,
Skarðsvik SH og Bjarni ólafsson
AK.
Að sögn Guðmundar Kjærne-
sted skipherra í stjórnstöð Land-
helgisgæzlunnar eru íslenzku
skipin við veiðar rétt við miðlín-
una milli íslands og Grænlands.
Hafa þau lent í nokkrum erfiðleik-
um vegna ísreks. Afli hefur verið
þokkalegur en beztu rækjumiðin
eru Grænlandsmegin við miðlín-
una, en á því svæði er íslenzku
skipunum ekki heimilt að veiða.
Þar eru nú 16—17 færeysk og
dönsk skip á veiðum og hafa þau
véitt allvel.
fylgismanna
Alberts Guömundssonar
og
Brynhildar Jóhannsdóttur
viö forsetakjöriö
veröur haldinn í
íþróttahúsinu,
Selfossi
fimmtud. 12. júní
kl. 21.00.
Fundarstjóri:
Brynleifur Steingrímsson héraöslæknir.
Sigfus Halldórsson skemmtir.
Avörp flytja:
Sigurður Sigurösson sóknarprestur Sel-
fossi, Þorsteinn Matthíasson frv. skóla-
stjóri Hveragerði, Siguröur Bjarnason
fangavöröur Eyrarbakka, Aðalheiður
Bjarnfreösdóttur form. Sóknar.
Frú Brynhildur Jóhannsdóttir
ávarpar fundinn.
Ræða:
Albert Guðmundsson alþm. forsetaframbjóðandi.
Lúðrasveit Selfoss leikur fyrir fundinn.
Allir velkomnir