Morgunblaðið - 22.06.1980, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ1980
51
Aðalfundur Sjóvá:
Um 55% hækkun
á rekstrarkostn-
aði f rá því í f yrra
AÐALFUNDUR Sjóvátrygginga-
félags íslands hf. hinn 61. frá
stofnun félagsins, var haldinn
föstudaginn 13. júni sl. Fundar-
stjóri var Benedikt Blöndal
hæstaréttarlögmaður og fundar-
ritari Hannes Þ. Sigurðsson
deildarstjóri.
Sigurður Jónsson, fram-
kvæmdastjóri félagsins, flutti
skýrslu stjórnar og gerði grein
fyrir reikningum og afkomu fé-
lagsins árið 1979. Afkoman var
góð í öllum vátryggingagreinum
öðrum en ökutækjatryggingu og
endurtryggingu.
Hagnaður af heildarstarfsemi
félagsins árið 1979 varð 62,4 millj.
Þá hefur aðstöðugjald, tekjuskatt-
ur o.fl„ að fjárhæð 95,4 millj. verið
fært til gjalda. Iðgjaldatekjur
ársins námu alls 4.545,3 millj. og
höfðu hækkað um 38% frá árinu
áður. Heildartjón ársins námu
4.268.8 millj, eða 47% meira en
árið áður. í árslok 1979 voru í
eigin tryggingasjóði og áhættu-
sjóði félagsins 4.147,6 millj. kr.
Eigið fé nam 632 millj. kr. þar með
talið hlutafé 310 millj. kr. Hækk-
un á eigin fé frá 1978 nemur 279,9
millj. kr.
Hjá félaginu vinna nú um 60
manns auk umboðsmanna um
land allt.
Stjórn félagsins skipa Benedikt
Hallgrímsson, forstjóri, Ingvar
Vilhjálmsson, forstjóri og Teitur
Finnbogason, fulltrúi.
Þá var einnig haldinn aðalfund-
ur líftryggingafélags Sjóvá hf„
sem er dótturfyrirtæki Sjóvá-
tryggingafélags Islands hf.
Þing norrænna
næringarfræð-
inga i Finnlandi
ANNAÐ þing norrænna nær-
ingarfræðinga var haldið í Hels-
inki, Finnlandi. dagana 16.—18.
júní sl. Voru þátttakendur frá
öllum Norðurlöndunum. Á þing-
inu voru erindi og umræður um
manneldishætti, undir stjórn dr.
Jóns óttars Ragnarssonar.
Mikil áhersla var lögð á, að
heilbrigðisyfirvöld mörkuðu
ákveðna stefnu í manneldismál-
um, í því skyni að bæta mataræði,
draga úr sjúkdómum, sem eiga
rætur að rekja til rangs mataræð-
is og stuðla að betri heilsu. Þriðja
þing norrænna næringarfræðinga
verður haldið árið 1984 í Noregi.
ÞU AUGLÝSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
SIMIW KU:
2248«
Iðgjaldatekjur líftryggingafé-
lagsins námu 88,2 millj. og tjón
ársins 25,5 millj. kr. Hækkun
iðgjalda var 60% frá árinu áður,
en hækkun tjóna 25%. Framlag í
bónussjóð nam 38,7 millj. kr.
Eigin líftryggingarsjóður fé-
lagsins var í árslok 1979 163,4
millj. kr. Hagnaður af starfsemi
félagsins nam 5,3 millj. og gjald-
fært aðstöðugjald tekjuskattar
o.fl. 5,9 millj. kr.
Eigið fé líftryggingafélagsins
var í árslok 1979 30,2 millj.
Hækkun á eigin fé frá árinu áður
var 16,3 millj. kr.
(Fréttatilkynning.)
Aðsetur yfirkjörstjórnar
Reykjaneskjördæmis
29. júní veröur í Lækjarskóla í Hafnarfiröi. Talning
atkvæöa hefst þar kl. 23.00 sama dag. Símar
yfirkjörstjórnar verða 51285 og 50585.
Yfirkjörttjórn Reykjaneskjördæmis,
Guójón Steingrímsson formaður,
Björn Ingvarsson,
Þormóöur Pólsson,
Péll Ólafsson,
Vilhjálmur Þórhallsson.
Erum fluttir að
Grensásvegi 8,
Reykjavík.
Símanúmer óbreytt. G ó|af8Son „,
Grensásvegi 8.
matar-og kaffistell
frá Rosenthal
1 M % JL R.M 1 L1 M Lotus: Frábært matar- og kafti
Suomi
Suomi postulínið frá Rosenthal á
sér fáa líka, enda er lögð ótrúleg
vinna í framleiðslu þess. Suomi
er hannað af Timo Sarpaneva.
í raun og veru er ekkert postulín
fullkomið. En Suomi er það
postulín, sem listamenn Rosen-
thal telja einna fullkomnast.
Suomi er gljáð í handavinnu.
Vélar skila ekki nægilega fínlegri
vinnu. Hluti af framleiðslu Suomi
er valínn til skreytingar með gulli
og hvítagulli af heimsfrægum
listamönnum.
Komið og skoðið Suomi í Ros-
enthalverzluninni.
Lotus: Frábært matar- og kaftistell hannaö af
Bjórn Wiinblad. Glasasett og hnifapör í sama
stíl. Lítið á gjafavöruúrvalið í Rosenthal verzl-
uninni, — skoðið jólaplatta, mánaðardiska og
postulín.
Rosenthal vörur. Gullfallegar — gulltryggðar.
Romanze
Romanze — dýrindisstell frá Ros-
enthal. Fágað form. Því sem næst
gegnsætt postulín. Romanze er.
árangur margra ára þróunar í efn-
isblöndun og framleiðsluaðferð-
uni. Þess vegna hefur Wiinblad og
Wohlrab tekist að hanna svokallað
meistaraverk: Romanze — dýr-
indisstell frá Rosenthal.
5
,oúerv/Ss
studio-line
Á. EINARSSON & FUNK
Laugavegi85
SÍMI:18400