Morgunblaðið - 22.06.1980, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JUNI 1980
61
fl-3
,|!| !l
m'iy-riMy
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 13-14
FRÁ MANUDEGI
þetta sé þýtt beint úr bók eftir
Billy Graham og þá hvað sú bók
heiti og hvenær útgefin. Ef svo er,
— væri þá ekki tilhlýðilegt að
vitna í viðkomandi bók og blað-
síðunúmer?
En ef þessu er ekki þannig farið,
— hefur Morgunblaðið beint síma-
samband við Billy Graham og fær
svörin þannig á beinni línu frá
honum? Eða hefur blaðið e.t.v.
fulltrúa vestanhafs, sem er í beinu
sambandi við prédikarann?"
• Svar til
forvitins
Þættirnir „Svar mitt“ eru
ritaðir til birtingar í dagblöðum
og eru sendir blöðum, sem þess
óska, fyrir tiltekið gjald. Þeir eru
ekki teknir úr bók. Útgáfurétt
hefur Chicago Tribune — N.Y.
News Synd., Inc.
• Athugasemd
Haraldur Blöndal hdl. skrif-
ar:
Sl. laugardag, 14. júní, birtist
grein í Velvakanda undir dulnefn-
inu „Jónas Þórðarson". í þessari
grein gerir „Jónas ...“ að umtals-
efni þrjár greinar, sem fyrir
mistök birtust nafnlausar í blað-
inu 29. júní. en eru eftir Arnór
Hannibalsson. Hefur Arnór birt
yfirlýsingu þessu til leiðréttingar
og hafði hin fyrri þeirra birst í
Mbl. nokkrum dögum áður en
grein „Jónasar ...“ birtist.
I Velvakandagreininni gengur
„Jónas ...“ út frá því, að greinarn-
ar þrjár séu skrifaðar að undirlagi
Engeyjarættarinnar, en af þeirri
ætt eru nokkuð hundruð, ef ekki á
annað þúsund núlifandi íslend-
inga. Mér vitanlega er ég hins
vegar sá eini af ritnefndar-
mönnum 29. júní, sem er af
þessari ætt.
Tilgangur „Jónasar ...“ með
skrifum sínum er auðsær. Ég vil
hins vegar biðja hann að blanda
ekki ættingjum mínum inn í þau
skrif, sem honum er umfram að
eigna mér. Hann sýndi jafnframt
gott fordæmi og tæki sig á, ef
hann skrifaði í framtíðinni árás-
argreinar sínar undir eigin nafni.
Ég skal ennfremur taka fram,
að ég skrifa undir eigin nafni í
blöð, og hef ekki notað dulnefni í
blaðaskrifum nokkur síðastliðin
misseri, ef frá er talinn greinar-
stúfur í Velvakanda á móti kött-
um og skordýraeitri, sem undirrit-
aður var Þrastavinur.
Halldór Blöndal hdi.
Þessir hringdu . .
• Draslaralegt
hjá Víkingum
GÖngugarpur hringdi og
sagði ástandið vont í kringum
skíðaskála Víkings í Sleggju-
beinsskarði. — Ég fór þarna hjá
um helgina og sá þá, að í kringum
þennan myndarlega skála Vík-
inganna var ófagurt um að litast.
Mjólkurhyrnur og hvers kyns um-
búðir, hvert sem maður sneri sér.
Þetta er slæmt á svona fallegum
stað, og í kringum góð hús. Ég
skora á Víkinga að ráða bót á
þessu hið snarasta.
• Birtið ræðu
Halldórs Gröndals
E.T. hringdi og bað fyrir
þakkir til Halldórs Gröndals fyrir
útvarpsmessuna á þjóðhátíðar-
daginn. — Ég mælist til þess að
Morgunblaðið fari þess á leit við
Halldór Gröndal að fá að birta
ræðu hans, hún var frábær.
• Prestar eru
góðir menn
Sigrún Jónsdóttir, Háteigs-
vegi 26, kom að máli við Velvak-
anda og hafði þetta að segja: — Er
SKAK
Umsjón: Margeir Pétursson
Á skákmóti í Sovétríkjunum í ár
kom þessi staða upp í skák þeirra
Andrianov, sem hafði hvítt og átti
leik, og Imanaliev
16. 0-0-0! - Rxa4. 17. Hd7+ -
Ke8 (Eða 17... - Kf6, 18. Rxe4+
- Kf5, 19. Hxf7 - o.s.frv.) 18.
Bxa4 — Be7, 19. Hxa7+ og
svartur gafst upp.
fólki ljóst, hvaða þýðingu það
hefur að kjósa forseta? Er því
ábyrgðin ljós? Þetta er svo nýtt
fyrir okkar unga lýðveldi og fólk
er ráðvillt. Mestu ræður því gjarn-
an vinátta eða kunningsskapur við
þennan eða hinn. Ég hvet fólk til
að íhuga þá ábyrgð, sem á því
hvílir við forsetakjör. Ég hef
aldrei kunnað að meta það þegar
fólk heldur að góðmennskan ein,
þótt ágæt sé, ráði hér úrslitum.
Hér er ekki um slíkt að tala. Hér
ræður aðeins, að viðkomandi sé
hæfur til sinna verka. Prestar eru
góðir menn, en ef ég þarf að
gangast undir uppskurð, leita ég
samt til lækna. Þeir kunna að
skera upp.
• Pétur Thorsteins-
son og heiður
Islands
Pétur Thorsteinsson hefur tvö
háskólapróf og hann hefur haldið
uppi heiðri íslands bæði hér
heima og þó einkum á erlendum
vettvangi, hvarvetna með virðu-
leik, ásamt sinni hámenntuðu
konu, frú Oddnýju Thorsteinsson,
sem auk þess að vera viðskipta-
fræðingur talar mörg tungumál og
hefur verið húsfreyja í íslenskum
sendiráðum um árabil.
• Rausn og hófsemd
Ég átti börn við nám í París,
þegar þau hjónin voru þar, og var
þá til þess tekið hve oft íslensku
námsfólki var boðið í sendiráðið.
Á hinn bóginn var það ávallt
einkenni á þeim sendiráðsheimil-
um sem frú Oddný stjórnaði, hve
gætilega var haldið á fjármálum.
Mér finnst að ekki komi til
greina annað en til Bessastaða
veljist ábyrgir aðilar, sem kunna
til verka. Er það illa farið, ef þess
er ekki gætt, þegar forseti er
kosinn. Ef við eigum að halda
virðingu forsetaembættisins, sem
er mikilvægt okkar litla landi,
ekki síst á erlendum vettvangi,
verðum við að velja til þessa
starfa reyndan kunnáttumann.
HÖGNI HREKKVÍSI
JH '|||
n Jjattu nú lóðuB ótuAk6- 1N6 'l "FRlÐ' • ." „Hvoer ÆTIAÚD'J A© 9L06TA 'A M1 (r Ef>A AANN?“
cs>;- ♦ \ - j i Wói í'
„TÍNT WÁ Þep r
SIGGA V/GGá « AILVE&AN
IP fa MföA 'fOtföETAVíN/
A9 TálA Á YIILL\ WNU-
5T/19A \im a^ULlá'
m ALrtQONA, YÁ noN%
íá SVLföA móST-
A YlANH-rÁ
V^P/A/N^4J
Opið laugard.
kl. 10-12
Canon-kiör
A-1, AE-1, AT-1
AV-1 og F-1.
Winder og flösh.
20 gerðir linsa:
24-500 mm. og Zoom.
Verzlið hjá
fagmanninum
LJOSMYNDAÞJONUSTAN S.F.
LAUGAVEGI 178 REYKJAVIK SIMI 85811
ÍSIANDSMÓT
*
íslandsmót
í hestaíþróttum
21. og 22. júní
á Melavelli í Reykjavík
Mikil þátttaka er í mótinu og búast má viö haröri
keppni því margir hæfustu knapar og hestar landsins
eru skráöir til keppni.
Dagskrá
Sunnudagur 22. júní 1980:
10.00 Fimmgangur
11.45 Úrslit fjórgangur 13—15 ára
13.00 Mótið sett
13.05 Úrslit fjórgangur
13.30 Úrslit í tölti ungl. 13—15 ára
14.00 Úrslit fimmgar.gur
14.30 Úrslit tölt
15.00 Gæöingaskeiö
15.45 Skrautreiö og verölaunaafhending
HÁPUNKTUR MÓTSINS
Athugið aö úrslit og ýmis sýningaratriöi s.s.
hindrunarstökk veröa kl. 13.00—15.30 í dag.
iþróttadeildir hestamannafélaga
Suðvesturlands.
GADDASKORjjL
ímiklu Mfcvs
úrvali q
og ótrúlega
mörgum gerðum.
Stærðir frá 35—45. T
1
ii
9 |
Einnig allt fyrir
boltaíþróttir og
áhugafólk
um íþróttir
POSlDvnuUIII.
Sportvöruverzlun
Ingólfs Óskarssonar,
Klapparstíg 44, sími 11783.