Morgunblaðið - 20.08.1980, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 1980
Heildaraukning tekjuskatts:
Skattbyrðin 7 milljörð-
um hærri en í f járlögum
ÁLAGNING tekju- og eignar-
skatts á einstaklinga er nú lokið.
Fram kemur að álagður tekju-
skattur nemur rúmum 64 millj-
örðum, en er frá hafa verið
dregnar barnabætur persónu-
afsláttur til greiðslu sjúkra-
tryggingargjalds og útsvars
„Enginn vissi
um verkföllin44
— segir íslenzkur skipstjóri við
komuna frá Póllandi
„ÉG VAR í Gdynia i Póllandi
þann 8. ágúst. Þegar ég talaði við
fólk og sagði frá verkföllum sem
geisuðu í landinu þá kom það á
daginn að enginn vissi um þau.
Fréttir höfðu engar birst í pólsk-
um fjölmiðlum." sagði Matthías
Matthíasson. skipstjóri á Múla-
fossi, skipi Eimskipafélags ís-
lands.
„Eg hef siglt austur þangað í
þrjú ár og allt gekk sinn vanagang
í Gdynia. Ekki var að sjá að þar
væru nein verkföll og enginn vissi
um olguna í Gdansk," sagði Matth-
ías ennfremur.
nemur álagður tekjuskattur um
45 milljörðum sem er um 54%
hækkun á milli ára.
í yfirliti frá fjármálaráðuneyt-
inu kemur fram að miðað við
87—88% innheimtuhlutfall nemi
tekjur ríkissjóðs af tekjuskattin-
um rúmum 39 milljörðum, eða
einum milljarði meira en ráð var
fyrir gert í fjárlögum. í yfirlitinu
er þessi niðurstaða túlkuð þannig
af fjármálaráðuneytinu, að heild-
ar skattbyrði af völdum tekju-
skatts haldist óbreytt frá fyrra
ári. Það breytir engu um skatt-
byrðina hvert áætlað innheimtu-
hlutfall verður. Það sem skiptir
máli er að heildarálögur tekju-
skatts hafa aukist um 7 milljarða
umfram fjárlög, nema stjórnvöld
geri ráð fyrir því, að menn borgi
ekki nema 87% af álögðum skött-
unum sínum.
Nefndarmenn i aðalsamninganefnd BSRB biða þess að fundur i
nefndinni hefjist. Ljósm. Kristján.
Aðalsamninganefnd BSRB:
Líkur á að samnings-
drögin verði samþykkt
Skattskrá Vestfjarða:
Heildarupphæðin
6,6 milljarðar kr.
Hækkunin milli
ára um 64%
HEILDARUPPHÆÐ opinberra
gjalda í Vestfjarðakjördæmi er
6.6 milljarðar kr. í ár og þýðir
það hækkun á milli ára upp á
64%
Tekjuskattur er 3.3 milljarðar
og hefur hann hækkað um 63%,
eignarskattur 62 milljónir, sem er
rúmlega 100% hækkun, útsvar
alls 2.6 milljarðar og er það 70%
hækkun á milli ára, en að sögn
skattstjóra Vestfjarða, Hreins
Sveinssonar, er nú í fyrsta sinn
lagt á útsvar í öllum hreppum
Vestfjarða og því er hækkunin
nokkru meiri en ella.
Barnabætur eru 716 millj. kr. og
persónuafsláttur til greiðslu út-
svars og sjúkratryggingagjalda
211 millj. kr.
SEINT í gærkvöldi stóð enn yfir
fundur aðalsamninganefndar
Bandalags starfsmanna ríkis og
hæja, en á fundinum átti að
greiða atkvæði um drög að kjara-
samningi ríkis og BSRB. Allar
líkur voru taldar á að samnings-
drögin yrðu samþykkt með tölu-
verðum meirihluta en i almenn-
um umræðum á fundinum komu
fram raddir bæði með og á móti
samningsdrogunum.
Aðalsamninganefnd BSRB var
boðuð saman til fundar klukkan
13.30 í gær en fundur nefndarinn-
ar hófst þó ekki fyrr en klukkan
20.30 um kvöldið. Ástæðan var sú
að í allan gærdag var 8-manna
samninganefnd BSRB á fundi með
samninganefnd ríkisins vegna út-
færslu á ýmsum atriðum í samn-
ingsdrögunum. Mun þar meðal
Frystihúsið í Ólafsvík
opnar á ný eftir sumarfrí
lagt net, einn er með troll en
nokkrir búast á síldveiðar í rek-
net. Margir fögnuðu sumarfríinu
er það hófst, þó má segja að hér sé
að sannast hið gamalkveðna að
tvisvar verður sá feginn, sem á
steininn sest.
— Helgi.
Tvísýn bjðskák hjá
Jóni L. Arnasyni
Ólafsvik. 19. áKÚst.
í GÆR var Hraðfrystihús ólafs-
víkur opnað til vinnslu á ný eftir
4 vikna sumarfrí, en söltunar-
stöðvarnar höfðu nokkru
skemmra hlé.
Togarinn Már landar hér í dag
220 lestum. Fáeinir bátar hafa
„ÉG veit ekki vel, hvað á að segja.
en held þó. að ég eigi einhverja
möguleika," sagði Jón L. Árnason.
er Mbl. ræddi við hann í gærkvöldi
eftir að skák hans við Ziigler frá
Sviss fór öðru sinni í bið eftir 57
leiki. Þeir Kasparov Sovétríkjunum
og Neguleschu Rúmeníu voru efstir
i gærkvöldi með þrjá vinninga úr
fyrstu þremur skákunum og á Jón
möguleika að ná þeim með því að
vinna Ziigler, en biðskákin verður
tefld áfram í fyrramálið.
Þeir Kasparov og Neguleschu
unnu báðir í gær keppendur, sem
voru jafnir þeim eftir tvær umferðir,
Kasparov vann McNab frá Skotlandi
og Rúmeninn vann Guerra frá Ven-
ezuela. Þá gerðu Toro frá Chile og
Darzy jafntefli, en þeir voru einnig
með tvo vinninga hvor eftir tvær
umferðir og eru þá með 2,5 vinninga
hvor að loknum þremur umferðum.
Dómari þessa heimsmeistaramóts
unglinga undir tvítugu er Lothar
Schmid, sem var aðaldómari í ein-
vígi þeirra Fischers og Spasskys t
Reykjavík.
Jón Jónsson for-
stjóri Ilafrannsókna-
stofnunar:
Mikið hefur verið gert
í samræmi við okkar tillögur
FISKIFRÆÐINGAR lögðu til í
upphafi árs, að þorskafli færi
ekki yfir 300 þúsund tonn á
árinu. en nú er hins vegar útlit
fyrir, að aflinn verði um eða yfir
400 þúsund tonn. Þá hafa fiski-
fræðingar lagt til, að ekki verði
veidd nema 45 þúsund tonn af
síld við Suðurland i haust. Af
hálfu sjávarútvegsráðuneytisins
hefur hins vegar verið rætt um
50 þúsund tonna afla.
Þá lögðu fiskifræðingar til, að
loðnuaflinn í haust og á næstu
vetrarvertíð yrði ekki yfir 650
þúsund tonnum. Var þar um
frumtillögur þeirra að ræða, sem
síðan átti að endurskoða í haust.
íslendingar og Norðmenn urðu
hins vegar ásáttir um að leyfa
veiðar á 775 þúsund tonnum til
loka vetrarvertíðar 1981 og koma
15% þess magns í hlut Norð-
manna.
Morgunblaðið ræddi um þessi
mál við Jón Jónsson, forstjóra
Hafrannsóknastofnunar og eins
og fram kemur í frétt á baksíðu
hafa fiskifræðingar ekki breytt
tillögum sínum um 300 þúsund
Vegur upp á móti því hversu lít-
ið hefur verið farið eftir okkur
i sambandi við heildaraflann
tonna þorskafla í ár og telja veiðar
fram yfir það magn seinka upp-
byggingu stofnsins.
Það verður þó að viðurkennast,
að á undanförnum árum hefur
mikið verið gert í samræmi við
tillögur stofnunarinnar, sagði Jón
Jónsson. Ég get nefnt stækkun
möskva, sem hefur gert það að
verkum, að gjörbreyting hefur
orðið á aldursdreifingu þorsks og
ýsu í afla. Svæðalokanir og nýjar
reglur um lágmarksstærð á fiski
hafa sömuleiðis haft mikið að
segja og allt hefur þetta stuðlað að
því hversu miklu minna er nú veitt
af smáfiskinum. Ég vil sérstaklega
nefna ýsuna, en það er stofn, sem
tekið hefur ákaflega fljótt við sér
og mest er það vegna stækkunar
möskva.
í þessu sambandi er því ekki
eingöngu um tillögur um há-
marksafla að ræða, margt af því
sem gert hefur verið, hefur að
Dr. Jón Jónsson forstjóri Haf-
rannsóknastofnunar.
nokkru vegið upp á móti því
hversu lítið hefur verið farið eftir
okkur í sambandi við heildarafl-
ann. Það er ekki alltaf hægt að
samræma sjónarmið okkar og
stjórnmálamanna, sem eru undir
þrýstingi frá sínu fólki. Ég hugsa
þó, að ef okkar tillögur hefðu
aldrei komið fram um hámarks-
afla á t.d. þorski, þá hefði verið
farið enn hærra heldur en raunin
hefur þó orðið.
Hitt er svo annað mál, að það er
ekki gaman að vera með svona
tillögugerð ár eftir ár, sem síðan
er lítið farið eftir. Ég tel því, að
stofnunin verði að endurskoða
afstöðu sína til þessa ráðgjafa-
starfs, en um leið geta þess, að
ekki er nokkur vafi á því, að
tillögur okkar hafa veitt aðhald.
Ég vil nefna, að á sínum tíma
studdi Landssamband íslenzkra
útgerðarmanna tillögur okkar
dyggilega og sá tími er kominn, að
menn eru farnir að gera sér grein
fyrir því, að það er ekki magnið,
sem veiðist á hverjum tíma, sem
skiptir öllu máli, sagði Jón Jóns-
son að lokum.
annars hafa verið fjallað um
atvinnuleysisbætur handa opin-
berum starfsmönnum, en ágrein-
ingur var um túlkun þessa atriðis
í samningsdrögunum varðandi
starfsfólk sjálfseignarstofnana og
bæjarfélaga.
Rætt um
Rockall á
fundum í Genf
VIÐRÆÐUR íslendinga um
Rockall-svæðið eru hafnar við
Færeyinga og Dani á Hafrétt-
arráðstefnunni i Genf. Síðar
er fyrirhugað að ræða við
Breta og íra um þetta mál.
Hans G. Andersen hefur
verið falið að undirbúa þessar
viðræður, en hann er formaður
íslenzku sendinefndarinnar í
Genf. í gær var haldinn fyrsti
formlegi fundurinn í sátta-
nefndinni í Jan Mayen-deil-
unni, en Elliot Richardson er
oddamaður þeirrar nefndar.
Hans G. Andersen er fulltrúi
íslendinga, en Jens Evensen
fulltrúi Norðmanna.
í Morgunblaðinu á morgun
birtist viðtal við Eyjólf Konráð
Jónsson um Rockall-málið.
Fundi kaup-
lagsnefndar
um vísitöluna
var frestað
FUNDI kauplagsnefndar, sem átti
að vera í gær um útreikning
vísitölunnar, var frestað þar til i
dag. Niðurstöður hagstofustjóra,
sem kauplagsncfnd fól að kanna
kjötmálið. urðu þær, að enginn
hörgull hefði verið á annars og
þriðja flokks kjöti og fyrsta flokks
kjöt hefði verið til i verzlunum i
Reykjavik i einhverju magni
fyrstu daga mánaðarins, en verð-
upptaka til visitöluútreiknings fór
fram 5 fyrstu daga ágústmánaðar.
Alþýðusamband Islands sam-
þykkti sem kunnugt er, að fyrir-
fyndist ekki það kjöt, sem niður-
greiða ætti, myndi sambandið ekki
samþykkja áhrif niðurgreiðslnanna
á vísitöluútreikninginn. Einnig eru
skiptar skoðanir innan kauplags-
nefndar um það, hvort heimilt sé að
taka tillit til hækkana á rafmagni
og hitaveitu, sem komu til fram-
kvæmda 10. ágúst sl.
Litla barnið
lærbrotnaði
LITLA barnið, sem varð fyrir bifreið
ásamt 12 ára systur sinni á Akureyri
í fyrradag, slapp betur en á horfðist,
að sögn lögreglunnar á Akureyri í
gær. Litla barnið, sem er tveggja
ára, lærbrotnaði og hlaut einnig
meiðsli á höfði og var líðan þess eftir
atvikum í gær.