Morgunblaðið - 20.08.1980, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 20.08.1980, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 1980 Pólskt efnahags- líf í miklum vanda Yinarbonc. 19. áKÚst. AP. VERKFALLAALDAN sem nú jtcnKur yfir Pólland hefur enn sett yfirvoldum stólinn fyrir dyrnar þegar þau hafa viljað hækka verð á landbúnaðarafurðum. Það fé, sem yfirvöld vonuðust til að afla með hækkunum á landbúnaðarafurðum hefur þevcar brunnið upp í verkfalla- öldunni. Pólland á nú við KÍfurleK efnahagsleg vandamál að stríða og skuldabagginn við útlönd er gifurleftur — mciri en i nokkru öðru riki austan járntjalds. eða 17 milljarðar dollara. Yfirvöld höfðu vonast til að afla 40 milljóna dollara með hækkunum á landbúnaðarafurðum en sú ætlan er að engu orðin vegna KÍfurleKs framleiðslutaps af völdum verkfallanna. Tvívegis áður hafa pólsk yfirvöld freistað að hækka verð á landbúnað- arafurðum. Árið 1970 freistaði Gomulka að hækka verð. Sú tilraun endaði með falli hans og Gierek tók við stjórnartaumunum. Gierek- stjórnin freistaði að hækka verð á landbúnaðarafurðum árið 1976. All- ur almenningur brást hart við og stjórnin varð að draga áform sín til baka eftir óeirðir og verkföll. Skuldabagginn við útlönd hefur orðið til þess, að stjórnvöld flytja allt út sem seljanlegt er. Þetta hefur komið hart niður á almenningi. Um árabil hefur kjötskortur verið ríkj- andi í landinu. Þó hægt sé að fá pólskt svínakjöt í flestum banda- rískum verzlunum á pólskur al- menningur í miklum erfiðleikum með að komast yfir slíkt lostæti — það er nánast allt flutt út. Síðastlið- ið ár fluttu Pólverjar út um 100 þúsund tonn af kjöti, þar af um 45 þúsund af hinu þekkta pólska svína- kjöti. Risarotturnar hafa drepið börn — og allt upp í stærri dýr eins og fé og kálfa. Egyptaland: Risarottur verða börnum að bana MILLJÓNIR af risarottum valda nú miklum usla í Egyptalandi. Risarottur hafa étið kornabörn og öllum almenningi stendur mikill stuggur af þessum ófögnuði. Risarotturnar vega allt að eitt og hálft kfló og eru 35 sentimetra langar. Þær hafa streymt um ósa Nílar og færast sífellt nær Kairó. Qífurleg eyðilegging hefur orðið af völdum þessa rottufaraldurs. Þær éta allt sem að kjafti kemur og mikið magn af landbúnaðar- afurðum hefur farið í kjafta þeirra. Þá hafa rottur ráðist á sauðfé, geitur og kálfa. Fréttir hafa borist um, að rottur hafi étið kornabörn í bænum Zigazig, um 60 kílómetrum frá Kairó. Orsakir þessa faraldurs nú ná aftur til sex daga stríðsins. Þegar ísraelsmenn gerðu sína leifturárás, þá yfirgáfu íbúar Port Said, Ismalia og Suez heimili sín — rotturnar urðu eftir og fjölguðu sér ört. Þær urðu herrar drauga- bæja. Nú, hins vegar, virðist hafa þrengt svo að þeim í þessum bæjum að þær hafa leitað út fyrir þá. Þeirra varð fyrst vart í des- ember síðastliðnum. Dag nokkurn vaknaði fólk, í bænum El-Shobek, upp við vondan draum. Einkenni- legur niður barst að eyrum þeirra — og í ljós kom að þúsundir rottna bókstaflega streymdu að. Yfirvöld hafa lítið ráðið við þennan ófögn- uð og almenningi í landinu stend- ur nú mikill stuggur af risarottun- um. Pólsk yfirvöld fóru í kring um hækkanirnar árið 1976 með því að hafa kjöt á boðstólum í sérstökum verzlunum. Það var selt á dýrara verði en í almennum verzlunum. Þannig tókst að fá fram hækkun, þó ekki væri hún opinber. Þetta varð til þess að erfiðleikar voru að fá kjöt í almennum verzlunum. Samkvæmt fyrirætlunum þá átti aðeins að vera hægt að fá kjöt í dýrari verzlunum, og verðið hefði hækkað verulega. Almenningur vildi ekki sætta sig við þetta og afleiðingin eru víðtæk verkföll sem lama margar greinar atvinnulífsins. Þó höfðu stjórnvöld verið vöruð við að hækka verðið. Embættismenn sögðu að pólskur almenningur yrði að búast við lakari lífskjörum vegna efnahags- erfiðleika. En almenningur er greinilega búinn að fá sig fullsadd- an — og hækkanir nú á landbúnað- arafurðum hafa orðið til þess, að kröfur hafa komið fram um aukin mannréttindi i landinu og að flokk- urinn láti af alræði sínu. Sem stendur er stál í stál og ekki er séð fyrir endann á deilum stjórnvalda við almenning. Stjórnvöld hafa hót- að að beita valdi, — undir rós þó. Hvað gerist á næstu vikum er nánast ómögulegt að spá um. Hvort verkfallsmenn ná að knýja fram breytingar á stjórn landsins eða hvort stjórnvöld beita her landsins fyrir sig til að bæla niður verkföll — það er ómögulegt að spá um. Brezkir ferðamenn lausir úr prisund Chcrbourtt. 19. ájrúst. AP. FRANSKIR fiskimenn, sem und- anfarið hafa haldið uppi hafn- banni á nokkrar stórar hafnir i Frakklandi, hleyptu þremur brezkum ferjum úr höfn i dag. Samkomulag náðist um að lofa 6000 brezkum ferðamönnum að fara yfir Ermarsundið til síns heima af „mannúðarástæðuin“ eins og fiskimenn orðuðu það. Fiskimennirnir settu það að skilyrði að frönsk yfirvöld gerðu ekkert til að brjóta aðgerð þeirra á bak aftur. Sex þúsund brezkir ferðamenn hafa verið strandaglóp- ar í Cherbourg í Frakklandi, — þar af margar konur og börn. Yfirvöld gáfu fólkinu mat og veittu því húsaskjól. Hins vegar stendur hafnbann fiskimanna enn. Samningaviðræð- ur standa nú yfir í borginni Caen á Normandý, milli fiskimanna og togaraeigenda. Hafnbannið hefur þegar valdið miklu tjóni og Frakk- ar tapa milljónum dollara daglega. Hafnaryfirvöld í Le Harve sögðu í dag, að höfnin þar tapi daglega 1.4 milljónum dollara. í Le Harve eru nú 30 skip lokuð inni, 42 er bannað að fara í höfnina og 48 hafa snúið annað. Hafnbannið nær einnig til hafna við Miðjarðarhaf. Þetta gerðist 1975 — Bandarísku geimfari skot- ið áleiðis til Mars frá Canaveral- höfða. 1972 — Um 400 farast í mestu flóðum í Suður-Kóreu í hálfa öld. 1971 — Leiðtogar Líbýu, Egypta- lands og Sýrlands undirrita stofnskrá sambandsríkis. 1968 — Sovétríkin og önnur Varsjárbandalagsríki gera innrás í Tékkóslóvakíu. 1960 — Senegal fær sjálfstæði. 1955 — Óeirðir gegn Frökkum hefjast i Marokkó. 1953 — Mossadeq, forsætisráð- herra Persíu, handtekinn — Frakkar steypa soldáninum í Mar- okkó af stóli. 1932 — Efnahagsmálaráðstefnu brezka heimsveldisins lýkur í Ottawa. 1918 — Bretar hefja sókn á vest- urvígstöðvunum. 1914 — Innreið Þjóðverja í Bröss- el. 1908 — Leopold II af Belgíu lætur Kongó af hendi við stjórn Belgiu. 1791 — Danski sæfarinn Bering finnur Alaska. 1641 — Bretar undirrita friðunar- samninginn við Skota. 1526 — Her ítalska kardinálans Pompeo Colonna rænir Róm og Clement páfi VII leitar hælis í St. Angelo kastala. Afmæli. Raymond Poincaré, franskur stjórnmálaleiðtogi (1860—1934) — Emily Bronté, enskur rithöfundur (1818—1848). Andiát. 1854 Friedrich von Schell- ing, heimspekingur — 1912 Willi- 15 Veður víða um heim Akureyri 10 rigning Amsterdam 22 heíóskírt Aþena 30 skýjaó Barcelona 26 skýjaó Berlin 20 skýjaö BrUssel 21 heióskírt Chicago 31 skýjaó Frankfurt 26 rigning Genf 24 mistur Helsinki 22 heióskírt Jóhannesarborg 18 heiðskírt Kaupmannahöfn 17 rígnirtg Lissabon 27 heiðskírt London 24 heióskirt Los Angeles 24 skýjaó Madrid 32 rigning Malaga 26 skýjað Mallorca 30 skýjaó Miami 31 skýjaó Moskva 18 skýjaó New York 29 heióskírt París 21 skýjað Reykjavík 11 úrkoma Río de Janeiro 35 skýjaó Rómaborg 28 heióskirt Stokkhólmur 20 heiðskirt Tókýó 29 heióskírt Vancouver 20 heióskírt ■■■ ’ w/ ERLENT , 20. ágúst am Booth, leiðtogi Hjálpræðis- hersins. Initient. 1809 Jones skipherra setur Jörundi úrslitakosti — 1879 Matthías Jochumson heiðraður — 1898 Vígsia Valhallar á Þingvöll- um og hvítblái fáninn dreginn að húni — 1920 Stjórnarskrárbreyt- ingin samþykkt — 1929 Jökul- stífla brestur við Hagavatn og flóð hleypur í Tungufljót og Hvítá — 1938 Guðrún Lárusdóttir og tvær dætur hennar drukkna í Tungna- fljóti — 1875 f. Ágúst H. Bjarna- son — 1885 f. Þorsteinn M. Jónsson — 1888 f. Helgi Hjörvar. Orð dagsins: Draumur lífs míns hefur verið eilíf martröð — Vol- taire, franskur heimspekingur (1694-1778). Loksins hefur okkur tekist að finna fullkomió, nýtískulegt og vandað litsjónvarpstæki á lægra verði en aðrir geta boðið. STÆRÐ VERD STADGR.VERD STRAUMTAKA 20 t. 670.000- 636.500- 85 wött 22 t. 730.000,- 693.500,- 85 wött 26 t. 850.000.- 807.500.- 95 wött model 1980

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.