Morgunblaðið - 20.08.1980, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 1980
3
Oskufall niður í byggð á Norðurlandi
Landmanna- og Gnúpverjaafréttir verst farnir á Suðurlandi
„ÁSTANDIÐ er e.t.v. ekki eins
slæmt sunnanlands og haldið var i
fyrstu, en þó er ljóst, að verulegar
skemmdir hafa orðið á gróðri á
sunnanverðum Landmannaafrétti
og sunnanverðum Holtamanna-
afrétti. Þá höfum við spurnir af
miklu öskufalli á afréttum i
Skagafirði, austan Eyvindarstað-
arheiðar. á Hofsafrétt og Silfra-
staðaafrétt" sagði Sveinn Run-
ólfsson landgræðslustjóri i viðtali
við Mbl. i gær. bá ræddi Mbl.
einnig við Egil Bjarnason ráðu-
naut á Sauðárkróki og fólk i
hreppum nálægum gossvæðinu og
birtast þau viðtöl hér á eftir.
ÖSKUFALLIÐ ALVEG
NIÐUR í BYGGÐ
„Aska hefur fallið á Hofsafrétt,
Silfrastaðaafrétt og hluta af Eyvind-
arstaðaheiði og alveg niður í byggð
inn af Skagafirði, þe. niður fyrir
Goðdali í Vesturdal og að Keldulandi
í Austurdal" sagði Egill Bjarnason
ráðunautur á Sauðárkróki. „Þetta er
mun meira öskufali en var 1970 hér
fyrir norðan, en þá var askan ekki
efnagreind og vorið eftir varð vart
óvenjulega mikils lambadauða í
norðanverðum Skagafirði.
Þá sagði Egilll að fé hefði runnið
stanzlaust niður í byggð síðan á
sunnudag og verið væri að rétta það
sem hefði skilað sér.
MIKIÐ AF FÉNU
ILLA Á SIG KOMIÐ
„Landmannaafréttur er illa farinn
fyrir framan, en við vitum lítið um
ástandið fyrir innan. Féð var rekið
fram á Galtalæk í gær og það er
verið að draga það í sundur í dag“
sagði Margrét Erlendsdóttir að
Saurbæ í Holtum. „Þetta var um
þúsund fjár og var mikið af því illa á
sig komið. Það æddi um dauðhrætt
og fleygði sér niður, enda orðið
sárfætt svo úr blæddi.“
Margrét sagði að fé þettá yrði
tekið í heimahaga og yfirleitt væri
nægt beitarland. „Þetta er þó aðeins
um þúsund fjár, því á innri afréttin-
um eru fjögur til fimm þúsund og við
vitum næsta lítið um ástand þess.
Það verður reynt að fara þangað á
morgun, ef ekki tekst að komast í
dag,“ sagði hún í lokin.
RÉTTAÐÁ
FIMMTUDAGINN
Gnúpverjaafréttur er illa farinn
að framanverðu og haglaust var þar
í gær, er við fórum inn eftir, en ég
verð að segja að ástandið er nokkru
betra en ég átti von á“ sagði Jón
Ólafsson í Eystri-Geldingarholti.
„Þetta er ekki meira en svo að það
ætti að jafna sig á næsta sumri, og
það hefur ekkert fallið á Þjórsár-
heiðum.“ Hann sagði mest allt fé,
eða um 7 þúsund, búið að skila sér
sjálft, en þeir hefðu komið með
nokkur hundruð í gær og hefði féð
verið sett í girt hólf neðan við Stöng
í Þjórsárdal. Réttað verður í Skaft-
holtsrétt á fimmtudag og féð flutt
heim í haga og tún.
MIKIÐ AF FÉNU
KOMIÐ AÐ
GIRÐINGU
Menn voru einnig á ferðinni á
Hrunamannaafrétt í fyrradag og
sagði Daníel Guðmundsson oddviti á
Efra-Seli í gær, að nokkur aska væri
fyrir innan miðjan afrétt og smá-
vottur framar, en frá Fosslæk og
vestur úr væri svæðið þakið. Hann
sagði féð hafa verið á harðahlaupum
og mikið af því væri komið að
girðingu, en það væri ekki illa
haldið. „Þetta er mest hræðsla og
eins eru grös farin að falla þarna
innar og þá skilar það sér sjálfkrafa“
sagði hann.
„ENGIN YFIR
VOFANDI HÆTTA“
Sigríður Stefánsdóttir í Bræðra-
tungu sagði, að farið hefði verið inn
á Biskupstungnaafrétt í fyrradag.
„Það var töluverð aska austan til og
vestan í Kerlingarfjöllum og fyrir
Hofsjökli, en lítið á Furuvöllum og
alls ekkert á framafréttinum. Féð
var yfirleitt á hreyfingu, en það
standa ekki til smalanir að svo
komnu máli og ég held að það sé
engin yfirvofandi hætta“.
„SLEPPUM A.M.K. ENN“
Þóristunguafrétt nýta tveir til
þrír aðilar úr Djúpárhreppi og
einnig Áshreppingar að sögn Ólafs
Sigurðssonar Hábæ, en hann er
hreppstjóri Djúpárhrepps. „Við fór-
um inn á afrétt í gær og þetta er
ekkert sem orð er á gerandi. Vikur-
inn hefur farið á milli virkjananna
en ekki snert jörðu í Tungunum. —
Við sleppum a.m.k. enn, en erum
auðvitað í viðbragðsstöðu“. Þá sagð-
ist Ólafur hafa litla trú á að Hekla
væri búin að ljúka sér af, — það væri
þá eitthvað nýtt.
Ljósm. Sig. Sigm.
Fé af Gnúpverjaafrétti rekið til byggða. Loftur Eiriksson bóndi i
Steinsholti er hér að reka féð við leitarmannakofann i Ilólaskógi.
hvílíkur munur
Ajax þvottaefni losar úr bletti og óhreinindi strax í forþvotti.
Það er sama hvort um er að ræða hvítan, mislitan eða mjög
viðkvæman þvott, sama hvaða hitastig er notað eða þvotta-
stilling. Með Ajax skilar árangurinn sér í tandurhreinum <$g
______i__i i
blettalausum þvotti
\ja\ lagfrcvdandi
þvottaefni fVrirailan þ\ott
skilar tandurhreinu