Morgunblaðið - 20.08.1980, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.08.1980, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 1980 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 1980 17 flfoqpiiifrlafrft Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guömundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 5.000.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 250 kr. eintakiö. Uppskeran fer eftir útsæðinu Hvern veg ganga njörðir núverandi ríkisstjórnar þvert á stefnumið Sjálfstæðisflokksins? Þetta var spurnintj sem dagblaðið Vísir beindi til Geirs Halljírímssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, í viðtali sl. laujíardajj. Geir Halljirímsson svaraði efnislejía á þessa leið: Ég held að það sé rétt að kalla núverandi forsætisráðherra til vitnis í þessu efni. Hann reit grein í Morgunblaðið þann 28. nóvember sl., rétt fyrir kosningar, þar sem hann gerði kjósendum grein fyrir viðhorfum flokksins. I fyrsta lagi sagði forsætisráðherrann í þessari grein, að ekki væri lengur hægt að auka á skattheimtu hérlendis; hún væri þegar orðin of há. Þetta var í samræmi við stefnu Sjálfstæðis- flokksins, sem hét því í kosningabaráttunni að afnema alla nýja skatta og skattauka vinstri stjórnar Ólafs Jóhannessonar, sem vóru að fjárhæð rúmir 25 milljarðar króna. Núverandi stjórn framlengdi hinsvegar alla þessa skatta, — og tvöfaldaði raunar þessa skattþyngingu, — þann veg að skattheimtan hefur aukizt um 50 til 60 milljarða króna 1980 miðað við skattareglur 1978. í öðru lagi benti forsætisráðherra á í þessari grein, að lækka yrði ríkisútgjöldin til samræmis við boðaða skattalækkun. Það væri unnt að gera með því að ákveða að fjárlög yfirstandandi árs yrðu 10% lægri en gert var ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi því, sem vinstri stjórn Ólafs Jóhannessonar lagði fram í. október- mánuði sl. Núverandi ríkisstjórn hefur síður en svo lækkað fjárlög. Auk þess hefur hún fært ýmis útgjöld ríkissjóðs af fjárlögum inn á lánsfjáráætlun, sem í raun er aðeins að fresta vandanum. I þriðja lagi fjallaði forsætisráðherra um það í tilvitnaðri grein, að niðurgreiðslur, sem nú kosta milli 20 og 30 miiljarða á ári, væru komnar úr hófi. Taldi hann að hægt væri að spara milljarða króna á þessum útgjaldalið. Sú staðhæfing hefur hins vegar ekki staðið í vegi fyrir því að núverandi ríkisstjórn gæti enn hækkað niðurgreiðslurnar, eins og dæmin sanna. Undir það skal tekið að núverandi ríkisstjórn ber um flest svipmót fyrri vinstri stjórnar. Alþýðubandalag og Framsóknar- flokkur, sem mestu réðu um stefnu ríkisstjórnar Ólafs Jóhannessonar, eiga sjö af ellefu ráðherrum núverandi ríkisstjórnar — og fara auk þess með ýmsa veigamestu málaflokka þjóðajbúsins. Það segir sig því sjálft að uppskeran fer eftir útsæðinu. Gleggsta vinstri stjórnareinkennið er þó tvímælalaust það, að beinir skattar 1980 hafa hækkað úr 74 milljörðum samtals, og 19,9%. af tekjum þess árs sem þeir vóru lagðir á, í 120 miiljarða samtals — og 21,1% af heildartekjum. Rödd mjólk- urbóndans Eiríkur Sigfússon, bóndi á Sílastöðum, sagði í viðtali við Mbl. að mjólkurbú yrðu fyrir allt að 50% kjaraskerðingu. Auk venjulegrar skattheimtu, þyrfti kúabóndinn að sæta: 1) Samdrætti vegna kvótakerfis, sem hefði í för með sér 18 m.kr. tekjurýrnun á búi viðmælandans, en hann þurfti að minnka mjólkurframleiðslu um 60 þúsund lítra á liðnu ári; 2) innvigtunargjaldi á mjólk, 28 krónum á lítra, sem kostar viðmælanda 6 m.kr. á ári: 3) 200^ fóðurbætisskatti, sem eykur útgjöld þessa bónda um 10—12 m.kr. „Þetta verður samtals um 36 m.kr. brúttótekjurýrnun," sagði bóndinn á Sílastöðum í samtalinu við Mbl. Ofan á þetta bætist, sagði bóndinn, að við fáum ekki nema 65% af andvirði mjólkurinnar greidd. Eftirstöðvum er haldið í eitt ár — meðan verðbólgan étur þær upp. Orðrétt sagði Eiríkur Sigfússon, bóndi á Sílastöðum: „Ég get ekki betur séð en þessi hrikalega tekjurýrnun geri okkur nær launalausa. Við eigum lögbundin laun miðað við ákveðnar viðmiðunarstéttir. Ég er anzi hræddur um að eftir þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar séu þau orðin lítill hluti af því sem okkur ber. Það væri gaman ef landbúnaðarráðherra reiknaði út tekjur mjólkurbænda 1979 miðað við að þessi skattur hefði þá verið í gildi." Ekki skal hér dregið úr vanda búvöruframleiðslunnar, né vegið að viðleitni til að sníða framleiðsluna að markaðsstað- reyndum, en hitt má aldrei gleymast, að tryggja rétt einstaklings gagnvart valdi og viðbrögðum „kerfisins“. Aukin samkeppni í verslun á Akureyri: Nú eru rúmir tveir mánuðir liðnir frá því að Hagkaup opnaði stórverslun sína á Akureyri. Þegar í upphafi tók almenningur versluninni ákaflega vel og salan hefur verið vaxandi frá byrjun. Það sem Akureyringar virðast kunna best að meta, er aukið vöruúrval frá því sem áður þekktist, auk lægra vöruverðs í mörgum tilfellum. Ef marka má ummæli fólks á Akureyri hafa Hagkaupsmenn hleypt nýju blóði í viðskiptahætti Norðanlands sem þóttu bera mörg einkenni einokunaraðstöðu. Það er fullljóst að þeir hlutir sem gerst hafa á Akureyri á sviði verslunar síðustu tvo mánuði eru ekki daglegir viðburðir og ef til vill eru landsmenn að verða vitni að kennslubókardæmi um gildi frjálsrar samkeppni. Gestur Hjaltason í Hagkaup á Akureyrí: Yið höfum lækkað almennt vöruverð Blaöamaóur Morgunblaðsins var á ferð um Akurcyri nýverið og ra“ddi þá við Gest Hjaltason framkvæmdastjóra sölusviðs hjá ilagkaup. en þess má geta að Gestur var að ieysa Ómar Jóhannsson verslunarstjóra af. en hann var í fríi þegar hlaðamaður átti þarna leið um. Flutningskostnaður hluti af rekstrarkostnaði Hvernig er hljóðið í ykkur eftir fyrstu tvo mánuðina? Það verður að segjast að salan hefur farið fram úr okkar björt- ustu vonum og t.d. var júlísalan mun meiri en söluspár gerðu ráð fyrir. Það er gjarnan svo, að þegar ný búð opnar, þá flykkjast menn til að skoða, þannig að það er alls ekki óeðlilegt að salan minnki strax á öðrum mánuði, en það hefur hún ekki gert hjá okkur. Hvað veldur því að þínu mati? Það eru sjálfsagt margar skýr- ingar á því, en ég held að almenn- ingur hafi komist að raun um að hér var eitthvað sérstakt á ferð- inni, við kynntum nýjungar í viðskiptaháttum, meira vöruval og lægra verð í mörgum tilfellum. Það kom einnig berlega í ljós, að mjög margar vörutegundir sem við buðum upp á höfðu ekki sést hér mjög lengi og fólk var orðið glorsoltið ef svo má segja. Ég get nefnt dæmi að jógúrt hefur verið ófáanleg hér þar til að við byrjuð- um að selja hana og salan hefur orðið gífurleg. Hvernig tekst ykk- ur að halda flutningskostnaði fyrir utan vöruverðið? Við högum okkar innkaupum þannig, að t.d. matvara og fatnað- ur er keypt inn á lager í Reykjavík og síðan flutt hingað, mest í gámum sjóleiðina. Með því móti Gestur Hjaltason framkvæmda- stjóri sölusviðs, við sams konar náum við að lækka flutnings- kostnað mjög verulega og getum boðið mun lægra verð. Við lítum á flutningskostnað sem hluta af rekstrarkostnaði, hann legst ekki á vöruverðið, heldur dregst frá hagnaði eins og aðrir kostnaðar- liðir. Við bjóðum því sama verð á vörunum hér og fyrir sunnan og t.d. er einfalt dæmi, að einn líter af Coke lækkaði hér um 300 kr. eftir að við byrjuðum. En er ekki erfitt, að láta álagn- inguna duga miðað við verulegan flutningskostnað? Ég held ekki, Hagkaup hefur oftast boðið 10% afslátt frá leyfðri álagningu og með ýtrustu hagkvæmni í flutningum held ég að það muni skila sér á viðunandi hátt fyrir alla aðila. Kaupfélagið fylgir í kjölfarið Hvernig hafa viðbrögð annarra verslana orðið? Kaupfélagið hefur í langan tíma verið langstærsti verslunaraðilinn hér á Akureyri, þannig að búast mátti við að við yrðum í mestri samkeppni við þann aðila. Viðbrögð þeirra hafa orðið hvort tveggja í senn, brosleg og ánægjuleg. Fyrst eftir að nýja verslunin opnaði gerðist lítið, en þegar ljóst varð að salan hjá okkur yrði svo mikil sem raun ber vitni byrjaði Kaupfélagið að taka við sér. Verð var lækkað á mörgum vörum, svo stórlega að engum gat dulist að tilkoma okkar var ástæð- an. Það er vitaskuld ekki nema gott eitt um það að segja, en mörgum þótti broslegt að sjá viðbrögðin og spurðu: Hvers vegna var verðið ekki lækkað fyrr? Við fögnuðum þessari breytni, enda höfum við lengi staðið í samkeppni sem öllum er til góðs, og nýtur hinn almenni viðskipta- vinur mests hagnaðar, sem kemur fram í almennri lækkun vöru- verðs. Hvað versla hér margir á dag, að jafnaði? Ég hef ekki haldbæra tölu um það, en í fljótu bragði má telja víst, að á góðum föstudegi komi hingað um 3000 kaupendur og eitthvað minna á öðrum dögum. Hafið þið marga starfsmenn hérna? Þeir eru um 40, en með vaxandi sölu gætum við orðið að bæta við. Hefur verið almenn ánægja með þessa verzlun? Ég held að ég geti fullyrt það. Fólk er bæði undrandi og ánægt með vöruúrvalið og ég hef heyrt, að fólk komi víða að úr sveitum til að versla hér. Það sem fyrir okkur vakir, er að bjóða fólki eins lágt vöruverð og við ráðum við og sem mest vöruúrval þdnnig að almenn- ingur geti fengið sem mest fyrir peningana. Ég álýt að okkur hafi tekist að lækka almennt vöruverð hér á Akureyri og vilji aðrir fara neðar þá fögnum við því. Feðgarnir Reynir Smith og Róbert Smith frá Reykjavík. Hjónin Sigmar Pétursson og Þrúður Kristjánsdóttir. Sævar Hallgrimsson á Svalbarðseyri: Álit nokkurra viðskiptavina: Vöruúrval er stórkostlegt... Veltan hjá okkur hefur tvöfaldast dæmi um nauðsyn samkeppni til lækkunar á vöruverði. Næstar á vegi Blaðamanns Mbl. urðu tvær konur frá Siglufirði sem voru að bjástra við að fylla farang- ursgeymslu á bíj af matvælum. Þær sögðust heita Árný Jóhannsdóttir og Svanhildur Eggertsdóttir og kæmu þær oft alla leið frá Siglu- firði til að versla í Hagkaup vegna þess að búðin bæri af öðrum. Bæði væri úrvalið af matvælum stór- kostlegt, en auk þess væri allt svo snyrtilegt, gott loft og lipurt starfs- fólk, sem legði sig fram við að sinna viðskiptavininum. Þær stöllur sögðu að lokum, að þær vissu um margt fólk sem gerði sér sérstaka ferð um langan veg til að komast í þessa verslun og væru Siglfirðingar þar engin undantekn- ing. Að síðustu hitti blaðamaður ung hjón þau Þrúði Kristjánsdóttur og Sigmar Pétursson, en þau hjónin bjuggu áður í Reykjavík. Þau sögðu að K.E.A. hefði aldrei getað veitt slíkt vöruval, enda verzluðu þau oft í kaupfélagsbúðunum frá degi til dags, en stórinnkaup færu fram í verslun Hagkaups. Áð mati þeirra hjóna hefur þessi verslun haft mikil áhrif á K.E.A. þar sem þeirra verslanir hefðu lagast mikið upp á síðkastiö. — F.F. skammri stundu, svo að við megum hafa okkur alla við að framleiða. Viðskiptunum við Hagkaup er þannig háttað, að við seljuni þeim annars vegar frysta vöru sem þeir geyma og hins vegar ferskan niat, sem seldur er úr kjötborðinu á hverjum degi. Hverskonar kjöt vill fólkið helst fá? Það er stöðug sala i þessu sígilda sem við þekkjum, en |>ó hefur það komið mér á óvart hversu viðskipta- vinirnir kaupa mikið af vöru sem telja má til nýjunga. Við höfum spáð því að Hagkaup myndi verða með um 20'ií af kjöt- markaðnum á Akureyri, en það er alveg Ijóst af sölunni að sú spá er til muna of lág. Margir töldu, að þegar nýjabrumið væri farið af Hagkaupsversluninni myndi salan fara minnkandi, en ef marka má af kjótsólunni þá sýnist mér raunin verða önnur. Er Hagkaup ykkar stærsti við- skiptavinur? Já, þeir eru langstærstir og þessi nýja búð hefur virkað eins og vítamínssprauta fyrir okkur, en í þessari kjötvinnslu vinna um 25 manns. Við ætlum að bregðast við þessari aukningu á þann hátt að auka enn fjölbreytnina og er bygg- ing nýs eldhúss eitt skref í þá átt. Mér sýnist það augljóst að al- menningur á Akureyri og í nágrenn- inu telur Hagkaupsbúðina eins og himnasendingu, enda hefur vöruúr- val stóraukist á Akureyri og vöru- verð lækkað að því að sagt er. BLAÐAMAÐUR Morgunhlaðsins hitti nokkra viðskiptavini í hinni nýju verslun Hagkaups á Akur- eyri og spurði þá hvernig þeim litist á verzlunina. Fyrsta hitti blaðamaður feðgana Reyni Smith og Róbert Smith en þeir eru báðir Reykvíkingar en voru í sumarleyfi í sumarbústað i Vagla- skógi. Þeir feðgar sögðust hafa orðið undrandi með það mikla vöruúrval sem í búðinni væri og gæfi það ekkert eftir búðum í Reykjavík. Að sögn þeirra feðga er verð mjög hagstætt, enda sýndi fólksstraum- urinn að fólk kynni að meta þessa búð, þar sem hún væri alltaf full. Að lokum sögðu þeir Reynir og Róbert að þessi verslun væri glöggt Árný Jóhannsdóttir ojf Svanhildur ÉKKertsdóttir írá Siglufirði. Hin nýja verslun Hagkaups á Akureyri fær stærstan hluta af kjötvöru frá kjötiðnaðardeild Kaupfélags Svalbarðseyrar í S-Þingeyjar- sýslu. sem er í um 20 km. fjarlægð frá Akureyri. Á Svalbarðseyri hefur um fjogurra ára skeið verið rekin umfangsmikil kjötvinnsla. en með tilkomu nýju verslunarinnar á Akureyri hefur framleiðslan stóraukist. Blaðamaður Morgunblaðsins skoðaði kjötvinnsluna og ræddi við Sævar Hallgrímsson framkvæmdastjóra kjötiðnaðardeildarinnar um umfang viðskiptanna við Hagkaup. Við framleiðum um 200 vöruheiti Hvað framleiðið þið helst hérna? Við byrjuðum fyrir rúmum fjórum árum og reyndum þá strax að feta ótroðnar slóðir í kjötframleiðslunni. Við höfum alla tíð verið með allt það algengasta af kjötvöru, en auk þess er margt um nýjungar. Þar má geta ýmis konar tilrauna með sölu á fersku kjöti, þar sem við seljum t.d. kjöt með sósum og öðru viðbiti, þannig að fólk þarf minna að hafa fyrir matseldinni. Þar fyrir utan framleiðum við salöt, samlokur og smárétti, við erum t.d. nýbyrjaðir að selja graflax með sinnepssósu við mjög góðar undirtektir. Þetta sem ég hef nefnt er þó aðeins smásýnishorn til að gefa nokkra hugm.vnd um úrvalið, en samanlagt framleiðum við yfir 200 vöruheiti. Hvernig er viðskiptunum við Hag- kaup háttað? Áður en að Hagkaup opnaði stór- verslun sína á Akureyri höfðum við framleitt fyrir verslanir víðs vegar um landið, en segja má að okkur hafi þó vantað stóran markað hér í nágrenninu. Með tilkomu þessarar verslunar gjörbreyttist dæmið, sökum þess að veltan hjá okkur tvöfaldaðist á Sævar Hallgrímsson fram- kvæmdastjóri með nýjan vinsæl- an rétt, graflax og sinnepssósu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.