Morgunblaðið - 20.08.1980, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 1980
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Hveragerði
Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu
og innheimtu fyrir Morgunblaðið í Hvera-
gerði.
Uppl. hjá umboðsmanni í síma 4389 og hjá
afgr. í Reykjavík sími 83033.
Skrifstofustörf
Opinber stofnun óskar að ráða í eftirfarandi
störf:
1. Vélritun
2. Almenn skrifstofustörf, afgreiðslu o.fl.
3. Almenn skrifstofustörf með megináherslu
á útreikning og meðferð tölvugagna.
Æskileg menntun stúdentspróf eöa sam-
bærilegt.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist Morgunblaðinu fyrir 22.
ágúst merktar „L — 4052“.
Rafmagnstækni-
fræðingur
með 4ra ára reynslu í stað- og fjarstýribúnaöi
rafveitna og með háspennuréttindi, óskar
eftir vinnu.
Tilboð sendist vinsamlegast til Mbl. fyrir 28.
ágúst merkt: „RAF — 4451“.
Óskum eftir að ráða
laghentan mann á verkstæði okkar.
Upplýsingar hjá verkstjóra.
Tréval h/f,
Nýbýlavegi 4, Kópavogi.
Lyfsöluleyfi
er forseti
íslands veitir
Lyfsöluleyfi Holts apóteks, Reykjavík, er
auglýst laust til umsóknar.
Umsóknir sendist landlækni, Arnarhvoli, fyrir
1. október 1980.
Lyfsöluleyfið veitist frá 1. janúar 1981.
Samkvæmt heimild í 32. gr. lyfsölulaga nr.
30/1963 er verðandi lyfsala gert að kaupa
húsnæði, áhöld og innréttingar, þar með
talinn tölvubúnað, sem er í uppsetningu, og
vörubirgöir apóteksins.
Heilbrigðis- og tryggingamáiaráöuneytiö
19. ágúst 1980.
Verkamenn
Verkamenn óskast strax, mikil vinna.
Upplýsingar í síma 50877.
Loftorka s.f.
Ábyggileg og reglusöm
stúlka óskast
til afgreiðslustarfa nú þegar.
G. Ólafsson & Sandholt,
Laugavegi 36.
Framtíðarstarf
Aöstoöarmaður óskast í bakarí, framtíðar-
starf. Góð laun fyrir góðan mann. Uppl. í
sima 41588 frá kl. 1—5.
Bílstjórar
Heildverslun óskar eftir traustum og reglu-
sömum manni til útkeyrslu og lagerstarfa.
Tilboð með upplýsingum um fyrri störf
sendist afgreiöslu blaösins merkt: „Framtíðar-
starf — 4456.“
Bakari
Pöntunarfélag Eskfirðinga, Eskifirði óskar að
ráða bakara sem fyrst.
Upplýsingar veitir kaupfélagsstjórinn í síma
6200 Eskifirði.
PÖNTUNARFÉLAG ESKFIRÐINGA
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða
talsímaverði
um sex mánaða skeið til starfa hjá talsam-
bandi við útlönd.
Gerðar eru kröfur til all nokkurrar 'tungu-
málakunnáttu.
Nánari upplýsingar verða veittar hjá starfs-
mannadeild.
Snyrting — pökkun
Getum bætt við vönu fólki við snyrtingu og
pökkun. Unnið er eftir bónuskerfi. Mötuneyti
og akstur til og frá vinnu.
Uppl. hjá yfirverkstjóra á staðnum.
Hraðfrystistöðin í Reykjavík h/f,
Mýrargötu 26.
Rafmagnsveitur
ríkisins
óska .að ráða rafvirkja til verkstjórnar við
línuvinnu með aðsetri í Ólafsvík.
Nánari upplýsingar hjá Rafmagnsveitum
ríkisins, Laugavegi 118, Reykjavík.
Skóverzlun —
Starfskraftur
óskast
frá kl. 2—6 frá 1. september. Ekki yngri en
35 ára.
Uppl. um aldur, menntun og fyrri störf
sendist Mbl. fyrir mánudagskvöld merkt:
„Skóverzlun — 4454“.
1—2 kennara
vantar
að Héraösskólanum á Reykjum. Æskilegar
kennslugreinar danska og raungreinar.
Uppl. gefur skólastjórinn í síma 95-1000 og
95-1001.
Járniðnaðarmenn
Óskum eftir að ráða vélvirkja, rennismiði og
aðstoðarmenn.
Mötuneyti á staðnum.
Vélaverkstæði Sig. Sveinbjörnssonar h.f.,
Arnarvogi, Garðabæ.
Sími 52850.
Afgreiðslustúlka
óskast. Vinnutími frá kl. 12—6.
Æskilegur aldur 20—35 ára.
Uppl. á staönum frá 10—12 á fimmtudag.
RIIZIIIl
HAFNARSTRÆTI 15
Lagermaður
Innflutnings- og smásölufyrirtæki óskar að
ráða starfskraft til almennrar lagerstarfa. Við
leitum eftir starfskrafti sem er ábyggilegur,
röskur, samviskusamur og töluglöggur.
Uppl. um aldur, menntun og fyrri störf
sendist augld. Mbl. merkt: „Lagermaöur —
4603.“
Höfðinglegar gjafir til
styrktarfélags vangefinna
NÝLEGA afhenti Kiwan-
isklúbburinn Elliði höfð-
injdegar gjafir til sambýl-
is Styrktarfélajís vanjjef-
inna í Auðarstræti í
Reykjavík.
Hér er um að ræða
húsKögn og litasjónvarp.
alls að verðmæti tæpar
tvær milljónir króna.
Stefnt er að því að taka sam-
býlið í notkun í september mán-
uði, en þar munu dveljast 12—14
manns.
Tvívegis áður hefur klúbburinn
afhent góðar gjafir til heimila
félagsins, ýmis konar íþróttatæki
til Lyngássheimilisins og þjálfun-
artæki til heimilis, sem félagið
hefur í smíðum við Stjörnugróf í
Reykjavík.
Styrktarfélag vangefinna
þakkar Kiwanismönnum í Elliða
allar þessar góðu gjafir og þann
hlýja hug til málefna félagsins,
er að baki býr.
Þorvaldur Kjartansson. for-
seti Elliða. afhendir fram-
kvæmdastjóra Styrktarfé-
lagsins gjafirnar.