Morgunblaðið - 20.08.1980, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 1980
Sími 11475
/ | ■ i
Snjoskriðan
Rock Hudton
Mia Farrow
Frabær, ný stórslysamynd tekin i
hinu hrífandi umhverfi Klettafjall-
anna.
Islenskur texti.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
InnlAmsvlAnkipli
Ifid fil
lisnwvidwkipljs
BUNAÐARBANKI
' ÍSLANDS
KIENZLE
Úr og klukkur
hjá fagmanninum.
MYNDAMÓTHF.
PRENTMYNDAGERÐ
ADALSTRÆTI • SlMAR: 17152-I73S5
Þríhjólið
Sýning í Lindarbæ fimmtu-
dagskvöld.
Miöasala í Lindarbæ daglega
kl. 5—7.
Sími 21971.
SÍKfí
Hitamælar
SfiiyiollgEflgjiyir
Vesturgötu 16,
sími 13280.
Gallabuxur nýkomnar
verð kr. 9.750,- Terylenebuxur kr. 11.000- og
ódýft? D*vsur kr. 5.950.- Skyrtur 5.950,- o.fl.
odýrt.
Andrés Skólavöröustíg 22.
Okkur
vantar
duglegar
stúlkur og
stráka
Vesturbær:
Hjaröarhagi
Austurbær:
Samtún
Hringið í síma
35408
pfofgtsnfrliKftUk
Jónas Sólmunds-
son húsgagnasmíða
meistari - 75 ára
Jónas Sólmundsson er 75 ára í
dag. I rauninni er það fáránlegt,
að fara að skrifa afmælisgrein um
ekki eldri mann. enda efa ég ekki
að Jónas kann mér litlar þakkir
fyrir, þar sem hann er síungur í
anda og ferskari og opnari fyrir
hverskyns nýjungum en margur
yngri maðurinn, jafnvel þótt ára-
tugir skilji á milli. Staðreynd er
það engu að síður.
Jónas er fæddur í Reykjavík 20.
ágúst 1905. Foreldrar hans voru
hjónin Guðrún S. Teitsdóttir og
Sólmundur Kristjánsson, trésmið-
ur.
Það að faðirinn var lærður
trésmiður og afinn, Kristján
Teitsson, trésmiður og rokka-
draujari, sem svo var nefnt, hefur
eflaust átt sinn þátt í, að Jónas
hóf nám í húsgagnasmíði hjá Jóni
Halldórssyni og co, sem hann lauk
1926.
Lífshlaup Jónasar hefur verið
æði viðburðarríkt, sem vænta má
af eldhuga sem honum. Leið hans
lá til Þýzkalands, þar sem hann
lagði stund á framhaldsnám í
húsgagna- og innanhúsarkitektúr.
Hlaut hann að námi loknu réttindi
sem „Werkmeister und Technik-
er“. Að því búnu lá leiðin heim og
stofnaði hann við þriðja mann
smíðastofuna Reyni árið 1930.
Ekki fór allt sem skildi, því
verkstæði þeirra brann árið 1937
og skildust þá leiðir og Jónas
stofnaði eigið fyrirtæki sama ár,
sem hann hefur rekið allar götur
síðan undir nafnin Smíðastofa
Jónasar Sólmundssonar. Á þessu
ári eru því liðin 50 ár síðan Jónas
hóf sjálfstæðan atvinnurekstur.
Öllum er til þekkja, er kunnur
hinn farsæli ferill, sem hann
hefur átt í rekstri smíðastofu
sinnar.
Snemma vaknaði hans listræan
eðli og ungur lagði hann stund á
listmálun. Hefur hann fengið hina
beztu dóma fyrir myndir sínar.
Fyrir fáum árum voru nokkrar
þeirra dregnar fram, er Jónas tók
þátt í samsýningu, sem Iðnaðar-
mannafélagið gekkst fyrir. Fékk
hann þar góða dóma og m.a. sagði
Valtýr Pétursson í gagnrýni sinni
í Morgunblaðinu: „Það fer ekki á
milli mála, að þar hefur gott efni í
fjörugan málara farið í vaskinn.
Þessar fáu myndir hans á sýning-
unni sanna þessa fullyrðingu
mína.“
Hvað um það. Það mun hafa
verið í Þýzkalandi, sem hann tók
þá örlagaríku ákvörðun, að helga
sig iðngrein sinni heilshugar. Jón-
as hefur þess í stað haldið tryggð
við listagyðjuna og á í dag fágæt-
lega gott málverkasafn.
Jónas hefur ekki farið troðnar
slóðir um dagana. Hvorki í sínu
starfi né í daglega lífinu. Oft hefur
hann orðið samferðamönnum sín-
um ráðgáta. Lífsgátuna hefur
hann gjarnan reynt að ieysa, er
stund gefst í næði frá daglegum
störfum. Laxveiði er honum hug-
leikin og er hann einkar laginn við
þá íþrótt, sem og annað er hann
tekur sér fyrir hendur.
Þau eiga það sameiginlegt
bleikja í Kalbaksvík á Ströndum
og Jónas að vera óútreiknanleg.
Það eru margar stundirnar, sem
við höfum átt í Kaldbaksvík og
furðað okkur á hegðun bleikjunn-
ar eða öðru hátterni hennar.
Ýmsar hávísindalegar skýringar
hefur Jónas þá jafnan á reiðum
höndum, þar sem hann situr á
bakkanum og tottar pípuna. Hug-
myndir hans þá, lýsa betur hans
frjóu hugsun, en margt annað.
Nú er mál að linni.
Ég get nú varla endað þessi orð,
án þess að þakka Jónasi fyrir allar
ánægjustundirnar, sem hann hef-
ur veitt mér. Einkum þegar hann
hefur látið gamminn geysa um
listir, menn og málefni. Ekkert er
honum óviðkomandi.
Ég óska þeim hjónunum Elínu
og Jónasi til hamingju með dag-
inn.
Heimir Lárusson.
Afmæliskveðja frá Félagi Hús-
gagna- og Innanhússarkitekta
Þegar FHI var stofnað fyrir 25
árum þótti þeim er að félagsstofn-
unni stóðu sjálfsagt og eðlilegt að
bjóða Jónasi Sólmundssyni að
gerast stofnfélagi, en hann hafði
þá rekið húsgagnavinnustofu hér í
Reykjavík í 20—30 ár. Jónas þáði
þetta boð, þeim sem að félags-
stofnuninni unnu til ánægju og
töldu þeir það heillavænlegt hinu
væntanlega félagi að svo þraut-
reyndur og vandvirkur fagmaður
sem Jónas er skyldi gerast stofn-
félagi þessa fámenna félags, en
stofnendur voru aðeins 7 að tölu.
Farþegaeftirlit hefur verið stór-
aukið á flugvöllum i Florida i
Bandaríkjunum eftir að met var
sett í flugránum á daginn þegar
þrem flugvéium var rænt sama
daginn og tilraun gerð til að ræna
þeirri f jórðu á sunnudag.
Fulltrúi bandaríska flugmálaeft-
irlitsins sagði að bæði einkenn-
isklæddir og óeinkennisklæddir
lögreglumenn yrðu nú meðal far-
þega á ýmsum flugleiðum frá Flor-
ida og nokkrum borgum í fleiri
ríkjum, en þessi aðferð til að
stemma stigu við flugránum hefði
verið notuð áður og gefið góða raun.
Tveir menn, báðir kúbanskir
flóttamenn, voru handteknir á al-
þjóðaflugvellinum í Miami eftir að
bensínbrúsar höfðu fundist á þeim,
en þeir höfðu ætlað að laumast með
þá út í flugvélina. Annar maður,
Hér verður æviatriða Jónasar lítt
getið, heldur stiklað lauslega á því
er varðar fagmannsferilinn.
Eftir að hafa lært húsgagna-
smíði hér í Reykjavík hélt Jónas
til Þýskalands til náms í hús-
gagna- og innreítingateikningu og
öðrum hagnýtum fræðum sem iðn
hans varðaði.
Fljótlega eftir heimkomuna
1928 stofnsetti hann, ásamt fleir-
um, Smíðastofuna Reyni sem var
til húsa á Vatnsstíg 3 hér í
Reykjavík. En í því húsi hafa
ýmsir aðilar rekið húsgagnavinnu-
stofur um mislangan tíma. Enda
var húsið byggt af eljumanninum
Jónatan Þorsteinssyni húsgagna-
smið og rak hann þar mjög
myndarlega húsgagnavinnustofu
og verslun í mörg ár.
Það mun enn vera í minni
margra eldri manna í iðngreininni
og annarra, að fyrir tilstuðlan
Smíðastofunnar Reynis barst
hingað ferskur og áður óþekktur
andblær, hvað varðaði form og
framleiðsluaðferðir húsgagna og
híbýlainnréttinga. Hér var sem
sagt á ferðinni hinn svonefndi
Funkisstíll sem var að festa rætur
í Evrópu og þá sérstaklega í
Þýskalandi. Þessir einföldu og
vönduðu munir, sem Jónas og
félagar framleiddu í Reyni, vöktu
strax verðskuldaða athygli og
urðu fljótt til eftirbreytni fyrir
aðra fagmenn. Enda ekki vanþörf
á breytingu eins og húsgagna-
framleiðslu var þá háttað.
Síðustu áratugina hefur Jónas
rekið fyrirtæki sitt að Sólvalla-
götu 48. Hann hefur auðvitað
sjálfur teiknað mikið af því sem
þar hefur verið smíðað, en að
sjálfsögðu einnig unnið mikið eftir
teikningum annarra húsgagna-
arkitekta. Fyrir það samstarf vilj-
um við félagarnir færa Jónasi
bestu þakkir á þessum tímamót-
um, því ávallt höfum við talið það
góðan endi þegar ákveðið hafði
verið, hvort sem um útboð var að
ræða eða ekki, að smíða ætti
hlutina sem við höfðum teiknað á
smiðastofu Jónasar. Við vissum að
þar var verkið í góðum höndum.
Við óskum Jónasi til hamingju
með afmælið. Megi hann eiga enn
margar stundir við teikniborðið,
hefilbekkinn eða málaratrönurn-
ar, sem við vitum að einnig hafa
stytt honum stundir með góðum
árangri.
Félagar í Félagi Húsgagna-
og innanhússarkitekta.
sem sést hafði á tali við Kúbubúana
tvo, var einnig færður í varðhald en
sleppt stuttu síðar, án ákæru.
Síðastliðna viku hefur sex banda-
rískum flugvélum verið rænt af
óánægðum flóttamönnum frá
Kúbu, sem vilja snúa heim aftur.
Bandaríska stjórnin hefur marg-
sinnis óskað eftir því við Kúbu-
stjórn, að hún leyfi þeim flótta-
mönnum, sem komu til Bandaríkj-
anna á bátum og vilja nú snúa aftur
heim, að koma. Þær tilraunir hafa
allar verið árangurslausar.
Þotu hlekktist
á á Arlanda
Stokkhólmi lS.áKiist AF.
JÚGÓSLAVNESK Boeing 707
þota með 86 farþega innanborðs
hlekktist á í lendingu á Arlanda-
flugvellinum í Stokkhólmi. Þotan
fór út af flugbrautinni. Enginn
farþega slasaðist í óhappinu og
orsakir þess eru ókunnar.
AUGLÝSINGASTOFA
MYIMDAMÓTA
Aóalstræti 6 sími 25810
ÞURRKADUR HARÐVIÐUR
Eigum fyrirliggjandi á mjög hagstæöu verði
þurrkað TEAK, RED MERANTI og ABACHI.
Einnig þurrkað OREGON PINE og PITCH PINE.
PÁLL ÞORGEIRSSON &C0,
Ármúla 27. — Símar 34000 og 86100.
Farþegaeftirlit
aukið í Florida