Morgunblaðið - 20.08.1980, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 1980
United steinlá en
Liverpool náði stigi
I>lonuinl»Iníiií»
LIVERPOOL. ensku mcistararn-
ir, nádu í sti){ í Coventry (0—0),
er nokkrir leikir fóru fram í
ensku knattspyrnunni í gær-
kvöldi. Á sama tíma tapaði
Manchester United á útivelli
fyrir Úlfunum, George Berry
skoraði þar sigurmarkið tveimur
mínútum fyrir leikslok. Úrslit
annarra leikja f 1. deild urðu
þessi:
Arsenal — Southampton 1:1
Palace — Tottenham 3:4
Ipswich — Brighton 2:0
Middlesbr. — Leeds 3:0
Everton — Leicester 1:0
Frank Stapelton skoraði mark
Arsenal, en Graham Baker svar-
aði með fallegu langskoti. John
Wark skoraði úr vítaspyrnu og
kom Ipswich á bragðið gegn
Brighton. Eric Gates bætti öðru
marki við. Mesta fjörið var í leik
Palace og Tottenham. Þar var
Palace-leikmaðurinn Vince Hil-
aire rekinn af leikvelli fyrir að
hrinda dómara leiksins um koll er
honum mislíkaði dómgæslan.
Meðal markaskorara voru Steve
Archiebald og Garth Crookes (2)
fyrir Tottenham, en Hilaire hafði
skorað a.m.k. eitt mark fyrir
Palace áður en hann fékk flugmið-
ann. í annarri deild var það
markverðast, að 17 ára nýliði frá
QPR, Wayne Ferredy, skoraði
tvívegis gegn Bristol Rovers. QPR
vann 4—0.
iirrBDiira
Dortmund
tapaði
Nokkrir leikir fóru fram í þýsku
deildarkeppninni í gærkvöldi og
má þar nefna, að Borussia Dort-
mund. lið Atla Eðvaldssonar,
tapaði 3—5 i hörkufjörugum leik
gegn meistaraliðinu Bayern
Munchen. Því miður tókst Mbl.
ekki að grafa upp hvort Atli
skoraði í leiknum, en sem kunn-
ugt er skoraði hann i sinum
fyrsta leik fyrir fáum dögum.
Oddný Árnadóttir ÍR (tv) og Helga Halldórsdóttir KR settu svip á
Bikarkeppni FRÍ eins og aðrar frjálsiþróttakeppnir í sumar. bær
voru duglegar við að safna stigum fyrir félög sin, Helga sigraði i fimm
greinum og Oddný varð i öðru sæti i þremur greinum, auk þess sem
þær hlupu í boðhlaupunum. en ÍR sigraði i þeim báðum.
\
■?>4
,Þegar þú þarft að kippa í gang hjá vini þínum“
SHELL SUPER PUUS
Olían,sem er eins og sniðin fyrir
íslenskar adstæöur!
Nýja fjölþykktarolían frá Shell tekur langt
fram þeim kröfum, sem bifreiðaframleið-
endur hafa sett um gæði og endingu olíu
fyrir nýjustu gerðir bílvéla.
Shell Super Plus myndar níðsterka húð,
sem verndar slitfleti vélarinnar allan eðli-
legan notkunartíma olíunnar. Vél varin
með Super Plus endist lengur og þarfn-
ast síður viðhalds.
Eiginleikar Shell Super Plus hæfa tíðum
hitasveiflum íslenskrar veðráttu. Fjöl-
þykktareiginleikar Super Plus gera
gangsetningu.auðvelda í kulda, og veita
hámarksvernd við mesta álag, t.d. þegar
kippa þarf í gang hjá kunningja.
Sérstök bætiefni Shell Super Plus gefa
olíunni styrk og þol til þess að standast
mikinn þrýsting og hita, sem myndast í
nýjustu bílvélum. Super Plus vinnur verk
sitt betur og lengur en nokkur önnur
Shell olía hefur áður gert.
Olíufélagið Skeljungur h.f.
Einkaumboð fyrir ,,SHELL“ vörur
MOTOR O/Li
■ --m É&W.