Morgunblaðið - 20.08.1980, Blaðsíða 32
AL’(*LÝSIN(fASÍMINN EH:
22480
Ht#rounl>t«biö
Síminn á afgreiöslunni er
83033
JM#r0unbInt>ib
MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 1980
Verulegur samdráttur í Atlantshafsflugi Flugleiða:
Ameríkuflugiö
aftur um ísland
KARL Bretaprins kom i gær til
landsins og héit siðde«is til Vopna-
(jarðar, þar sem hann mun stunda
laxveiðar fram ti) mánaðamóta.
Áður en hann hélt austur sat hann
hádegisverðarboð að Bessastoðum i
boði forseta fsiands, Vigdisar Finn-
bogadóttur, en meðal rétta á mat-
seðlinum voru graflax og skötusel-
ur. Myndin var tekin þegar Karl
prins kom frá Bessastöðum og var 1
þann veginn að stiga upp í flugvél á
leið til Vopnafjarðar. Hér kveður
hann Bjarna Pálmarsson. leigubif-
reiðarstjóra á BSR. sem ók Karli.
Ljósm. Mbl. Kristinn.
Fækkað í nokkrar ferðir á viku
milli Lux-Islands-New York
Chicagóflugið fellt niður
„ÞAÐ stendur alls ekki til að
leggja niður flug Flugleiða milli
Luxemborgar, íslands og Banda-
ríkjanna,“ sagði Sigurður
Helgason forstjóri Flugleiða i
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvoldi, en það verður fært veru-
lega saman og um þessar mund-
ir er verið að vinna að því.
Ekki er ákveðið hvað margar
ferðir verða á viku, en þær verða
Tillögur
að vetrar-
áætlun til
afgreiðslu
MARKAÐSDEILDARMENN
Flugleiða hafa setið á löngum
fundum undanfarna daga með
forstjóra og framkvæmda-
stjórum Flugleiða til þess að
ræða hugmvndir Markaðs-
deildarinnar á framkvæmd
vetraráætlunar. Síðar í vik-
unni verður stjórnarfundur
Flugleiða til þess að ræða
hugmyndir og tillögur
Markaðsdeilarinnar og þá
verður væntanlega tekin
ákvörðun um vetrar-
áætlunina.
Þá verður á næstunni fundur
Flugleiðamanna með fjórum
ráðherrum til þess að kynna
íslenzkum stjórnvöldum gang
mála hjá fyrirtækinu og ástand
í rekstri. Verður þar m.a. vænt-
anlega rætt um lendingargjöld-
in sem Fluleiðamenn töldu
ákveðið að leggja ætti niður en
samstaða er ekki um meðal
ráðherra.
Ahrif Hagkaups
á Akureyri:
Vöruverðið
hefur lækkað
Á ÞEIM rúmum tveimur mánuð-
um sem liðnir eru frá því að
Hagkaup opnaði stórverslun sina
á Akureyri hefur salan farið jafnt
og þétt vaxandi og ekkert bendir
til, að á þvi verði breyting.
Tilkoma verslunarinnar hefur
þegar haft þau áhrif að vöruverð
hefur lækkað á Akureyri þar sem
samkeppnisaðilar Hagkaups hafa
lækkað sin verð.
Eina meginástæðuna má rekja
til þess að Hagkaup leggur ekki
flutningskostnað á vöruverðið, sem
hefur þau áhrif, að t.d. lækkar einn
líter af Coke um 300. kr. og aðrar
vörur í samræmi við það.
Sjá nánar um Hagkaup á bls.
16-17.
nokkrar og allar í gegn um
ísland. Þá verður Chicagoflugið
fellt niður og lýkur því í septem-
ber. Verður skrifstofu Flugleiða
þar lokað, en írska flugfélagið
Aer Lingus sem hefur séð um
afgreiðslu Flugleiða þar hættir
einnig starfsemi sinni þar í
haust.
Með vetraráætlun Flugleiða
verða allar ferðir milli Evrópu og
Ameríku með millilendingu á
íslandi. Yfirflugið svokallaða
með beinu flugi milli Luxemborg-
ar og Bandaríkjanna, hófst í
byrjun þessa árs og stóð reglu-
lega fram eftir vetri, en síðan
varð það óreglulegt. Síðastliðinn
vetur voru flognar 5 ferðir á viku
til New York og 2 ferðir á viku til
Chicago. Óráðið er hvort Chi-
cagoflug verður tekið aftur upp
næsta sumar.
„Hekla lækkar róminn“
„Spurning hvort gosið nær sér á strik
aftur“ — segir dr. Sigurður Þórarinsson
HRAUNRENNSLI í eldstöðvun-
um í Heklu minnkaði verulega i
gær og í fyrrinótt að sögn dr.
Sigurðar Þórarinssonar, jarðfræð-
ings, í samtali við Morgunblaðið i
gærkvöldi. en hann var þá nýkom-
inn úr rannsóknarleiðangri
kringum Heklu. „Aðfaranótt þrið-
judags,“ sagði dr. Sigurður. „var
fjör í einstaka gig, aðallega á
norðaustursprungunni, en með
morgninum fór þetta allt að
minnka i báða enda. Drunur mátti
þó heyra til hádegis í suðvestur-
gígnum en siðan lækkaði hann
róminn. Þessi hegðun í gosinu er
eðlileg fyrir Heklu, því venjulega
hefur dregið mjög úr Heklugosum
strax eftir fyrstu dagana, en nú er
það hins vegar spurningin um það
hvort þetta lognast hægt og ró-
lega út af eða nær sér á strik aftur
eins og t.d. i Heklugosinu 1947. Þá
dró verulega úr gosinu á þriðja
degi, en siðan eftir liðlega eina
viku náði það sér aftur á strik og
stóð i 13 mánuði. Nú getur það
hangið á horriminni i nokkra
daga áður en framvindan skýrist,
en hraunrennsli er ennþá.
Sprungan nú er heldur lengri en
í gosinu 1947 og því getur hún hafa
losað sig við heldur meira magn af
hrauni, en rennslið hefur verið
þúsu.ndir teningsmetra á sek. þegar
það var mest. Það á eftir að mæla
hraunmagnið og sama er um ösku-
magnið, en það er nú heldur meira
en 1970. í gosinu 1947 var það hins
vegar mun meira, en úr þessu þarf
ekki að reikna með miklu öskufalli.
Þó gæti sáldrast yfir þá bæi sem
næst liggja. Það er því ómögulegt
að segja hvað verður í Heklu næstu
daga en t.d. í gosinu 1845 dró
verulega úr því á fyrstu dögum
áður en það tók síðan kipp. Það
virðist vera nokkuð reglulegur
háttur Heklugosa."
Surtsey og Sæljón
seldu í Englandi
SURTSEY frá Vestmannaeyjum
og Sæljón frá Eskifirði lönduðu
afla sinum i Bretlandi i gær.
Surtsey seldi 49.9 tonn í Fleetwood
fyrir 31.3 milljónir króna, meðal-
verð 627 krónur. Sæljón seldi 60.8
tonn í Hull fyrir 34.1 milljón,
meðalverð á kíló 560 krónur.
Unnur Ólafsdóttir, veðurfræð-
ingur á Veðurstofu íslands sagði að
litlar fréttir hefðu borist af ösku-
falli í gær en þó hefði örlítið
öskufall mælst á Siglunesi. Að öðru
leyti hefði ösku- og vikurfall frá
Heklu fram að þessu mest orðið
norður og norð-austur af Heklu. Á
Norðurlandi hefði öskufallið orðið
á svæðinu milli Eyjafjarðar og
Skagafjarðar og þá mest á afrétt-
unum og innst í dölum. Unnur
sagði að í gær hefði vindátt snúist
heldur meira í norðvestur en lítil
aska virtist hafa komið upp í
gosinu í gær. Örlítið sást votta
fyrir öskufalli á stöku stað í
uppsveitum Árnessýslu í gærmorg-
un en það var þó vart merkjanlegt
og þegar tók að rigna sáust engin
merki um ösku á þessum slóðum.
Fram kom hjá Unni að gert væri
ráð fyrir að vindur yrði frekar
hægur í nótt, en snérist meira í
norður á morgun.
Jón Jónsson forstjóri Hafrannsóknarstofnunar:
Höfum ekki hvikað frá
300 þús. toiuia markinu
— VIÐ LÖGÐUM til í upphafi
ársins, að þorskafli færi ekki
yfir 300 þúsund tonn i ár og
frá þeirri tillögu okkar höfum
við ekki hvikað, sagði Jón
Jónsson, forstjóri Hafrann-
sóknastofnunar, í samtali við
Morgunblaðið, er hann var
spurður álits á þvi að nú er
útlit fyrir, að þorskaflinn
verði ekki undir 400 þúsund
tonnum.
— 300 þúsund tonnin teljum
við rétta viðmiðun og það er sá
valkostur, sem við teljum æski-
legastan. Þeim mun meira, sem
tekið er úr stofninum umfram
300 þúsund tonn, seinkar upp-
byggingu hryggningarstofnsins
að sama skapi. Það er síðan
pólitísk ákvörðun hvað menn
vilja vera lengi að byggja upp
þennan stofn, sagði Jón Jóns-
í viðtalinu kom fram, að Jón
telur eigi að síður talsvert hafa
áunnizt á síðustu árum og
nefndi hann í því sambandi m.a.
breytta möskvastærð og svæða-
lokanir, sem hefðu verndað
smáfiskinn.
Sjá nánar á blaðsinu 2.