Morgunblaðið - 21.08.1980, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1980
Grunnskólinn, Grundarfirði:
Atta kennarar af 9
treysta sér ekki
til að hef ja störf
Samningur BSRB og ríkisins:
Atkvæðagreiðsla
4. og 5. september
ÁTTA kennarar af níu við
Grunnskóla Grundarf jarðar hafa
lýst þvi yfir, að þeir treysti sér
ekki til að hef ja störf við skólann
i haust, ef fastráðinn skólastjóri.
sem verið hefur í ársleyfi frá
störfum. hefur þá störf að nýju.
Ástæðan sem þeir gefa er, skv.
heimildum Mbl., að þeir geti ekki
unnið með skólastjóranum vegna
„samstarfserfiðleika og áhugal-
eysis hans“, eins og það hefur
verið orðað. Fjórir af þessum átta
kennurum hafa þó aldrei unnið
undir stjórn skólastjórans, en
þrír segjast aðspurðir þekkja til
starfa hans af samstarfsvett-
vangi skólamanna. Skólanefnd
Grundarfjarðar hefur sagt af sér
vcgna þess og hreppsnefnd fund-
aði um málið s.l. föstudagskvöld
og sendi ályktun sina til mennta-
málaráðherra og bíður málið nú
afgreiðslu hans. Kröfur hafa
komið frá íbúum Grundarfjarðar
um. að haldinn verði borgara-
fundur um málið.
Ekki tókst að ná sambandi við
neina af kennurum skólans í gær
og sveitarstjóri og skólastjórinn
vildu þá ekki láta hafa neitt eftir
sér á þessu stigi málsins. Skóla-
stjórinn, sem er Örn Forberg,
hefur starfað á annan tug ára við
Grunnskólann og kom nú nýverið
til starfa á ný, með áðurnefndum
afleiðingum. Ungur maður, Ey-
INNLENT
Jafntefli
hjá Jóni
JÓN L. Árnason gerði jafntefli við
Toro frá Chile í fjórðu umferð
heimsmeistaramóts unglinga í
skák í gærkvöldi. Jón er nú í 1. —
4. sæti ásamt Kasparov Sovétríkj-
unum og Neguleschu Rúmeníu,
sem tefldu saman í gær og gerðu
jafntefli, og Akesson frá Svíþjóð,
en þeir eru allir með 3,5 vinninga.
í fimmtu umferð í dag hefur Jón
hvítt á móti Kasparov.
steinn Jónasson, hefur gegnt
starfi hans í ársfjarverunni. Einn
kennari við skólann, sem starfað
hefur þar í sjö ár, tekur ekki þátt í
þessum aðgerðum. Málið bíður nú
afgreiðslu menntamálaráðherra,
Ingvars Gíslasonar, en hann hefur
ekki verið í bænum, en var vænt-
anlegur í ráðuneytið á ný í morg-
un. Um fátt er meira talað á
Grundarfirði þessa dagana og
hafa komið fram óskir frá íbúum
um að borgarafundur verði hald-
inn og málin þar rædd.
Fjórum sleppt
úr gæzlu í gær
Fjórum mönnum sem setið hafa i
gæzluvarðhaldi vegna rannsókna
RLR á svika- og þjófnaðarmálum
var sleppt úr haldi í gær. í þeim
hópi var annar sölumannanna
svonefndu. en hinum var sleppt á
föstudaginn. Báðir þessir menn
sátu inni í u.þ.b. einn og hálfan
mánuð.
Þá rann út í gær gæzluvarðhald
þriggja manna, sem sátu inni
vegna rannsóknar á innbrotum í
nokkur íbúðarhús á höfuðborgar-
svæðinu á undanförnum vikum.
Þar var stolið ýmsum verðmætum,
aðallega borðbúnaði. Voru menn-
irnir viðriðnir sum innbrotin og
komst megnið af þýfinu til skila.
Svipað verð í
Englandi og
V-Þýzkalandi
FJÖGUR íslenzk fiskiskip lönduðu
afla sínum erlendis í gær og fékkst
svipað meðalverð fyrir aflann
hvort heldur landað var í Bret-
landi eða Þýzkalandi. Freyja seldi
45.1 tonn í Bremerhaven fyrir 23.6
milljónir króna, meðalverð 523
krónur. Rán seldi 144.2 tonn í Hull
fyrir 79.8 milljónir, meðalverð 554
krónur. Bylgja seldi 52 lestir í
Fleetwood fyrir 26.4 milljónir,
meðalverð 507 krónur. Huginn
seldi 96.5 tonn í Grimsby fyrir 48.5
milljónir, meðalverð 502 krónur á
kíló.
STJÓRN BSRB ákvað á fundi í
gær, að allsherjaratkvæða-
greiðsla um nýju kjarasamn-
ingana fari fram 4. og 5. sept-
ember nk., sem eru fimmtudagur
og föstudagur. Einnig ákvað
stjórnin. að bandalagið sjálft
myndi efna til kynningarfunda
um samkomulagið úti á landi, en
einstök aðildarfélög í Reykjavík,
Kópavogi og Hafnarfirði. Stjórn
BSRB kaus þriggja manna yfir-
kjörstjórn. Formaður er Hörður
Zophaníasson skólastjóri og með
honum i yfirkjörstjórninni eru
Ágúst Guðmundsson landmæl-
ingamaður og Ólafur Guð-
mundsson aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn.
Aðalsamninganefnd BSRB sam-
þykkti samkomulagið með 49 at-
kvæðum gegn 2 undir miðnætti í
fyrrinótt, en fundur aðalsamn-
inganefndarinnar dróst fram á
kvöldið meðan 8-manna samn-
inganefnd BSRB og samninga-
nefnd ríkisins gengu endanlega
frá samkomulaginu. Kristján
Thorlacius formaður BSRB sagði í
samtali við Mbl. í gær, að þar
hefði aðallega verið um það að
ræða að útfæra uppkast að bráða-
birgðalögum varðandi samkomu-
„ÞAÐ er alveg ljóst að samning-
ar opinberra starfsmanna og
rikisins hafa sin áhrif á okkar
samningamál. Þeir gera til dæm-
is ráð fyrir allverulegri hækkun
hjá þeim hópum, sem við miðum
við, eða allt að 7 til 8% hækkun
og einnig eru ýms önnur atriði.
lagsatriði um samningsrétt, at-
vinnuleysistryggingar og lífeyr-
issjóðsmál og einnig hefði verið
gengið endanlega frá málum varð-
andi flokkatilfærslur samkomu-
lagsins.
eins og til dæmis 0,15% framlag í
fræðslusjóð og svo lífeyrissjóða-
málin, þar sem augljós regin-
munur er á og við hljótum að
taka þau til gagngerrar endur-
skoðunar,“ sagði Ásmundur Stef-
ánsson framkvæmdastjóri ASÍ i
samtali við Mbl. í gær. „Á fundin-
um hjá sáttasemjara i dag fórum
við yfir stöðuna eins og hún er
orðin eftir þessa samningagerð
og gerðum VSÍ grein fyrir því,
hvernig við lítum á málin núna.“
„Við bentum á, að það eru mjög
fáir starfsmenn sem njóta þessara
mestu launahækkana í samkomu-
lagi BSRB og ríkisins og mjög fáir
starfsmenn akkúrat í þeim störf-
um, sem Alþýðusambandið vill
miða við, þannig að þetta er alls
ekki sambærilegt," sagði Þor-
steinn Pálsson, framkvæmdastjóri
VSÍ, í samtali við Mbl. í gær. „Við
teljum fráleitt að fara út í ein-
hverja verðbólgukollsteypu með
samanburði við örfáa einstakl-
inga.
Samningaráð okkar átti í morg-
un fund með forsætisráðherra,
fjármálaráðherra og samgöngu-
ráðherra, þar sem rædd var stað-
an eftir samkomulag ríkisins við
BSRB. Það samkomulag hefur
engu breytt varðandi samningana
á almenna vinnumarkaðnum.
Þessi fundur staðfesti það álit
okkar, að ekki sé unnt að semja
um meiri útgjaldahækkun hlut-
fallslega, en ríkið samdi um, og
okkar mat er, að sú útgjaldahækk-
un sé innan við 5%. Það ríkti
gagnkvæmur skilningur á þessum
fundi," sagði Þorsteinn Pálsson.
Næsti sáttafundur verður á
föstudaginn klukkan 13:30.
Siglfirðingar líta
síldina hýru auga
SÍLDAR hefur orðið vart í
talsverðum mæli inni á fjörðum
og flóum og fyrir Norðurlandi
undanfarið og margir fengið
ágætan afla i lagnet síðustu 2
vikurnar. Er þarna um Suður-
landssíld eða sumargotssild að
ræða og hefur fituinnihald síld-
arinnar verið í kringum 20%.
Veiðar á þessari síld mega
hefjast í reknet 25. ágúst og
þeir, sem leyfi hafa til rekneta-
veiða ráða sjálfir hvort þeir
veiða síldina fyrir Suðurlandi
eða reyna fyrir sér nyrðra.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins munu einhvcrjir
hafa hug á reknetaveiðum fyrir
Norðurlandi og munu þá leggja
upp á Siglufirði.
í sjávarútvegsráðuneytinu
fékk Morgunblaðið þær upplýs-
ingar í gær, að reynt væri að
fylgjast með síldveiðum nyrðra,
en þar hefði eingöngu verið um
veiðar í lagnet að ræða til þessa.
Það væri þó ekkert, sem mælti á
móti því, að reknetabátar færu á
síld fyrir Norðurlandi eftir 25.
ágúst. 62 bátar hafa fengið leyfi
tii reknetaveiða og er það svip-
aður fjöldi og í fyrra. Álls mega
reknetabátarnir veiða 18 þúsund
lestir af síld í haust.
Meira virðist vera af síld
nyrðra í ár heldur en var í fyrra
og höfðu menn þó á orði þá, að
slíkrar síldargöngu hefði ekki
orðið vart fyrir Norðurlandi í
mörg ár. Fyrir nokkru lagði Axel
Thorsteinsson á Gjögri gamalt
net í Reykjafirðinum og fékk
hann 5 tunnur af fallegri síld.
Svo slitið var netið orðið, að í
Síldvciðar í reknet mega hefja.st
næstkomandi mánudag og eru
skipin þessa dagana að húa sig
á veiðarnar. í gær voru netin
tekin um borð í ófeig III í
Vestmannaeyjum.
(Ljósm. Sigurgeir).
raun voru aðeins teinarnir eftir
þegar aflinn hafði verið innbyrt-
ur. I fyrrakvöld reyndi maður á
Siglufirði að leggja netastubb
inni í firðinum og kom hann að
landi með 100 vænar síldar. Þá
má geta þess, að undanfarið
hafa verið saltaðar 40-80 tunnur
af síld á Dalvík dag hvern.
Fréttaritari Morgunblaðsins á
Siglufirði sagði í gær, að margir
litu síldina nú hýru auga. Þarna
væri bæði um aukna atvinnu að
ræða og mikinn sparnað, en
lagmetisverksmiðjurnar þar
hafa undanfarin ár fengið síld
frá Hornafiíði, Vestmannaeyj-
um og fleiri stöðum sunnan-
lands. Hann sagði að vart hefði
orðið við stórar torfur síðustu
daga og síldin virtist vera allt
frá Reykjafirði austur í Axar-
fjörð.
ASÍ gerði grein
fyrir breyttum
viðhorfum sínum