Morgunblaðið - 21.08.1980, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1980
Þetta gerðist
1975 — Bandaríkin aflétta útt
flutningsbanni til Kúbu, sem stað-
ið hafði í tólf ár.
1973 — Stuðningsmenn og and-
stæðingar ríkisstjórnar Chile í
götubardögum í höfuðborginni
Santiago.
1969 — Eldsvoði í A1 Aqsamosk-
unni í Jerúsalem veldur verulegu
tjóni.
1959 — Hawaii verður 50. ríki
Bandaríkjanna.
1956 — Átján þjóðir samþykkja
tillögu John Foster Dulles utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna
varðandi Súezskurðardeilu, en
Sovétríkin, Indónesía og Ceylon
fylgja áætlun Nehrus frá Indlandi.
1940 — Leon Trotsky, frægur
rússneskur byltingarmaður, deyr
af sárum sínum, sem tilræðismað-
ur veitti honum í Mexíkóborg.
1917 — Þýzkar hersveitir ráðast á
Riga í fyrri heimsstyrjöldinni.
1689 — Lúðvík af Baden sigrar
Tyrki.
Afmæli dagsins: Jean Baptiste
Greuze, franskur listamaður
(1725-1805), William Murdock,
skozkur hugvitsmaður (1754—
1839), Jules Michelet, franskur
sagnfræðingur (1798—1874),
Margrét Bretaprinsessa, (1930 —).
Innlent: 1011 Njálsbrenna — 1238
Örlygsstaðabardagi (d. Sighvatur
og Sturla) — 1517 Fundurinn
mikli í Ögri — 1897 Stjórnar-
skrárfrumvarp Valtýs Guð-
mundssonar fellt — 1905 Ritsím-
asamningurinn samþykktur á Al-
þingi — 1913 d. Steingrímur
Thorsteinsson — 1916 Alþingis-
kosningar — 1932 Þverárbrú vígð
— 1942 „Skaftfellingur“ bjargar
þýzkum skipbrotsmönnum — 1954
„Jón Þorláksson" fer á karfa við
Grænland og finnur Jónsmið —
1958 Friðrik Ólafsson verður
stórmeistari í skák.
Orð dagsins: Sólin skín einnig á
hina ranglátu — Seneca, róm-
verskur spekingur (54 f.Kr. — 39
e.Kr.).
Biskupakirkju-
menn handteknir
Lundunum. 20. áKÚst. AP.
TVEIR leiðtogar biskupakirkjunn-
ar í íran hafa verið teknir fastir.
Ekki er vitað um ákærur á hendur
þeim. Hinir handteknu eru Irja
Mottahedeh og Dimitri Bellos.
Lítið látið
yfir heim-
sókn Bush
PekinK. WashinKton. 20. áKÚst. AP.
TÍU klukkustundum eftir að
George Bush varaforsetaefni
repúblikana kom i heimsókn til
Kína hafði hin opinbera frétta-
stofa Kinverja Xinhua. ekki
minnst einu orði á heimsókn-
ina.
Bush kom til Kína í morgun,
og mun hann þar m.a. eiga
viðræður við ráðamenn. Ráða-
menn í Kína hafa þungar
áhyggjur af því að kólna kunni í
samskiptum Kínverja og Banda-
ríkjamanna ef Ronald Reagan
forsetaefni repúblikana kemst i
Hvíta húsið eftir bandarísku
forsetakosningarnar í haust,
vegna stefnu hans í málefnum
Formósu.
Háttsettir embættismenn i
Bandaríkjunum hafa tekið und-
ir áhyggjur Kínverja um að
kólna kunni í samskiptum Kín-
verja og Bandaríkjamanna ef
Reagan kemst í Hvíta húsið,
einknum ef Reagan opnar
skrifstofu sérlegs sendifulltrúa
á Formósu, eins og tilkynnt var
um helgina að hann muni gera
ef hann kemst til valda.
Biskup kirkjunnar, Hasan Deh-
qani-Tafti, sem nú er í útlegð í
Bretlandi hvatti til bænagjörðar.
Hann sagði, að handtaka mannanna
tveggja vekti ugg um enn frekari
ofsóknir á hendur minnihlutatrúar-
söfnuðum í íran. Tafti flýði íran
eftir að tilraun hafði verið gerð til að
myrða hann. Sonur hans, 24 ára
gamall sem kaus að vera áfram í
Iran þrátt fyrir ofsóknir var myrtur
í maí síðastliðnum. Skólum biskupa-
kirkjunnar í landinu hefur verið
lokað og yfirvöld hafa tekið aðrar
byggingar safnaðarins traustataki.
Ritari biskupsins, Bretinn Jean
Waddel hefur verið handtekin og er
enn í haldi ásamt tveimur læknatrú-
boðum, dr. John Coleman og konu
hans. Þá var brezkur blaðamaður
Lundúnablaðsins The London Times
handtekinn í síðustu viku. Brezkum
sendiráðsmönnum hefur ekki enn
verið heimilað að hitta hina hand-
teknu að máli.
æ-
Israelar
falast eft-
ir aðstoð
W ashinntnn. 20. ágúst. AP.
ÍSRAELAR fóru þess formlega á
leit í dag við stjórn Carters forseta
að þeim yrði veittur 2,9 milljarða
dollara efnahagsaðstoð á árinu 1982.
Ef fallist verður á ósk þeirra verður
um að ræða 50% hækkun frá
núverandi efnahagsaðstoð sem Isra-
elar hljóta hjá Bandaríkjamönnum.
Það hefur verið venja Israela að
biðja um meiri aðstoð, en þeir gerðu
sér vonir um að hljóta.
NÝTT! Kynnum geimferða-
áætlunina frá LEGO
LEGO er nýtt leikfang
á hverjum degi
Verkamenn í Lenin-skipasmíðastöðinni i Gdansk i Póllandi sitja hér flötum beinum meðan beðið er eftir
viðbrögðum stjórnvalda við kröfum þeirra um betri laun. félagafrelsi og að ritskoðun verði aflétt.
Jóhannes Páll II páfi í Róm um verkföllin:
AP-simamynd.
„Við í Róm stöndum
með löndum okkar“
Danska alþýðusambandið og eitt stærsta verkalýðssamband
Bandaríkjanna lýsa yfir stuðning við verkfallsmenn
i ræðu sinni. Hann hvatti píla-
gríma í Róm um 20 þúsund talsins.
til að biðja fyrir „þjóð sinni“. Fyrr
i dag birti útvarp Vatikansins
hluta ræða Stefans Wyszynskis.
kardinála í Varsjá.
Danska Alþýðusambandið, (LO)
lýsti í dag yfir fullum stuðningi við
verkfallsmenn í Póllandi og hvatti
stjórnvöld í Póllandi til að semja
við verkfallsmenn um „réttlátar
kröfur þeirra". Thomas Nielsen,
formaður LO skrifaði undir yfirlýs-
ingu þar sem baráttu verkamanna
var lýst sem „hetjulegri".
Stærsta verkalýðssamband
Bandaríkjanna, AFL-CIO lýsti í
dag yfir stuðningi við verkfalls-
menn. Sambandið hvatti stjórnvöld
til að gera yfirvöldum í Póllandi
það ljóst, að hervald gegn verkfalls-
mönnum myndi hafa illar afleið-
ingar í för með sér. Þá sagði í
yfirlýsingu sambandsins, að bar-
átta verkamanna í Póllandi undir-
strikaði enn einu sinni, að réttindi
verkamanna í einræðisþjóðfélögum
séu fótum troðin.
Kaupmannahúfn. Washington,
Vatikaninu. 20. á^úst AP.
JÓHANNES PÁLL II páfi rauf í
dag þögn sína um verkfallsölduna
í Póllandi. Hann hélt i dag ræðu
yfir pílagrímum á Péturstorgi i
Rómaborg. þeirra á meðal mörg-
um Pólverjum. „Við í Róm stönd-
um með löndum okkar,“ sagði páfi