Morgunblaðið - 21.08.1980, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1980
3
FRANSKA seglskútan. sem farið
var að svipast um eftir hér við
land i gær. eins og sagt var frá í
MorKunblaðinu. reyndist vera
heil á höldnu í Vestmannaeyja-
höfn. Ilafði Frakkinn reyndar
komið til Reykjavíkur 29. júli sl.
ok dvalið þar i hálfan mánuð. en
til Vestmannaeyja kom hann 17.
áKÚst. ÞeKar Frakkinn frétti um
Kosið í Heklu ákvað hann að
halda til lands ok fékk far með
skipi frá Eyjum. Mun hann hafa
farið að Kosstöðvunum og var
skútan mannlaus i Vestmanna-
eyjahöfn i gær.
Óskar Þór Karlsson hjá Slysa-
varnarfélaginu sagði, að hann
hefði ekki fyrr verið kominn á
skrifstofu sína í gær morgun, er
þangað kom hafnsögumaður frá
Reykjavíkurhöfn og tilkynnti hon-
um að skútan hefði komið til
Reykjavíkur 29. júlí sl. Fleiri
höfðu einnig samband við Óskar
og greindu frá ferðum skútunnar
og þar á meðal Franska sendiráðið
og Frakki, sem hafði hýst landa
sinn í Reykjavík.
Franska skútan, sem farið var að
svipast um eftir hér við land i
gær, þar sem talið var að ekkert
hefði heyrst frá henni eftir að
hún fór frá Ilalifax i Bandarikj-
unum 2. júlí s.l. reyndist vera í
Vestmannaeyjahöfn. Myndina
tók Sigurgeir af skútunni í Eyj-
um i gær.
Franska skútan var
í Vestmannaeyjum
„Það kom í ljós að Frakkinn
hafði haft samband við Franska
sendiráðið í Reykjavík, þegar
hann kom til Reykjavíkur og
einnig við Björgunarmiðstöðina á
Keflavíkurflugvelli. Starfsmenn
Björgunarstöðvarinnar höfðu
strax við komu Frakkans samband
við Stjórnstöð Landhelgisgæsl-
unnar og er líklegt að Frakkinn
hafi einnig ætlast til að upplýsing-
um um ferðir sínar yrði komið til
Strandgæslunnar í Kanada og til
Halifax. Sennilega hefur orðið
misskilningur milli Landhelgis-
gæslunnar og Björgunarmiðstöðv-
arinnar, hvor ætti að láta
Strandgæsluna í Kanada vita og
málið hefur því lent ofan í skúffu
hjá þeim í Keflavík," sagði Oskar.
Fram kom hjá Óskari að Frakk-
inn hefði sjálfsagt verið búinn að
hafa samband við Strandgæsluna
í Kanada áður en hann lagði upp,
og þá beðið um að svipast yrði um
eftir sér, ef hann kæmi ekki fram
innan eðlilegs tíma. Þar sem engin
boð hefðu borist vestur um haf um
að Frakkinn væri kominn fram
hér á landi, hefðu þeir óskað eftir
því að svipast yrði um eftir
honum.
Frá Reykjavík til Vestmanna-
eyja sigldi með Frakkanum Is-
lendingur, en hann mun hafa
slasast á fæti í ferðinni og var gert
að meiðslum hans í Vestmanna-
eyjum.
Ráðuneytisstjóri samgönguráðuneytis Luxemhurg:
Luxair hikandi vegna
erfiðleika hjá Flugleiðum
— viðræðurnar strönduðu ekki á eignaraðildinni
„VIÐ teljum að stofnun nýs
flugfélags sé, eins og allt er í
pottinn búið, heppilegasta lausn-
in og rikisstjórn Lúxemburg hef-
ur boðið fram fjárhagslega að-
stoð, ef til þess kæmi. Málið er
sem stendur í höndum flugfélag-
anna. Flugieiða og Luxair. og
þau hafa ekki komizt að sam-
komulagi, ekki ennþá. Ríkis-
stjórn Luxemburg getur ekki
komið inn i máiið á þessu stigi,
en við vonum. að félögin tvö haldi
viðræðum áfram og komist að
sameiginlegri niðurstöðu,“ sagði
Kiine, ráðuneytisstjóri i sam-
gönguráðuneyti Luxemburg, i
ÞANN 5. september næstkom-
andi munu 25 helztu forráða-
menn ortodoxu kirkjunnar halda
hér á landi þing, þar sem þeir
munu undirbúa viðræður við lút-
ersku kirkjuna. Meðal fulltrúa á
þingi þessu eru æðstu menn
ortodoxu kirkjunnar i flestum
austantjaldslandanna og Ísrael.
Hópurinn mun þinga i Skálholti
og verða þar sungnar morgun- og
kvöldbænir, sem almenningi er
heimill aðgangur að. Sunnudag-
inn 7. september mun svo fyrsta
ortodoxa messan sungin á ís-
landi, nánar tiltekið í Dómkirkj-
unni.
samtali við Mbl. í gær. Kline
sagði, að eftir þvi sem hann bezt
vissi hefðu viðræðurnar ekki
strandað á spurningunni um
eignaraðild, heldur virtust ein-
hverjir erfiðieikar vera hjá
Flugleiðum, sem Luxair væri
hikandi út af.
Kline lýsti furðu sinni á þvi, að
ríkisstjórn teidi sig geta beðið
átekta vegna erfiðleika Flugleiða í
Atlantshafsfluginu. „Ríkisstjórn
Lúxemburg hefur fellt niður lend-
ingargjöld Flugleiða og sú niður-
felling er algjör og skilyrðislaus,"
sagði Kline. „Við settum engin
„Þetta er mjög merkur kirkju-
legur viðburður, því það er ekki
oft, sem við höfum tækifæri á að
kynnast helgisiðum annarra
kirkjufélaga," sagði Bernharður
Guðmundsson fréttafulltrúi þjóð-
kirkjunnar í samtali við Mbl.
„Þeir hafa ætíð þennan hátt á, að
halda þing sín í lúterskum lönd-
um, til að minna á tilvist sína, og
til að kynna fólki kirkjusiði ortod-
oxu kirkjunnar. Það er einstök
upplifun að hlýða á messur þeirra,
því söngurinn er sérlega fallegur
og hrífandi og helgisiðir í mörgu
frábrugðnir því sem við þekkjum,"
sagði Bernharður að lokum.
skilyrði um samsvarandi aðgerðir
íslenzku ríkisstjórnarinnar, en
engu að síður erum við undrandi á
því, að hún skuli hafa afgreitt
málið með því einu að veita
Flugleiðum gjaldfrest á lend-
ingargjöldunum. Starfsemi Flug-
leiða hlýtur að vera mál, sem
íslenzka ríkisstjórnin þarf að láta
til sín taka ekki síður en ríkis-
stjórn Lúxemburg, því erfiðleikar
félagsins hljóta að hafa sín áhrif á
íslandi líka.“
Leiðrétting
RANGLEGA segir í frétt Mbl. í
gær um Fífuhvammsmálið að full-
trúi Alþ.b. hafi setið hjá við
atkvæðagreiðslu um kaupin. Allir
fulltrúar Alþ.b. greiddu atkvæði
með kaupunum, sem voru sam-
þykkt með átta atkvæðum gegn
þrem. Einn fulltrúi Alþ.b. As-
mundur Ásmundsson, sat hins
vegar hjá við atkvæðagreiðslu í
bæjarstjórn um tillögu Guðmund-
ar Ólafssonar (Alþf.) um að leggja
málið undir atkvæði bæjarbúa.
„Ég treysti mér ekki til að styðja
þessa tillögu vegna þess að hún
var að mínu áliti sýndarmennska",
sagði Ásmundur í samtali við Mbl,
„það var ekki svo mikið sem bar á
milli frá fyrra tilboði sem Alþ.f.
hafði samþykkt. Hins vegar vildi
ég ekki greiða atkvæði gegn tillög-
unni því ég aðhyllist lýðræðislega
stjórnarhætti."
25 helztu forráðamenn
ortodoxa þinga hér á landi
Vertu sparsamur!
enekki á kostnaó fjölskyldunnar...
ISLÍOB 626 er rúmgóöurbíll meö nóg pláss fyrir alla fjölskylduna og farangurinn.
626 er lítiö dýrari en smábíll og benzíneyösla vart meiri
á óbreyttu veröi um mánaðarmótin
ágúst/september.
B/LABORG HF.
SMIDSHÖFDA 23 <281299