Morgunblaðið - 01.10.1980, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1980
Uppskerubrestur
varð í Póllandi
Varsjá, 30. september. — AF.
PÓLSKA stjornin tilkynnti í
dau að uppskera á korni, kart-
öflum og sykurrófum væri mun
léleKri en búist hafði verið við.
Opinbera fréttastofan í Pól-
landi, PAP, sagði að kornupp-
skeran væri um það bil 19
Karpov
efstur
TilburK. 30. september. — AP.
KARPOV vann Spassky, Port-
isch vann Larsen, Iliibner vann
Kavaiek, og jafntefii gerðu
Timman og Andersson, Hort og
Sosonko, og Tal og Rihli í niundu
umferð Interpolis skákmótsins í
gær.
Karpov er efstur á mótinu með
6,5 vinninga, Portisch er í öðru
sæti með sex vinninga og Timman
í þriðja með 5,5 vinninga. I fjórða
til sjöunda sæti eru Spassky, Tal,
Hort og Sosonko með 4,5 vinninga.
milljónum tonna meiri en á sl.
ári en samt sem áður um 8
milljónum tonna minni en þjóð-
in þarfnaðist. Fréttastofan sagði
einnig að kartöfluuppskeran
væri um 15 milljónum tonna
minni en á sl. ári og sykurrófu-
uppskeran um 4 milljónum
tonna minni en í meðalári.
Fréttastofan sagði einnig að
vegna skorts á fóðri væru sumir
bændur neyddir til að slátra
nautgripum sínum fyrr en
venjulega og því yrði minna af
kjöti á almennum markaði en
áður.
Skortur á kjöti og öðrum
nauðsynjavörum átti m.a. sinn
þátt í því að verkföllin hófust í
Póllandi. Pólska stjórnin hefur
lofað þjóðinni bót í því máli.
PAP sagði að ástæðan fyrir
uppskerubrestinum væri senni-
lega mikil flóð í vor og skortur á
áburði.
Símamynd AP.
betta nýja, stóra sovézka njósnaskip, SSV 516, hefur sézt á Atlantshafi, búið fullkomnum
rafeindabúnaði til að hlera fjarskipti og ratsjármerki NATO. Leyniþjónusta Atlantshafsbandalagsins
kallar skipið „Belsam“. Brezka landvarnaráðuneytið, sem dreifði myndinni, segir að skipið sé af sömu
stærð og brezk herskip af Sheffield-gerð.
Veður
víða um heim
Akureyri 8 skýjaó
Amsterdam 17 hóifskýjaö
Chicago 25 heiöskírt
Feneyjar 21 þokumóóa
Frankfurt 15 þoka
Faareyjar 10 skýjaó
Ganf 15 þoka
Haisinki 13 skýjaó
Jerúaalem 26 skýjaó
Jóhanneaarborg 16 skýjað
Kaupmannahöfn 16 heiöakirt
Liasabon 29 heiöskírt
London 19 haiðskirt
Loa Angelea 31 haióskírt
Madrid 28 heióskirt
Malaga 27 skýjaó
Mallorca 29 léttskýjaó
Miami 34 heiðskírt
Moskva 7 skýjað
Naw York 16 heióskírt
Oalo 12 heióskírt
Parfs 24 skýjað
Reykjavík 7 skúrir
Ríó da Janeiro 30 skýjaó
Rómaborg 29 heióskirt
Stokkhólmur 13 skýjaó
Tal Aviv 27 skýjaó
Tókýó 24 heióskírt
Vancouver 15 rigning
Vínarborg 17 heióskírt
Stórt skref stigið í átt að
sameiginlegri f iskveiðistef nu
BriiNKel. 30. september. — AP.
Efnahagsbandalagsríkin stigu
í gær meiriháttar skref í átt að
sameiginlegri fiskveiðistefnu
með því að ná samkomulagi um
ýmsar fiskverndunaraðgerðir.
Peter Walker landbúnaðarráð-
herra Breta varaði við of mikilli
bjartsýni á að samkomulag næð-
ist fljótlega um sameiginlega
„Þeir eru að reyna
á þolinmæði okkar44
Segir forseti Pakistans um landamæraárásir Sovétmanna
fiskveiðistefnu, þótt meiri háttar
árangur hefði náðst um helgina
og að ríkin væru nær samkomu-
lagi en nokkru sinni áður. Hann
sagði að Bretar gætu verið
ánægðir með það skref sem stigið
hefði verið, þvi samkomulagið
um helgina byggði á ýmsum
aðgerðum sem Bretar sjálfir
hefðu gripið til.
Samkomulagið um helgina
kveður á um sérstök fiskverndun-
arsvæði, möskvastærð, hámark
ýmissa fiskitegunda í aðalafla,
lágmarksstærðir fiska, bönn við
veiði ýmissa fisktegunda á
ákveðnum árstímum og takmark-
anir í sambandi við notkun ýmissa
veiðarfæra og hámarksstærðir
fiskiskipa.
Enn eiga aðildarlönd EBE eftir
að ná samkomulagi um hámarks-
afla í lögsögu bandalagsríkjanna
og hvernig eigi að skipta honum
milli aðildarríkjanna. Einnig
hvernig háttað skuli tæknivæð-
ingu í fiskiðnaði og lágmarksverð
fisktegunda.
Islamahad. Pakistan. 30. srptember. AP.
MARGIR Pakistanar telja að
landamæraárásir Sovétmanna sl.
sunnudag séu viðvörun til þeirra
vegna væntanlegs fundar Mo-
hamman Zia Ul-Hag forseta Pak-
istans og Jimmy Carters forseta
Bandaríkjanna. Framundan eru
einnig viðræður Andrei Gromyko
utanríkisráðherra Sovétríkjanna
og Agha Shahi utanríkisráðherra
Pakistans hjá Sameinuðu þjóðun-
um.
„Hugsandi Pakistanar líta á
árásirnar sem skýr boð frá Sovét-
Noregur:
mönnum til ríkisstjórnar Zia —
„ekkert leynimakk við Carter“,“
segir einn pakistanskur frétta-
skýrandi.
Áður en Zia fór frá Pakistan sl.
sunnudag sagði hann að árásirnar
væru augljóslega gerðar til að
„reyna á þolinmæði okkar eða til
að reyna á vöðva okkar". Vestræn-
ar heimildir herma að líklegt sé að
Zia biðji Carter um vopn frá
Bandaríkjunum sem geri Pakist-
önum kleift að vernda landamæri
sín fyrir árásum Sovétmanna.
Sovétmenn hafa í tvígang gert
árásir á landamæri Pakistana.
Þær fyrri áttu sér stað sl. föstu-
dag. Einn maður lést og um 320
særðust. Ekki er vitað um neitt
Þúog
Bratteli hættir þátt-
töku í stjórnmálum
Prá Jan Erik I.auró. (réttamanni Mbl. I
Ósló. 30. scptember.
TRYGVE Bratteli, fyrrum forsæt-
isráðherra Noregs hefur ákveðið
að hætta þátttöku f norskum
stjórnmálum. Tryggve hefur setið
á norska þinginu í 32 ár en hefur
nú tilkynnt að hann muni ekki
bjóða sig fram í næstu kosningum.
Sveitastjórnar- og atvinnumála-
ráðherrann, Inger Luise Valle,
hefur einnig ákveðið að draga sig
i hlé. Samkvæmt eigin ósk mun
hún láta af störfum sem ráðherra
eftir tvær vikur.
Trygve Bratteli hefur verið einn
af mest áberandi stjórnmála-
mönnum Noregs síðastiiðin 10 ár.
Hann var forsætisráðherra frá
1971-1972 og 1973-1976. Eftir að
Oddvar Nordli tók við sem forsæt-
isráðherra hefur Bratteli verið
formaður þingflokks Verkamanna-
flokksins. Bratteli er orðinn 71 árs
og finnst hann vera of gamall til að
sitja áfram á þingi.
Inger Luise Valle hefur setið í
tveimur ríkisstjórnum og verið
dómsmála-, fjölskyldu- og neyt-
endaráðherra og nú síðast sveita-
stjórnar- og atvinnumálaráðherra.
Valle segist hafa tekið þátt í
stjórnmálum svo lengi að hún
þarfnist nú hvíldar. Nordli hefur
enn ekki ákveðið hver skuli taka við
ráðherraembætti Valle.
manntjón í árásinni sl. sunnudag.
Afganskar MI-24 þotur voru not-
aðar til árásanna en bæði pakist-
anskar og vestrænar heimildir
segja að áhafnirnar hafi verið
sovéskar.
Hótar Kuwait
Abu Dhabi og
Jórdaníu stríði
Nikosíu. 30. neptember. — AP.
Mohammed Ali Rajai forsætis-
ráðherra írans hótaði i dag að
lýsa striði á hendur Kuwait, Abu
Dhabi og Jórdaniu ef löndin
hættu ekki stúðningi sinum við
íraka i núverandi átökum írana
og íraka.
Aðeins Jórdanir hafa boðið
írökum hvers kyns stuðning, en
íranir segja að herskip íraka hafi
leitað skjóls í ýmsum höfnum
Arabaríkja á vesturströnd Persa-
flóa. „Þessi lönd verða að taka
afleiðingum gjörða sinna," sagði
Rajai, sem bætti við, að stuðning-
ur við íraka jafngilti stríðsyfirlýs-
ingu á hendur írönum.