Morgunblaðið - 01.10.1980, Page 21

Morgunblaðið - 01.10.1980, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1980 29 tta í gríni“ - sagði v-þýzkur ævintýra- maður sem staðið hefur utan á flugvél frá V-Þýzkalandi og ætlar að halda héðan til New York með viðkomu í Kanada Ljfem. Mbl. RAX. hraða. En ég hef æft íþróttir í þrjú ár með þetta ferðalag fyrir augum og reynt að búa mig sem bezt líkamlega fyrir þessa þolraun," sagði Wagner, sem var veðurbarinn í framan og þrútinn í andliti, eins og hnefaleika- maður sem staðið hefur 15 lotur og tekið hvert höggið af öðru frá and- stæðingnum. Að standa uppi á flugvél á þessum hraða jafngildir því að staðið sé upp í 80 hnúta mótvindi. Til samanburðar má geta að 12 vindstig, sem á ensku máli kallast fellibylur, en fárviðri á íslenzku, eru aðeins 64 hnútar, en í veðri af því tagi verða jafnmiklar skemmdir á mannvirkjum. Má því segja að Wagner standi upp á vélinni með 15 vindstig í fangið, þótt mælingar hætti við 12 stig. Og miðað við að fimm stiga frost var í lofti, jafngildir vindurinn að kæiingin hafi verið eins og 30—36 stiga frost, að sögn veðurfræðinga, „En í þessum klæðnaði er hann í sínum eigin heimi," sagði Guðmundur Hafsteins- son veðurfræðingur í spjalli við Mbl. „Ef hann fengi hins vegar á sig skúr yrði kælingin öllu meiri vegna útguf- unar, þá væri maðurinn eins og votur hitamælir", sagði Guðmundur. Þegar þremenningarnir komu til Reykjavíkur sögðu þeir í viðtali við blm. Mbl. að þeir ætluðu héðan til Kulusuk á austurströnd Grænlands. Fimmti áfanginn yrði svo frá Kulusuk til Narssarssuaq á vesturströnd Grænlands, og gætti kvíða í rödd þeirra er þeir voru spurðir nánar út í þann áfanga. „Við getum ekki flogið upp fyrir átta þúsund fet,“ sagði Olbin Lang flugmaður, „og verðum líklega að fljúga með ströndinni. Og alla veðra er von við Grænland, höfum aldrei flogið þar fyrr, og lítinn vind þarf til að ókyrrð verði mikil í lofti.“ Reyna beint á George Bay! „Getur þú útvegað mér 200 lítra tunnu fyrir aukatank. Við ætlum að reyna að fljúga beint á Goose Bay, höfum ekki nema tíu klukkustunda flugþol með núverandi búnaði, en þurfum gott betur,“ spurði Wagner hins vegar blaðamann Mbl. er blm. hitti hann á Reykjavíkurflugvelli í gær þriðjudag. Wagner sagði að veð- urhorfur væru slæmar fyrir flug á Kulusuk og vildu þeir eiga þess kost að komast í einum áfanga til Kanada. „Utvegaðu okkur endilega plast- tunnu," sagði Wagner. „Já plast- tunnu,“ skaut Olbin Lang, hinn há- vaxni aðstoðarflugmaður Islander- flugvélarinnar inn í. „En það stríðir á móti öllum lögum og reglurn flugsins að vera með eldsneytistanka úr plasti. I flugvélabenzíni eru efni sem valda tæringu í plasti,“ sagði blaöamaður góðlátlega við þá ofurhugana, og benti þeim á að eina leiðin væri að fá málmtunnur hjá olíufélögunum, ann- ars væri bezt fyrir þá að hafa samband við Svein Björnsson frá Flugþjónustunni, hann annaðist allar útlendar flugvélar sem hingað kæmu og væri öllum hnútum kunnugur. „Við verðum að komast til Goose Bay og málmtunna veldur skekkju í áttavita flugvélarinnar," sögðu Þjóð- verjarnir og ypptu öxlum. „Það hlýtur að vera hægt að stilla fyrir þeirri skekkju,“ skaut blm. að og leit um leið inn í flugvélina þar sem fyrir voru þrjú 200 lítra olíuföt úr máimi. „Höfum takmarkaðan tíma, verðum að geta haldið áfram ferðinni um leið og færi gefst," sagði Wagner og klifraði um leið upp á Islanderinn fyrir framan Slökkvilið Reykjavíkur- flugvallar til að þvo farkost sinn. Köstuðum við þá kveðju hvor á annan. Þess má geta, að til Goose Bay er lengri vegur en þremenningarnir eru búnir að leggja að baki frá Frankfurt til Reykjavíkur í þremur áföngum. Þá fregnaði Mbl. í gær, að óvíst væri hvort þeir gætu haldið ferð sinni áfram, því kanadísk flugmálayfirvöld mundu neita þeim að fljúga í kanad- ísku flugstjórnasvæði vegna ónógs búnaðar vélarinnar. Gamall skíðakappi Jaromi Wagner er 41 árs bílasali frá bænum Giessen. Hann er af tékknesk- um ættum, giftur og fjögurra barna faðir. Hann á sjálfur flugvélina sem hann keypti sérstaklega til ferðarinn- ar. Hefur hann flugmannsréttindi, og á unglingsárum var hann í fremstu röð skíðamanna í heimalandi sínu. Þetta ævintýri Wagners og félaga hans kostar drjúgan skilding. Sagði Wagner blm. Mbl. að ýmsir aðilar veittu honum fjárstuðning og var búningur hans og flugvél merkt nokkrum þessara aðila. Þá fær hann nokkur þúsund v-þýzk mörk fyrir hverja flík sem hann var í, framleið- endurnir hyggja gott til glóðarinnar að ferðinni lokinni, hyggjast auglýsa fatnaðinn og gildi hans í fluginu. Wagner sagðist hafa ákveðið þetta ferðalag fyrir tveimur árum, og að upp frá þeim tíma hefði undirbúning- ur verið í fullum gangi. Myndir sem hér fylgja gefa sennilega bezta hug- mynd um útbúnaðinn sem hann situr og stendur í utan á flugvélinni. Á grindinni er eins konar sæti, en mestan tímann stendur Wagner í stellingu sem minnir á skíðastökks- mann til að loftmótstaðan í líkamann verði sem minnst. Þá er hann í miklum beltabúnaði, sem minna á aktygi eins og höfð eru á dráttardýr- um, en þau tengjast grindinni eins og bílbelti, í sérstök hjól, og er hann því ekki spenntur við stólinn. — ágás. J Fríðrik Fríðriksson: Helf örin getur orðið að veruleika á ný Nýlokið er sýningum á sjónvarpsþáttunum um Helförina (Ilolocaust) og Stalín, sem báðir hafa vakið verðskuldaða athygli. í þessari grein ætla ég að leiða rök að því, að fjöldamorðin, sem Hitler og Stalín báru ábyrgð á, eru ekki afmarkaðar athafnir, sem kenna má einstaklingum um, heldur afleiðing þeirrar valdsöfnunar, sem ætíð á sér stað i sósíalískum rikjum, hvort sem um er að ræða þjóðernis- sósialisma (nasisma) eða byltingar-sósíalisma (kommún- isma). Ég mun ræða um, hvernig sósíalistar ráðast á efnahags- kerfi lýðræðisríkja, sem er undirstaða þess þjóðskipulags og að síðustu benda á, að fjöldamorðin í Hitlers-Þýskalandi og Stalíns-Rússlandi geta orðið að veruleika á ný, haldi lýðræðissinnar ekki vöku sinni. Ertu ekki orðinn þreytt- ur á þessu, vinur? Greinar af sama meiði Fylgismenn alræðisstefna, kommúnistar eða nasistar, hafa alla tíð lagt áherslu á, hversu ólíkar þessar stefnur eru að eðli, þar sem önnur telst vera á hægri kanti stjórnmálanna, en hin á þeim vinstri. Vissulega má benda á þætti, sem eru ólíkir í þessum stefnum, en því verður ekki neitað, að samlíkingarnar eru margfalt fleiri og stefnurnar verða því að teljast greinar af sama meiði. Ólafur Björnsson prófessor gerir þessa samlikingu að um- talsefni í bók sinni „Frjáls- hyggja og Alræðishyggja“ frá 1978, þar sem hann bendir á, að hugmyndafræði beggja stefn- anna megi rekja til þýska heim- spekingsins Hegels. Ölafur bend- ir einnig á þá staðreynd, að stjórnarfar hefur þróast á svip- aðan hátt, þar sem nasistar og kommúnistar hafa náð völdum. Sem dæmi má nefna, að um er að ræða einn stjórnmálaflokk, sem hefur einkarétt á allri stjórnmálastarfsemi. Sá hinn sami flokkur er einnig einráður á sviði lista, vísinda og trúar- bragða. Mannréttindi, ferða- frelsi og önnur sjálfsögð réttindi eru fótum troðin, m.ö.o. er flokk- urinn allsráðandi. Þetta og margt fleira er sam- eiginlegt þjóðfélögum, sem lúta stjórn kommúnista eða nasista, ekki vegna breyskleika einstakra manna, heldur vegna stjórnkerf- is, sem tekur heildina fram yfir einstaklinginn. Hinn æðsti til- gangur verður því að þjóna ríkinu, stéttinni eða kynflokkn- um, einstaklingar hafa hvorki réttindi né tilgang annan en þann að þjóna hagsmunum heildarinnar. Það verður því ekki um að ræða nein persónu- bundin markmið, heldur einung- is þau, sem félaginn eða foring- inn hafa ákveðið. Þeir einstakl- ingar, sem lúta ekki oki foryst- unnar, eru beygðir, þeim kyn- þáttum, sem ekki eru æskilegir, er útrýmt. Það er einmitt við þessar aðstæður, sem helfarir verða mögulegar, sökum þess að geðþótti stjórnvalda ræður ferð- inni, og virðing fyrir einstakl- ingnum er horfin. Hugleiðingar um skyldleika kommúnisma og nasisma hljóta að vakna að lokinni sýningu á þessum tveimur myndaflokkum. Menn fyllast gjarnan viðbjóði á persónunum, sem að baki ódæð- unum stóðu, en gleyma að at- huga, við hvaða aðstæður slíkt varð mögulegt. Menn gleyma líka að líta sér nær og veita því athygli, að á íslandi er starfandi stjórnmálaflokkur, Alþýðu- bandalagið, sem hefur um 20% fylgi íslenskra kjósenda og bygg- í tilefni af sjón- varpsþáttunum um helförina og rauða keisarann ir á sömu hugmyndafræði og þeirri, sem gerði helfarirnar mögulegar. I heiðurssætum þessa stjórnmálaflokks sitja ennþá menn, sem vörðu fjölda- morðingjann Stalín og hafa mér vitanlega aldrei breytt um skoð- un á þeim verkum. Það mætti spyrja sem svo: Halda menn í raun og veru, að Alþýðubanda- lagið stefni að yfirráðum á Islandi með blóðugu valdaráni? Því er til að svara, að slíkt er varla takmarkið, aðferðirnar eru breyttar, en markmiðið er þó enn hið sama, þ.e. alheimsyfir- ráð kommúnismans. Ragnar Halldórsson forstjóri svarar því raunar mjög vel í grein í Morgunblaðinu nýlega, hvernig kommúnistar geta náð völdum án blóðsúthellinga í lýð- ræðisþjóðfélögum. Ragnar bend- ir á, að öruggasta og fljótvirk- asta leiðin sé að íþyngja þannig hinu frjálsa efnahagslífi, að fyrirtækjarekstur sé ómögu- legur og ríkið taki að sér fyrir- tækin. Ragnar vitnár t.d. til reynslu A-Þjóðverja, sem skýrir þetta betur. Þegar kommúnistar komust þar í ríkisstjórn, beittu þeir áhrifum sínum til þess, að verðhækkanir á vöru og þjón- ustu voru bannaðar, á meðan laun og aðrir kostnaðarliðir fengu að hækka. Samfara verð- bólgu gekk því fljótt á rekstrar- fjármuni fyrirtækjanna, sem þurftu í vaxandi mæli að fá fjármagn að láni frá ríkisrekn- um peningastofnunum. Þegar ástandið hélst síðan óbreytt og ofan á þetta bættust hækkandi vextir, kom að því, að fyrirtækin voru komin á heljarþröm. Ríkis- valdið brást þá við af „dreng- skap“ og spurði menn, hvort þeir væru ekki orðnir þreyttir á þessu basli. Margir sögðu jú og ríkið tók yfir fyrirtækin, en þeir, sem spyrntu við fótum, voru þvingaðir til uppgjafar með öðr- um ráðum. Þetta litla dæmi hefur að mínu viti mikið gildi fyrir okkur Islendinga, sökum þess að að- stæður hérlendis eru óhugnan- lega líkar þeim, sem voru, þegar kommúnistar treystu völdin víða í Austur-Evrópu. Hérlendis eru kostnaðarhækk- anir margfalt hærri en leyfðar verðhækkanir, fyrirtæki eru ofurseld rekstrarfjármagni frá ríkisreknum peningastofnunum, og samfara síauknum skatta- íþyngingum er rekstrargrund- völlur einkafyrirtækja löngu horfinn. Óvíst er, hvenær vin- samleg orðsending frá ríkisvald- inu berst eigendum fyrirtækja, en það eitt er víst, að aðstæðurn- ar eru hér. Hrindum ofsóknum gegn frjálsum atvinnurekstri Íslenskir kommúnistar, trygg- ir kallinu, bera mikla ábyrgð á þessari þróun. Þeir vita sem satt er, að vald ríkisins verður ætíð takmarkað á meðan fyrirtækin eru efnahagslega sjálfstæð, og þeir vita, að dreifing efnahags- legs valds er forsenda Iýðræðis- þjóðfélags. Kommúnistar vita, að sam- þjöppun efnahagslegs valds er fyrsta skrefið, sem stíga verður til allsherjaryfirráða, sökum þess að samþjöppun efnahags- valds og síðar stjórnmálavalds er ósamrýmanlegt lýðræðinu. Þær skipulegu ofsóknir, sem kommúnistar hafa haldið uppi á hendur frjálsum atvinnurekstri, hafa ekki mætt þeirri mót- spyrnu lýðræðisafla, sem nauð- synleg er og af þeim sökum fljóta menn sofandi að feigðar- ósi. Það hlýtur að verða rökrétt svar við þessum ofsóknum að losa um öll höft á sviði við- skipta- og athafnafrelsis, það verður að færa skömmtunarvald stjórnmálamannanna yfir til markaðsins, sem er eina tækið, sem tryggt getur efnahagslegt sjálfstæði einstaklinga. Verði ekki brugðist við þessari hættu af alefli, gæti verið stutt í það, að forsendur nýrrar helfarar verði ekki fjarlægur möguleiki, heldur veruleiki.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.