Morgunblaðið - 01.10.1980, Blaðsíða 42
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1980
Öruggur sigur
íslenska liosins
ÍSLENSKA LANDSLIðlð í hand
knattleik sinraði frekar slakt
norskt landslið siðastliðinn laun
ardaK með fimm marka mun.
24 — 19, eftir að staðan í hálfleik
hafði verið 11—7 islenska liðinu í
haK- Leikmenn íslenska liðsins
léku oft á tíðum vel i leiknum ok
virðist líkamleK þjálfun leik-
manna vera nokkuð K«ð en það
her þó að varast að dæma lands-
liðið eftir þcssum leik þar sem
mótspyrnan var frekar litil. ís-
lenska liðið hóf leikinn af mikl-
um krafti ok náði fljótt 4 marka
forystu með heittum sóknarleik
ok K»ðum varnarleik. Norska
liðið náði þ<> að minnka muninn
ok þeKar 25 mínútur voru liðnar
af fyrri hálfleik var aðeins eitt
mark sem skildi liðin að. staðan
7—G. Síðustu fimm mínútur hálf-
leiksins skoruðu íslensku leik-
mennirnir svo fjóKur mörk kckö
einu norsku.
Allan síðari hálfleikinn hafði
íslenska liðið nokkra yfirburði or
hafði lenRst af fimm marka for-
ystu. Hilmar landsliðsþjálfari
notaði greinilega tækifærið vel og
skipti ört inná og allir leikmenn
fengu súín tækifæri. Leikur þessi
gegn Norðmönnum var góður und-
irbúningur undir þau miklu átök
sem landsliösins bíða síðar í vetur.
Markvarslan í leiknum var allgóð
hjá Ólafi og Kristjáni, þá átti
Ólafur H. Jónsson góðan leik í
vörn og sókn. Sigurður Sveinsson
og Þorbergur Aðalsteinsson voru
báðir mjög ógnandi og léku vel.
Bjarni Guðmundsson kom að
venju vel frá leiknum. Mörk Is-
lands í leiknum skoruðu Þorberg-
ur 7/4víti, Sigurður Sveinsson og
Steindór Gunnarsson 4 hvor.
Bjarni Guðmundsson og Ólafur H.
Jónsson 3 hvor, Páll Björgvinsson
2, og Þorbjörn Guðmundsson 1.
Markahæstur Norðmanna varð
Hagby með 6 mörk en hann var
jafnframt besti maður liðsins.
—þr.
Stórbrotin markvarsla
íslendingar gátu þakkað ólafi Benediktssyni einum, að jafntefli
náðist í síðari landsleiknum i handknattleik gegn Noregi. Lokatölur
urðu 18—18 og ef einhver meðalkarl heföi staðið i íslenska markinu,
hefði liðið fengið ljótan skeli. ólafur varði 26 skot i leiknum og er það
toppurinn. Einar borvarðarson gerði einnig sitt, kom inn á til að
verja vitaköst og hirti tvö, óli Ben áður eitt.
Gangur leiksins var í stuttu á sig mörg mörk úr hraðaupp-
máli sá, að íslenska liðið var
næstum alltaf yfir. Oft var þó
jafnt og voru það þá Norðmenn
sem jöfnuðu. íslendingar náðu
mest þriggja marka forystu og
miðað við hvernig liðið lék úti á
vellinum, var það með ólíkindum.
Óli Ben einn sá um það og lengi
leit út fyrir að markvarsla hans
ætlaði að færa íslenska liðinu
sigur. Fjórum mínútum fyrir
leikslok var ísland tveimur mörk-
um yfir, 18—16, og þá fékk liðið
vítakast, tækifæri til að gera enn
frekar út um leikinn. En norski
markvörðurinn varði glæsilega
vítakast Þorbergs og Norðmenn
brunuðu upp og skoruðu. íslend-
ingar fengu knöttinn, en nýttu
ekki aðstöðu sína, reyndu ótíma-
bært skot á lokasekúndunum og
Norðmenn brunuðu upp og jöfn-
uðu. Þorbergur átti lokaskot ís-
lands og honum til afsökunar
verður að segjast eins og er, að
hann var í góðu færi. En úr þeim á
að skora og þar „klikkaði" Þor-
bergur. Þá var kapítuli út af fyrir
sig að sjá til íslensku varnar-
mannanna, er Norðmaðurinn
brunaði upp í lokin og jafnaði.
Gerðu þeir hvað þeir gátu til að
greiða för hans, færðu sig frá og
allt hvað eina ...
Varnarleikur íslenska liðsins
var í molum lengst af og fékk liðið
hlaupum. Leti leikmanna að drífa
sig aftur í vörn eftir að hafa
klúðrað sóknarlotu var með ólík-
indum. Átti þeim að vera í lófa
lagið a ð stöðva hraðupphlaup
Norðmanna og engin afsökun að
tímabilið sé rétt nýhafið á íslandi.
Fór þetta meira en nokkuð annað
óskaplega í taugarnar á áhorfend-
um, enda gera þeir þá réttmætu
kröfu að menn, sem valdir eru í
landslið, nenni að hlaupa. Sókn
íslenska liðsins var of oft einhæf
og fálmandi, kannski eðlilegt þar
sem nýr þjálfari er á ferðinni með
nokkuð breyttan hóp. En það eru
til fleiri hornamenn á íslandi en
einn og vonandi verða ekki gerðar
fleiri tilraunir með þá Sigga
Sveins og Kristján Arason í
hægra horninu. Þeir eiga báðir
heima I landsliði, en ekki sem
hornamenn. En það er enn góður
tími til stefnu, hæfur þjálfari og
góður mannskapur. Margir lands-
leikir eru einnig á næstunni og
þetta ætti að smella saman. Þá má
einnig geta þess, að þó að margt
hefði mátt betur fara hjá íslenska
liðinu í síðari leiknum, var áhorf-
endum a. m. k. boðið upp á
hörkuspennandi baráttuleik. Og
markvarsla eins og Óli Ben sýndi
er fátíð. Leikurinn hafði því sína
góðu punkta þrátt fyrir allt.
-88-
Islandsmótið
að hefjast
ÍSLANDSMÓTIÐ í handknatt-
leik hefst I fþróttahúsinu i Ilafn-
arfirði í kvöld. Strax í fyrstu
umferð má búast við miklum
hörkuleikjum. Morgunblaðið
mun að venju fjalla ítarlega um
leiki mótsins f máli og myndum.
Þá mun sá upptekni háttur hafð-
ur á að gefa leikmonnum eink-
unn fyrir hvern leik. Sú breyting
verður á að gefið verður frá 0 og
upp f 10. Sá er hæstu meðaleink-
unn hlýtur verður siðan heiðr-
aður af Morgunblaðinu f móts-
lok. Þurfa leikmenn að hafa
leikið minnst 12 ieiki i mótinu til
þess að koma til greina sem
verðlaunahafar. Þá mun marka-
ha'sta leikmanni mótsins verða
veitt viðurkenning. í kvöld kl.
20.00 hefst mótið með leik Hauka
og Fylkis, en strax að þeim leik
loknum leika FH og Fram. Báðir
þessir leikir ættu að bjóða upp á
hörku og spennu. Sér í lagi leikur
FH og Fram, en bæði þessi lið
hafa fengið til liðs við sig leik-
menn sem léku f fyrravetur í
V-Þýskalandi. Mótinu verður
fram haldið i Laugardalshöllinni
á fimmtudag kl. 20.00 en þá
mætast KR og Þróttur og Valur
ok VikinKur. Vfst er að öll félögin
leggja mikið upp úr þvf að vel
takist til f fyrstu leikjunum og er
þvf ógerlegt að ætla að spá um
úrslit. — þr.
• Þorbergur Aðalsteinsson skorar eitt af sjö mörkum sinum í fyrri landsleiknum við Norðmenn sem fram
fór Um SÍðustU helgi. Ljósm. Rax.
„Meiri spenna og harka
verður í leikjunum"
— segir markakóngurinn frá í fyrra
KRISTJÁN Arason ungur og
efnilegur handknattleiksmaður
úr FIl varð markakóngur sfðasta
keppnistimabils i handknattleik
og var heiðraður af þvi tilefni i
fyrra af Morgunblaðinu. Þar sem
íslandsmótið i handknattleik er
að hefjast i kvöld og lið Kristjáns
FH verður í eldlínunni, spjallaði
Mbl. við Kristján um keppnis-
tfmabilið sem er að hefjast. Fyrst
var Kristján inntur eftir þvi
hvernig lið hans FH og hann
sjálfur væru undir mótið búin.
„Ég hef aldrei æft meir og betur
en nú, og tel mig vera mjög vel
undirbúinn. Síðastliðinn mánuð
hef ég æft í 24 skipti og leikið
fjölda æfingaleikja. Það sama get
ég sagt um FH-liðið. Það er vel
undir mótið búið og ég hef fulla
trú á að FH verði í toppbaráttunni
eins og síðustu 25 ár. Liðið hefur
aldrei hafnað neðar en í þriðja
sæti og í fyrravetur kom liðið
mjög á óvart með því að ná öðru
sæti. Ég hef trú á að svo verði líka
í vetur, við komum á óvart og
verðum í efstu sætunum. Liðið
hefur komið vel út úr þeim
æfingaleikjum sem spilaðar hafa
verið.
— Mín skoðun er sú að ís-
landsmótið í 1. deild verði jafnara
og skemmtilegra en í fyrravetur.
Deildin verður sterkari og það
verður meiri spenna og harka í
leikjum. Það hafa reyndir og
harðskeyttir leikmenn bæst í hóp-
inn frá í fyrra, og lið Víkings
kemur ekki til með að hafa sömu
yfirburði og síðasta keppnistíma-
bili. Það verða fjögur lið sem
koma til með að verða erfiðust við
að eiga: Víkingur, Fram, Valur og
KR. Þessi lið ásamt FH eiga eftir
að reyta stig hvort af öðru. Við
mætum Fram í kvöld og ég þori
ekki að spá um úrslit í leiknum en
við í FH gerum okkur grein fyrir
því að fyrstu leikir okkar koma til
með að ráða því hvort við verðum
í toppbaráttunni eða ekki. Og þess
vegna verða fyrstu leikirnir að
vinnast. Við eigum að leika gegn
Val í næsta leik okkar og vitum að
þeir verða erfiðir.“ Að lokum spáði
Kristján um endanlega röð lið-
anna í 1. deild í íslandsmótinu
sem nú er að hefjast.
Spá Kristjáns:
FH
Víkingur
Fram
KR
Haukar
Þróttur
Fylkir
- þr.
Handknattlelkur
• Kristján Arason FH varð markakóngur íslandsmótsins í hand-
knattleik i fyrra. skoraði 88 mörk eða um fimm mörk að meðaltali i
leik. Hér skorar Kristján eitt af mörkum sinum eftir að hafa brotist i
8egn.