Morgunblaðið - 01.10.1980, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1980
23
• Hart barist um boltann. Jón Pétursson átti Koðan leik i liði Fram. hér (fnæfir hann uppúr á miðri mynd
um leið ok hann hreinsar frá. Gunnar Guðmundsson len^st til vinstri var einn besti maðurinn í liði Fram.
vann gifurlega vel allan leikinn. Ljósm. Ragnar A.
Skyndisóknir Hvidovre dugóu
EVRÓPUDRAUMUR Fram að
komast áfram i aðra umferð varð
að engu siðastliðinn sunnudag á
Laugardalsvellinum er liðið tap-
aði 2—0 fyrir danska liðinu
Ilvidovre. Fyrri leik liðanna sem
fram fór i Danmörku lauk með
sigri Ilvidovre 1—0, þannig að
samanlagt sigraði Hvidovre
verðskuldað 3—0.
Það má segja að með smá
heppni hefði leikur Fram og Hvid-
ovre á sunnudag getað þróast á
annan veg en hann gerði. Það var
vitað fyrir leikinn að leikmenn
Fram urðu að taka áhættu og
sækja. Það gerðu þeir mjög kröft-
uglega fyrstu 10. mínútur leiksins
og voru þá mjög óheppnir að skora
ekki og taka forystuna í leiknum.
Strax á áttundu mínútu leiksins
náði Gústaf Björnsson að skalla
boltann laglega inn fyrir vörn
danska liðsins á ungan og efni-
legan nýliða, Lárus Grétarsson,
þar sem hann var i algjöru
dauðafæri á markteigslínu, með
aðeins markvörðinn fyrir framan
sig. Lárusi brást hinsvegar boga-
listin tókst ekki að leggja boltann
nægilega vel fyrir sig og skot hans
fór framhjá markinu. Þar fór
besta marktækifæri Fram for-
görðum. Aðeins tveimur mínútum
síðar skoraði svo Leroy Ambrose
fyrir Hvidovre og gerði þar með út
um að Fram tækist að komast
áfram. Hefði Fram þurft að sigra
3—1 í leiknum til þess. Vörn Fram
Fram —
Hvidovre
var illa á verði á 10. mínútu er
stungubolti var gefinn inn á Am-
brose sem brunaði upp að marki
Fram og skoraði örugglega í
bláhorn marksins framhjá Guð-
mundi markverði.
Þrátt fyrir að hafa fengið á sig
mark svo snemma í leiknum sýndu
leikmenn Fram enga uppgjöf. Þeir
sóttu stíft og áttu mun meira í
öllum fyrri hálfleiknum. Á 27.
mínútu skall hurð nærri hælum
við danska markið er Marteinn
átti þrumuskot utan af hægri
kanti. Danski markvörðurinn
hálfvarði skot Marteins og á
síðustu stundu tókst leikmönnum
Hvidovre að bægja hættunni frá.
Hafþór Sveinjónsson átti svo gott
tækifæri á 40. mínútu fyrri hálf-
Ieiks er hann braust í gegn um
vörn Hvidovre en frekar laust skot
hans hafnaði í fangi danska
markvarðarins. Lið Hvidovre átti
svo til enginn marktækifæri í
fyrri hálfleiknum en reyndi að
beita skyndisóknum sem vörn
Fram tókst að öllu leyti að ráða
við, fyrir utan er þeir gleymdu að
gæta Ambrose er hann skoraði.
Fyrstu mínútur síðari hálfleiks-
ins léku leikmenn Fram af krafti
og virtust staðráðnir í að jafna
metin í leiknum en gekk illa að
skapa sér verulega hættuleg tæki-
færi. Á 55. mínútu fengu Framar-
ar svo rothöggið. Trausti Haralds-
son brá illa inn í vítateig einum
danska leikmanninum sem var
kominn í gegn um vörn Fram og
réttilega dæmdi dómarinn víta-
spyrnu. Steen Hansen skoraði svo
naumlega úr vítaspyrnunni. Laust
skot hans fór í mitt markið og
hefði Guðmundur Baldursson sem
fór fullfljótt af stað átt að ráða við
skotið. Við þetta mark fór mesti
krafturinn úr liði Fram, og ekki
tókst liðinu að koma boltanum í
netið þær mínútur sem eftir voru í
leiknum. Eins og venjulega voru
það varnarmenn Fram sem áttu
bestan leik. Þá átti Gunnar Guð-
mundsson góðan leik á miðjunni
og hafði hann mikla yfirferð í
leiknum. Framlína Fram var mjög
bitlaus í leiknum og einna helst
skapaðist hætta þegar Trausti og
Marteinn gerðu sér ferð inn í
vítateig Hvidovre. Lið Hvidovre
sýndi að þar var ekkert sérstakt
lið á ferðinni og því hálfgerð synd
að Fram skyldi ekki takast betur
upp en raun varð á. Áhorfendur á
leiknum voru 2777.
-þr.
• Danski markvörðurinn ver naumlega hörkuskot frá Marteini Geirssyni, lengst til hægri. Þetta var eitt
besta marktækifæri Fram i leiknum gegn Hvidovre. Ljósm. Ragnar Axelsson.
Kunn andlit vantar
gegn Kínverjum
Landsliðsnefndin í körfuknatt-
leik hefur valið landsliðshóp sem
mæta á kinverska körfulandslið-
inu dagana 9—12 október. Kín-
verska liðið er væntanlegt til
landsins innan tiðar og mun liðið
mæta ísienska landsliðinu þriveg-
is. auk þess sem að liðið mun
mæta úrvalsliði skipuðu íslend-
ingum og erlendum ieikmönnum.
Eftirtaldir leikmenn hafa verið
valdir i landsliðshópinn.
Gunnar Þorvarðarson, Jónas Jó-
hannesson, Guðsteinn Ingimars-
son, Júlíus Valgeirsson og Valur
Ingimundarson frá Njarðvík, Axel
Nikulásson frá ÍBK, Símon
Ólafsson, Þorvaldur Geirsson og
Viðar Þorkelsson frá Fram, Jón
Sigurðsson og Ágúst Líndal frá
KR, Torfi Magnússon, Ríkharður
Hrafnkelsson og Kristján Ágústs-
son frá Val, Jón Jörundsson og
Kolbeinn Kristinsson frá ÍR og
loks Valdemar Guðlaugsson frá
Ármanni.
Menn sakna náttúrulega Péturs
Guðmundssonar sem ekki fær sig
lausan frá River Plate í Argent-
ínu. Einnig er fyrirliðinn Kristinn
Jörundsson illa fjarri góðu gamni,
en hann er erlendis sem stendur.
Fyrirliði í hans stað er nánast
sjálfkjörinn, Jón Sigurðsson. Þá
eru fimm nýliðar í hópnum, þeir
Valur, Axel, Viðar, Ágúst og
Valdemar. Þess má geta, að Viðar
er fyrsti körfuknattleiksmaður
sem valinn er í landslið úr þriðja
aldursflokki hér á landi og örugg-
lega þótt víðar væri leitað.
Fyrsti landsleikurinn fer fram í
Laugardalshöllinni á fimmtudag
9. október og hefst hann klukkan
20.00. Á laugardaginn 11 þessa
mánaðar mætast liðin síðan í
Borgarnesi og hefst leikurinn
klukkan 14.00. Klukkan 15.00 á
sunnudeginum leika liðin síðan í
Njarðvík. Mánudaginn 13. október
leikur kínverska liðið síðan síð-
asta leik sinn hér á landi, mætir
þá úrvalsliði eins og áður er sagt.
Næstu verkefni körfuknattleiks-
landsliðsins verða síðan 27.-28.
desember, er franska landsliðið
sækir Frónbúa heim. Frakkar eru
sterkir, A—riðils þjóð. gg.
Misstu niður
3 marka
forskot
ATLI Eðvaldsson og félagar hans
hjá Borussia Dortmund fóru illa
að ráði sínu á heimavelli gegn
VFB Stuttgart í vestur-þýsku
knattspyrnunni um helgina. Lið-
in skildu jöfn, 3—3, eftir að
Dortmund hafði komist í 3—0.
Staðan í hálfleik var 1—0 og var
einum leikmanna Stuttgart vísað
af leikvelli. Einum fleiri léku
heimamenn gestina lengst af
grátt og komust í 3—0, en síðan
fór allt í vitleysu og Stuttgart
jafnaði áður en yfir lauk. með
kolólöglegu marki. Atli skoraði
ekki i leiknum. Urslit leikja urðu
annars sem hér segir.
Frankfurt — DuishurK 2—1
Bayern — Hamburxer 2—1
Dortmund — StuttKart 3 — 3
Dusseldorf — Leverkusen 1—3 •
l erdiriKen — 1860 Munchen 0—3
FC Kðln — NurnberK 2—2
Kaiserslautern — Karlsruhe 1 —0
Schalke 04 - Bielefeldt 2-2
Mönch.Kladb. — Bochum 2—1
Bayern hefur forystuna í þýsku
deildarkeppninni með 14 stig að
lokum 8 umferðum. Hamburger
SV og Kaiserslautern hafa 12 stig
hvort félag. Atli og félagar eru í 4
sæti með 10 stig. Frankfurt og
Mönchengladbach hafa einnig 10
stig, en markatala Dortmund er
best liðanna þriggja.
Half milljon
fyrir 11 rétta
I 6. leikviku Getrauna komu fram 7 raðir með 11 réttum leikjum og
var vinningur fyrir hverja röð kr. 452.500.- en með 10 rétta voru 128
raðir og vinningur fyrir hverja kr. 10.600.-
Það er víðar en hér, að erfiðleikum er bundið að koma
getraunaseðlum til réttra aðila i tíma áður en leikirnir fara fram. Það
er vaxandi vandamál hjá dönsku getraununum að fá uppgjör í tima
frá smærri stöðum á Sjálandi, i næsta nágrenni við Kaupmannahöfn.
en mun betur gengur að fá uppgjörin frá Jótlandi. Með sífellt
hækkandi burðargjöldum og styttri þjónustutima póstsins hefur þeim
tilfellum fjölgað, er getraunaseðlar berast of seint og eru ekki teknir
gildir.
Þetta hafa Norðmenn nú leyst á þann hátt. að „úreltir“ seðlar eru
teknir með í þeirri vikunni. sem þeir berast án tillits til þess hvort
leikirnir, sem skráðir eru á seðlinum. hafa farið fram eða eiga eftir að
fara fram.
Getrauna- spá MBL. 12 •-5 J2 ■c c 9 u tm s Sundav Mirror Sunday People Sunday Express News of the World Sunday Telegraph SAMTALS
1 X 2
Arsenal — Leicester 1 1 1 1 1 1 6 0 0
Aston Viila — Sunderland X 1 1 1 X 1 1 2 0
Coventry — Brighton X 1 1 1 1 1 5 i 0
Cr. Palace — WBA i X X 2 2 2 1 2 3
Everton — Southampt. i X 1 X 1 i 4 2 0
Ipswich — Leeds X 1 1 1 1 i 5 1 0
Man. City — Liverpool 2 2 2 2 2 2 0 0 6
Middlesbr. — Norwich 1 1 1 1 1 i 6 0 0
Nott. Forest — Man. Utd. X 1 X 1 1 i 4 2 0
Stoke — Tottenham 1 X X X X X 1 0 5
Wolves — Birmingham X X 1 X 1 2 2 3 1
Luton — Notts County X 1 X 1 X 2 2 3 1