Morgunblaðið - 01.10.1980, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 01.10.1980, Blaðsíða 45
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1980 Breiðablik á 30 ára afmæli NÚ í ár heldur unKmennalélatíið Breiðablik upp á 30 ára afmæli sitt. Félajíið var stofnað árið 1950 af nokkrum áhugasömum íþróttamönnum sem efla vildu iþróttaiðkun í hinu unga hæjarfé- lajtf sem Kópavogur var þá. A þessum 30 árum hefur félagið verið að eflast með ári hverju og nú eru um 1500 virkir félaKar í félaginu í 8 deildum þ.e. Knatt- spyrnudeild, Handknattleiks- deild, Frjálsíþróttadeild, Blak- deild, Sunddeild, Körfuknatt- leiksdeild. Skíðadeild og Styrkt- armannafélaKÍ- Núverandi for- maður unKmennafélaK-sins Breiðabliks er Guttormur Sigur- björnsson. í tilefni af 30 ára afmælinu heur félagið gengist fyrir knattspyrnumóti í yngri aldurs- flokkunum, einnig var hinn svo- kallaði Breiðabliksdagur sem haldinn var 20. september gerður veglegri en áður hefur verið með þátttöku svo að segja allra deilda og meðal annars kepptu lið aðal- stjórnar Breiðabliks við lið Bæjar- stjórnar Kópavogs í knattspyrnu og unnu Breiðabliksmenn mjög verðskuldaðan sigur sioruðu 4 mörk gegn einu marki Bæjar- stjórnarmanna. Víkingar töpuðu 0-5 OFURHUGAR Víkings, sem þátt tóku i Evrópukeppni félagsliða í borðtennis, töpuðu 0—5 fyrir Heros Sportkluhben í Noregi fyrir skömmu. Víkingar léku án Stefáns Konráðssonar. síns sterkasta manns og var það að sjálfsögðu skarð fyrir skildi. Þorfinnur Guðmundsson tapaði fyrir Jan Gierlof 9—21 og 14—21, Kristján Jónasson tapaði fyrir Karl Stordal 11—21 og 8—21. Hilmar Konráðsson tapaði 16—21 og 9—21 fyrir Erik Rasmussen, Þorfinnur tapaði síðan 11—21 og 12—21 fyrir Stordal og Hilmar loks fyrir Gierlof 11—21 og 8—21. Víkingarnir stóðu sig þrátt fyrir allt nokkuð vel og sumir leikirnir voru spennandi baráttuleikir, þó svo að sigur ynnist hvergi. Dómarar fá tímaklukkur ÍSLENZKU knattspyrnudómar- arnir, sem dæma leiki í Evrópu- keppni meistara og bikarhafa. vcrða nú allir með Seiko-tíma- klukku á hendinni við dómgæzl- una. Seiko-umboðið, Þýzk-islenzka hf. i Reykjavik, afhenti dómurun- um þremur nýjasta og fullkomn- asta dómaraúrið frá Seiko, og var þessi mynd tekin við það tæki- færi. Úrin eru samskonar og dómar- ar í Evrópu- og heimsmeistara- keppninni nota. en þau hafa innhyggðan hringjara er gefitr frá sér són er hálfleik lýkur. Þá er einnig afar einfalt fyrir dóm- arana að fylgjast með og mæla tímatafir í leikjunum. Úrin eru með þeim nákvæmustu og er tímaskckkja þeirra u.þ.b. 5 sek- úndur á ári. Það er fagnaðarcfni að enn eru til islenzk fyrirtæki er sýna íþróttunum vinsemd og velvilja. Dómararnir, sem dæma í Evr- ópukeppni að þessu sinni. eru: Guðmundur Haraldsson er dæm- ir leik St. Mirren og Elsborg í Glasgow 1. október, Magnús Pét- ursson er dæmir leik Liverpool og finnsku meistaranna 1. októ- ber og Eysteinn Guðmundsson er dæmir leik i heimsmeistara- keppninni, írland — Kýpur 19. nóvember. Cosmos bestir í Bandaríkjunum Úrslitaleikurinn í Bandarísku knattspyrnudeildinni (Soccer Bowl 1980) var leikinn á R.F. Kennedy leikvanginum i Wash- ington D.C., sunnudaginn 21. september. Áhorfendur voru 51,000 og var mikill hiti. allt upp í næstum 40 stig niðri á vellinum og 75% raki í lofti. Liðin voru þannig skipuð: Cosmos: H. Birkenmeier (markvörður) A. DiBernardo, J. Durgan, W. Rijsbergen, Eskand- arian, J.C. Romero, F. Beckenbau- er, V. Bogiecevic, F. Van Der Elst, G. Chinaglia, R. Cabanas Ft. Lauderdale: J. Van Beveren, (markvörður), J. Pot, A. Auguste, K. Fogarty, T. Gemeri, C. Fowles, R. Hudson, L. Schonmaker, T. Chubillas, G. Mueller, J. Caccia- tore. Þjálfari Cosmos var hinn kunni þýski þjálfari Hennes Weisweiler, en þjálfari Ft. Lauderdale var Cor Van der Hart. Dómari var Paul Avis. Cosmos og Ft. Lauderdale höfðu mæst í deildarkeppninni fyrr á árinu, og höfðu skiptst á sigrum, 4:1 fyrir Ft. Lauderdale, en 2:1 fyrir Cosmos í seinni umferðinni, svo búist var við jöfnum leik. í fyrri hálfleik léku bæði liðin fremur rólegt og yfirvegað spil og þreifuðu fyrir veikum punktum í vörnunum. Cosmos áttu framan af meira í leiknum, en það vantaði ávallt endahnútinn á sóknirnar hjá þeim. Cosmos „áttu“ miðjuna, með Beckenbauer og Bogiecevic í fararbroddi en framlínan náði aldrei að reka endahnútinn á spilið. K. Fogarty gætti marka- kóngsins Chinaglia mjög vel og fylgdi honum eins og skuggi. J.C. Romero virtist vera sá eini sem lék eftir getu, og á 7. mínútu átti hann hörkuskot á Van Beveren, sem náði að bjarga í horn. Á 40. mínútu áttu Strikers sitt bezta tækifæri þegar Cacciatore lék laglega á vörnina hjá Cosmos og gaf fallegan bolta frá vinstri kanti beint á vörnina hjá Cosmos og gaf fallegan bolta frá vinstri kanti beint á fætur Ray Hudson, en Hudson naði ekki að pota inn', þó var hann í metra færi frá mark- línu. Annað markvert skeði ekki í fyrri hálfleik. Hennes Weisweiler breytti leik- aðferðinni hjá Cosmos í síðari hálfleik og færði Beckenbauer framar og skipti á Eskandarian fyrir Ricky Davies. Fogarty sem gætti Chinaglia var bersýnilega farinn að þreytast, því það var eins og Chinaglia hefði fengið sprautu í hálfleik, og lék hann nú laus um allan völl. Strax á 4. mínútu seinni hálfleiks fengu Cosmos aukaspyrnu rétt utan vítateigs hjá Strikers. Chinaglia New York Cosmos sigra Ft. Lauderdale Strikers 3:0 tf/t * tók spyrnuna, sem lentií varnar- vegg Strikers, en boltinn hrökk til Romero, sem var ekki seinn á sér og skoraði á svipstundu með leifturskoti fram hjá Van Bever- en. 1:0 Cosmos. Næstu 10 mínúturnar var ein- stefna á markið hjá Strikers, og stórskotahríð á Van Beveren sem bjargaði oft snilldarlega, en á 20. mínútu bar sóknin ávöxt, þegar Chinaglia slapp frá Fogarty og fékk sendingu frá Davies upp miðjuna, og snéri sér laglega við, og lék illilega á Fogarty, og skoraði óverjandi í bláhornið vinstra megin. 2:0 Cosmos. Chin- aglia lék áfram laus um allan völlinn, og átti hörku stangarskot á 35. mínútu, og Roberto Cabanas átti auðveldlega að setja mark á 38. mínútu, en Van Beveren bjarg- aði naumlega í horn. Ft. Lauder- dale Strikers misstu Gerd Mueller út af í hálfleik, og var eins og liðið missti allan mátt í sókninni, enda þótt Waslander, sem kom inn á fyrir Mueller, reyndi sitt bezta til að hvetja sína menn og spilaði mjög vel. Cosmos héldu áfram að sækja og Franz „keisari" Beckenbauer fékk knöttinn á sínum vallarhelm- ingi á 42. mínútu og lék upp endilangan völlinn og sendi síðan eina af sínum alkunnu lúmsku sendingum til Chinaglia, sem skoraði með snöggum jarðarbolta (sjá mynd). 3:0 Cosmos. Giorgio Chinaglia var valinn „maður leiksins “ og þess má loks geta að Chinaglia skoraði alls 50 mörk í deildarkeppninni á árinu og einnig skoraði hann 7 mörk í einum og sama undanúrslitaleikn- um fyrr á árinu. Þessi leikur var einnig síðasti opinberlegi leikur Franz Beckenbauer sem fer til Hamborgar á næsta ári. Baldvin Berndsen New York. MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1980 25 Nýr áfangi fyrir stafni.næstur í nýrri sókn: Haf skip hf .tekur upp Amerikusiglingar Áranqur sem skilar sér til allra_________ Hafskip hf. hefur nú haldiö uppi siglingum til meginlandsins í yfir 20 ár, til hafna á Norður- löndum, við Norðursjó og við Eystrasalt. Félagið heldur nú uppi áætlunarferðum til flestra hafna Evrópu. Pótt stundum hafi blásið á móti hefur félagið staðið af sér alla sjóa og tekist að tryggja heilbrigða samkeppni í vöruflutningum á þessum leiðum. Einnig hefur félaginu tekist að innleiða nýja tækni sem einfaldar störfin, eykur öryggi og dregur úr kostnaði. Sá árangur kemur inn- og út- flytjendum til góða með ýmsum hætti og hefur já- kvæð áhrif á vöruverð og hag alls almennings. Nú valkostur í siglingum til Vesturheims______________________________ Nýtt átak er nú framundan í starfi Haf skips hf., fastar Ameríkusiglingar. Á bak við þá ákvörðun eru óskir margra viðskiptavina félagsins og hluthafa. öðrum skipafélögum hefur mistekist að halda uppi sam- keppni á þessari leið. Hafskip hf. ætlar sér að breyta þeirri stöðu. Ekki með óraunsæju farmgjaldastríði — heldur heiðarlegri samkeppni sem felur í sér aukna þjónustu og tryggir að allir farmflytjendur sitja við ^ sama borð. Takist vel til, verður hægt að koma í veg fyrir tíðar hækkanir farmgjaldataxta og tryggja aukið viðskiptaöryggi allra inn- og útflytj- enda. í Bandaríkjunum gilda ströng lög um skrán- ingu slíkra taxta og þeim veröur ekki breytt nema með fyrirvara. í meginatriðum býður félagið því taxta þá, sem gildandi eru á þessari flutningaleið. Hafskip býður því stórum sem smáum flutnings- aðilum þjónustu sína — hvort sem um er er aö ræða búslóð einstaklings eða stóra gáma inn- og út- flytjenda. Fái Hafskip hf. byr á hinni nýju sigl- ingleið getur það gefið fjölda flutningsaðila vind í seglin og haft jákvæð áhrif á þjóöarhag. Tilboð um þátttöku þína Hlutaijárútboð_________ Hafskip er nú vel í stakk búið til að takast á við ný verkefni og byggja upp skipaflota sem fullnægir kröfum nútímans um hraöa og fullkomna tækni. Á liðlega einu ári hafa hátt í þriðja hundrað nýjir hluthafa gengið til liðs við félagið og nemur hlutafé þess nú um 700 milljónum króna. Áformað er að bjóða viðbótarhlutafé 200 milljónir króna á tíma- bilinu fram til aðalfundar félagsins í marz 1981. Þeir sem vilja eiga hlut að nýrri sókn og taka þátt í upp- byggingu þróttmikils skipafélags, sem hefur hlut- verki að gegna, eru vinsamlega beðnir að hafa samband við skrifstofu okkar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.