Morgunblaðið - 01.10.1980, Page 33
ffClk í
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1980
41
Krýningar-
frétt ekki
staðfest
+ AP-fréttastofan hefur sagt
frá þvi. að hún hafi leitað
staðfestingar á blaðaskrifum
um að elsti sonur Reza Pahl-
avis íranskeisara. sem lést i
sumar. muni verða krýndur
nú i haust.
Fréttastofunni tókst ekki að
fá fréttina staðfesta af nánum
vinum keisarafjölskyldunnar.
— Það var tímaritið „Október"
í Kairo, sem birti þessa frétt og
kvað krýningu keisarasonarins
eiga að fara fram skömmu
eftir að hann yrði tvítugur, en
afmælisdagur hans er 31. okt.
Hann heitir eftir föður sínum,
Reza Pahlavi.
Keisarafjölskyldan býr nú í
stórri höll við Kairó, og er þar
fjölmennt lífvarðalið og miklar
öryggisráðstafanir vegna þess
að fjölskyldan á stöðugt yfir
höfði sér að útsendara Khom-
einis beri þar að garði. Þurfi
einhver fjölskyldumeðlimur að
bregða sér út fyrir túngarðinn,
er jafnan öflugur lífvörður
sendur með hverjum og einum.
„Ermarsunds-
kóngui"
+ Maður nokkur i breska
bænum Ipswich hefur hlotið
sæmdarheitið „Ermarsunds-
kóngurinn“ (lausl. þýtt).
Fyrir skömmu synti hann yfir
Ermarsund i tuttugasta skipt-
ið, frá Dover-kletti yfir tii
Frakklandsstrandar.
— Hann gekk upp í fjöruna
Frakklandsmegin sundsins eft-
ir 15 stunda sund. En Bretinn,
sem heitir Mike Read, er ekki
fyrsti „Ermarsunds-kóngur-
inn“. — Sá sem áður hafði
hlotið titilinn er Desmond
Renford, liðlega 53ja ára gam-
al! Ástralíumaður, en hann
hafði synt 15 sinnum yfir
Ermarsundið, er hann dró sig
til baka.
Afsjónum i
ráðherrastól
+ Þetta er tyrkneski flotafor-
inginn. sem nú hefur sest i
forsætisráðherrastólinn þar i
landi, Bulent Usulu. — Hann
er 57 ára að aldri og var áður
aðmiráll tyrkneska flotans.
Bianca ber-
fætt á Kínamúr
+ Bianca Jagger, sem er mjög
mikil f jölmiðlakona og fræg. —
Hún var fyrir skömmu austur i
Kina og þessi mynd er tekin af
henni á Kinamúrnum. — Hún
fór þangað austur með amerisk-
um tiskuhönnuði Halston að
nafni, og iiði hans.
Vakti hún mikla athygli Kín-
verja og ekki síst fyrir það að
hún hafði gengið berfætt eftir
Kínamúrnum og fólki orðið star-
sýnt á meistaralega snyrtar tær.
í hægri hendi hafði hún haldið á
rauðum hælaháum skóm með
svörtum doppum. — Hún hafði
verið í þröngum leðurbuxum. —
Allt þetta hafði vakið athygli
Kínverjanna. — En á tískusýn-
ingu, sem hún átti að taka þátt í
í stórborginni Shanghai, ætlaði
tískuhönnuðurinn að sýna sitt
lítið af hverju úr tískuheiminum
— aðeins silkifatnað.
Sneri aftur
eftir 20 ára hlé
+ Þessi aldraði maður var tal-
inn hafa kvatt lífsstarf sitt
fyrir um það bil 20 árum, eftir
áratuga starf sem hann hlaut
mikla frægð af og viðurkenn-
ingu. — Þetta er ameríski
kvikmvndaleikarinn James
Cagney, en sérgrein hans í
kvikmyndunum var eiginlega
hlutverk töffarans.
— Nú er Cagney 81 árs að aldri.
— Hann tók að sér í sumar að
leika í kvikmynd, sem gerð var í
New York. — Myndin heitir
„Ragtime". Þar leikur Cagney
lögregluvarðstjóra. — Hér er
hann í gerfi lögregluvarðstjór-
ans í myndinni.
Hálfir nautaskrokkar
1 fl. UN I verð
innifaliö úrbeining, pökkun og merking.
2.689.-
srking.
3.450.-
Nautalæri
1. fl. UN I verð
innifalió úrbeining, pökkun og merking.
Nautaframpartar A AA4
1 fl. UN I verð faaU94i
innifaliö úrbeining, pökkun og merking.
Hálfir nautaskrokkar O QQH
2. fl. gæöaflokkur UN II verð LiOOUi"
innifaliö úrbeining, pökkun og merking.
Nautalæri
2 fl. gæöaflokkur UN II verð
innifaliö úrbeining, pökkun og merking.
3.030.-
Nautaframpartur 1 QRQ ,
2 fl. gæðaflokkur UN II verð laOvOi
innifaliö úrbeining, pökkun og merking.
UN I er ungnautakjöt í 1. gæðaflokki, stærö
55—90 kg á hálfan skrokk.
UN II er ungnautakjöt í 2. gæöaflokki, stærð
40—55 kg á hálfan skrokk.
Ef kjötskrokkar eru teknir í heilu, óunnir, er
veröiö 300 kr. ódýrari pr. kg.
Hálfir svínaskrokkar tilbúnir í
frystirinn verö
2.830.-
Innifalin úrbeining. pökkun og merking.
10 kg nautahakk, Q AAA
tilboösverð aðeins O ■ «UU ■
Skráö verö 5.724,-
Notið þetta hagstæða verð,
birgðir takmarkaðar.
Opið föstudaga frá kl. 7—7
og laugardaga frá kl. 7—12.
íÉí
‘HHT '-augalæk 2, sími 86511.