Morgunblaðið - 01.10.1980, Síða 36
44
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1980
vlfP
MORödK/-
KAFf/NO
GRANI GÖSLARI
'2íA(o
Hann spyr hver pantaði fruskalæri?
I>ú ert þó ekki í nýju lopapeysunni?
j---------------
A
Hvernig a Búddi að geta sótt
skóla. ef hann fær ekki nægan
nætursvefn?
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
Fá spil eru svo einföld að ekki
megi finna í þeim vanda eða að
minnsta kosti umhugsunarefni.
Sumir leysa viðfangsefnin í hvelli
en aðrir þurfa að staldra við.
athuga sinn gang og finna oft
lausnina.
Og flestir ættu að klára sig af
spilinu í dag. Suður gjafari og
austur-vestur segja alltaf pass.
Norður
S. KG42
H. K532
T. D8
L. D102
Austur
S. D103
H. D96
T. 10632
L. 864
Vestur
S. 876
H. G108
T. ÁG974
L. K3
Suður
S. Á95
H. Á74
T. K5
L. ÁG975
Suður Norður
1 Grand 2 Lauf
2 Tíglar 3 Grönd
Pass
Útspil tígulsjö. Þegar spilið kom
fyrir bað sagnhafi um tíguldrottn-
inguna frá blindum, fékk slaginn
og svínaði næst laufdrottningu.
Vestur tók og var í dálitlum vanda
staddur. Austur gat ekki átt
tígulkónginn úr því hann lagði
hann ekki á drottninguna. En átti
suður kónginn blankann eftir eða
ekki? Og kæmi kóngurinn ekki í
ásinn þá hefði hann gefið sagn-
hafa dýrmætan slag.
Vitaskuld leysti vestur vandann
og tók á ásinn, kóngurinn kom í og
vörnin tók sína 5 slagi. Og í reynd
hafði vestur j)ó ekki gert annað en
að treysta makker sínum.
Allt sem gera þurfti var að
fylgjast með smáspilunum í tíglin-
um. Austur hafði látið sexið undir
drottninguna þannig, að sagnhafi
sá ekki tvo lægri tígla. Og að láta
óþarflega hátt spil í útspilslit
makkers sýnir jú alltaf verðmæt
spil í litnum og það gat ekki verið
annað en fjórlitur í þessu spili. Og
það þýddi, að suður hafði átt
tvíspil og kóngurinn hlaut að
koma.
COSPER
Hún er sú hörkubezta af öllum þeim hraðriturum, sem hér hafa
unnið öll þessi ár, þó hún kunni ekki hraðritun!
„Ilin ömurlegu vísindi“
og Cambridge-hópurinn
Námsmaður i Bretlandi skrif-
ar:
„Það var ekki laust við að
spennings gætti hjá mér, þegar ég
sá, að á dagskrá sjónvarpsins
mánudaginn 22. seþt. yrði heim-
ildarþáttur um stefnu Margrétar
Thatchers, forsætisráðherra Bret-
lands. Þar sem stefna Thatchers,
sem byggð er á kenningum Milton
Friedmans, er um margt áhuga-
verð og ég hef haft tækifæri til að
fylgjast með framvindu þessara
mála í Bretlandi samfara námi
mínu, taldi ég að þarna gæfist
gullið tækifæri til þess að sjá hvað
gerst hefði þá mánuði sem ég hef
verið hér heima í sumarleyfi.
• Til þess að hagfræðin
standi undir nafni
Mér brá því heldur betur í
brún þegar ég sá að hér var um að
ræða 6 mánaða gamlan frétta- og
fréttaskýringaþátt, „World in
Action", frá Granada-sjónvarp-
inu. Það var ekki nóg með það,
þátturinn fjallaði alls ekkert um
stefnu Thatchers og þaðan af
síður um kenningar Friedmans,
heldur fjallaði hann um skýrslu
hins svonefnda Cambridge-hóps.
Þessi hópur er samansafn bölsýn-
ishagfræðinga sem gera sitt ýtr-
asta til þess að hagfræðin standi
undir nafni sem „hin ömurlegu
vísindi". Það er hreint alls ekkert
nýtt að þessir hagfræðingar séu
með bölsýnisspár og hefur stjórn
Thatcher engu þar um breytt.
• Hvers virði er 6 mán.
gamalt Kastljós?
Það er mjög virðingarvert af
sjónvarpinu að hefja umræðu um
bresk efnahagsmál, sem verða að
teljast ein þau merkilegustu nú
um stundir, og breytir þar engu
um hvort menn eru sammála þeim
kenningum sem þar eru reyndar
eða ekki. Sjónvarpið verður hins
vegar að átta sig á því, með hvaða
hætti umræður um þessi mál eru í
Bretlandi — og ekki taka hvað
sem er til sýningar. Þátturinn
„World in Action" er svipaðs eðlis
og „Kastljós" íslenska sjónvarps-
ins og það geta allir farið nærri
um hversu mikils virði 6 mánaða
gamall „Kastljós“-þáttur er.
IFORMICA
Inminnted plnntic
Umhverfiö er alltaf jafn yndislegt ef notað er Formica. T.d. í
eldhúsiö, á baðið, á sólbekki, í skip og báta o.fl.
Áferðin er falleg og níðsterk, og heldur fegurð sinni ár eftir ár.
Veljið það besta. Þaö borgar sig, veljiö Formica. Mikiö úrval lita.
Einnig marmara- og viöarmynstur.
Formica — Þaö er merkiö sem tryggir gæöin.
G. Þorsteinsson & Johnson h.f.
Armúla 1. — Sími 8 55 33