Morgunblaðið - 19.10.1980, Qupperneq 1
Sunnudagur
19. október
Bls. 49—80
MORGUNBLAÐIÐ í ÍSKÖNNUNARLEIÐANGRI VEGNA OLÍULEITAR VIÐ GRÆNLAND
Niðurstöður rannsókna
á botnlögum lofa góðu
GfnahaKsbandalaK Evr-
ópu hefur sérstaka fjárveit-
inKu á fjárloKum sínum til
könnunarrannsókna á nátt-
úruauðlindum á nokkrum
svæðum i bandalaRsumdæmi
sínu. Þar á meðal hefur verið
ákveðið að kanna möguleika
á hvort olíu sé að finna í
hafinu austan Grænlands.
Þessi sérstaka könnun er í
höndum GGU, þ.e. Grönlands
Geologiske Undersögelse, en
bandariska íyrirtækið West-
ern Geographie hefur annast
rannsóknir á hafsbotnslög-
um og á þess vegum er
rannsóknaskipið Western
Arctic, sem skráð er í Pan-
ama við hafsbotnskannanir
á þessum slóðum.
Mikilvægur liður í könn-
ununum er eftirlit með ísa-
lögum og ísreki á hafsvæðinu
með tilliti til rannsóknanna,
oiíuborana og olíuvinnslu, ef
til kæmi. Danskt fyrirtæki,
DIII, Dansk Ilydrantisk Inst-
itut, hefur séð um þessar
kannanir ásamt vísind-
Refurinn gaf sér smátíma til að vega og meta áhorfendur áður en hann gleypti í sig sinn hluta
matargjafarinnar.
SJÁ GREIN OG MYNDIR Á MIÐOPNU
amönnum þess. sem eru um
borð í Western Arctic og
hafa starfsmenn DHI flogið
yfir svæðið á þiggja daga
fresti undanfarna mánuði og
skráð nákvæmlega hegðun
þessa náttúrufyrirbrigðis.
DHI hefur gert samning við
íslenzka fyrirtækið Flug-
leigu Sverris Þóroddssonar
um ískönnunarflugið og
bauðst Morgunblaðinu að
taka þátt í einni slíkri ferð
fyrir skömmu. í förinni var
starfsmaður DIII, Paul
Schmidt Hansen, og flug-
mennirnir Arni og Ilelgi
Yngvasynir.
Akveðið hafði verið að
þetta yrði svokölluð lengri
ferð, þ.e. höfð yrði viðkoma
næturlangt í Meistaravík og
hafísasvæðið kannað allt
norður að Danmerkurhöfn,
en þar er veðurathugunar-
og strandgæzlustöð og telst
Danmerkurhöfn nyrzta
byggða hol á austurströnd
Grænlands. Þar dvelja að
staðaidri ellefu menn árið
um kring.