Morgunblaðið - 19.10.1980, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1980
61
Snyrti- og nuddstof
an Paradís opnuð
Minerals & Chemicals, olíukaup
sem samiö hafði verið um. Harry
Oppenheimer lætur sig stjórn-
mál einnig skipta. Hann var einn
stofnenda og um margra árabil
andlegur leiðtogi Framfara-
flokks Suður-Afríku. Ekki er
haft hátt um það að fyrirtækið á
mikil ítök í forlaginu Argus, sem
stjórnar flestum dagblöðum
enskumælandi manna í Suður-
Afríku.
Dótturfyrirtæki
gefa góðan arð
Ársreikningar fyrirtækisins
hljóma stundum eins og stefnu-
yfirlýsing ríkisstjórnar, og er
það ekki að furða þar sem um
svo gífurlegar upphæðir er að
ræða.
Meðan herlið Suður-Afríku á í
blóðugum bardögum við útlenda
skæruliða sem ráðast inn yfir
landamærin stendur Oppen-
heimer-fyrirtækið í traustu
sambandi við ráðamenn árásar-
ríkjanna. Til dæmis rekur fyrir-
tækið kopar- og demantavið-
skipti í Botsvaníu og Kenneth
Kaunda í Zambíu kom í veg fyrir
að koparnámur fyrirtækisins
yrðu þjóðnýttar. Hringurinn á
arðvænleg viðskipti við hið
vinstri sinnaða Mósambik, og
Harry Oppenheimer hefur hönd
í bagga með demantaverzlun
Tansaníu, sem er að hluta til
þjóðnýtt.
Þegar Harry Oppenheimer er
spurður um áhrif sín á gang
stjórnmála gerir hann sem
minnst úr því, en viðurkennir að
hann hafi áhuga á því hvernig
landi sínu sé stjórnað, þó hann
telji sig ekki hafa áhrif á
stjórnun þess. Harry Oppen-
heimer er ekki ætíð sammála
stjórnarstefnu Bothas. Til dæm-
is heldur hann því fram að
valdahlutfallið í Suður-Afríku
verði að breytast á næstu fimm
árum og að svertingjar verði að
fá hlutdeild í stjórn landsins.
Þessu er ekki haldið fram af
hugsjón einni saman, heldur sér
Oppenheimer fram á það að slík
þróun er skilyrði fyrir því að
fyrirtæki hans haldi velli í
þessum heimshluta.
Úranið eykur
veldi Oppenheimers
Oppenheimer hefur verið
frumkvöðull þess að minnka
launamismun hvítra og svartra
verkamanna. Áður var launa-
hlutfallið 1:18, en nú er það 1:7
hvítum í vil. Þetta þykir mörg-
um keppinautum Oppenheimers
alltof ör þróun. Harry Oppen-
heimer hefur ennfremur bent á
það að atvinnuleysi það sem
ríkir meðal blökkumanna í
Suður-Afríku verði að leysa með
alhliða átaki. Fyrirtæki hans
hefur riðið á vaðið í þessu efni og
hefur meðal annars staðið fyrir
því að svertingjar hafa verið
menntaðir til stjórnunarstarfa.
Hvað snertir demanta og plat-
ínu er aðstaða Oppenheimers
enn slík að helzt Ííkist veldi
Fugger- og Mediciættanna á
miðöldum. Því veldur að mark-
aðshlutdeild hans gefur honum
nær alger yfirráð. Þó að dóttur-
fyrirtækið Amcoal vinni þegar í
dag nær þriðjung kola Suður-
Afríku, þá stendur veldi þeirra
þar ekki jafn traustum fótum.
eftir AXEL
G. STURM
Vert er einnig að geta þess að
áhrifa Oppenheimers gætir
einnig á silfurmarkaðnum.
Auðurinn er ekki
til umræðu
Þegar Bandaríkjamennirnir
Nelson og Robert Hunt urðu
þess valdandi að heimsmarkaðs-
verð á silfri varð mjög óstöðugt
fannst Oppenheimer að gripið
væri inn á yfirráðasvæði sitt, því
að mjög miklar verðsveiflur hafa
truflandi áhrif á einokunarað-
stöðu hans. Fyrirtæki hans hef-
ur ekkert á móti því að gull,
silfur og demantar hækki stöð-
ugt í verði, svo framarlega sem
þeir hafi töglin og hagldirnar í
þeim viðskiptum. Því var það að
dótturfyrirtæki Oppenheimers,
Engelhard, náði yfirráðum yfir
hinum alþjóðlega silfurmarkaði.
Oppenheimer-fjölskyldunni
verður ekki tíðrætt um auð sinn
og völd, og Harry Oppenheimer
sjálfur er talinn vera hófsemd-
armaður í hvívetna og frábitinn
hverskyns sýndarmennsku. En
hvað sem öðru líður, þá fer ekki
hjá því að ákvarðana og áhrifa
þessa manns gætir um allan
heim.
EIGENDASKIPTI urðu nýlega á
Snyrtihúsi Bentinu i Fischer-
sundi. Nýi eigandinn er Sigrún
Kristjánsdóttir og stofan hefur
einnig fengið nýtt nafn við eig-
endaskiptin og heitir nú Snvrti-
og Nuddstofan Paradís.
Þar er boðið upp á alla almenna
snyrtingu og að auki loftþrýsti-
AÐALFUNDUR Félags ein-
stæðra foreldra verður haldinn
að Hótel Heklu, við Rauðarár-
stig, þriðjudagskvöldið 21. októ-
ber og hefst kl. 21.
Ingibjörg Björnsdóttir, formað-
ur fráfarandi stjórnar flytur
skýrslu, endurskoðaðir reikningar
munu liggja frammi og kjörin
verður ný stjórn félagsins. Síðan
nuddbað, líkams- og partanudd og
tvöfaldan sólbekk. Snyrtivörurn-
ar, sem seldar eru í Paradís heita,
Josef, Sans Saucis og Jean
d’Avege.
Auk Sigrúnar vinna á stofunni
Margrét Nielsen, Margrét Héðins-
dóttir og Guðrún Vilhjálmsdóttir.
talar Jóhanna Kristjónsdóttir tal-
ar um framtíðarverkefni FEF og
ýmsar hugmyndir þar að lútandi.
Þess má geta að ný jólakort
FEF sem verða á boðstólum í ár
og einnig hefur verið gert nýtt
upplag af platta FEF með teikn-
ingu Baltasar og verða þeir til sölu
á fundinum og einnig á skrifstofu
FEF á næstunni.
Aðalfundur FEF á þriðjudag
Tveir háskóla
fyrirlestrar
MOGENS Bröndsted prófessor i
bókmenntum og fyrrv. rektor há-
skólans í Odense, sem er hér á
landi um þessar mundir í boði
Norræna hússins, flytur opinber-
an fyrirlestur í boði heimspeki-
deildar Háskóla íslands þriðju-
daginn 21. október 1980 kl. 17.15 í
stofu 201 i Árnagarði.
Fyrirlestur próf. Bröndsteds
nefnist: „Udnyttelsen af folke-
minder i dansk digtning" og verð-
ur fluttur á dönsku.
Einnig flytur John Chr. Jörg-
ensen lektor í bókmenntum við
Kaupmannahafnarháskóla opin-
beran fyrirlestur í boði heimspeki-
deildar miðvikudaginn 22. október
1980 kl. 17.15 í stofu 103 í
Lögbergi. Fyrirlesturinn nefnist:
„Den nye danske arbejderlitterat-
ur“ og verður flutt á dönsku.
Öllum er heimill aðgangur.
(Frrtt frá lláskóla Islands.)
Hallgríms-
söfnuður 40 ára
Hallgrímssöfnuður minnist
annað kvöld (mánudag) þess að nú
eru liðin 40 ár frá því að söfnuður-
inn var stofnaður. Verður afmæl-
isins minnst í safnaðarsal kirkj-
unnar kl. 20.30. Það er sóknar-
nefndin og byggingarnefnd kirkj-
unnar, sem gangast fyrir þessum
afmælisfundi, með starfsmönnum
safnaðar og kirkjubyggingar. Þess
er vænst að þeir sem ruddu
brautina að stofnun safnaðarins
og kirkjubyggingarinnar verði á
þessum fundi, svo sem fyrstu
sóknarprestarnir, Sigurbjörn
biskup Einarsson og dr. Jakob
Jónsson, að ógleymdum sóknar-
nefndarformanninum Sigurbirni
Þorkelssyni í Vísi.
»■
•»«
Kalmar
L
uhill u t«aw» hcinili
* TÁI6 HeiNiSíNMN MKIINÍ
kajmar
innréttingar hf
OPIÐ ÞRIÐJUDAGSKVOLD
SKEIFUNNI 8, SIMI 82011