Morgunblaðið - 19.10.1980, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.10.1980, Blaðsíða 2
50 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1980 í kjölfar Úrslit kosninganna í Vestur-Þýzkalandi fyrir hálfum mánuði þýða í raun og veru mun meira heldur en það, að tveggja flokka stjórn Sósíal- demókrata og Frjálsra demókrata styrkist í sessi. Úrslitin þýða mjög aukið olnbogarými fyrir Helmut Schmidt, kanslara, raunar hefur hann öll tromp á hendi, en hann er nú á tindi valdferils síns. Hann fær eflaust mjög góða aðstöðu til þess að hrinda í fram- kvæmd ýmsum málum á næstu misserum, bæði í utanríkis og innanríkismálum, sem hann hefur staðið höllum fæti með til þessa. Fáir veðjuðu á Schmidt vestur-þýzku kosninganna SÍKurvegararnir, Helmut Schmidt ok Hans Dietrich Genscher, eítir að úrslitin voru kunn. Schmidt með öll tromp á hendi Þegar Schmidt tók við stjórn- artaumunum fyrir sex árum, 1974, þegar þáverandi kanslari, Willy Brant, sagði af sér vegna njósnahneykslis, þorðu fáir að veðja á, að stjórn hans yrði langlíf, svo ekki sé talað um, að hún myndi lifa kosningarnar 1976 af. Fylgi Sósíaldemókrata hafði mjög dvínað á árunum 1970—1972 og komst svo í al- gjört lágmark árið 1974, en það tók Schmidt aðeins tvö ár að rétta úr kútnum. Sósíaldemó- kratar komu út úr kosningunum 1976, sem sigurvegarar, sé miðað við spár fyrir þær. Meirihluti þeirra á þinginu í Bonn var að vísu aðeins 10 þingsæti umfram kristilegu flokkana með tilstyrk Frjálsra demókrata, en það var nóg. Mikill sigur Eftir kosningarnar fyrir hálf- um mánuði stendur Schmidt aftur uppi sem sigurvegari, núna raunverulegur, því þingmeiri- hluti Sósíaldemókrata og Frjálsra demókrata er nú 45 þingsæti. Það verður að vísu að hafa í huga að það voru Frjálsir demókratar, sem mesta fylgis- aukninguna fengu, og er hún mikill sigur fyrir leiðtoga þeirra Hans Dietrich Genscher, sem hefur gegnt embætti utanríkis- ráðherra undanfarin ár. Sigur Schmidts, er ekki ein- ungis túlkaður, sem viðurkenn- ing á stefnu st.jórnar hans und- anfarin fjögur ár, sem óneitan- lega hefur verið affarasæl, held- ur, sem persónulegur sigur fyrir Schmidt, sem margir telja hæf- asta leiðtoga Vestur-Þjóðverja frá því Konrad Adenauer var við völd fyrir rúmum tveimur ára- tugum. Þá sýna skoðanakannan- ir, að Schmidt er vinsælasti stjórnmálaleiðtogi landsins frá stríðslokum, að Adenauer und- anskildum. Góður árangur í efnahagsmálum Á árunum 1975—1980 hefur st.jórn Schmidts tekist betur við stjórn efnahagsmála landsins, en til hefur tekizt hjá flestum nágrönnum Vestur-Þjóðverja. Verðbólga í landinu er óveruleg og atvinnuleysi er með því minnsta sem gengur og gerist í Vestur-Evrópu. Þessi staðreynd hafði mikið að segja í kosninga- baráttunni og gerði það að verk- um, að ýmsar yfirlýsingar and- stæðings Schmidts, Franz Joseps Strauss, um slæma efnahags- stjórn, voru sem vindhögg. Telja reyndar sumir, að sú aðferð Strauss, að gagnrýna efnahags- stjórn Schmidts, hafi verið ein af hans kórvillum í kosningabar- áttunni. Viðbrögð í kjölfar kosninganna jákvæð bæði í austri og vestri Aukin pólitísk áhrif V-Þjóðverja Herstyrkur Vestur-Þjóðverja er meiri heldur en nokkurs annars Vestur-Evrópu-ríkis inn- an vébanda NATO og stjórn- málaleg áhrif Vestur-Þjóðverja hafa aukizt verulega í stjórnar- tíð Schmidts. Pólitísk áhrif Vestur-Þjóðverja eru sérstak- lega talin hafa aukizt verulega eftir Guadeloupe-fundinn fræga, þar sem leiðtogar Bandaríkj- anna, Bretlands, Frakklands og Vestur-Þýzkalands komu saman til að ræða heimsmáiin. Þá hefur staða Schmidts mjög styrkzt vegna afskipta hans af Afganist- an- og íran-málum, en þar er Schmidt talinn hafa komið hár- rétt fram. Schmidt hcfur þó ætíð lagt á það sérstaklega mikla áherzlu, að Vestur-Þýzkaland væri ekki stórveldi og gæti ekki orðið það, þótt ráðamenn þar hefðu áhuga á því. I því sambandi er bent á, að Vestur-Þjóðverjar ráða ekki yfir neinum kjarnorkuvopnum og hafa engin áform uppi um, að koma sér þeim upp. Því er það talið bráðnauðsynlegt fyrir Vestur-Þjóðverja, að hafa sem allra bezt samstarf innan NATO, sérstaklega sé það haft í huga, hversu gífurlega stór landamæri þeir eiga, að löndum Austur-Evrópu. Hinir sigruðu, f.v. Helmut Kohl og Franz Josef Strauss, eftir að kosningaúrslitin voru kunn. Jákvæð viöbrögö Viðbrögðin við sigri Schmidts í Vestur-Evrópu, eru flest á einn veg, þ.e. sigri hans er víðast hvar fagnað, og kemur það skýrt fram, að ráðamenn hinna ein- stöku ríkja telja Schmidt óum- deilanlega bezta leiðtoga, sem Vestur-Þjóðverjar hafa á að skipa. Því hefur m.a. verið lýst yfir af háttsettum ráðamanni í Bretlandi, að stjórnvöld þar í landi væru því aðeins ánægð með úrslit kosninganna, að það er Schmidt, sem situr þar í forsvari. Að öðrum kosti hefðu Bretar kosið að Strauss hefði komizt til valda. Reyndar bentu skoðanakannanir í Vestur- Þýzkalandi mánuðina fyrir kosningar til þess, að það væri Schmidt einn, sem hefði mögu- leika á að halda óskertu fylgi Sósíaldemókrata, þ.e. mjög mik- ill fjöldi kjósenda var raunveru- lega að lýsa persónulegum stuðningi við Schmidt með því að ljá Sósíaldemókrötum at- kvæði sitt. Engar opinberar yfir- lýsingar hafa verið gefnar út í Áustur-Evrópu, en það má lesa mjög skýrt milli línanna, að stjórnvöld hinna ýmsu ríkja, eru mjög ánægð með sigur Schmidts, og telja Strauss reyndar „hinn versta mann“, en hann hefur marglýst því yfir, að nauðsyn- legt væri að taka upp harðari afstöðu gagnvart ríkjum Aust- ur-Evrópu, og hætta „hinni miklu linkind", sem ríki Vestur- Evrópu hefðu sýnt á undanförn- um árum. Gott samstarf viö Austurblokkina Schmidt hefur ávallt rekið áróður fyrir því, að halda uppi eins góðu sambandi og hægt væri við ríki Austur-Evrópu. Hann hefur m.a. farið nokkrar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.