Morgunblaðið - 19.10.1980, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 19.10.1980, Blaðsíða 28
76 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1980 HÖGNI HREKKVISI „#?VDPlÐ 7 H'UW 02 MR) tWD Úti 'i 6At2-D( • . " Ast er... ... að fara sér hægt í fjölmenni. Heldurðu að þetta „hjólhýsi“ duKÍ okkur ekki? Getið þið ekki sent hingað viðKerðarmann eins ok skot. Myndirnar á skerminum eru tvofaldar! CQSPER 8445 21 l Stendur þú hér aleinn og lætur þér leiðast? Þetta efni nær ekki til unglinga H.Th. skrifar: „Kæri Velvakandi. A.H. lýsir hrifningu sinni yfir Stundinni okkar í Velvakanda 15. þ.m. Ég hef verið að velta því fyrir mér, hvaða aldursflokki barna hann tilheyri. Ég hef alltaf haldið að Stundin okkar ætti að vera með efni fyrir börn. Ég á sjálf fimm börn, en það eru aðeins yngri börnin fyrir neðan 10 ára aldur sem hafa virkilegan áhuga fyrir þættinum. Persónu- lega hefur mér fundist 2 síðustu þættirnir hafa verið hálfgerðir hryllingsþættir og ekki við hæfi barna — þ.e. atriðin um hungruðu Afríkubörnin svo og reykingafólk- ið. Börn sem eiga foreldra sem reykja fyllast hræðslu um heilsu- far foreldra sinna og þetta efni nær yfirleitt ekki til þess aldurs- hóps sem réttast væri að sæi það, þ.e. unglinganna, sem eru að fikta við reykingar. Afríkubörnin er búið að kynna, að ég held, í allflestum skólum, svo og í öðrum fjölmiðlum og tel ég ástæðulaust að vera að smjatta á slíkum hörmungum í þætti fyrir yngstu áhorfendurna. Ög heyrt hef ég að þessi þáttur hafi verið bannaður í danska sjónvarpinu.“ „Garpurinn mikli“ Þegar haínarverkamenn hér í Reykjavík spurðu tíð- inda um skemmtirei.su Guð- mundar J.. formanns Verka- mannasamhands íslands til New York, á örlagastund samningamála verkaíýðsins, urðu þessi þrjú erindi til. smátt og smátt og lögðu ýmsir f púkkið. Valt er að treyst á veika stoð, -verkalýðsmál í böndum, en garpurinn mikli, Gvendur J., gamnar sér úti í löndum. Svo að hann megi flýta för fórna á samningsrétti: Nú skal lögfesta kaup og kjör, — körlunum trú’ ég létti. Öðruvísi mér áður brá: „Alla samninga í gildi“l! En nú er stjóm, sem má stóla á og Stóri bróðirinn vildi. Bridge og skák eru á bls. 70 Félagslíf í Vogum ekki á marga fiska sbúr^skrifar: -agsptis þrátt fyrir það og þó a3 knattspymu sé mikill eij knattspyrnufélag til á Það þyrfti að koma upp spyrnuliðum hér eins og néwfttir lí lundrnu, bwði Þróttmikið félags- líf í Vogum Vogum. 17.10. '80. Ómar Jónsson. formaður U.M.F.Þ., skrifar: „Vegna greinar þeirrar er birtist í lesendadálk Dagblaðsins og Velvakanda Morgunblaðsins 16. október um félagslíf í Vogum á Vatnsleysuströnd, get ég ekki látið hjá líða að birta eftirfar- andi athugasemdir. Greinarhöfundur segir, að fé- lagslífið á staðnum sé ekki upp á marga fiska og það sé nánast ekkert sem ungt fólk geti gert í frístundum sínum. Þá segir hann einnig, að ungmennafélag hafi lengi starfað í hreppnum en hafi alls ekkert gert fyrir ungt fólk eða aðra. En íbúar Vatnsleysustr.hr. vita betur, og þeirra vegna þyrfti ekki athugasemda við. En nei- kvæð skrif eins og þessi gefa ranga mynd af því sem er að gerast í sveitarfélaginu og er ekki góð kynning út á við. I hreppnum er rekið þróttmik- ið félagslíf með þátttöku nánast allra íbúanna. Þar má nefna Kvenfélagið Fjólu sem á ári hverju gengst fyrir þorrablóti, basar, ferðalög- um, jólatrésskemmtun, kaffi- veitingum og ýmsu fleiru. Þá má nefna Lionsklúbbinn Keilir sem undanfarin ár hefur starfað af krafti og lagt öllum góðum málefnum lið svo sem byggingu nýja barnaskólans, dagheimilinu, og gamla fólkinu svo eitthvað sé nefnt. Viðburðaríkt starfsár ungmennafélagsins Fyrir unga fólkið hefur verið starfandi í hreppnum ung- mennafélag, U.M.F. Þróttur er opið öllum þeim sem áhuga hafa og vilja taka þátt í félagslífi því er það stendur fyrir. Síðasta starfsár félagsins hef- ur verið viðburðaríkt eins og fyrri ár. Hefur félagið staðið fyrir margþættri starfsemi. Þar má nefna áramótafagnað, rétt- ardiskótek, páskabingó, sumar- ferðalag, kynningu á hjálp í viðlögum og útivistaferðir. Þá hefur sumardagurinn fyrsti ver- ið haldinn hátíðlegur og kvöld- vökur haldnar fyrir fullu húsi. Ýmislegt fleira væri hægt að nefna. Varðandi íþróttavöllinn er það að segja að þar til í sumar hefur enginn völlur verið í hreppnum og þar af leiðandi útilokað að spila knattspyrnu. En þar sem framkvæmdum við völlinn er senn lokið, hefur verið ákveðið að ráða til starfa þjálfara næsta ómar Jónsson. sumar til þjálfunar yngri flokka og jafnvel eldri ef mögulegt er. Um leiklistina er það að segja að á ári hverju eru að jafnaði færð upp tvö leikrit og eru þau leikin á árshátíðum félaganna. Komið hefur fyrir að leikrit hafa verið færð til sýninga utan sveitarfélagsins. Hver er munurinn? Varðandi þá fullyrðingu um að hér sé ekkert félagsheimili vil ég Unnið við íþróttavöllinn. spyrja: hver er munurinn á samkomuhúsi og félagsheimili? Samkomuhús það sem greinar- höfundur skrifar um og segir að sé ágætt heitir félagsh. Glað- heimar, og er í eigu sveitarfé- lagsins, Kvenf. Fjólu og UMf Þróttar. Innan veggja þess fer fram mikið félagsstarf, og má þar nefna kvikmyndasýningar sem lionsklúbburinn Keilir hef- ur staðið fyrir. Þá hefur farið fram danskennsla undanfarin þrjú ár á vegum Nýja danskól- ans og taka þátt í því allir aldursflokkar. Eftir þessa upptalningu á fé- lagslífinu í Vatnsleysust.hr. og er þó ekki allt upp talið, finnst mér dálítið undarlegt að ekki sé meira sagt, að tala um að félagslíf í hreppnum sé við- burðasnautt. Þá vil ég eindregið hvetja greinarhöfund til að ganga til liðs við félögin í hreppnum og láta ljós sitt skína.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.