Morgunblaðið - 19.10.1980, Síða 14
62
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1980
Ýmislegt hefur komið fram sem
varpa kann nýju ljósi á ástæðuna
fyrir morðinu. Menn voru frá
byrjun þess fullvissir að þeir væru
að rannsaka afar óvenjulegt morð,
og telja mátti víst að um hinar
venjulegu ástæður sem liggja að
baki flestra morða, svo sem
ágirnd, afbrýði, hefnd eða fé, væri
ekki að ræða í þessu tilviki. Einn
þeirra manna sem að rannsókn-
inni stóðu lét hafa það eftir sér að
lögreglan teldi að hér væri um
pólitískt morð að ræða. Ekki stóð
heldur á ásökunum og getgátum
um það hver bæri ábyrgð á
morðinu: Vinir Markovs héldu því
fram að búlgarska leyniþjónustan
hefði framið morðið, en búlgarsk-
ar heimildir kenndu CIA um það.
Markov dó 11. september árið
1978 fjórum dögum eftir að hann
varð fyrir árás á Waterloobrú af
manni með regnhlíf. Hann hafði
verið á leið til vinnu sinnar hjá
HINN LANGI ARMUR
KGB
í haust voru tvö ár liðin síðan „regnhlííarmorðið“ svokallaða var framið í Lundúnum á
pólitiska flóttamanninum búlgarska, Georgi Markov. Deild sú innan Scotland Yard sem fæst
við rannsóknir á hryðjuverkum hefur ekki enn tekizt að upplýsa málið. Georgi Markov sem
fæddur var í Sofíu, höfuðborg Búlgaríu, var grafinn í enska sveitaþorpinu Whitchurch
Canonicorum mánuði eftir að hann dó.
Við jarðarförina fór presturinn með upphaf leikrits sem Georgi Markov hafði samið í
Búlgaríu, en hann var kunnur fyrir bæði leikrit sín og skáldsögur.
Morðið á Markov virðist mega rekja til ritverka hans. óeinkennisbúnir lögreglumenn
frá Scotland Yard voru viðstaddir jarðarförina sem fór fram í þessu forna þorpi, og
sérfræðingar á ýmsum sviðum höfðu verið kallaðir til þess að aðstoða við að ákvarða hvað hefði
orðið honum að aldurtila.
einnig fullviss að fyrri morðin tvö
hafi verið framin af sömu aðilum
eða samtökum. Einnig kom í ljós
að aðalrannsóknir á eituráhrifum
risíns hefðu verið gerðar í Aust-
ur-Evrópu.
Búlgarska sendiráðið í Lundún-
um réðst á opinberar yfirlýsingar
sem gefnar höfðu verið út um
málið og töldu þær vera hugar-
burð og uppspuna.
Var þar meðal annars sagt að
mál þetta væri blásið upp í
pólitískum tilgangi einvörðungu
og til þess ætlað að kasta rýrð á
búlgarska alþýðulýðveldið.
Leppurinn
Búlgarska alþýðulýðveldið er
hið næstelzta í heiminum. NATO-
ríkin, Grikkland og Tyrkland eiga
landamæri að Búlgaríu sunnan til.
Búlgaría hefur samt ætíð verið
Sovétríkjunum trú, sem ekki er
hægt að segja um nágrannaríkið
Júgóslavíu. Búlgarski forsetinn
„Regnhlífarmorðið“
BBC. Mál þetta varð frægt, og var
það kennt við „eiturregnhlífina"
svokölluðu. Kona Markovs, Anna-
bel, heldur því hins vegar fram að
maður hennar hafi sagt sér að það
hefði ekki verið regnhlífin sem
stakk hann, heldur hafi árásar-
maðurinn notað hana til þess að
skýla andliti sínu með.
Fjórum mánuðum síðar felldi
dómari þann úrskurð að Markov
hefði hlotið bana af eitri sem
skotið var í lærið á honum.
Úrskurðurinn var felldur eftir
margra mánaða rannsóknir og
tilraunir. Rannsóknir lögreglunn-
ar' leiddu í ljós að haglið sem
fannst í líkama Markovs og var á
stærð við títuprjónshaus var gert
úr 90% platín og 10% iridium.
Ómögulegt var að sjá á líkaman-
um í fyrstu hvar haglið hafði farið
inn í hann, og einnig gengu efnin
tvö í efnasamband við líkamann. I
fyrstu töldu því læknarnir að
merkið á læri Markovs væri rispa
í filmunni. Vísindamennirnir voru
þess fullvissir að fjórar örsmáar
holur í haglinu væru merki eftir
rafskaut og hefðu þær innihaldið
eiturefni þau sem urðu Markov að
aldurtila.
Nú var gripið til þess örþrifa-
ráðs að fá í lið með sér deild þá
innan hersins sem sér um rann-
sóknir á sviði veiruhernaðar.
Eftir langa mæðu tókst að
einangra eiturefnasambandið ris-
ín og fullyrða að það væri bana-
valdur Markovs. Svín sem spraut-
uð voru með efni þessu sýndu
sömu sjúkdómseinkenni og Mar-
kov, eða hita, fjölgun á hvítum
blóðkornum og eyðileggingu blóð-
rísarinnar. Risín, sem bar efna-
fræðiheitið „w“ hafði aldrei verið
notað í morðtilgangi áður.
Flóttamaður
Markov hafði unnið við búlg-
örsku deild BBC. Áður en hann
hafði flúið Búlgaríu tíu árum áður
hafði hann verið einn þekktasti og
afkastamesti rithöfundurinn þar-
lendis. Hjá BBC hafði hann þann
starfa að þýða úr búlgörsku og
einnig semja vikulegan listaþátt. I
marga mánuði eftir dauða Mar-
kovs yfirheyrðu leynilögreglu-
menn starfsfélaga Markovs til
þess að reyna að finna einhverja
visbendingu sem gæti leitt til þess
að hægt væri að upplýsa málið.
Sögur og leikrit Markovs höfðu
gert hann afar vinsælan í heima-
landi sínu. Það er aðeins til ein
upptaka af Markov þar sem hann
mælir á ensku. Þar gerir hann
grein fyrir flótta sínum og segir
hann meðal annars að hann hafi
ekki lengur getað sætt sig við
kúgun þá sem hann varð að búa
við í heimalandi sínu af hálfu
yfirvaldanna.
Árið 1971 tók Markov til starfa
hjá BBC. Hann átti ekki margra
kosta völ ef hann vildi halda
áfram ferli sínum sem búlgarskur
rithöfundur. En þótt BBC teljist
pólitískt óhlutdræg útvarpsstöð,
þá var Markov einnig leyft að
starfa hjá bandarísku útvarps-
stöðinni Radio Free Europe sem
staðsett er í Munchen. Hann var
fyrsti starfsmaður hjá BBC sem
var leyft að starfa hjá báðum
stöðvunum. Svo virðist sem Mar-
kov hafi sett það að skilyrði og
ekki var annað fært en að verða
við bón hans.
Útvarpsstöðin Radio Free Eur-
ope var stofnuð árið 1950 á dögum
„kalda stríðsins", og var henni
ætlað að útvarpa áróðri frá Vest-
urlöndum til landa Austur-
hann fékk ekki við BBC. Hann
hafði vikulegan þátt þar sem hann
lýsti eigin lífi og reynslu í Búlg-
aríu. Þar sem Markov hafði verið
kunnugur mörgum fremstu ráða-
mönnum Búlgaríu, þar á meðal
Zhivkov forseta, þá var hann
fyrirtaksheimildarmaður um þá
hluti sem áttu sér stað bak við
tjöldin.
Miðstéttarmaður
Georgi Markov fæddist í Búlg-
aríu aður en kommúnistar hrifs-
uðu til sín völdin árið 1944. Hann
kom úr miðstéttarfjölskyldu, og
hafði faðir hans verið liðsforingi í
varð afar vinsæl, og var hún þýdd
á flestar tungur Austur-Evrópu,
einnig á rússnesku. Þetta var
mikill heiður fyrir rithöfundinn
frá smáríkinu Búlgaríu. Næstu sjö
árin fengu leikrit hans og skáld-
sögur frábærar undirtektir. Þar
sem ráðamenn voru honum hlið-
hollir, leyfðist Markov allskyns
munaður sem sjaldgæfur var þar
um slóðir, svo sem BMW einka-
bifreið. Einnig vingaðist hann við
forseta landsins. En eftir innrás-
ina í Tékkóslóvakíu árið 1969, varð
Markov það ljóst að tími umburð-
arlyndis í menningarmálum var
liðinn. Honum var skipað að gera
grein fyrir skoðunum sínum í einu
leikrita sinna. Það var þá sem
Markov gerðist landflótta.
Sannanir fyrir því að morðið á
Markov væri einangraður atburð-
ur komu frá Frakklandi, en þar
hafði Búlgarinn Vladimir Kostov
sem einnig var landflótta hlotið
bana á sama hátt. Hann starfaði
líka hjá Radio Free Europe og
hafði haft náin tengsl við ráða-
menn í landi sínu aður en hann
gerðist landflótta. Árás var gerð á
hann í neðanjarðarbraut Parísar-
borgar. Brezka lögreglan fékk sýni
af holdi Kostovs frá París, og kom
þá í ljós að það hafði einnig að
geyma málmhagl. Rannsóknir á
rannsóknarstofum Scotland Yards
leiddu í ljós að haglið var ná-
kvæmlega hið sama og það sem
fundizt hafði í líkama Markovs.
Skömmu síðar fannst þriðji Búlg-
arinn, Vladimir Simenov, látinn í
Lundúnum. Lögreglan þykist þess
nú fuilviss að látt Simenovs hafi
verið tilviljun ein, en hún er þess
Todor Zhivkov hefur setið við völd
í 25 ár. Hann hefur verið dyggur
stuðningsmaður allra sovézkra
ráðamanna allt frá Stalín til
Brezhnevs. Lætur hann svo um-
mælt að Búlgaría sé hinn trygg-
lundaði litli bróðir hinna voldugu
Sovétríkja. Sovétmenn líta því
með velþóknun á Búlgaríu. Búlg-
arir buðust jafnvel til þess að
aðstoða við rannsóknina á hinu
dularfulla morði, en því var hafn-
að.
Georgi Markov naut vinsælda í
Búlgariu til dauðadags. Það geng-
ur sú saga þar í landi að ráðamenn
hafi aldrei horft á sjónvarp á
sunnudagskvöldum vegna þess að
„Litli bróðir“
Sovétrisans
þeir væru allir að hlusta á þætti
Markovs í Radio Free Europe.
í þáttum sínum reyndi Markov
að lýsa fyrir hlustendum hinum
raunverulegu atburðum sem áttu
sér stað bak við tjöldin í löndun-
um bak við Járntjaldið". Ein saga
hans bar nafnið „Lífið bak við
tjöldin", og átti hann þar við
tjöldin sem dregin eru fyrir aftur-
og hliðarrúður svörtu Mercedes-
bíla stjórnarinnar. Hann sagði
líka að varla mætti taka mark á
því sem gefið væri til kynna
opinberlega. Þegar ráðamenn töl-
uðu um að nú yrði að spara í
landinu ætluðu þeir sér að sólunda
sjálfir almannafé. Menn sem
nefndir væru heittelskaðir þjóðar-
leiðtogar væru í raun og sannleika
almennt hataðir.
NNABEL:
Evrópu. Árið 1971 var því ljóstrað
upp að stöðinni væri stýrt af CIA.
Forráðamenn stöðvarinnar halda
því fram í dag að allt hafi breyzt
frá því sem áður var, og.segja til
dæmis því til stuðnings að yfirráð-
um CIÁ sé fullkomlega lokið og
það sé bandaríska þingið sem sé
við stjórnvölinn. Sagt er ennfrem-
ur að hlutverk stöðvarinnar sé að
upplýsa þjóðir Austur-Evrópu.
Stöðin útvarpar á sex málum
Austur-Evrópulanda, og verður
sífellt fyrir aðkasti frá löndum
þessum. Stundum hefur Austur-
Evrópumönnum tekizt að koma að
flugumönnum við stöðina, og hafa
þeir síðan ljóstrað upp um störf
hennar svo að mikla athygli hefur
vakið. Árið 1959 setti sendiráðs-
starfsmaður nokkur frá Tékkó-
slóvakíu eitur í saltbauka stofnun-
arinnar, en einu áhrifin urðu væg
magapína.
Við Radio Free Europe leyfðist
Markov að fá því útvarpað sem
„Sennilega
tilgangslaust...
Enginn hefði
trúað mér“
hernum. En eftir að kommúnistar
urðu ráðandi í landinu voru allir
grunaðir um græsku sem ekki
gátu sannað lágstéttauppruna.
Yngri bróðir Georgis lét lífið
ásamt 50 öðrum skólafélögum
þegar hann var átta ára gamall.
Hann hafði verið bólusettur með
gölluðu bóluefni frá Sovétríkjun-
um. Á stúdentsárum sínum hafði
Georgi verið fangelsaður fyrir að
vera viðriðinn tímarit gefið út af
andófsmönnum, en þegar hann
var látinn laus ákvað hann að
gangast kommúnismanum á hönd.
Fyrsta skáldsaga hans „Men“
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1980
63
Því er opinberlega neitað að
þættir Markovs hafi haft nokkur
áhrif á búlgörsku þjóðina. Búlg-
arskir sendiráðsmenn í Lundúnum
sögðu að ómögulegt væri að hlusta
á þætti hans í útvarpinu þar sem
útsendingin væri hvort sem er
trufluð. En útsendingin á einni
bylgjulengd er samt ótrufluð til
þess að yfirvöldin geti fylgzt með
þeim. Einnig gáfu þeir út þá
yfirlýsingu að Markov væri svik-
ari við land sitt og þjóð og
almennt fyrirlitinn í Búlgaríu.
En líklegt er nu talið að ráða-
menn í Búlgaríu hafi haft miklar
áhyggjur af þáttum Markovs.
Bróðir Georgi Markovs, Nicola,
sem nú býr í Bologna á Ítalíu og
stundar þar frímerkjasölu hafði
áður flúið til Vesturlanda. Hann
og ekkja Georgis hafa nú látið til
leiðast að birta opinberlega ýmsar
upplýsingar sem hingað til hafði
verið haldið leyndum. Nicola Mar-
kov segir að Búlgari nokkur hafi
ingi í búlgörsku lögreglunni Stef-
an Svredlev, hefur nú látið tilleið-
ast að leysa frá skjóðunni. Maður
þessi var sæmdur heiðursmerki
sovézku leyniþjónustunnar fyrir
að vera útvörður kommúnismans,
og er hann fyrsti búlgarski liðs-
foringinn sem hlotið hefur slíkan
heiður. Árið 1971 gerðist hann
landflótta. Fyrst sagði stjórnin að
hann væri dáinn, en síðan var
hann dæmdur til dauða af herrétti
að sér fjarstöddum. Bað hann um
að þess yrði ekki látið getið hvar
hann nú byggi. Sagði Svredlev að
hann vissi til þess að búlgarska
leyniþjónustan stundaði bæði
mannrán og dræpi andófsmenn
erlendis. Sagði hann ennfremur að
leyniþjónustan hefði staðið fyrir
morðinu á Georgis og hefði hún
sennilega gert mann út sérstak-
lega frá Búlgaríu til þess að
framkvæma morðið, til þess að
gera erfitt fyrir um alla rannsókn
málsins.
að meina mönnum að ferðast til
annarra landa. Tveimur mánuðum
seinna birtust dreifirit í svipuðum
dúr, og svartur fáni var dreginn að
hún þar sem á var ritað „Niður
með kommúnismann!" Fleiri slíkir
atburðir gerðust, og er það því
merkilegra þar sem í Búlgaríu
ríkir hvorki skoðanafrelsi né
málfrelsi. Einnig er talið víst að
forseti landsins væri þeirrar skoð-
unar að útsendingar Markovs
ættu óbeina sök á þessum atburð-
um.
Brezhnev og forseti Búlgaríu
voru sammála um að áríðandi
væri að stöðugleiki og ró héldist í
Búlgaríu.
Nikolai Khoklov hefur fylgzt
mikið með sambandi kommúnista
við Markovmálið. Á sjötta tug
aldarinnr var hann starfsmáður
KGB og hafði yfir leyniþjónustu
Austur-Evrópuríkja að segja.
Hans starf var að vinna á móti
fjendum Sovétríkjanna. Var
rifjad upp
varað bróður sinn við í septem-
bermánuði árið 1977. Vill Nicola
ekki láta nafns mannsins getið af
ótta við að það geti komið honum í
koll.
Segir Nicola að maðurinn hafi
sagt sér frá þeirri ákvörðun sem
tekin hefði verið að myrða Georgi.
Er hér um háttsettan mann að
ræða, en ekki sagðist Nicolai vita
hvort hann hafi verið við málið
riðinn sjálfur eða hvort honum
hafi aðeins verið sagt frá ráða-
gerðinni. Fjórum mánuðum áður
en Georgi var myrtur sagði þessi
sami maður bróður hans frá því að
ráðgert væri að drepa hann á eitri
og væri eitrið þegar komið í
sendiráð í Vestur-Evrópu.
Nicola sagði bróður sínum frá
öllum þessum viðvörunum. Þrem-
ur mánuðum fyrir morðið hringdi
maðurinn svo í Georgi sjálfan og
var honum þá boðið heim tii
Georgis þar sem hann hitti einnig
Annabel, eiginkonu hans. Segir
ekkja Georgis nú að maðurinn
hafi sagt manni hennar að hann
myndi verða drepinn fyrir áramót
ef hann hætti ekki útsendingum
fyrir Radio Free Europe. Var
ekkjan spurð hvers vegna hún
hefði ekki sagt lögreglunni frá
þessu, en hún segir að það hefði
sennilega verið tilgangslaust því
að enginn hefði lagt trúnað á orð
hennar. Maðurinn sagði ennfrem-
ur að ákvörðunin um morðið hefði
verið tekin af æðstu mönnum í
stjórn Búlgaríu.
Persónudýrkun
Sannað þykir nú að forseta
sjálfum hafi gramizt mjög þættir
þeir þar sem Markov fjallar um
hann persónulega og honum lýst
sem manni sem spilltum af kerf-
inu. í ársbyrjun árið 1978 var
brezki sendiherrann kvaddur í
utanríkisráðuneytið til þess að
reyna að fá hartn til þess að beita
áhrifum sínum og láta Markov
láta af útsendingum sínum, og var
móður Markovs gefin sömu skila-
boð þegar hún fór til fundar við
son sinn. Yfirmaður Markovs við
Radio F'ree Europe segir að full-
víst sé að forsetinn hafi orðið æfur
yfir þættinum um hann sjálfan
þar sem hann sé svo mjög í
hávegum hafður að jafnist á við
persónudýrkun. Ekki er samt vit-
að hvort reiði forsetans ein var
ástæðan fyrir morðinu.
Búlgarska leyniþjónustan sér
um öryggismál landsins. Eru
menn það smeykir við hana að
jafnvel landflótta Búlgarir tala
aðeins um hana í hálfum hljóðum.
Talið er víst að leyniþjónustan
eigi lista með nöfnum þeirra
manna sem hún vill koma fyrir
kattarnef bæði heima og erlendis.
I skjölum sem smyglað hefur verið
úr landi frá leyniþjónustunni er
greint frá slíku. Leyniþjónustu
hvers héraðs í búlgariu er skylt að
halda slika lista.
Fyrrverandi háttsettur liðsfor-
í Búlgaríu var sagt að aðeins
heimskingjum gæti dottið í hug að
Búlgörum hefði verið hagur í að
myrða Markov eftir 10 ára dvöl
fjarri heimalandinu, og væri
miklu líklegra að mennirnir þrír
sem látizt hefðu hefðu allir verið á
snærum leyniþjónustu Vestur-
landa. Hefði svo CIA ákveðið að
koma öllum þremur fyrir kattar-
nef.
Svredlev liðsforingi segir að það
sé gamalt bragð hjá kommúnist-
um að reyna að telja fólki trú um
að menn eins og Markov og Kostov
séu á mála hjá bandarísku leyni-
þjónustunni og segist vona að fólk
sé ekki svo einfalt að trúa slíku.
Hann bætir því ennfremur við að
menn skuli ekki gleyma því að
búlgörsku leyniþjónustunni sé
stjórnað af KGB (rússnesku leyni-
þjónustunni), og sé því mjög
líklegt að hún hafi verið í vitorði
með þeim sem lögðu á ráðin um
morðið á Markov.
Andófsmenn
Todor Zhivkov lýsir sambandi
Sovétríkjanna og Búlgaríu eins og
tveimur lungum í sama líkama
með sömu blóðrás. Þau 25 ár sem
hann hefur verið við völd hefur
allt virzt með kyrrum kjörum í
Búlgaríu, en samt hefur farið að
örla á ólgu undir yfirborðinu, þótt
lítið hafi frétzt af slíku á Vestur-
löndum. Hálfu ári áður en Georgi
Markov var drepinn gaf flokkur
andófsmanna sem kallast ABD út
dreifiritið „Yfirlýsing 78“ þar sem
ráðizt var harkalega að stjórninni
fyrir að hafa að engu mannrétt-
indi og þess krafizt að hætt yrði
Khoklov sjálfur sendur út til þess
að drepa pólitískan flóttamann í
Frankfurt. Þar leitaði hann á
náðir vesturþýzkra yfirvalda. Um
Markovmálið hefur hann eftirfar-
andi að segja: „Ég er viss um að
KGB hefur átt þátt í morðinu á
Markov. Gleymið ekki að búlg-
örsku leyniþjónustunni er stjórn-
að af Sovétmönnum, og gæti hún
ekki framkvæmt slíkt upp á eigin
spýtur. Eg er viss um að verið var
að reyna að gera æðstu yfirráða-
mönnum til hæfis, eins og til
dæmis Brezhnev og Zhivkov. Hef-
ur nú andófsmönnum bæði utan
og innan Austantjaldslandanna
verið skotinn skelkur í bringu.
Naut marg-
víslegra sér-
réttinda — en
kaus frelsið
Þeir sjá nú að þeir geta hvergi
verið óhultir fyrir hinum langa
armi KGB.“ Georgi Markov dó
þann 11. september.
10. september er þjóðhátíðar-
dagur eða „Dagur hersins og
öryggi ríkisins" en dagurinn þar á
undan er hinn svokallaði „Frelsis-
dagur“. í síðustu útsendingu sinni
í Radio Free Europe benti Markov
á misræmi þetta, sem hann sagði
vera táknrænt fyrir síðustu 34
árin í sögu Búlgaríu.
Þegar verið var að útvarpa
síðasta þættinum var Markov
myrtur.
FLUGLEIDIR
Hlutafjáraukning
Á hluthafafundi félagsins, sem haldinn var 8. október
1980, var samþykkt aö auka hlutafé félagsins úr kr.
2.940.000.000,- í kr. 3.500.000.000.-, eöa um 560
milljónir, sem eru 19,05%. Samkvæmt 4. gr.
samþykkta félagsins eiga hluthafar forkauþsrétt aö
kauþum á hinum nýju hlutum í réttu hlutfalli viö
hlutaeign sína í félaginu.
Þeir hluthafar, sem vilja neyta forkauþsréttar síns,
tilkynni það hlutaþréfadeild félagsins fyrir 15.
nóvemþer 1980, þar sem áskriftarlisti liggur frammi.
Aukningarhlutir veröa gefnir út á nafn og skulu
staögreiddir samkvæmt nafnverði.
Óski hluthafar eftir aö kauþa aukningarhluti umfram
þau 19,05%, sem þeir hafa rétt á, skulu þeir tilkynna
það hlutaþréfadeild fyrir 15. nóvemþer 1980.
Stjórn Flugleiöa h.f.
Langbestu
eldavélakaupin sem viö getum boöiö frá
Þessi fullkomna glæsilega eldavél er á ðvenju
hagstæðu veröi kr. 572.500.-. Meö viftunni (ef
vifta á ekki aö blása út kostar kolasía kr.
67.200-verö pr. 15.10. 1980.
Þú færö allt meö þessari vél: 2 fullkomnir stórir
bakarofnar, efri ofninn meö grilli og rafdrifnum tein,
sjálfhreinsandi, hraöhitun er á ofninum, Ijósaborö yfir
rofum. 4 hellur, fullkomin vifta meö digitalklukku og
fjarstýrisbúnaöi fyrir vél. Glæsilegir tízkulitir: Avoca-
do grænn, karrý gulur, inka rauöur, svartur og hvítur.
Eigum einnig kæliskápa, frystiskápa, uppþvottavélar
og frystikistur. — Greiðsluskilmálar.
EINAR FARESTVEIT & CO HF.
BERGSTAOASTRATI 10A SlMI I69VS