Morgunblaðið - 19.10.1980, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1980
77
VELVAKANDI
SVARAR Í SÍMA
10100 KL. 13-14
FRÁ MANUDEGI
Vöntun á bílastæðum
við Landakotsspítala
ABJ NNR. 0660-0549 skrifar:
„í dálkum Velvakanda sl.
fimmtudag er fyrirsögn, sem
kveður á um bófahasar á bílastæð-
um. í sama dálki segist eigandi
hugmyndarinnar um bófahasar-
inn taka kröftuglega undir bíla-
stæðaskort.
Með þessum línum er alls ekki
verið að hvetja til neins konar
bófahasars, en allir eru sammála
um bílastæðaskortinn, t.d. við
Landakotsspítalann á Landakots-
hæð, bæði við Túngötu og Ægis-
götu og ennfremur við Öldugötu,
en að Öidugötu 17 er göngudeild
augndeildar Landakotsspítala
Vil ekki
svona gervi
á svið
Kona að norðan skrifar.
„„Skollaleikur" eftir Böðvar
guðmundsson var endurtekinn í
dagskrá sjónvarpsins 15. septem-
ber síðastliðinn, en fyrst sýndur
þar 1. október 1978.
Ég hef víst ekki horft á þetta
leikrit í fyrra skiptið, en horfði á
það nú um daginn. Gerð leikrits-
ins er eflaust góð og á fullan rétt á
sér eins og vænta mátti af höfund-
inum. En uppsetningin á því,
búningarnir og sér í lagi grímurn-
ar, eru engan veginn úr forneskju.
Þær minna mann á tískufyrir-
brigði, á afstraktmyndir eða plast.
Fólkið virtist helst sem plastlíkan
á skerminum, augun starandi,
andlitsdrættir engir og þar með
engin svipbrigði í samræmi við
tilþrif persónanna. Ég get ómögu-
lega viðurkennt þessar persónur
og látbragð þeirra sem fulltrúa
þess tíma, sem þær eiga að
tilheyra. Svo kemur unga parið,
sérstaklega unga stúlkan, fram á
sjónarsviðið sem algjör andstæða
hinna persónanna, búin rétt eins
og hún sé að ganga inn á dansleik
í dag.
Ég vil ekki svona gervi á svið.“
Slcingrimur llermannsMin:
staðsett, — einasta sérhæfða
augndeildin við spítala á öllu
landinu.
Innvik íyrir
bílastæði
Svo mun vera, að fyrir um
tveimur árum var komizt að
samkomulagi við kaþólska söfnuð-
inn um að taka mætti og taka
skyldi rein úr Landakotstúni við
Túngötu (innvik inn í túnið þar),
og var sú ráðstöfun beinlínis
hugsuð í þeim tilgangi, að þar
yrðu bílastæði með stöðumælum á
mesta annatíma, en eðlilega gjald-
frjáls að kvöldi og um helgar. Um
helgar hugsa æði margir til ætt-
ingja, sem liggja í Landakotsspít-
alanum, og þar er nú heimsókn-
artími á ný tvisvar daglega, þ.e.
eftir að ríkið tók við rekstrinum í
vel þekktu sjálfseignarstofnunar-
formi.
Til borjíarstjór-
ans í Reykjavík
Vöntun á bílastæðum við
Landakotsspítalann er fyrir löngu
orðin hættuleg, enda virðist þjóðin
almennt vera orðin það „fótfúin",
að heimsækjendur mundu helzt
vilja aka inn í spítalann frá
Túngötu, en við þeim afþreyingar-
akstri var nýlega séð með því að
setja myndarleg blómaker upp á
sjáifan inngöngustíginn frá Tún-
götu.
Þetta er margrætt mál, sem
vart þyrfti að endurtaka. Lögreglu
og strætisvagnastjórum, svo og
umferðardeild borgarverkfræð-
ings er vel kunnugt um þetta
vandamál, en ekki fæst úr bætt og
skellt er þreyttum skollaeyrum við
öllum ábendingum.
Því er hér með beint til borgar-
stjórans í Reykjavík, hr. Egils
Skúla Ingibergssonar, að hann láti
mál þetta til sín taka.“
„Guðrún
getur allt“
„Nú er frost á Fróni,"
feikilega kalt.
En Guðrún Gervasoni
getur læknað allt.
„Yfir Laxalóni
liggur klakaþil,"
en Guðrún Gervasoni
gefur birtu og yl.
Sumt hjá Sigurjóni
er svakalega ljótt
En Guðrún Gervasoni
græjar þetta fljótt.
Ég er rakinn róni,
ræði ei heimsins stúss.
Æ, Guðrún Gervasoni
gefðu mér einn sjúss.
Alltaf upp úr nóni
æpir kvensemin:
Ó, Guðrún Gervasoni,
gakktu til min inn.
Er ég fell á Fróni
og fer til himnaranns,
Guðrún Gervasoni
gefur stóran krans.
Frosti
Þessir hringdu . .
Hringir eins
og allt sé í lagi
Símnotandi hringdi til Vel-
vakanda og kvartaði undan síma-
þjónustu. — Þetta er eitt þarfasta
tæki sem ég nota daglega og ég
nota síma talsvert mikið. En
þjónusta Landsímans mætti vera
betri, svo dýr sem hún er. Þeir
hreyfa sig ekki með svo mikið sem
snúruspotta fyrir minna en þús-
undir króna. Ég ætla að nefna
dæmi um lélega þjónustu fyrir-
tækisins. Ég var um daginn búinn
að hringja lengi og oft í kunningja
minn, sem ég hafði ekki hitt
nokkuð- lengi. Alltaf hringdi hjá
honum eins og allt væri í lagi, og
ég dró þá ályktun að maðurinn
væri svona mikið að heiman, að
erfitt væri að hitta á hann. Var þó
alltaf öðru hvoru að reyna. Svo
hitti ég hann af einskærri tilvilj-
un.
Sagði hann mé, þá að hann
hefði fyrir nokkrum vikum flutst
á milli hverfa og fengið nýtt
símanúmar. Gamla númerið væri
sennilega í biðstöðu hjá Landsím-
anum. Ég spyr: Er þetta boðleg
þjónusta, að láta númerið hringja
endalaust eins og það sé enn í
notkun? Þetta er ekki það eina
sem ég get fundið að símaþjónust-
unni og það sem verra er: ég held
henni hafi hrakað mikið upp á
síðkastið, maður er meira að segja
farinn að heyra alls konar raddir
og aukahljóð inni í miðjum sam-
tölum.
Sinfoníuhljómsveit íslands
Tónleikar
í Háskólabíói fimmtudaginn 23. októ-
ber 1980 kl. 20.30.
Verkefní:
Karl O. Runólfsson — Fjalla-Eyvindur, forl. op. 27.
Chopin — píanókonsert nr. 1 í e-moll.
Debussy — Síödegi skógarpúkans.
Debusy — La Mer.
Stjórnarni: Jean-Pierre Jacquillat.
Einteikari: Dominique Cornel.
Aögöngumiöar í bókaverslunum Sigfúsar Eymundssonar
og Lárusar Blönda! og viö innganginn.
Sinfoníuhljómssveit islands
H
H
H
Daihatsu Charade
árg. 1980, ekinn 11 þúsund, rauður. Verð 5,8 millj.
Honda Civic
árg. 1977, gulur. Verð 4,5 millj.
Galant 2000 GLX
árg. 1980, rauður, ekinn 6 þúsund. Verö 8,5 millj.
Dodge Ramcharger
árg. 1980, rauður, ekinn 10 þúsund. Verð 11 millj
VW-Golf L
3ja dyra, árg. 1979, ekinn 31 þúsund. Verð 6,5 millj.
Galant 1600
árg. 1979, blár, ekinn 18 þúsund. Verð 6,5 millj
Audi 100 LS
árg. 1978, rauður, ekinn 27 þúsund. Verð 7,6 millj.
Lancer
4ra dyra, árg. 1978, blár, ekinn 35 þúsund. Verð 4,3 millj
HEKLAHF
Laugavegi 170 -172 Sími 21240
Söludeild: sími 21240 — 11276.
H
H
H
H
[H][H]|H][Hl[H]lH][Hl
H
H
H
H
Móti olíugjald-
inu eins og það
er nú upp byggt
SIGCA V/GGA £ '(/LVEgAM
EF ÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Vísa vikunnar
Steingríms þetta stimpill er,
stöðugt klár á fagið;
að vera á móti sjálfum sér
er sárafáum lagið.
Hákur
,.XVf v/5"A/N/
/fylAKPQM K/Y&T
tö Vtm 5iu-
SVlóQltf