Morgunblaðið - 22.10.1980, Page 1
32 SIÐUR
234. tbl. 68. árg.
MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Neyðarástandi
lýst í Sómalíu
Nikósíu. 21. októher. AP.
FORSETI Sómalíu. Mohammed Siad Ilarre. lýsti yfir neyðarástandi í
daK vegna meintrar „árásar Eþíópíumanna“ samkva>mt frétt
fréttastofu Qatar frá Mogadishu.
Barre kvað aðgerðir Eþíópíu-
manna gegn Sómalíu runnar und-
an rifjum útlendinga og átti
greinilega við Rússa, sem styðja
stjórn Haile Mariam í Addis
Ababa.
Barre sagði, að vegna erlendrar
aðstoðar, sem Eþíópía fengi, hefði
hann nýlega gert samning við
Bandaríkjamenn. Samningurinn
veitir Indlandsflota þeirra aðstöðu
í flotastöðinni Berbera. Rússar
reistu stöðina, sem er við
Adenflóa, þegar þeir studdu
Barre.
„Samningurinn tryggir fullveldi
og hagsmuni Sómalíu, án þess að
ógna hagsmunum annarra landa.
Tilgangur hans er að varðveita
öryggi og frið í þessum heims-
hluta," sagði Barre.
Forsetinn lýsti einnig yfir
stuðningi við „rétt íraka til að
endurheimta yfirráðasvæði sín
með valdi“, en kvað Sómalíu fagna
tilraurtum múhameðstrúarríkja
til að binda endi á styrjöld írana
og íraka.
Árás á stöðvar
Swapo í Angola
WindhtK'k. 21. októhor. AP.
SUÐUR-AFRÍSKT herlið réðst í dag á stöðvar skæruliða blökku-
manna í Angola í dag á fyrsta degi viðræðna fulltrúa SÞ við
suður-afríska ráðamenn um sjálfstæði Suðvestur-Afríku (Namibíu).
Willie Meyer hershöfðingi, ann-
ar æðsti yfirmaður herliðsins í
Suðvestur-Afríku, sagði, að 28
skæruliðar blökkumannasamtak-
anna Swapo og angólskir hermenn
hefðu verið felldir í árásinni og
allir suður-afrísku hermennirnir
hefðu snúið aftur heilu og höldnu
til stöðva sinna.
En angólskir embættismenn
sögðu, að Suður-Afríkumenn væru
enn í Suður-Angóla. Angólamenn
sögðu líka, að ein suður-afrísk
þota hefði verið skotin niður og
flugstjórinn beðið bana. Suður-
afrískar flugvélar hefðu 22 sinn-
um ráðizt á Angóla og gert 23
þyrluárásir síðan í júlí.
Brian Urquhart, fulltrúi SÞ,
sagði, að viðræðurnar í Pretoria í
dag hefðu verið „mjög hreinskiln-
islegar". Samtökin hafa fallizt á
að hitta að máli fulltrúa stjórn-
málaflokka í Suðvestur-Afríku
vegna þrýstings frá Suður-Afríku
og til að sanna óhlutdrægni í ljósi
stuðnings Allsherjarþingsins við
Swapo.
Fulltrúar SÞ reyna að semja við
Suður-Afríku um vopnahlé í stríð-
inu og efna til kosninga um
sjálfstæði undir eftirliti samtak-
anna. Svipuð tilraun fór út um
þúfur í fyrra vegna ásakana
Suður-Afríku um að SÞ hefðu
breytt samningsákvæðum á síð-
ustu stundu til að þóknast Swapo.
Marais Viljoen, forseti Suður-
Afríku, undirritaði í dag lög um
herskráningu allra karlmanna á
aldrinum 18 til 25 ára í Suðvest-
ur-Afríku.
44
55
Frost og stillur hafa verið ríkjandi í Reykjavík á
þessu hausti, og hafa borgarbúar kunnað vel að meta
góða veðrið, eins og þessir íshokkímenn sem hér leika
listir sínar á Tjörninni í miðbænum. Myndina tók
Emilía Björg Björnsdóttir.
Ungur
leiðtogi
í Kreml
Moskvu. 21. október. AP.
MIÐSTJÓRN sovézka
kommúnistaflokksins
skipaði í dag tiltölulega
ungan sérfræðing í land-
búnaðarmálum, Mikhail
A. Gorbachev, 49 ára, full-
gildan fulltrúa í stjórn-
málaráðinu.
Jafnframt var Tikhon Y. Kisel-
ev, 63 ára, skipaður aukafulltrúi í
ráðinu í stað Pyotr Masherovs,
sem tilkynnt var að hefði farizt í
bílslysi í Hvíta Rússlandi 4. októ-
ber. Kiselev tók við stöðu Masher-
ovs sem leiðtogi flokksins í Hvíta
Rússlandi 16. október.
Gorbachev verður yngsti full-
trúinn í stjórnmálaráðinu, þar
sem meöalaldur fulltrúanna er 69
ár. Stjarna hans hefur hækkað ört
á nokkrum árum og hann hefur
verið aukafulltrúi í ráðinu síðan
1979. Sérfræðingar hafa spáð
skipun yngri manna í æðstu emb-
ætti vegna slæmrar heilsu gam-
alla ráðamanna.
A fundinum var hlýtt á ræðu,
sem Leonid Brezhnev forseti
flutti, og rætt um fjárhagsáætlun
1981 og næstu fimm ára áætlun.
Því hafði verið spáð að rætt yrði
um heilsufar Alexei Kosygins for-
sætisráðherra, sem hefur verið
veikur mikinn hluta ársins, en það
var ekki tilkynnt.
Her íraka þrengir
hringinn um Abadan
Beirút. 21. íebrúar. AP.
ÍRAKAR sögðu. að þeir hefðu
haldið uppi miskunnarlausum
skriðdrekaárásum á borgarhlið
Abadan í dag og gert loftárásir á
íran. íranir sögðu. að þeir hefðu
hrundið harðnandi árásum íraka
á aðalleiðina inn í Abadan við
brúna á ánni Bahmanshir og gert
loftárásir á írak.
Iranir sögðu, að fallhlífahermenn í
þyrlum hefðu náð tveimur héruðum
Walesa býst senn
við viðurkenningu
Varsjá, 21. október. AP.
IIÉRAÐSDÓMSTðLLINN í Varsjá
tekur fyrir á föstudag stofnskrá
stærsta óháða verkalýðsfélagsins.
_Samstaða“, undir forystu Lech
Walesa, og kann að samþykkja
hana, að sögn leiðtoga félagsins í
dag.
Walesa hefur lagzt gegn verkföll-
um vegna þess hve dregizt hefur að
fá stofnskrána samþvkkta. Á fundi
í Jastrzebie í Efri-Slésíu sögðu hann
og samherjar hans, að verkfall
mundi hafa öfug áhrif. Nokkrir
leiðtogar Samstiiðu höfðu hvatt til
þess. að verkfall yrði hoðað 4.
nóvember ef stofnskráin yrði ekki
viðurkennd.
En Kazimierz Switon, leiðtogi fé-
lagsins í Katowice, sagði í viðtali, að
verkfall mundi hafa hörmuleg áhrif
á bágborinn efnahag landsins. „Verk-
fall kæmi aðeins niður á verkamönn-
um sjálfum," sagði hann. „Við höfum
ekki nógu mikið af matvælum sem
stendur. Ef verkfall yrði gert, stæð-
um við andspænis hungursneyð og
algeru öngþveiti."
Hann kvaðst viss um, að stofnskrá-
in yrði samþykkt á föstudaginn og
sagðist ekki mótfallinn breytingu á
orðalagi, þannig að forystuhlutverk
kommúnistaflokksins yrði beinlínis
viðurkennt, eins og stjórnin hefur
krafizt. Walesa kveðst ekki vilja
breyta orðalaginu, þar sem . í
stofnskránni sé pólska stjórnarskrá-
in viðurkennd og í því felist viður-
kenning á forystnhlutverki flokksins.
Switon og Walesa vildu gera lítið
úr ágreiningnum og töldu hægt að
leysa hann með samningaviðræðum.
Dómstóllinn í Varsjá fjallar einnig á
föstudag um stofnskrá bændafélags,
sem er.tengt Samstöðu. Dómstóllinn
hefur þegar samþykkt 12 stofnskrár
og á eftir að fjalla um 16.
Fimm daga erfiðu ferðalagi Wal-
esa í Suður-Póllandi átti að Ijúka í
dag. Hann og samherjar hans hafa
komið fram á 12 fundum, þar sem
þeim hefur verið innilega fagnað.
Blöðin sögðu í dag frá ferð Walesa og
flokksmálgagnið, Trybuna Ludu,
hafði viðtöl við fólk á götunni um
afstöðu þeirra til óháðra verkalýðsfé-
laga.
nyrzt á vígstöðvunum úr höndum
íraka og eyðilagt 20 íraska skrið-
dreka. Irakar sögðu, að 38 Iranir
hefðu fallið á 12 tímum umhverfis
Abadan og í bardögum í návígi í
hafnarborginni Khorramshahr aust-
anmegin Shatt A1 Arab-sunds. Þeir
sögðu, að 24 írakar hefðu fallið.
Sáttasemjarinn, Habib Chatti frá
Túnis, framkvæmdastjóri samtaka
múhameðstrúarríkja, sagði í Teher-
an, að íranir hefðu ekki hafnað
tillögu hans um skipun sáttanefndar
þjóðhöfðingja múhameðstrúarríkja
til að stöðva stríðið og fá stríðsaðila
að samningaborði.
Utanríkisráðherra íraks, Saadoun
Hammadi, sagði í blaðaviðtali, að ef
Bandaríkjamenn útveguðu írönum
vopn til að stuðla að frelsun banda-
rísku gislanna mundi það jafngilda
því, að Bandaríkin færu í stríðið.
Jimmy Carter forseti hefur lofað
því, að íranir fái innistæðurnar, sem
voru frystar í Bandaríkjunum, ef
þeir láta gíslana lausa. Forseti
íranska þingsins segir, að ákvörðun
verði tekin um skilyrðin fyrir frels-
un gíslanna eftir tvo til þrjá daga.
Hann taldi að líklega yrðu skilyrðin
hin sömu og áður.
Iranir segja, að írakar hafi mætt
mótstöðu frá leyniskyttum og vél-
byssuskyttum á götum Khorram-
shahr. Iranir segja líka frá stór-
skotaliðsbardögum nálægt Dezful og
þyrluárás, sem hafi kostað 100 íraka
lífið. Loftárásir írana beindust gegn
Suleimanieh og Akra, Amarah og
Fao við Persaflóa.
Laker
synjað
Ix>ndun. 21. októher. AP.
FYRIR/ETLANIR Sir Freddie Lak-
ers um að la'kka flugfargjöld i
Evrópu á sama hátt og á Átlants-
hafsleiðum, urðu að engu í dag er
John Nott, viðskiptaráðherra. hafn-
aði beiðni hans um odýrar ferðir á
um 600 lciðum i Evrópu milli 35
borga. Brezk flugmálayfirvöld
höfðu áður synjað Laker.
Fargjöld frá London eru nú stund-
um lægri til New York en margra
borga Evrópu. Ferð með Laker til
New York kostar til dæmis 78 pund
en tii Stokkhólms 154 pund. Laker
segir að gildandi reglur um fargjöld
í Evrópu stríði gegn reglum Efna-
hagsbandalagsins um frjálsa sam-
keppni samkvæmt Rómarsáttmálan-
um frá 1957.