Morgunblaðið - 22.10.1980, Side 2

Morgunblaðið - 22.10.1980, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1980 Frekar heimildir en ákvarðanir segir Sigurður Helgason um frumvarpið „FRUMVARPIÐ var almennt rætt á stjórnarfundi Fluxleióa í daK ok menn kynntu sér efni þess,“ saKÓi SÍKuróur IlelKason, forstjóri FIuk- leiða, i Kærkvöldi er hann var spurður álits á laKafrumvarpi þvi er varðar FluKleiðir ok var til umræðu á AlþinKÍ í Kær. „í þessu frumvarpi eru mörg atriði sem augljóslega hijóta að verða mikil framkvæmdaatriði," sagði Sigurður ennfremur, „þetta byggir raunar mestmegnis á heim- ildum til ríkisstjórnarinnar, og því skiptir mestu máli hvernig fram- kvæmdin verður. Við þau atriði stönsuðu menn í dag og veltu því fyrir sér hvernig framkvæmdin yrði. Að öðru leyti sýnist okkur að frumvarpið nái yfir þau atriði sem um hefur verið rætt,“ sagði Sigurð- ur að lokum, og kvaðst ekki vilja tjá sig frekar um efni frumvarpsins að svo komnu máli. Sjálfstæðismenn á Norðurlandi vestra: Frétt Dagblaðsins helber ósannindi „I>ETTA eru ekki annað en helber ósannindi og rangfaTsla. það Keta allir borið, sem voru á þessum fundi,“ saKði Ómar Hauksson. og varastjórn voru kjörnar með lófataki. Kosningin var því eins friðsamleg og hún frekast gat orðið." Ómar kvaðst enn ekki hafa séð formaður kjördæmisráðs Sjálfstæð- frétt Dagblaðsins, en þegar hún isflokksins i Norðurlandskjördæmi vestra i samtali við Morgunblaðið i gær, er hann var spurður um túlkun Dagblaðsins á nýafstöðnum aðalfundi ráðsins. — En á haksíðu Daghlaðsins i gær var sagt, að stuðninKsmenn Pálma Jónssonar landhúnaðarráðherra hefðu haft menn Eyjólfs Konráðs Jónssonar alþinKÍsmanns undir á aðaifundin- um. „A fundinum ríkti mikil eining, þar sem menn voru kosnir með tilliti til mannkosta þeirra en ekki eftir stöðu þeirra í raunverulegum eða ímynduðum fylkingum," sagði Ómar ennfremur. „Uppstillinganefnd gerði tillögu um stjórnina, tillaga hennar var samþykkt átakalaust og stjórn hefði borist norður, myndi stjórn kjördæmisráðsins krefjast þess af Dagblaðinu, að það birti á jafn áberandi stað og umrædd frétt var á, leiðréttingu frá kjördæmisráðinu. „Enn hef ég aðeins heyrt þessa frétt í gegnum síma, en þegar ég hef séð hana munum við skrifa bréf og óska leiðréttingar, enda er fréttin víðs fjarri sannleikanum," sagði Ómar. „Ég get svo að lokum bætt því við í framhaldi af þessu, að það kemur mér spánskt fyrir sjónir, ef Siglfirð- ingar styðja ekki lengur Eyjólf Konráð, enda var hann á framboðs- listanum síðast fyrir tilstilli okkar. — Þar með er ekki sagt, að við getum ekki einnig stutt einhverja aðra.“ f UMR/EÐUM á fundum flugfreyja um endurráðningar til starfa fyrir Flugleiðir hefur það komið fram að FluKÍeiðir hyKðust efna til byrj- enda námskeiða fyrir flugfreyjur á vori komanda ef framhald verður á flutdnu milli Luxemborgar. íslands ok Bandarikjanna eins og ráðKert er i dag. Morgunblaðið spurði ErlinK Asperlund framkvæmda- stjóra stjórnunarsviðs Flugleiða um þetta atriði. „Að sjálfsögðu munum við ráða til starfa þær stúlkur sem hafa þjálfun og reynslu í starfi, það er stefnan, og reyndar segir slíkt sig sjálft," sagði Erling. „Sá listi sem við höfum stillt upp með um 70 flugfreyjum er sá grundvallarlisti sem við viljum miða við og á honum er ekki um fækkun að ræða. Sá listi er sá kjarni sem við viljum miða við, en ef kemur tii aukins flugs á Norður-Atlantshafinu eins og stefnt er að og kemur væntanlega í ljós innan tíðar, þá þarf um 15 flugfreyjur í viðbót og ef flogið verður á fullu næsta sumar eins og búið er að gera áætlun um miðað við framhald Norður-Atlants- hafsflugsins, þá þarf að ráða um 100 flugfreyjur í viðbót. Það er fjarstæða að við hyggjumst efna til námskeiða fyrir byrjendur. Fyrst munum við kanna málin meðal þess fjölda sem því miður hefur orðið að segja upp og við munum reyna að fá til vinnu þær stúlkur sem hafa flogið fyrir okkur og til dæmis er fjöldi af flugfreyjum sem hættu 1. október sem við vildum gjarnan ráða aftur.“ í SÆDÝRASAFNINU. Ljósm. Emilía. Allsherjar- atkvæðagreiðsla í GFSum verkfallsboðun STJÓRN og trúnaðarmannaráð Grafiska sveinafélagsins ákvað í gær að fram færi allsherjarat- kvæðagreiðsla á öllum vinnu- stöðum félagsins um það hvort félagið fari i verkfall i yfirstand- andi kjaradeilu. Atkvæðagreiðsl- an fer fram á fimmtudag og föstudag og fjallar um það, hvort félagið eigi að boða verkfall frá og með 5. nóvember. Eins og getið var í Morgunblað- inu ákvað félagsfundur Grafiska sveinafélagsins í fyrradag að mæla með því við stjórn og trúnaðarmannaráð GSF, að það boðaði verkfall frá og með 29. október, ef ráðinu fyndist það ráðlegt. Stjórnin og trúnaðar- mannaráðið töldu, að þar sem bæði prentarar og bókbindarar hefðu hafnað verkfallsboðun þennan dag, hefðu aðstæður breytzt, en félagsfundur GSF var haldinn áður en félagsfundir HÍP og BFÍ höfnuðu verkfallsaðgerð- um. Útlit fyrir 46 milljarða viðskiptahalla við útlönd „Stefnan er að endur- ráða stúlkur með þjálfun og reynslu“ HORFUR eru á 46 milljarða króna halla á viðskiptajöfnuði við útlönd á þessu ári að því er segir i þjóðhagsáætlun Þjóðhagsstofnun- ar, þar sem skýrt er frá framvindu cfnahaKsmála á þessu ári og horf- um næsta ár. Hallinn stafar fyrst ok fremst af halla á þjónustuvið- skiptum, sem reiknað er með að verði að minnsta kosti um 40 milljarðar, aðallega vegna vaxta- greiðslna af erlendum lánum og erfiðleikum i flugrekstri, en reikn- að er með 6 milljarða króna halla á vöruviðskiptum vegna verri við- skiptakjara og óvenju miklum flugvélakaupum á árinu. Þessi 46 milljarða viðskiptahalli nemur um 3,5% af þjóðarframleiðslu, en i fyrra varð hallinn 7 milljarðar króna, eða tæplega 1% af þjóðar- framleiðslu. Á fyrri helmingi ársins voru viðskiptakjör um 4% lakari en í fyrra; útflutningsverðlag í erlendri mynt var nær 8% hærra en ársmeð- altalið 1979, en innflutningsverð 12% hærra. Áætlað er að olíuverð verði rúmlega 20% hærra í ár en í fyrra, en annað innflutningsverð hækki um rösklega 10%. Samtals yrði þá hækkun innflutningsverðs 12-14% í erlendri mynt, en útflutn- ingsverð hækkar aðeins um 7%, þannig að viðskiptakjörin rýrna um 5% frá fyrra ári. Á fyrri helmingi síðastliðins árs voru gjaldeyristekjur af samgöngum tæpur milljarður, en á þessu ári varð 7,5 milljarða króna halli á þessum reikningi. Vaxtagreiðslur af erlend- um lánum voru í ár nær 20 milljarð- ar króna á móti rösklega 11 milljörð- um á sama tíma í fyrra og fara nú saman vaxtahækkun erlendis og skuldaaukning 1979. Varðandi útlitið á næsta ári er reiknað með að olíuhækkunin á næsta ári verði um 7-8% í erlendri mynt, eða svipuð og á öðrum inn- flutningi. Um útflutningsverð er tekið fram að miikil óvissa sé um verð á frystum afurðum, en annað útflutningsverð geti hækkað svipað og innflutningsverðið. í heild er reiknað með, að útflutningsverð hækki þó aðeins um 6%, þannig að viðskiptakjararýrnunin á næsta ári yrði 1-2% til viðbótar við 5% í ár og 9% í fyrra, eða um 15% á 3 árum. í heild spáir Þjóðhagsstofnun 16 milljárða króna afgangi af vöru- skiptum við útlönd á næsta ári, en 56 milljarða halla á þjónustuviðskipt- um, þannig að viðskiptajöfnuðurinn við útlönd verði í heild óhagstæður um 40 milljarða króna á næsta ári, sem yrðu 2,2% af þjóðarframleiðsl- unni, sem reiknað er með. Friðjón Þórðarson: Studdi Ólaf G. Einarsson gegn Guðrúnu Helgadóttur FRIÐJÓN Þórðarson, dómsmála- ráðherra. stakk upp á ólafi G. Einarssyni sem varaformanni menntamálanefndar neðri deildar i gær gegn Guðrúnu Helgadóttur. Guðrún hlaut kosningu með 3 atkvæðum, tveggja framsóknar- manna og sinu eigin, en ólafur Afríkuhjálpin 1980: 20 millj. sendar til Afríku í gær t GÆR voru sendar tuttugu millj- ónir króna frá Rauða krossi ís- lands til sveltandi ibúa A-Afriku. Fyrir þetta fé, sem þegar hefur safnast hérlendis verða keypt mat- væli, en eins og þegar hefur komið fram í fréttum. þá er unnt að kaupa mat handa einum ibúa til að lifa á i eina viku fyrir eitt þúsund krónur. Fyrir þessar tuttugu milljónir verða keypt 25 tonn af matvælum, sem skv. fréttaskeyti frá höfuð- stöðvum Rauða krossins í Genf, er svokallaður „supplementary feed- ing“, þ.e. sérstaklega næringarríkt vítamínbætt fæði. Pálmi Hlöðversson, sem er í Uganda, mun hafa yfirumsjón með því að matvæli, sem verða keypt fyrir fé sem berst frá Islendingum, komist beint til þeirra sem mest þurfa þeirra með. fékk 2 atkvæði. Einn fulltrúi Sjálf- stæðisflokksins og fulltrúi Alþýðu- flokksins voru fjarverandi. Ingólf- ur Guðnason varð formaður nefnd- arinnar mótframboðsiaust og sam- komulag varð um ólaf G. Einarsson sem fundaskrifara. Alexander Stefánsson varð for- maður félagsmálanefndar neðri deildar í gær án mótframboðs, en Guðmundur J. Guðmundsson var kjörinn varaformaður með 4 at- kvæðum stjórnarliða, en Eggert Haukdal tryggir meirihluta þeirra í nefndinni. Jóhanna Sigurðardóttir hlaut 3 atkvæði stjórnarandstæð- inga. Eggert stakk svo upp á Friðrik Sophussyni sem fundaskrifara, en aðrir stjórnarliðar stungu upp á Eggert. Friðrik var kosinn með 4 atkvæðum, en Eggert hlaut 3 at- kvæði. Ólafur Þórðarson var kjörinn formaður allsherjarnefndar neðri deildar í gær með 4 atkvæðum stjórnarliða, en Vilmundur Gylfa- son, sem var einn stjórnarandstæð- inga á fundinum, stakk upp á Jósef H. Þorgeirssyni og studdi hann. Garðar Sigurðsson varð svo varafor- maður mótframboðslaust og Ingólf- ur Guðnason fundaskrifari. Eiður Guðnason varð formaður allsherjarnefndar efri deildar í gær, Salome Þorkelsdóttir varaformaður og Eyjólfur Konráð Jónsson funda- skrifari; öll án mótframboðs. Reykjavikurborg: Gengur til sér- „ viðræðna við ASÍ BORGARRÁÐ Reykjavíkur sam- þykkti í gær að ganga til sérvið- ræðna um lausn kjaradeilnanna, að ósk Alþýðusamhands íslands. Borgarráð fól launamálanefnd Reykjavikurborgar að annast viðræðurnar fyrir hönd borgar- Formaður nefndarinnar er Björgvin Guðmundsson borgar- fulltrúi en aðrir í nefndinni eru Sigurjón Pétursson, Birgir ísl. Gunnarsson og Albert Guð- mundsson. Samningar þeir er hér um ræðir eru samningar við þá starfsmenn Reykjavíkurborgar, sem eru í verkalýðsfélögunum innan Al- þýðusambandsins, en ekki í Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, BSRB.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.