Morgunblaðið - 22.10.1980, Side 7

Morgunblaðið - 22.10.1980, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1980 Einar Karl ar í atvinnuleit, þótt hann segi annað. — Kratar hafa komið sór saman um framboð Karvals í ASÍ en ágreiningur er enn hjá Alþýðubandalaginu. Verða þeir báðir í framboði Ásmundur Stefánsson og Guðjón Jónsson? Einar Karl í atvinnuleit Fyrir skömmu birtist svo- hljóðandi klausa í Sand- korni Vísis: „Einar Karl Haraldsson, Þjóðviljarit- stjóri, mun skipta um starf á næstunni og hætta á Þjóðviljanum. Það hefur komið í ljós, að ekki er rúm fyrir hann á blaðinu eftir endurkomu Kjartans Ólafs- sonar í ritstjórastól og hefur nú maður gengið undir manns hönd við að finna annað starf fyrir Einar. Líkur eru á, að það hafi tekizt, meðal annars fyrir tilverknað Hjörleifs Gutt- ormssonar, iðnaðarráð- herra, þótt enn sé ekki alveg ljóst í hvað Einar Karl fer.“ Morgunblaðið spurði Ein- ar Karl í tilefni af þessari frásögn Vísis, hvort rétt væri með farið. Frásögn Morgunblaðsins af því sam- tali er svohljóðandi: „Einar Karl Haraldsson, ritstjóri Þjóðviljans, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að enginn fótur væri fyrir þeirri frétt Vísis í gær, að hann væri'að láta af störf- um ritstjóra við blaðið. „Mér er ekki kunnugt um þessi atvinnutilboð, sem Vísir greinir frá,“ segir Einar Karl, „samkomulagið milli okkar Kjartans Ólafssonar er ágætt og ég er ekki að hætta hér.“ Kjarninn í frásögn Vísis er réttur, þótt ekki væri nákvæmlega rétt með farið. Kjarninn í frásögn Einars Karls er rangur, þótt vera megi, að ekki sé um bein ósannindi að ræða. Hið rétta er, að Einar Karl Haralds- son hefur leitað eftir nýju starfi og notið til þess stuðn- ings Hjörleifs Guttorms- sonar. Að sjálfsögðu leitaði hann eftir starfi hjá opin- berum aðila, eins og allir kommúnistar gera nú, þeir hafa skjót handtök, meðan þeirra menn eru við völd og raða sér á jötuna, eins og sagt var um krata forðum en á nú fremur við um alþýðubandalagsmenn en nokkra aðra. Astæðan fyrir því, að Einar Karl er ekki að hætta á Þjóðviljanum um þessar mundir er hins vegar sú, að hann fékk ekki starf- ið. Forsetaslag- urí ASÍ Þótt enginn yfirlýstur frambjóðandi sé kominn fram við forsetakjör í ASÍ í nóvembermánuði nk. má telja víst, að bæði Ásmund- ur Stefánsson og Karvel Pálmason verði í kjöri. Fram eftir sumri og hausti gátu kratar ekki gert upp við sig, hvern þeir mundu setja fram, Karvel, Karl Steinar eða Jóhönnu Sigurð- ardóttur. Nú hefur niður- staðan hins vegar orðið sú, að þeir munu styðja Karvel Pálmason til forsetakjörs. Alþýðubandalagsmenn hafa hins vegar ekki komizt að niðurstöðu enn, þótt ljóst sé, að Ásmundur Stefánsson verði í framboði og studdur til þess m.a. af Snorra Jónssyni, fráfarandi vara- forseta ASÍ. Innan Alþýðu- bandalagsins er mikil óánægja með framboð Ás: mundar Stefánssonar. í fyrsta lagi vegna þess, að hann er ekki upprunninn úr verkalýðshreyfingunni, heldur háskólamenntaður maður, sem ráðinn er sem sérfræðingur til starfa hjá ASÍ og varð fyrst nú fyrir skömmu félagsmaður í einu aðildarfélaga ASÍ. í öðru lagi þykir ýmsum verka- lýðskommum hart að kjósa sem forseta félagsmann VR og minna á, að ekki eru nema tveir áratugir síðan ASÍ-þing felldi beiðni VR um inngöngu í ASI. I þriðja lagi telja þessir sömu al- þýðubandalagsmenn hugs- anlegt, að formaður LIV verði kjörinn varaforseti ASÍ og þeim hugnast ekki að tveir helztu forystumenn ASI verði úr röðum verzlun- armanna. Þess vegna hafa ýmsir helztu forystumenn Alþýðubandalagsins í verka- lýðssamtökunum enn ekki sætt sig við Ásmund Stef- ánsson, sem forsetaefni. Helzt mundu þeir vilja kjósa Benedikt Davíðsson sem for- seta, en hafa áhyggjur af því að hann nái ekki kjöri sem fulltrúi uppmælingaaðals- ins. Að undanförnu hefur nafn annars forystumanns Alþýðubandalagsins í verka- lýðshreyfingunni verið nefnt en það er Guðjón Jónsson. Sumir telja, að ágreiningur- inn um þessi mál innan Alþýðubandalagsins sé svo djúpstæður, að tveir fram- bjóðendur muni koma fram úr röðum kommúnista, þeir Ásmundur Stefánsson og Guðjón Jónsson. Það er því bersýnilega allra veðra von á ASÍ-þingi. 7 ^onix HATUNI 6A • SIMI 24420 KÆLISKÁPAR • GLÆSILEGIR - STERKIR - HAGKVÆMIR Lítum bara á hurðina: Færanleg fyrlr hægri eða vinstri opnun, frauðfyllt og níðsterk - og í stað fastra hillna og hólfa, brothættra stoða og loka eru færanlegar fernu- og flöskuhillur úr málmi og laus box fyrir smjör, ost, egg, álegg og afganga, sem bera má beint Dönsk gæði með VAREFAKTA, vottorði dönsku neytendastofnunarinnar DVN um rúmmál. einangrunargildi. kæll- svið. frystigetu. orkunotkun og aðra eiginleika. Margar stærðir og litir þeir sömu og á VOSS eldavélum og viftum: hvítt-gulbrúnt-grænt-brúnt. Einnig hurðarammar fyrir lita- eða viðarspjöld að eigin vali. GRAM BÝDUR EINNIG 10 GERDIR AF FRYSTISKAPUM OG FRYSTIKISTUM KIENZLE Úr og klukkur hjá fagmanninum. maszaa eicendur SPARID BENSIN LÁTID STILLA OG YFIR- FARA BÍLINN ~ FYRIR VETURINN 9 Nóxx^ 1. Vélarþvottur. 2. Ath. bensln, vatns-og olíuleka. 3. Ath. hleðslu, rafgeymi og geymissambönd. 4. Stilla ventla. 5. Mæla loft í hjólbörðum. 6. Stilla rúðusprautur. 7. Frostþol mælt. 8. Ath. þurrkublöð og vökva á rúðu- sprautu. 9. Ath. loft og benslnsíur. 10. Skipta um kerti og platínur. 11. Tlmastilla kveikju. 12. Stilla blöndung. 13. Ath. viftureim. 14. Ath. slag I kúplingu og bremsu- pedala. 15. Smyrja hurðalamir. 16. Setja silikon á þéttikanta. 17. Ljósastilling. 18. Vélarstilling með nákvæmum stillitækjum. Verð með söluskatti 39.729. Innifalið I verði: Platínur, kerti, ventlalokspakkning og frostvari á rúðusprautu. Þér fáið vandaða og örugga þjónustu hjá sérþjálfuðum fagmönnum MAZDA verkstæðisins. Pantið tima í símum: 81225 og 81299. BÍLABORG HF. Smiöshöföa 23. Mosfellssveit Lögmannsstofa Mun framvegis veröa til viðtals í Þverholti á fimmtudögum kl. 15—18.30. Örn Höskuldsson hdl. Kassettur beztu Kaup landsins ispéto SspóHir 60 mínútur kr. 4500 90 mínútur kr. BBt, kr. 6500 Heildsölu birgöir EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.