Morgunblaðið - 22.10.1980, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.10.1980, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1980 Liðlega 424 milljónir kr. lagðar á börn í landinu BÖRN undir 16 ára í landinu greiða liðlega 424 milljónir króna í skatta í ár. Nú er lokið við að leggja á börn undir 16 ára aldri, og áiagningarseðlar eru farnir að berast til greiðenda, eins og skýrt var frá í Mbl. í gær. Framtöl sendu 10153 börn á öllu landinu en lagt var á 6789 börn. Álagningin er þessi: Tekjuskattur ....................... Utsvar ............................. Sjúkratr.gjald ..................... Kirkjugarðsgjald ..................... Samtals 272.093.704 96.983.000 53.350.200 1.583.827 424.010.731 Álagningin var mismunandi eftir landinu. Þannig er áberandi að börn í Reykjavík vinna ekki eins mikið og jafnaldrar þeirra víðs vegar um landið og munar þar að sjálfsögðu mest um frystihúsavinnu í sjávarþorpum. Skattálagningin í einstökum skattaumdæmum er eftirfarandi: Vestfirðir Tekjuskattur ... Utsvar ......... Sjúkratr.gjald ... Kirkjugarðsgjald Samtals 27.123.000 10.469.000 5.545.000 236.000 43.373.000 Alls var tekjuskattur lagður á 519 einstaklinga á Vestfjörðum, en 381 greiddu útsvar. Þess ber að geta, að útsvar er ekki lagt á ef upphæð er minni en 10 þúsund krónur. Vesturland Tekjuskattur ............................. 22.360.000 Útsvar .................................... 8.200.000 Sjúkratr.gjald ............................ 4.538.000 Kirkjugarðsgjald .......................-r..... 108.000 Samtals 35.207.000 Alls var lagður tekjuskattur á 507 einstaklinga en útsvar á 349. Vestmannaeyjar Tekjuskattur ............................. 7.488.000 Útsvar ................................... 2.853.000 Sjúkratr.gjald ........................... 1.533.000 Kirkjugarðsgjald ............................ 42.000 Samtals 11.916.000 Alls greiddu 155 einstaklingar tekjuskatt og 199 útsvar. Reykjavík Tekjuskattur ............................. 56.008.000 Útsvar ................................... 17.619.000 Sjúkratr.gjald ........................... 10.187.000 Kirkjugarðsgjald ........................... 405.000 Samtals 84.219.000 Alls var lagt á 2679 einstaklinga í Reykjavík. Austurland Tekjuskattur ............................. 24.094.000 Útsvar .................................... 9.199.000 Sjúkratr.gjald ............................ 4.970.000 Kirkjugarðsgjald .......................... 110.000 Samtals 38.373.000 Alls greiddu 780 einstaklingar barnaskatt á Aust- fjörðum. Reykjanes Tekjuskattur ............................. 58.235.000 Útsvar ................................... 20.312.000 Sjúkratr.gjald ........................... 11.226.000 Kirkjugarðsgjald .......................... 339.000 Samtals 90.112.000 í Reykjanesi var tekjuskattur lagður á 1516 einstakl- inga. Suðurland Tekjuskattur ............................. 19.747.000 Útsvar .................................. 6.746.000 Sjúkratr.gjald ............................ 3.751.000 Samtals 30.245.000 Kirkjugarðsgjald er lagt sérstaklega á af hálfu sveitastjórna og innheimt af þeim. Alls greiddu 560 einstaklingar tekjuskatt á Suðurlandi. Norðurland eystra Tekjuskattur .............................. 40.414.000 Útsvar .................................... 15.415.000 Sjúkratr.gjald ............................. 8.258.000 Kirkjugarðsgjald ............................. 282.000 Samtals 64.369.000 Alls greiddu 926 einstaklingar tekjuskatt á Norður- landi eystra, 693 útsvar. Norðurland vestra Tekjuskattur .............................. 16.320.000 Útsvar ..................................... 6.170.000 Sjúkratr.gjald ............................. 3.338.000 Kirkjugarðsgjald .............................. 58.000 Samtals 25.887.000 Alls greiddu 264 einstaklingar tekjuskatt í Norður- landi eystra og 276 útsvar. Ljósm. Mbl. Ragnar MaKnússon. Krakkarnir í 6. bekk G. í Fellaskóla gengust fyrir hlutaveltu og söfnuðu um 110 þús. kr. sem þau ætla að gefa í söfnunina. Þessi mynd var tekin af bekknum í gær og kennaranum þeirra og skólastjóra. SINDRA STALHR NÝTT Eirpípur einangraöar meö plasthúö. Þær eru sérlega meöfærilegar og henta vel til notkunar viö margs konar aöstæöur, t.d. á sjúkrahúsum. Pípurnar fást í rúllum, 10—22 mm sverar. Auk pess höfum viö óeinangraöar, afglóöaöar eirpípur, 8—10 mm í rúllum og óeinangraöar eirpípur 10—50 mm í stöngum. — Aukin hagkvæmni. — minni kostnaður, — auðveld vinnsla. Borgartúni31 sími27222 Afríkuhjálpin 1980: Safnast hafa um 35 millj. kr. Skólabörn rogast með stóra, stampa inn á skrifstofu RKÍ NÚ HAFA safnast um 35 millj. kr. í Afríkusöfnun Rauða kross- ins og er skipulögðum söfnunum lokið í mörgum byggðarlögum. Þá haía umtalsverðar fjárhæðir borist til aðalskrifstofunnar frá ýmsum félagasamtökum og hafa skólabörn einnig lagt mikið af mörkum. „Þau rogast hérna inn með stóra stampa fulla af pening- um,“ sagði Jón Asgeirsson fram- kvæmdastjóri söfnunarinnar. Á Ólafsfirði söfnuðust á milli 1200—1300 þús. kr., Bíldudal 357 þús., Reyðarfirði 485 þús., Eski- firði 752 þús., Neskaupstað 1.180 þús., Seyðisfirði 680 þús., Fá- skrúðsfirði 550 þús., Vestmanna- eyjum um 3 millj. kr., Akureyri 7,2 millj. kr. og á Selfossi 1,4 millj. Hér er átt við söfnunarfé sem komið hefur í skipulögðum söfn- unum deildanna á hverjum stað. Þá berast daglega stórir staflar gíróseðla og koma þeir alls staðar að af landinu. Gíróreikningurinn er númer 1 20 200. Börn í 6. bekk G. í Fellaskóla gengust fyrir hlutaveltu nú nýver- ið og söfnuðu tæplega 110 þús. kr., sem þau ætla að afhenda á föstudaginn. Svipaðar safnanir fara nú fram í mörgum skólum svo þáttur skólabarna verður ekki lítill í þessari aðstoð við hungraða í A-Afríku, þegar upp verður staðið. Síld til söltunar hækkar um 11—19% NÝTT verð hefur verið ákveðið á síld til söltunar og samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins mun sama verð verða ákvcðið á síld til frystingar í dag. Verð var ákveðið á sild í sumar og gilti það til 1. október, en það verð sem nú hefur vcrið ákveðið gildir frá mánaðamótum. Skiptaverð á stærstu síldinni eða 1. flokki hækkar úr 175 krónum kílóið í 202 krónur eða um 15,4%. 2. flokkur hækkar úr 120 krónum í 143 krónur eða um 19,2%, 3. flokkur hækkar úr 91 krónu í 101 krónu eða um 11% og síld í 4. stærðarflokki, sem fer til söltunar hækkar úr 76 krónum í 87 krónur eða um 14,5%. Verðákvörðunin var tekin af oddamanni yfirnefndar, Ólafi Dav- íðssyni, og fulltrúum kaupenda, þeim Jóni Árnasyni og Margeiri Jónssyni, en á móti voru fulltrúar seljenda, þeir Ingólfur Ingólfsson og Ágúst Einarsson. Rifsnes seldi í Bremerhaven RIFSNES SH seldi 71,6 tonn í Bremerhaven í gær fyrir 39,9 milljónir króna, meðalverð 558 krónur á kíló. í dag og á morgun selur Snorri Sturluson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.