Morgunblaðið - 22.10.1980, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1980 1 5
Sinfóníuhljómsveit íslands:
Einleikari á næstu tón-
leikum, Domenique Cornil
ÞRIÐJU áskriftartónleikar
Sinfóniuhljómsveitar íslands á
þessu starfsári veróa í Háskóla-
biói nk. fimmtudaK. 23. okt. kl.
20.30. Hljómsveitarstjóri er
Jean-Pierre Jacquillat. en ein-
leikari Domenique Cornil.
Eínisskrá tónleikanna veróur sem hér segir
Karl O.
Runólfsson: Fjalla-Eyvindur.
forl. op. 27
Chopin: Pianókonsert nr. 1 i e-moll
Debussy: Síódejfi skÓKarpúkans
Debussy: La Mer
í fréttatilkynningu frá Sin-
fóníuhljómsveit Islands segir
m.a.:
Einleikarinn, Domenique
Cornil, fæddist 1953 í Lobbes í
Belgíu. Hún var aðeins fjórtán ,
ára þegar hún vann fyrstu verð-
laun fyrir pianóieik og kamm-
ermúsík við konunglega tónlist-
arháskólann þar í landi. Þrem
árum seinna lauk hún prófi frá
hinu hávirðulega Conservatoire í
París og einnig þá fékk hún
fyrstu verðlaun. Síðan hefur hún
tekið nokkuð reglulega þátt í
alþjóðlegum píanókeppnum og
oftast borið sigur af hólmi. Má
þar nefna til fyrstu verðlaun í
alþjóðakeppni kenndri við Elísa-
betu Belgadrottningu.
Domenique Cornil hefur leikið
allvíða bæði einleik og með
hljómsveitum og hefur hróður
hennar farið sívaxandi. Fara
gagnrýnendur í London og
Brússel sérlega lofsamlegum
orðum um leik hennar í píanó-
konsertum eftir Beethoven og
Mozart og sónötum eftir Scar-
latti. Þá hefur hún leikið inn á
allmargar hljómplötur á vegum
EMI og Deutsche Grammo-
phone, m.a. verk eftir Haydn,
Mozart, Scarlatti, Cesar Franck
og Rachmaninov.
Þórhallur Ásgeirsson, ráðuneytisstjóri:
Ekki samið um salt-
sild í fríverzlunar-
samningunum við EBE
FULLKOMIN óvissa ríkir um
hvort nokkrir samningar takast
um sölu á saltaðri sild til landa
Efnahagsbandalagsins á þessu
hausti. Til EBE-landa hefur und-
anfarin ár verið selt verulegt
magn af saltaðri síld og þá
einkum til V-Þýzkalands. Inn-
flutningstollar eru á saltsild. en
hins vegar ekki á frystri og
ferskri síld. Morgunhlaðið spurði
Þórhall Ásgeirsson. ráðuneytis-
stjóra i Viðskiptaráðuneytinu.
hverju þetta sætti.
„Saltsíld var ekki undir fríverzl-
unarsamningi okkar við Efna-
hagsbandalagið og þess vegna var
ekki umsamið tollfrelsi á þessari
útflutningsvöru," sagði Þórhallur
Ásgeirsson. „Hins vegar felldi
bandalagið niður tolla á saltsíld
fyrir nokkru vegna þess að skortur
var talinn á saltsíld á markaði
bandalagsins. í fyrra var hins
vegar aftur tekinn upp tollur á
saltsíld og 3% tollur settur á frá 1.
júlí til áramóta. Þá hækkaði
tollurinn í 5% og ekki er vitað
hvað við tekur nú um áramótin.
Efnahagsbandalagið hefur verið
að ræða um fiskimálastefnu al-
mennt og í samþykktum þess er að
því stefnt, að tollfríðindi verði
takmörkuð verulega á innflutningi
sjávarafurða. Þetta hefur ekki
áhrif á þá tollflokka, sem samið
var um í okkar samningi, en
saltsildin er þar fyrir utan og þvi
má segja að þeir hafi frjálsar
hendur gagnvart okkur um að
hækka tollinn. Freðsíldin er hins
vegar í núll-tollaflokki samkvæmt
samningnum. Við getum lítið gert
nema talað fyrir okkar máli og
það höfum við gert og munum
halda því áfram, hvenær sem við
fáum tækifæri til þess, en við
ráðum ekki ferðinni," sagði Þór-
hallur Ásgeirsson.
Síldarf lotinn eins
og uppljómuð borg
NoskaupstaA. 21. október.
MOKVEIÐI var hjá sildarbátunum í nótt og nú hafði síldin flutt
sig úr Loðmundarfirði yíir í Norðfjarðarflóann. Reknetabátarnir
fengu ágætan afla, en enn betur gekk þó hjá nótabátunum. Fólk,
sem býr hér úti á Bakkabökkum sagði. að fióinn hefði hefði verið
eins og uppljómuð borg tilsýndar
Trillukarlar héðan hafa gert
það gott undanfarið og er einn
þeirra t.d. kominn með um 600
tunnur, en hann rær á 1% tonns
trillu. Hann hefur hlaupið í þetta
eftir vinnu og hefur nú fengið
annan mann með sér, því hann
hefur ekki ráðið við að draga netin
þegar mest hefur verið í. Einn
hitti ég áðan sem var að koma inn
birtingu í morgun.
með um 10 tunnur úr tveimur
netum og ætlaði beint út aftur
þegar hann væri búinn að hrista
úr netunum. Það hefur tafið fyrir
trillukörlunum að útbúnaður
þeirra er heldur fábrotinn og t.d.
enginn hristari um borð. Til að
flýta fyrir fengu þeir einn Horna-
fjarðarbátinn til að hrista úr
netunum fyrir sig á sunnudaginn.
Búið að salta í yfir 16 þús.
tunnur hjá Pólarsíld
Fáskrúðsíirði. 21. október.
SEX BÁTAR lönduðu hér í dag 1800 tunnum og var Sigurður
Ólafsson SF aflahæstur með 600 tunnur og Kópur VE var með 450
tunnur. Undanfarnar vikur hefur verið stöðug söltun hjá Pólarsíld
hf., og er búið að salta rúmlega 16 þúsund tunnur á vertíðinni. Helzta
vandamálið fyrir utan svefnleysi er, að nú eru orðin vandræði með
tunnur, en úr því mun væntanlega rætast á morgun, en þá er von á
tunnuskipi hingað. - Albert
Byr jað að salta í
f jórðu stöðinni
ExkiIirAi. 21. október.
SVO MIKIL síldveiði hefur verið síðustu daga að nú er algengt að
bátar þurfi að bíða í sólarhring eftir löndunarplássi. Margir
bátanna, sem komu að, fengu ekki löndun fyrr en í dag og bátar
sem komu inn í dag komast ekki að fyrr en á morgun.
Þrjár söltunarstöðvar hafa verið hér á Eskifirði á vertíðinni, en nú
er Auðbjörg búin að koma upp söltunaraðstöðu á nýjum stað og var
byrjað að salta þar í dag. Ekkert lát er á veiðinni og flest skip með
góðan afla. Söltunarfólkið er sjálfsagt orðið langþreytt enda hefur
ekki verið upprof í langan tíma. Margt fólk hleypur í síldarvinnu
þegar annarri vinnu sleppir og stendur í síldinni fram eftir nóttu.
— Ævar.