Morgunblaðið - 22.10.1980, Side 16

Morgunblaðið - 22.10.1980, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1980 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraidur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 5.500.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 280 kr. eintakiö. Ljúflingslag Nerós og þriðja gengið Viðreisnarstjórnin, sem tók við völdum 1959 undir forsæti Ólafs Thors, formanns Sjálfstæðisflokksins, hreinsaði á skömmum tíma til í íslenskum efnahagsmálum og greiddi úr því öngþveiti, sem skapast hafði vegna millifærslna og uppbóta stöðnunaráranna á undan. Frá 1956 sat samstjórn Alþýðu- bandalagsins, Alþýðuflokksins og Framsóknarflokksins, sem hrökklaðist frá eftir að Hermann Jónasson, forsætisráðherra, hafði hlotið kaldar kveðjur á Alþýðusambandsþingi. Fleyg urðu orð hans við afsögn stjórnarinnar, um að innan hennar væri ekki samstaða um nein úrræði gegn efnahagsvandanum. Viðreisnarstjórnin opnaði efnahagskerfið og lét vinda frjáls- ræðisins leika um feyskna innviði hafta- og skömmtunarkerf- isins. Styrkur frjálsræðisstefnunnar sannaðist í efnahags- þrengingunum miklu á árununum 1967 og 1968, þegar viðreisnarstjórnin undir forsæti Bjarna Benediktssonar, for- manns Sjálfstæðisflokksins, hafnaði hafta- og skömmtunar- stefnunni og stóð fast gegn uppbóta-, styrkja- og millifærslu- leiðinni. I stað stöðnunar var stefnt til aukins frjálsræðis með þátttöku í EFTA, Fríverslunarsamtökum Evrópu. Styrkur viðreisnarstjórnarinnar og sú tiltrú, sem hún naut, fólst í því, að hún fór ekki í feluleik með þann vanda, sem við var að etja hverju sinni, heldur gerði rækilega grein fyrir honum og greip til nauðsynlegra gagnráðstafana. Því er þetta rifjað upp hér og nú, að tæpum tíu árum eftir að viðreisnarstjórnin fór frá, eygir ríkisstjórn íslands ekki önnur úrræði en þau í efnahagsmálum, sem reyndust haldlaus fyrir 20 árum og þá var kastað fyrir róða. Strax í vinstri stjórninni 1971 — ’74 kom fram oftrú á alls kyns sýndarviðbrögðum gegn aðsteðjandi vanda. Vegna þess að Framsóknarflokkurinn, sem var í forystu þeirrar vinstri stjórnar, sat áfram í ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar 1974—’78 var ekki unnt að snúa jafn rækilega af óheillabrautinni og nauðsynlegt var, þótt óneitan- lega hefði í mörgu miðað í rétta átt. Eftir kosningaósigurinn sumarið 1978 ákvað Framsóknarflokkurinn að hætta að sækja gegn straumnum, þegar hann myndaði stjórn með Alþýðu- bandalagi og Alþýðuflokki. Menn minnast yfirlýsinga Olafs Jóhannessonar um að framvegis myndi allur vandi leystur með „samráði", í því einkunnarorði stjórnar hans fólst, að hún var ekki mynduð til að stjórna heldur láta stjórnast. Eftir millispil Alþýðuflokksins kom svo núverandi stjórn, sem virðist telja það helstu köllun sína að fara að fordæmi Nerós og leika ljúflingslag, á meðan allt ætlar af göflum að ganga. Ríkisstjórn Gunnars Thoroddsens fetar sig nú áfram eftir krákustigum millifærslna og uppbóta. Síðasta dæmið um það er sú ákvörðun, að í kjölfar síðustu fiskverðsákvörðunar skuli Seðlabanki Islands verja 3600 milljónum króna til að niðurgreiða um 8% svonefnd „endurkaupanleg afurðalán út á útflutningsframleiðslu". Með þessari ákvörðun er í raun verið að búa til þriðja gengið á íslensku krónunni. Viö búum við almennt gengi, ferðamannagengi með 10% álagi og nú nýtt niðurgreitt gengi „endurkaupanlegra afurðalána út á utflutn- ingsframleiðslu". Millifærsluleiðin er blekkingaleið. Hún hefur það eitt í för með sér að ýta óleystum vanda til hliðar. Hún er í raun óskaleið ríkisafskiptaflokka eins og Alþýðubandalagsins, Alþýðuflokksins og Framsóknarflokksins. I stað þess, að hlutirnir séu kallaðir sínum réttu nöfnum og vandamálin tekin þeim tökum, sem leysa þau til frambúðar, er farið í feluleiki og fjármunir ríkisins notaðir í því skyni. Með fé skattpíndra þegna eða nýprentaða verðbólguseðla að vopni leitast ríkis- afskiptasinnar í ráðherrastólum við að auka íhlutunarvald sitt í atvinnulífinu, gera aðför að eignarréttinum og soga öll völd í sínar hendur. Afleiðingin verður einfaldlega stöðnun og versnandi lífskjör. Á sínum tíma viðurkenndi Hermann Jónasson, formaður Framsóknarflokksins, að innan ríkis- stjórnar sinnar væri ekki samstaða um nein úrræði gegn aðsteðjandi vanda og ný verðbólgualda væri að skella yfir þjóðina. Samstarfi tveggja vinstri stjórna undir forsæti Ólafs Jóhannessonar lauk með sama hætti 1974 og 1979. Sú, sem nú situr, kýs blekkingar millifærslna og ríkisíhlutunar í stað þess að sýna þann manndóm, að játa skipbrot stefnu sinnar og starfs. Steingrímur Hermannsson samgönguráðherra í Flugleiðaumræí „Atlantshafsflugi þjóðarbúinu miki vinnulegan og gjali Steingrímur Her- mannsson, samgönguráð- herra, flutti langt mál í Sameinuðu þingi í gær, er hann mælti fyrir skýrslu sinni um málefni Flug- leiða hf. Mælendaskrá varð fyrirferðarmikil und- ir framsögu ráðherra. Ragnar Arnalds, f jármála- ráðherra, var næstur á henni, síðan Benedikt Gröndal, formaður Al- þýðuflokksins, Friðrik Sophusson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og Vil- mundur Gylfason, alþing- ismaður. Efnisatriði úr ræðum þessara fimm ræðumanna verða lauslega rakin hér á eftir en um- ræðum var frestað að loknu máli þessara þing- manna þótt margir þing- menn væru á mælenda- skrá. „Myndin er jafnvel ljótari en fram hefur komið“ Steingrfmur Hermannssun, sam- KönKuráðherra, sagði upphaf af- skipta ríkisstjórnarinnar af málefn- um Flugleiða það, að forystumenn félagsins hefðu þegar á sl. ári gengið á fund ráðherra í fyrri rkisstjórn. Þáverandi utanríkisráðherra hefði síðan lagt drög að viðræðum við ríkisstjórn Luxemborgar um mál- efni félagsins. Haldinn hafi verið fundur samgönguráðherra ríkjanna 15. janúar sl. Á þeim fundi varð samkomulag um að löndin leituðu sameiginlega að lausn á þeim vanda, sem þá þegar var ærinn, varðandi Atlantshafsflugið. Þetta var að sjálfsögðu gert í fullu samráði við stjórn Flugleiða. Næsta skrefið var fundur sam- gönguráðherra landanna í Luxem- borg 25. marz sl. Ráðherrar urðu sammála um mikilvægi þessa flugs fyrir bæði löndin, enda held ég að Islendingar allir geti verið sammála um, að Atlantshafsflugið hafi í 25 ár fært þjóðarbúskapnum mikinn feng, atvinnulegan og gjaldeyrislegan; fært hingað að fjölda ferðamanna, sem byggt hafi upp víðtæka atvinnu á sviði ferðaþjónustu hverskonar, þ.á m. á sviði framkvæmda, eins og hótelbygginga o.fl. Strax og ég kom heim lagði ég samþykktir frá þessum fundi fyrir ríkisstjórnina, sem m.a. fólust í ríkisábyrgð vegna félagsins að upp- hæð 5 milljónir dala, ásamt niður- fellingu lendingargjalda. Samskon- ar fyrirgreiðsla átti að koma frá Luxemborg. — Jafnframt átti að hefja könnun á nýjum grundvelli fyrir Atlantshafsflugið. Sú athugun leiddi til hugmynda um stofnun nýs flugfélags, sem yrði sameign Flugleiða og aðila ytra, og skráð í Luxemborg, m.a. til að geta nýtt fyrirgreiðslu, sem því var bundin. Fundir embættismanna og flugfélaga í Luxemborg stóðu mest- allan júní-, júlí- og ágústmánuð. Yfirvöld í Luxemborg tóku þessari hugmynd vel. Þau hétu ýmis konar fyrirgreiðslu, bæði í formi rekstrar- styrkja, niðurfellingar lendingar- gjalda o.fl. En Luxair hafnaði þess- ari hugmynd. Þar eð þetta flug er jafn mikil- Hörð gagnrýni fjármálaráðherra á Morgunblaðið Benedikt Gröndal sagði Alþýðu- bandalagið reyna að koma Flug- leiðum á kné vægt fyrir okkur Islendinga og raun er á, gat ríkisstjórnin naumast komizt hjá að kanna, hvort hún gæti veitt einhverja þá aðstoð, að Flug- leiðir treystu sér til þess að halda því áfram. Voru teknar upp viðræð- ur við Flugleiðir, sem enn leiddu til nýrra viðræðna milli íslands og Luxemborgar um miðjan september sl. Þar náðust lyktir sem leiddu til ályktunar í ríkisstjórn íslands, 16. september sl., sem felur í sér: 1) Ríkisstjórnin ályktar að Atlants- hafsflugið sé svo mikilvægt, að athuga beri, hvort halda megi því áfram; 2) í því skyni býðst ríkis- stjórnin til að beita sér fyrir eftirgreindri aðstoð. Bakábyrgð að fjárhæð 3 milljónir Bandaríkjadala til að standa undir rekstrarhalla á N-Atlantshafsleiðinni. Þetta nái til 3ja ára. Þessi bakábyrgð tók mið af Fjöldi fólks var á þingpöllum i þeim tekjum, sem ríkissjóður hefur haft beint af þessu flugi á undan- förnum árum. Með samskonar fyrir- greiðslu frá Luxemborg átti þessi fyrirgreiðsla að fara hátt í þá áætlaðan halla 6—7 m.kr. Auka átti hlutafjáreign ríkissjóðs í félaginu í 20% (530 m.kr.). Jafnframt þessu lagði ríkisstjórn- in áherzlu á: að N-A-flugið verði aðskilið frá öðru flugi félagsins, sérstök rekstrarnefnd skipuð til að fylgjast með rekstri félagsins, starfsandi innan félagsins bættur o.fl. Síðan greindi ráðherra frá viðræðum við ríkisstjórn Luxem- borgar og frá hliðstæðum fyrir- greiðslum þar í landi af hálfu stjórnvalda og hér eru boðin. Loks ræddi ráðherra um eigna- fjár- og rekstrarfjárstöðu Flugleiða, hugsanlega sölu á eignum, ýmsa rekstrarmöguleika, s.s. að taka í ríkara mæli upp blandað farm- og farþegaflug. í lok ræðu ráðherra sagði hann að sú mynd, sem við blasti í rekstrarstöðu Flugleiða, væri ljót. „Myndin er ljót, mjög ljót, jafnvel ljótari en fram hefur kom- ið,“ sagði hann. „Hingað og ekki lengra“ Ragnar Arnalds. fjármálaráð- herra, sagði litlu við að bæta skýrslu samgönguráðherra og grein- argerð með frumvarpi um Flug- leiðamál. Síðan talaði hann langt mál. Hann sagði ýmsum spurning- um ósvarað. Hvert vægi veð Flug- leiða. Hve ríkisábyrgð yrði um- fangsmikil. Hverjir yrðu skilmálar, sem ríkisstjórnin hlyti að setja fyrir aðstoð sinni. Þessum spurningum væri ekki hægt að svara í dag. Bíða þyrfti frekari kannana og upplýs- inga. Ráðherra sagði viðhorf forystu- manna Flugleiða hafa birzt ríkis- stjórninni í breytilegu ljósi frá einum tíma til annars. Sú fyrir- greiðsla, sem þörf væri talin á, hefði farið mjög vaxandi frá því málið B*r. komst á ríkisstjórnargrundvöll. Málið væri í dag miklu alvarlegra og miklu stærra en áður hefði verið kynnt. Síðan rakti ráðherrann þær ákvarðanir, sem ríkisstjórnin hefði tekið um fyrirgreiðslu, bakábyrgð, hlutafjárframlag o.s.frv. Það ræðst svo af veðhæfni eigna félagsins, hversu mikil ábyrgð ríkisins verður á fjárhagsskuldbindingum félags- ins, en endurmat þeirra fer nú fram að tilstuðlan ráðuneytisins. Skýrði ráðherrann frá því, hvernig yrði að því endurmati staðið, m.a. með aðstoð erlendis frá.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.