Morgunblaðið - 22.10.1980, Side 17

Morgunblaðið - 22.10.1980, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1980 17 )um á Alþingi í gær: ð hefur fært nn feng, at- deyrislegan44 Síðan vék ráðherra að blaðaskrif- um um þetta mál, einkum í Morgun- blaðinu. Þau skrif hefðu verið stór- hættuleg, enda fyrst og fremst gengið út á það að tortryggja afstöðu og aðgerðir stjórnvalda í málinu; og þá fyrst og fremst Alþýðubandalagsins. Morgunblaðið hefði látið að því liggja, að Alþýðu- bandalagið stefndi að því að koma Flugleiðum fyrir kattarnef! Sér- staklega hefðu skrif þess um hugs- anlega sölu á eignum Flugleiða verið villandi. Allar ásakanir blaðs- ins voru úr lausu lofti gripnar, sagði hann. Raunar má sama segja um ýmsar yfirlýsingar forystumanna Flugleiða. Hvorutveggja skrifin og yfirlýsingarnar má túlka sem þrýst- ing á ríkisvaldið til að taka á sig ábyrgðir í þessu máli, hugsanlega umfram það sem veðhæfni eigna gat baktryggt. Ef Flugleiðir treysta ser ekki til Atlantshafsflugs á þeim grundvelli, sem aðstoð sú leyfir, er í frumvarp- inu greinir, eru ekki forsendur fyrir þessu flugi, sagði ráðherra. Ef Flugleiðir koma enn með dekkta mynd af rekstrarstöðunni; að tapið, sem fyrirsjáanlegt er, verði enn meira, og gera enn frekari kröfur til ríkisins, þ.e. skattborgaranna, þá verður ríkisstjórnin að segja, fyrir hönd skattborgaranna: „hingað og ekki lengra“. Ljósm. Kristján. Alþýðubandalagið stillir Flugleiðum upp sem kapítalískri ófreskju Benedikt Gröndal sagði að með frumvarpi fjármálaráðherra væri ekki séð fyrir endann á afgreiðslu málsins og í raun biði frumvarpið ekki upp á neina niðurstöðu í því. Sagði Benedikt að ljóst væri að fjármálaráðherra hefði ekki verið eins leitt og hann hefði látið þegar hann í ræðu sinni hefði sagt að líklega væri enn von á vondum fréttum. Sagði Benedikt að Alþýðu- bandalagið væri með annarlegar óskir í málinu sem byggðust á því að draga málið og draga á langinn þar til í algjört óefni væri komið. Kvað hann alþýðubandalagsmenn hafa stillt þessu stóra flugfélagi upp sem kapítalískri ófreskju sem allir kommaflokkar og hálfkommaflokk- ar yrðu að hafa. Fjallaði Benedikt síðan um mik- ilvægi flugsins fyrir Island og kvað um að ræða svo stóran þátt að menn yrðu að vera reiðubúnir til þess að fórna miklu til málsins, ekki síður en varðandi ýmsar aðrar greinar. „Þótt fjármálaráðherra geti hnykkt á tölu upp á 10 milljarða," sagði Benedikt og vitnaði í ræðu Ragnars Arnalds, „þá hnykkti hann ekki þegar hann tilkynnti þjóðinni að hann ætlaði að taka tvö hundruð milljörðum meira af þjóðinni í skatta á þessu ári en tekið var á því síðasta," sagði Benedikt. Taldi Benedikt að það væri mikið áfall og álitshnekkir fyrir okkur sem þjóð ef Norður-Atlantshafs- flugið félli niður og því væri það skoðun alþýðuflokksmanna að ekki mætti gefast upp fyrr en fullreynt væri. Sagði Benedikt að samgöngu- ráðherra virtist ekki gera sér grein fyrir því að taka þyrfti ákvarðanir í þessum málum af skynsemi, og á sama tíma og verið væri að reyna að selja Flugleiðaþotur væri flugfélagi sem ætti ekki einu sinni vél veitt leyfi til farþegaflugs milli íslands og Amsterdam og þetta flugfélag væri um þessar mundir að kanna kaup á flugvél í Evrópu. „Þetta er ekki skynsamleg stefna," sagði Benedikt en gagn- rýndi hins vegar að stjórn Flugleiða skyldi ekki snúa sér til íslenzkra stjórnvalda um aðstoð áður en málið var reifað við stjórnvöld í Luxemborg. Sagði Benedikt að Flug- leiðir hefðu að því leyti rekið sína eigin utanríkisþjónustu. I lok máls síns sagði Benedikt að það kæmi ekki til mála að bjóða Flugleiðum heimild sem væri opin í báða enda, „það verður að koma skýrt fram hvaða skilyrði eru sett,“ sagði Benedikt, „ella er sómi Al- þingis í húfi. Tillaga ríkisstjórnar- innar er eins og óútfyllt ávísun." Mál dragast á lang- inn vegna togstreitu í ríkisstjórninni Friðrik Sophusson benti í upp- hafi máls síns á það að fjöldi starfsmanna Flugleiða hefði beðið lengi eftir því að Alþingi og ríkis- stjórn gerðu upp hug sinn í þessu máli þannig að stjórn Flugleiða gæti tekið endanlega ákvörðun um fiugið milli Lux — Íslands og Bandaríkjanna. Kvað Friðrik þjóð- ina hafa orðið vitni að því síðustu vikur hvernig ákvarðanir í málinu hefðu dregizt á langinn vegna togstreitu í ríkisstjórninni. Þar tog- uðust á þeir sem vildu greiða fyrir Atlantshafsfluginu og þeir sem vildu þjóðnýta flugreksturinn. Kvað Friðrik þingflokk Sjálfstæðisflokks- ins hafa lýst yfir stuðningi við þá ákvörðun að gera tilraun í eitt ár og nýta þann tíma til að móta framtíð- arstefnu í flugmálum þjóðarinnar og leita nýrra leiða fyrir þá sérþekk- ingu og reynslu sem íslenzkir starfs- menn flugfélaganna hafa. Þá fjall- aði Friðrik um tvískinnungshátt Ólafs Ragnars Grímssonar í málum Flugleiða og annara alþýðubanda- lagsmanna sem stefndu að því að þjóðnýta félagið og vitnaði Friðrik í Friðrik Sophusson alþingismaður Ragnar Arnalds fjármáiaráðherra samtöl við Ólaf Ragnar þar að lútandi til staðfestingar. Þá vék Friðrik að þeim trúnaðarbrotum sem fulltrúar Alþýðubandalagsins á vettvangi Flugleiða hefðu gerzt sek- ir um og m.a. hafi verið fjallað um í leiðara í Tímanum. í framhaldi af því vitnaði Friðrik í ummæli Steingríms Hermannssonar þar sem hann kvaðst óhress yfir því að fjármálaráðherra væri að flækja málið með bréfum sínum til þess að gera bæði samgönguráðherra og stjórn Flugleiða erfiðara um vik í afgreiðslu málsins. Þá vék Friðrik að máli fjármála- ráðherra á þingi fyrr um daginn þar sem Ragnar Arnalds hefði óvænt talað fyrir hönd skattgreiðenda, en slíkt hefði ekki átt sér stað síðast- liðin ár. Sagði Friðrik að fjármálaráð- herra hefði kvartað undan Morgun- blaðinu án þess að finna orðum sínum stað. Hefði ráðherrann gert Morgunblaðinu upp skoðanir og ráðizt síðan gegn þeim. Kvaðst Friðrik telja það megin vandamálið í afgreiðslu alls þessa máls að Ragnar Arnalds fjármála- ráðherra ruglaði stöðugt saman tveimur málum. Annars vegar því að það var ríkisstjórnin sjálf sem fór fram á það við stjórn Flugleiða að fluginu yfir Norður-Atlantshaf yrði haldið áfram, stjórn Flugleiða hafði ekki beðið um fyrirgreiðslu í því sambandi, slíkt hefði verið frumkvæði ríkisstjórnarinnar og hins vegar væri beiðni Flugleiða um ríkisábyrgð beinlinis komin til vegna beiðni ríkisstjórnarinnar um áframhaldandi flug. Þá fjallaði Friðrik nokkuð um stefnubreytingu stjórnvalda gagn- vart Flugleiðum. Stjórnvöld hefðu á sínum tíma haft frumkvæði um að sameina Loftleiðir og Flugfélag Islands í eitt fyrirtæki, en nú væri brotið blað í þeim efnum með því að veita Iscargo leyfi til farþegaflugs milli Hollands og íslands þótt vitað væri að Flugleiðir hefðu ráðgert að taka upp flug til Amsterdam á næsta sumri. Varðandi aukið hlutafé í Flugleið- um sagðist Friðrik telja að fyrst ætti að leita eftir því hvort starfs- fólk eða aðrir áhugaaðilar vildu kaupa hlutabréf, en að því loknu Benedikt Gröndal formaður Alþýðuflokksins Steingrimur Hermannsson samgönguráðherra væri fyrst ástæða fyrir ríkið að auka hlutafjáreign sína umfram núverandi hlutfall. Friðrik fjallaði nokkuð um hluta- fjáreign Flugleiða í Cargolux og kvaðst telja afar mikilvægt að Flugleiðir héldu eignarhlut sínum í Cargolux, því þar kynni að leynast möguleiki í framtíðinni til frekari aðgerða sem gætu komið ísienzku flugfólki vel. Friðrik bar fram eftirfarandi spurningar til ráðherra: Fyrst til fjármálaráðherra Ætlar fjármálaráðherra að halda fast við skilyrði þau fyrir ríkis- ábyrgð, sem hann setur fram í bréfi til Flugleiða hinn 10. október sl. jafnvel þótt það leiði til rekstrar- stöðvunar fyrirtækisins, atvinnu- missis nokkur hundruð starfsmanna og stöðvunar á flugsamgöngum inn- anlands og milli landa? Eða ber kannski að skilja frumvarpið á þann veg að hann sé fallinn frá þessum skilyrðum? Til fjármálaráðherra í títtnefndu bréfi fjármálaráð- herra er Flugleiðum bent á að leita til viðskiptabanka félagsins, sem er Landsbankinn, um úrlausn á meðan athugun fer fram á veðhæfni og reynt er að ná samkomulagi um sölu eigna. Telur fjármálaráðherra Lands- bankann vera í stakk búinn til að taka slíkt á sig? Til hæstv. samgönguráðherra. Veit hæstv. samgönguráðherra um það, að Arnarflug bað um flugrekstrarleyfi til Amsterdam og fimm annarra borga í Evrópu árið 1976 og ítrekaði 1978 og að þeirri beiðni var aldrei sinnt. Var gerð úttekt á fjárhagsstöðu Iscargo, þegar flugrekstrarleyfið til Amsterdam var veitt? Hefur Iscargo staðið skil á opin- berum gjöldum, lífeyrisgreiðslum og orlofsgreiðslum vegna starfs- manna? Hvernig eru skil Iscargo við leigusala Elektraflugvélar félagsins (sem er á leigukaupsamningi)? Þessar spurningar eru settar fram vegna þeirrar nýju stefnu hæstv. samgönguráðherra og fjölga aðilum í reglubundnu utanlands- flugi. Og til viðbótar má spyrja: Getur Arnarflug búizt við slíku leyfi? Hvaða áhrif telur ráðherrann að þessar leyfisveitingar muni hafa á rekstur Flugleiða? Felst í leyfis- veitingu ráðherrans til Iscargo, að hann telji að það hafi verið misráðið að stjórn Ólafs Jóhannessonar á sínum tíma að stuðla að sameiningu Loftleiða og Flugfélags íslands? Til hæstv. utanríkisráðherra 1. Hæstv. utanríkisráðherra var á ferð í Washington fyrir skömmu, þar sem hann ræddi við bandariska ráðamenn. Ég vil leyfa mér að spyrja ráð- herrann eftirfarandi spurninga: 1. a) Ræddi hann hugsanlega flutn- inga fyrir varnarliðið með vélum Flugleiða við bandaríska ráða- menn? b) Ef svo er, við hverja? c) Hverjar voru undirtektir? 2. Er hæstvirtur utanríkisráðherra sammála því sjónarmiði sam- gönguráðherra, að sameining flug- félaganna sem ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar beitti sér fyrir á sínum tíma hafi verið misráðin og því beri að dreifa fluginu meira en gert hefur verið? Ekki hlutverk Alþingis að stýra fyrirtækjum Vilmundur Gylfason tók næstur til máls og kvaðst að mörgu leyti telja það falska imynd sem haldið væri á loft um Loftleiðir og Flugfé- lag Islands, sem góð dæmi um fyrirmyndarrekstur í flugi, því þessi félög hefðu notið margs konar fyrirgreiðslu, pólitískrar og varð- andi einkaleyfi til flugs. Kvaðst Vilmundur telja, að stjórn Flugleiða hefði hikað í stjórnun og því væri vandinn meiri, en hins vegar sagði hann það auðvelt að vera vitur eftir á. Kvað Vilmundur það ekki hlut- verk Alþingis að stýra fyrirtækjum úr sölum Alþingis, þótt það væri skylda þingmanna að kanna mál, en hins vegar kvaðst hann ekki telja það við hæfi, að samgönguráðherra flytti ræðu í sölum Alþingis eins og um forstjóra flugfélags væri að ræða. Vilmundur kvað það sérstæða við þetta mál allt vera það, að Flugleið- ir hefðu ekki beðið um þá aðstoð, sem til umræðu væri, heldur hafi ríkisvaldið átt frumkvæði að beiðni um áframhaldandi flug á Norður- Atlantshafinu og um leið hefði ríkisvaldið tekið á sig ábyrgð sem það ætti að standa við. Sagði Vilmundur að loforð Steingríms Hermannssonar samgönguráðherra í viðræðunum í Luxemburg í marz sl. um sömu aðstoð við Flugleiðir og Luxemborgarar buðu upp á, nú gleymd og grafin miðað við núver- andi afstöðu ríkisstjórnarinnar. Taldi Vilmundur, að ekki væri hægt að treysta orðum ráðherrans og þá taldi hann það dæmalaus afskipti ráðherrans að ætla að hjálpa til- teknu starfsfólki Flugleiða til hluta- bréfakaupa. í lok máls síns varpaði Vilmundur fram þeirri spurningu, hvort Al- þingi ætti að veita ríkisstjórn, sem logaði í óeirðum, umboð til þess að afgreiða málið, án þess að fyrir lægi hvað ætti raunverulega að gera. Eitt stéttar- félag æskilegt i Flugleiðum Aður en umræðu um málið var frestað, tók Steingrímur Her- mannsson samgönguráðherra til máls og kvað ótrúlega endaleysu hafa streymt út úr munni Vilmund- ar Gylfasonar. Vakti ráðherrann athygli á því, að ráðgert væri samkvæmt frumvarpinu, að and- virði þriggja millj. dollara yrði greitt út yfir vetrarmánuðina og einnig ræddi hann um lánafyrir- greiðslu sem starfsfólki hefði verið boðin varðandi hlutabréfakaup í Flugleiðum. Benti ráðherrann á, að það ætti að fagna slíkri ákvörðun varðandi félag, sem hefði setið uppi með hlutabréf upp á 240 míllj. kr. á sama tíma og það væri í fjársvelti. Þá fjallaði Steingrímur um það álit sitt, að það væri ekki eðlilegt, að allar farþegasamgöngur milli ís- lands og útlanda væru á einni hendi. í lok máls síns sagðist Steingrímur telja, að æskiiegt væri í fyrirtæki eins og Flugleiðum, að um eitt stéttarfélag væri að ræða, slíkt hlyti að vera hagstæðara fyrir alla þegar um áhætturekstur væri að ræða.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.