Morgunblaðið - 22.10.1980, Page 19

Morgunblaðið - 22.10.1980, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1980 19 Svavar Gunnarsson og slangan sem ekki vill éta Sædýrasafnið: Slangan étur ekkert enn... KYRKISLANGAN, sem gefin var Sædýrasafninu fyrir þremur vikum, hefur ekki fengist til þess að éta neitt, þann tima sem hún hefur dvalið hér á landi. Hún lifir samt enn, en slöngur eru vanar að éta fylli sina á viku fresti. Að sögn Svavars Gunnarssonar í Sædýrasafninu stafar þetta lyst- arleysi líklega af breyttu loftslagi og flutningnum hingað til lands. Slangan var gefin hingað af bandariskum hjónum, Lauru og Arthur Clark, sem heimsótt hafa ísland nokkur skipti og þá m.a. komið við í Sædýrasafninu. Arth- ur þessi Clark er prófessor og fæst við rannsóknir á kyrkislöng- um, en umrædd slanga hentaði honum ekki, var of stór, og þótti þeim hjónum tilvalið að gefa hana Sædýrasafninu, sem þau vissu kyrkislöngulaust. Svavar Gunnarsson sagði það reynt á hverju kvöldi, að fá slönguna til að éta með því að bera fyrir hana kjúklinga og rottur, en þessi slanga léti sem hún hefði ógeð á kjúklingum og rottum.. Kjúklingarnir eru mjög ungir þegar þeir eru bornir á borð fyrir slönguna, u.þ.b. 5 daga gamlir og lifandi, því slöngur fúlsa við dauðum dýrum. Slöngur af þessu tagi geta orðið 25 ára gamlar og fjórir metrar að lengd, en slangan sem er í Sæ- dýrasafninu er líklega á tíunda árinu og einungis tveir metrar á lengdina. Svavar sagði slönguna meinlausa að öllu eðlilegu, en vissara væri samt að gægjast ekki inn í búrið til hennar að þarf- lausu. Svavar sagðist ætla að reyna að fá þessa slöngu til þess að vera eins og almennileg slanga og éta vel af kjúklingum og rottum. Bankamenn óska við- ræðna við bankana STJÓRN og samninganefnd Sam- bands islenzkra hankamanna átti fund með formönnum allra aðildar- félaga sambandsins i fyrrakvöld, 15 að tölu og var þar rætt um niðurstöðu allsherjaratkvæða- greiðslunnar um kjarasamninginn milli samhandsins og bankanna. Fundurinn óskaði eftir þvi við samninganefnd hankanna. að við- ræður um kjarasamninga yrðu teknar upp að nýju og var Björg- vini Vilmundarsyni bankastjóra og formanni samninganefndar bank- anna afhent slik beiðni i gærmorg- un. Fundurinn samþykkti ályktun, sem er svohljóðandi: „Formanna- fundur allra aðildarfélaga SÍB lýsir stuðningi við samninganefnd sam- bandsins og hvetur hana til þess að leita allra ráða til að koma á raunhæfum viðræðum við samn- inganefnd bankanna, sem leitt gætu til viðunandi niðurstöðu fyrir samn- ingsaðila." Vilhelm G. Kristinsson, fram- Leiðrétting VILLUR slæddust inn í frétt Morgunblaðsins í gær af kosning- um á aðalfundi kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norður- landskjördæmi vestra. Þar var sagt, að hinn nýkjörni formaður héti ómar Halldórsson, en hið rétta er, að hann heitir Ómar Hauksson. Biðst blaðið velvirð- ingar á þessum mistökum. kvæmdastjóri Sambands íslenzkra bankamanna kvað fyrirhugað að formannahópurinn innan SIB yrði sem eins konar baknefnd fyrir samninganefndina í komandi við- ræðum. Hann kvað SÍB hafa látið að því liggja í bréfi til Björgvins Vilmundarsonar, að það myndi ekki bíða lengi eftir svari samninga- nefndar bankanna. Ef svar bærist ekki, yrði sambandið að leita ann- arra leiða. Fyrirhugað er að halda annan fund með formönnum aðild- arfélaga SIB á mánudag og verður þá liðin vika skoðuð. Hugsanlega myndi SÍB einnig fara fram á að sáttanefnd ríkisins skipti sér meir af deilunni en verið hefði. Verkfallsboðun SÍB er bundin sömu ákvæðum og verkfallsboðun BSRB. Sambandið boðar verkfall og er þá sáttasemjara heimilt að fresta verkfalli um 15 daga, en verður jafnframt að leggja fram sáttatil- lögu. Sitji helmingur kosninga- bærra manna heima og greiði ekki atkvæði, skoðast sáttatillagan sam- þykkt. Verði þáttakan hins vegar meiri en helmingur kosningabærra manna ræður einfaldur meirihluti. Verði sáttatillagan felld, gengur verkfall í gildi að liðnum fresti sáttasemjara. Leiðrétting SÚ villa var í frétt blaðsins um brunaæfingu í Kópavogi að húsið sem brennt var hefði staðið á Ástúni. Húsið hét Grænahlíð. Simatruflanir í Reykjavik: Bilanir í 500 lína streng í GÆR slitnaði fimm hundruð lina strengur milli simstöðv- anna í miðbæ og Múiahverfi í Reykjavik, og var þvi um tima erfitt að ná sambandi við sima- númer er tilheyra þeim stöðv- um. Kristinn Einarsson hjá Línudeild Simans sagði, að bil- unin hefði orðið við Hátún, þar sem unnið er að byggingu húss Múlalunds. Unnið var að viðgerð í allan gærdag eftir að bilunin fannst, og komst símakerfið í samt lag í gærkvöldi. í Múlastöðinni eru símanúmer er byrja á tölustöf- unum 3 og 8, en í Miðbæjarstöð- inni eru númer með upphafs- stöfunum 1 og 2. Bilunin gerði það að verkum að færri línur eru milli stöðvanna en dagleg notkun krefst, og því var í gær erfiðleikum bundið að ná sam- bandi milli fyrrnefndra síma- svæða í Reykjavík. Bilunin hafði á hinn bóginn ekki áhrif á simtöl milli annarra númera, hvorki innbyrðis né í þau númer er byrja á 1,2,3 og 8. SINDRA STALHR Fyrirliqgjandi í birgðastöð PRÓFÍLPÍPUR □ L J □ 1 1 I II 1 □CZ3 □ I—□ I 71 I 1 □ I □ Fjölmargir sverleikar. Borgartúni31 sími 27222 Húsgögn Armúli 8 Símar: 86080 og 86244

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.