Morgunblaðið - 22.10.1980, Síða 22

Morgunblaðið - 22.10.1980, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1980 + Konan min og móöir okkar, GUDRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR, fró Kleifum, Hringbraut 54, Hafnarfiröi, andaöist á Borgarspítalanum 21. október. Jaröarförin auglýst Slöar- Guómundur Guömundsson og synir. Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, SIGRÍÐUR HERDÍS JÓHANNSDÓTTIR, Uróarstíg 8, Hafnarfirðí, andaöist í St. Jósefsspítalanum í Hafnarfiröi 21. nóv. Kjartan Jónsson, Emilía Jóhannsdóttir, Elín Jónsdóttir, Sveinn Georgsson og barnabörn. t i Eiginmaöur minn, SIGURSVEINN SVEINSSON, bóndi, Noröur-Fossi, andaöist mánudaginn 20. október. Útförin auglýst síöar. Solveig Ólafsdóttir. t Faöir okkar, FREIDAR JOHANSEN, bryti, andaöist í Bergen 16. október. Jaröarförin hefur fariö fram. Fyrir hönd systkina, Hans E. Johansen. t Útför eiginmanns míns, föður, tengdafööur, afa og langafa, JÓHANNS EYVINDSSONAR, Borgarholtsbraut 72, Kópavogi, fer fram frá Kópavogskirkju, fimmtudaginn 23. október kl. 1.30. Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Geöverndarfélag íslands. Anna Lilja Guömundsdóttir, synir, tengdadætur, barnabörn og barnabarnabarn + Útför JÓNS GESTS VIGFÚSSONAR, fyrrum sparisjóósgjaldkera, Suöurgötu 5, Hafnarfirði, fer fram frá Hafnarfjaröarkirkju, föstudaginn 24. þ.m. kl. 2. Börn, systir, tengdabörn og aórir aðstandendur hins látna + Útför bróöur okkar, SIGURÐAR SNÆBJÖRNS STEFÁNSSONAR frá Stakkahlíó, sem andaóist 16. þ.m., veröur gerö frá Fossvogskirkju 23. október kl. 15. Fyrir hönd annarra systkina, ^ Ingibjörg Stefánsdóttir, Kristbjörg S. Olsen. + Alúóarþakkir sendum við þeim sem sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginmanns míns og fööur, FRIÐBERTS ELÍ GÍSLASONAR, skipstjóra, Þinghólsbraut 76. Sérstakar þakkir sendum viö læknum og hjúkrunarliöi deild 4C Landspítalanum, fyrir frábæra umönnun. . ... Lil|a Eiriksdóttir og börn. + Þökkum innilega samúö og vinarhug viö andlát og útför JÓNASAR ÓLAFSSONAR, stórkaupmanns, Freyjugötu 49, Reykjavík. Björg Bjarnadóttir, Edda Bergljót Jónasdóttir, Guömundur Jóhannsson, Jónas Guómundsson, Björg Guðmundsdóttir. JÓN JÓNSSON - KVEÐJUORÐ Fæddur 11. október 1909. Dáinn 13. október 1980. Við eigum bágt með að trúa því að afi okkar, Jón Jónsson, verk- stjóri hjá Reykjavíkurborg, Skúla- götu 78, sé dáinn og að við séum að kveðja hann í hinsta sinn. Við vitum öll að afi hefði ekki viljað að við færum að halda lofsyrði um hann, en við viljum gjarnan þakka fyrir þær stundir sem við fengum að hafa hann hjá okkur. Við öll munum eftir afa þar sem hann bjó ásamt ömmu á Skúlagöt- unni en þar höfðu þau búið síðan 1947. Við höfðum alltaf mjög gaman af að koma á Skúló. Þar söfnuðumst við alltaf saman og oft var þröngt á þingi. En núna síðustu árin átti afi við mikil veikindi að stríða en alltaf reyndi hann að halda þeim leyndum. En öll vitum við að hann er í öruggum höndum og honum líður vel. Og með þeirri trú kveðjum við afa okkar. Guð blessi minningu hans. Barnaborn. Minning: Ólafur Guðmunds son frá Miðvogi Fæddur 6. mars 1889. Dáinn 23. september 1980. Ólafur Guðmundsson var fædd- ur í Svanga í Skorradal. Foreldrar hans voru hjónin Þóra Helgadótt- ir og Guðmundur Sigurðsson, sem bjuggu þar. Þau eignuðust þrjú börn: Rósu elsta, þá Ólaf og Guðmund, sem var yngstur og dó um fermingu. Svangi var fremur lítil jörð og þá voru erfiðir tímar, en vegna fátæktar og heilsuleysis urðu þau hjónin að hætta búskap. Þá var Ólafur 10 ára og fór að Grafardal í Skorradal til móður- bróður síns, Jóhannesar, sem þar bjó góðu búi á þeim tíma. Þóra fór með Rósu og Guðmund í vinnu- mennsku, en Guðmundur, faðir þeirra, fór að Grund í Skorradal og var þar eftir það, og þótti laginn og skemmtilegur maður. Um 15 ára aldur fór Ólafur að Grund og vann þar fyrir sér. Hann þótti strax duglegur og glöggur á fé og marga túrana fór hann alla leið til Reykjavíkur með fé til slátrunar og slógu þeir sér þá saman af fleiri bæjum í Borgar- firði. Það var oft kalt í veðri og þetta var erfitt verk, en hann var hraustur, kátur og duglegur og þótti hvers manns hugljúfi. A Grund var hann fram að tvítugu og vann öll sveitarstörf sem til féllu og þótti mjög góður sláttu- maður, en oft var erfitt meðan engar vélar voru til neins. Einnig vann hann á nokkrum bæjum í Andakílshreppi og víðar. Um tutt- t Hjartkær móöir okkar, tengdamóóir, amma og langamma, GUDBJÖRG HELGA JENSDÓTTIR, Bergþórugötu 43B, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 23. október kl. 1.30. Dagmar Andersen, Ólöf Gissurardóttir, Ragnar Eiríkur Björnsson, Gústaf Guömundsson, Karitas Jónsdóttir, Ragnar Guómundsson, Bergljót Sveinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför móöur okkar og tengdamóöur, HÓLMFRÍDAR JÓNSDÓTTUR Irá Speröli. Kærar þakkir sendum viö starfsfólki á Sólvangi fyrir frábæra umönnun. Helgi Einarsson, Katrín Aóalbjörnsdóttir, Jón Einarsson, Guörún Aöalbjörnsdóttir, Anna Einarsdóttir, Siguróur Haukdal. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför RAKELAR PÁLSDÓTTUR frá Siglufirói. Sjöfn Gestsdóttir, Þorsteinn Ársselsson, Páll Gestsson, Bettý Antonsdóttir, Guöni Gestsson, Jónína Egilsdóttir, Saavar Gestsson, Guömunda Ólafsdóttir, Jóhanna Kristinsdóttir og barnabörn. t Innilegt þakklæti til allra er sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför fööur okkar, tengdafööur og afa, MAGNUSAR GÍSLASONAR, múrara, Hæöagarói 40. Súsanna Magnúsdóttir, Gísli Magnússon, Elsa Breiófjöró, Aslaug Magnúsdóttir, Steindór Sigurjónsson. Helga Magnúsdóttir, Ulfar Haróarson. Lára Magnúsdóttir, Bjarni Björgvinsson og barnabörn. ugu og fjögurra ára aldur fór hann að búa í Efrihrepp með unnustu sinni, Kristínu Jónsdóttur frá Ausu í Andakílshreppi, sem þá var tuttugu og þriggja ára. Hún var myndarleg húsmóðir, mikill dýra- vinur og umhyggjusöm við alla, sérstaklega við þá sem minna máttu sín. Þau bjuggu á fleiri stöðum í Borgarfirði, en lengst af að Miðvogi í Innri-Akraneshreppi. Þau eignuðust fimm börn, tvö dóu í frumbernsku, en á lífi eru tvær dætur og einn sonur. Oft varð Ólafur að leita vinnu utan heimilis síns, en hann var eftirsóttur í vinnu vegna dugnaðar og ósér- hlífni. Margar ferðir fór hann gangandi að morgni heiman að frá sér til að vinna allan daginn á Akranesi, og kom heim að kveldi, til að huga að skepnunum, en þá var Kristín stundum búin að því öllu með hjálp frá börnum þeirra. Börnin fengu mikla umhyggju frá honum alla tíð, og mikið þótti honum vænt um barnabörn sín og var þeim góður. Fallegt var féð hans Óla, og fór hann að spekúlera í að rækta það, með því að setja alltaf á fallegustu lömbin. Hann átti einnig góða hesta, sem hann fór vel með, eins og aðrar skepnur. Hann var mikið snyrtimenni með alla umgengni, þrátt fyrir slæm húsakynni. Árið 1945 fluttu þau hjónin út á Akranes og keyptu húsið Sólvelli og áttu þar skepnur sér til ánægju, en þá voru börnin flutt til Reykjavíkur. En það var hugsun Ólafs alltaf með skepnur og sveitina. Svo fór hann að vinna hjá Haraldi Böðvarssyni og var þar um tuttugu ár og í ýmsum öðrum störfum. Hann var heilsu- hraustur lengst af ævinni og vann fram að áttræðu. Konu sína missti hann árið 1955, sem var sárt saknað af honum. En hann hélt í horfinu þvi sem hún var búin að gera, hugsaði um blómin, sem hún hafði haft svo gaman af, og margt annað. í húsinu sínu var Ólafur langt fram á níræðisaldur og leigði af því, en fékk aðhlynningu í staðinn. Það var alveg sérstaklega gott fólk sem var hjá honum, og það gerði honum lífið eins létt og hægt var. Að síðustu var hann á spítala Akraness, þrotinn kröftum, en hann kvartaði aldrei um heilsu sína. Að síðustu sofnaði hann sáttur við alla. Blessuð sé minning hans. Ó.J.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.