Morgunblaðið - 22.10.1980, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1980
félk í
fréttum
Sjaldgœf
sjón
+ ÞAÐ er almennt álitið að
þeir frambjóðendurnir Jimmy
Carter og Ronald Reagan, sjái
sjaldnast ástæðu til að klappa
hvor fyrir öðrum. Þessi mynd
var ekki tekin á framboðs-
fundi, heldur í matarveislu,
sem Rómversk-Katólska bisk-
upsdæmið hélt í New York í
síðustu viku. Miðað við við-
brögð Carters forseta má
heita öruggt, að ræða Reagans
hafi ekki snúist um framboð
hans til forseta.
Kennedyum
fjölgar
+ HÉR ER mynd af Joseph P. Kennedy yngra og konu
hans Sheilu ásamt tviburunum, sem fæddust þeim
hjónum fyrr í þessum mánuöi. í örmum móður sinnar
hvílir Matthew Rauch Kennedy og geispandi framan í
föður sinn Joseph P. Kennedy III.
Engum
treyst
+ Öryggisvörður, þó ekki á
flugvelli, athugar veski forsætis-
ráðherra Breta, Margrétar
Thatcher. Hún er að koma á þing
íhaldsflokksins breska sem ha-
ldinn var í Brighton á Englandi.
Fundur þessi sýndi, að mikil
samstaða er um efnahagsaðgerð-
ir „Járnfrúarinnar". En myndin
segir dálítið óhugnanlega sögu,
nefnilega þá, að þörfin á ört
vaxandi stétt manna — öryggis-
varða stéttinni — segir sína sögu
um mannskepnuna.
Hattie Jaques
látin
+ HATTIE Jaques, ein vinsælasta
grín-leikkona Breta lést nú fyrr í
mánuðinum. Hún var 56 ára
gömul. Banamein hennar er talið
hafa verið hjartaáfall.
Islenskir áhugamenn um kvik-
myndir ættu að kannast við Hatt-
ie Jaques, því hún lék í rúmlega 20
„Áfram" (Carry on) myndum. Hún
lék einnig í mörgum vinsælum
sjónvarpsþáttum. Ferill Hattie
Jaques hófst 1944 og í heimsstyrj-
öldinni síðari kom hún fram í
fjölmörgum útvarpsþáttum.
Vörn gegn mengun
+ BÖLVALDAR mannsins eru víst fjölmargir og flestir reyndar
áunnir. Einn sá hrikalegasti er þó vafalaust mengun í stórborgum.
í Japan ku kveða svo rammt að þessu, að menn þar ganga um með
grímur og súrefnistæki eru á mörgum götuhornum. Þessi mynd er
þó ekki frá Japan heldur Bandaríkjunum, nánar tiltekið Kaliforníu.
Maðurinn á myndinni heitir Tom Aitchison og vann sem
leiðbeinandi á bílastæði á hátíð, sem haldin var í Kaliforníu á
dögunum. Aitchison gekk þá um svæðið með sérstaka grímu til
varnar gegn mengun. Aðspurður sagðist honum vera annt um
heilsu sína og nota grímu, að öllu jöfnu, í bíl sínum á leið til vinnu.
Útsala
Terelynebuxur kr. 9.950.- Terelyneföt kr. 18.500.- Terelyne-
frakkar kr. 12.500.- Terylenefrakkar með belti og kuldafóðri
kr. 25.000.- Úlpur, kuldajakkar o.m.fl. ódýrt.
Andrés, Skólavördustíg 22.
í kvöld, ef til vill í matartímanum, munu hraustleg og
heilbrigð börn berja að dyrum í Reykjavík og
nágrenni og leita eftir framlögum okkar. Þau vilja
hjálpa. Tökum vel á móti þeim og látum okkur ekki
muna um að gefa. Vinsamlegast hafiö handbæra
peninga á heimilunum þegar börnin koma.
Við getum bjargað mörgum frá því aö deyja úr
hungri.
Afríkuhjálpin 1980
Rauói kross íslands.
Fastar
áætlunarferöir.
SVENDBORG:
Umboðsmenn:
Bjerrum + Jensen aps.
Havnepladsen 3, Box 190
5700 SVENDBORG
Skeyti : Broka
Telex: 58122
Sími: (09) 212600
SKIPADEILD SAMBANDSI? '
Sambandshúsinu Pósth. 180 121 Reykjavík
Simi 28200 Telex 2101