Morgunblaðið - 22.10.1980, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 22.10.1980, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1980 29 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 13-14 FRÁ MÁNUDEGI Tr .v iJJAnvK-aia'v it fornu húsagrjóti í grennd við Aðalból. Að ákvarða aldur á fornu hrossataði í dalnum er vísindalegt viðfangsefni, en þegar menn fara að eigna dótið hestinum Freyfaxa, þá er vitaskuld farið að rugla saman bókmenntum og veru- leika." Engin spán- ný sannindi Allir, sem vilja leggja það á sig að lesa fyrirlesturinn, hljóta að sjá hinn mikla menntahroka, sem þar kemur fram. Augljós er lítils- virðingin á alþýðunni, og öllum sönnunum sem fornrannsóknir hafa leitt í ljós bæði fyrr og síðar. Hafa fornleifar ekki einmitt sann- að tilurð fornra sagna, bæði hér og þó miklu skýrar víða erlendis? Segja má að víkingaöldin hafi verið furðunákvæmlega skrásett með fornleifarannsóknum um mikinn hluta Evrópu. Eða hvað hafa rannsóknir leitt í ljós á Ítalíu, í Grikklandi, Gyðingalandi og Egyptalandi? Og svo mætti lengi telja. Það eru svo sannarlega engin spánný sannindi, að íslend- ingar fyrr á öldum ferðuðust og dvöldu langdvölum víðs vegar um Evrópu. Aflausnarferðir til Róm- ar voru algengar. Og svo telur blessaður prófessorinn það sína prívatuppgötvun, að einhver er- lend orðtök hafi slæðst með, þegar hinir íslensku sagnasnillingar rit- uðu hinar sannkölluðu gullaldar- bókmenntir okkar. Ætti að varða við lög í lokin segir prófessorinn að engin tök séu á að færa rök með eða á móti sagnfræðilegu gildi Hrafnkelssögu. Og ætli við, bæði hinn mikli háskólamenntamaður og ég, „bara“ verkamaður sem tæpast er hægt að segja að í skóla hafi komið, getum ekki orðið sammála um að sögurnar eigi að njóta sín, lesast og helst lærast af íslendingum, eins og þær eru nú skráðar. Allar órökstuddar álykt- anir og skemmdakrass í þær ætti að varða við lög. Víst er, að miklir andans snillingar hafa farið huga og höndum um bæði erient og innlent „hráefni" sagnanna, sem hefir mjög líklega verið bæði ritað (rúnir) og sagt af hinum fornu fjölmiðlum, sagnaþulunum, sem voru mjög eftirsóttir, ekki síst af höfðingjum, bæði hér og erlendis. En þeir létu minna yfir sér en hinir hámenntuðu sagnaskýrend- ur nútímans. Þeir rituðu ekki einu sinni nafn sitt undir meistara- verkin, ég vil segja sem betur fer, því að erfiðara er að tæta í sundur gildi sagnanna þegar höfundurinn er óþekktur." fyrir 50 árum „SVEINN Björnsson sendiherra flutti fyrirlestur fyrir skömmu í Árósum um rikisréttindi íslands fyrrum og nú. — Ilann lauk máli sínu á þessa leið: Það er enginn efi á þvi að íslendingar vilja að 1943 verði upphafinn sameiginlegur dansk—isl. borgararéttur og meðferð utanrikismála tekin úr höndum Dana. — íslendingar hafa þegar tilkynnt að þeir ætli að segja upp sambandslagasamn- ingnum. Þetta hefir vakið gremju i Danmörk, en það er þvi að kenna, að dönsk alþýða hefir ekki gert sér það Ijóst, að skiln- aður var þegar gerður árið 1918. — Er það rökrétt afleiðing af því að þeir gefa nú þegar til kynna hvaða stefnu þeir ætla sér að taka. En ég er viss um að íslendingar ætla sér ekki að hvika frá gerðum samningum fyrr en þeir falla úr gildi 1943 ...“ (Sendiherrafrétt). Eru þeir kannski allir erlendis? Strákur skrifar: „Kæri Velvakandi. Mikið er það bagalegt að allir skeleggu mennirnir, sem mest hafa skrifað og skrafað um nauðsyn frjálsrar verslunar, skuli að best verður séð eiga svo annríkt um þessar mundir að þeir hafa engan tíma til að tjá sig um Hagkaupsmálið. Þarna var sannarlega tilvalið tækifæri til þess að berjast fyrir frelsis- hugsjóninni; ég hef í huga alla hina borubröttu talsmenn allra kaupmannasamtakanna, sem sí- fellt eru með réttu að klifa á því að öll höft séu ætíð til bölvunar og að engin þjóð geti lifað mannsæmandi lífi nema hún búi við frjálsa verslunarhætti. — Já, það var ólán að allir þessir menn skyldu vera fjarverandi einmitt þegar hinir villuráfandi félagar þeirra í bóksalastétt harðbönri- uðu Hagkaupsfólkinu að selja bækur. Eru baráttumennirnir kannski allir með tölu erlendis? Æ, hvað það var leiðinlegt. Ég er viss um að þeir hefðu ekki sparað hin breiðu spjótin ef þeir hefðu ekki verið vant við látnir." Þessir hringdu . . Sjónvarpið er frábært „Fjölskyldumaður“ hringdi og undraðist kvartanir fólks yfir sjónvarpsdagskránni.— Það er greinilegt að þeir ágætismenn, sem stjórna málefnum sjónvarps- ins, vita lengra nefi sínu. Þeir vita sem sé að því lélegri sem dagskrá- in er því betra er sjónvarpið, og best er það þegar sárasjaldan er knýjandi að kveikja á tækinu. Og samkvæmt þessari forskrift er íslenska sjónvarpið frábært, svo að maður taki nú ekki allt of sterkt til orða. Þetta þýðir að fjölskyldur geta ekki afsakað sig með því að þær þurfi að horfa á sjónvarpið, ef tengsl fjölskyldu- meðlima eru eitthvað losaraleg eða jafnvel engin. Þar er ein- hverju öðru um að kenna. Sama máli gegnir um annað félagslíf fólks. Sé það á einhvern hátt dauft eða drungalegt, er sjónvarpið þar enginn sökudólgur, en stundum blóraböggull. Nei, menn skoði málin betur en svo. Horfi einhver mikið á sjónvarpið okkar, er þar SIGGA V/ÖGA fi ÁiLVEftAN fremur um að kenna flótta frá verðugri verkefnum, sem eru skapandi og örvandi, flótta vegna dauðyflisháttar og hræðslu við að takast á við sinn eigin veruleika. Við skulum ekki reyna að hugsa þá skelfilegu hugsun til enda, hvað gerast mundi, ef vandað yrði kostgæfilega til sjónvarpsdag- skrárinnar, jafnvel dag hvern. Afleiðingarnar yrðu hroðalegar og það óskar held ég enginn eftir þeim. Við getum þess vegna verið hress og ánægð með okkar sjón- varp, það er þegar allt kemur til alls hreint frábært: Við getum oftast nær skrúfað fyrir það án þess að eiga á hættu að missa af neinu. Borga bændur sýsluvegasjóðs- gjald hér? Torfi Ólafsson hringdi og kvartaði yfir vegaskatti eða svo- kölluðu sýsluvegasjóðsgjaldi sem sumarbústaðaeigendur eru látnir greiða. — Ég á sumarbústað í Kjósinni og greiði 24 þúsund krónur á þessu ári í vegaskatt. Við byggðum þarna brú sjálfir og hreppurinn kom þar hvergi nærri. Þess vegna m.a. erum við mjög óhressir yfir þessu gjaldi og finnst hart að þurfa að greiða það. Margir bændur eiga íbluðir í Reykjavík, eins og kunnugt er. Ég spyr: Borga þeir sambærilegan skatt hér í borg? Ég vilflytja börnum mínum, ættingjum og vinum hugheilar þakkir fyrir hlýhuginn, sem þau auðsýndu mér, með heimsóknum, gjöfum og heillaóskum á áttræðis afmæli mínu 20. september sL Björg Valdimarsdóttir. Fáksfélagar Hefjum vetrarstarfiö meö dansleik í félagsheimilinu laugardaginn 25. október, 1. vetrardag. Húsiö opnar kl. 21.00. Góö hljómsveit. Aðgöngumiðar seldir föstudag kl. 17—19. Skemmtinefnd. 9. leikvika — leikir 18. okt. 1980 Vinningsröö: X12 — 1XX — 2X1—X12 1. vinningur: 11 réttir — kr. 4.946.000.- 7243 (Reykjavík) 2. vinningur: 10 réttir — kr. 73.000.- 219 1650 4549 5893+ 9326 31227' 36451 819 2074 4648 7067 11235 32928 36558+ 1459 2232 5671 7178 11309 33423 41048 1555 3802 5731 9051 11558 34212 42332 * (2/10) Kærufrestur er til 10. nóvember kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyöublöö fást hjá umboðsmönnum og á aöalskrifstofunni. Vinnings- upphæöir geta lækkaö, ef kærur veröa teknar til greina. Handhafar nafnlausra seöla (+) veröa aö framvísa stofni eöa senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir lok kærufrests. GETRAUNIR — íþróttamiöstööinni — REYKJAVÍK Fastar áætlunarferöir. LARVÍK Umboðsmenn: P.A. Johannessens Eftf. Storgaten 50 3251 LARVIK Skeyti PAJ Telex: 21522a ships n Sími: (034) 85 677 m xíam m 4V wm wm áowo wm MVtm fcTTOlMl $ Uó)A DÓTT MÓV YllftT/ S ^ÓTLm/l 0Ní\ " 14/VNA A VíöNUM. SKIPADEILD SAMBANDSINS Sambandshúsinu Pósth. 180 121 Reykjavík Simi 28200 Telex 2101 Ytovl \ L)ÓS, tm> 06 Yllá ŒOMVl tíAúVAtt ALI1AT, ytímM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.