Morgunblaðið - 12.12.1980, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 12.12.1980, Blaðsíða 12
X 2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1980 Æ, ættum við ekki að fara að gjóa í eigin barm? Marilyn French: Kvennaklósettið Elísabet Gunnarsdóttir þýddi Útg. Iðunn 1980 í tíu daga eða svo hef ég nú verið að taka tilhlaup að skrifa um þessa bók, sem kom út í Banda- ríkjunum fyrir þremur árum, fór þar eins og eldur í sinu og vakti upp þvílíkar umræður um „stöðu konunnar í nútímaþjóðfélagi", kynferðislega kúgun hennar og ég man ekki hvað. Eg las þessa bók eitthvað hálfu ári eftir að hún var gefin út hjá amerískum og þótti hún orðmörg með afbrigðum. Svo mjög að ég hljóp stundum yfir tugi blaðsíðna, af einskærri upp- gjöf og varð þess svo vísari þegar ég tók til á nýjum stað, að það hafði eiginlega ekkert gert til. Það hafði ekkert gerzt, nema höfundur hafði látið móðan mása um sjálf- sagða hluti sem fluttir voru les- endum eins og himnaspeki, sem ekki nokkur maður hefði vitað Marilyn French áður. Næsta bók Marilyn French „The Bleeding Heart" kom síðan út í vor og höfðaði hún til mín á allt annan og jákvæðari hátt. Bæði virtist sem Marilyn French hefði tekizt að varpa af herðum sér mesta fjálgleiknum og hún var öll orðin agaðri og manneskjulegri í skrifum sínum. Það var með ólíkindum að hún hefði aðeins fáeinum árum áður skrifað þessa dæmalausu langloku sem „Wom- en’s Room“ er. Þó er ekki því að neita að Kvennaklósettið hélt áhuga föngnum, svona að mestu, alténd pældi ég í gegnum hana og mér var svo langt frá sama um margar af þeim persónum sem komu við sögu, þær vöktu með lesanda samúð, skilning, jafnvel áhuga- vott. Bókin hefur sjálfsagt verið þörf ádrepa fyrir þremur árum, þótt mér sýnist dálítið furðulegt að fara að flytja hana yfir á íslenzku þó þetta löngu eftir útkomu hennar. Og eins og allir vita eru bandarískar kvennabók- Bðkmenntir eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR menntir dálítið sérstæðar og yfir- leitt töluvert mikið á eftir þessari blessuðu umræðu um títtnefnda stöðu konunnar í nútímaþjóðfé- laginu sínu. Ef Bandaríkjamenn fá eitthvað á heilann ætlar allt öldungis um koll að keyra og þótt bókin kunni að hafa átt erindi þar á sínum tíma fæ ég fátt séð sem skýri með vitsmunalegum rökum, af hverju íslenzkar konur telja sér svona mikinn akkur í að lesa hana í botn. Bækur sem dregnar eru annað hvort í hvítu eða svörtu: þar sem allir karlmenn eru v'ondir og allar konur góðar til dæmis — hljóta að missa marks, því að ekkert er svo einfalt og lausn fæst aldrei með því að skella jafnan skuldinni á aðra og gera ekki minnstu tilraun til að gjóa í eigin barm. Elísbet Gunnarsdóttir á aðdáun skilið fyrir að hafa lagt í það stórvirki að snara bókinni á ís- lenzku. Félag íslenskra leikritahöfunda: „Óhæfuástand í leiklistarmálum Sjónvarpsins“ STJÓRN félags islenskra leik- ritahöfunda hefur sent mennta- málaráðherra bréf þar sem það lýsir yfir fullri samstöðu með Félagi islenskra leikara i deilu þess við Ríkisútvarpið um hlut leiklistar í dagskrá sjónvarpsins og biður ráðherra um að beita sér fyrir skjótri lausn á deilunni. I bréfinu segir að það sé vita- skuld ekki síður áhyggjuefni fyrir leikritahöfunda, að leikritagerð sjónvarpsins dragist sífellt sam- an. Bent er á að styrkja þurfi fjárhagsgrundvöll sjónvarpsins hversu miklu fé eigi að verja til leikritagerðar þannig að leiklistin verði ekki eilíflega útundan, þegar hart er í ári og að sjónvarpið geti staðið við fyrirheit sín um gerð átta leikrita í ár. í bréfinu segir að þetta óhæfu- ástand, sem lýsi sér best í því að flutningur íslenskrar leiklistar hjá Sjónvarpinu sé um það bil að leggjast niður, sé þegar farið að vekja allmikla athygli hjá erlendu leiklistarfólki. Til dæmis hafi formaður Leikritahöfundasam- bands Norðurlanda, Örnólfur Árnason verið beðinn að skýra frá þessu á næsta stjórnarfundi sam- bandsins nú í desember á alþjóða- þingi leikritahöfunda, sem haldið verður á vegum Alþjóðaleikhús- stofnunarinnar í Búdapest, dag- ana 17. og 18. desember næstkom- andi. Leiðrétting TVÆR prentvillur sem breyta merkingu, voru í grein Helga J. Halldórssonar í blaðinu í gær. Þar átti að standa: „Nokkrir íslendingar hafa beðið þig að veita þessum manni ásjá ...“ Og síðar í greininni: „Þeir sem komnir eru yfir miðjan aldur eins og við, Friðjón, munum þau ósköp sem hinir stríðsóðu Þjóð- verjar og fleiri komu af stað hér í heimi á árunum 1939—’45 ..." — Biðst blaðið afsökunar á þessum mistökum. ACIil.YSINCASIMINN KR: pQ, 22480 BHvfliwblflöit) „ISLENSK BOKAMENNING ERVERÐMÆJI náWMItUft BÆKUR MENNINGARSJÓDS nntllMaM RÓMAVELDII—II eftir Will Durant, höfund GRIKKLANDS HINS FORNA sem kom út á sl. ári. +-a ÞÝDD LJÓÐ FRÁ NORÐUR- LÖNDUM 127 ljóð eftir 75 skáld í þýðingu Þórodds Guðmunds- sonar frá Sandi. LEIKRIT JÖKULS JAKOBS- SONAR (Studia „ Islandica 38) eftir Fríðu Á. Sigurðardóttur. í bókinni er fjallað um leikrit Jökuls frá bókmenntafræði- legu sjónarmiði. LJÓÐ MATTHÍASAR JOCHUMSSONAR Úrval Ijóða sr. Matthíasar Jochumssonar kemur nú út á sextugustu ártíð hans. LJÓÐ sr. Matthíasar er sjötta bindið í flokknum íslensk rit. ANDVARI1980 Aðalgreinin er ævisaga Árna Friðrikssonar fiskifræðings eftir Jón Jónsson forstöðumann Hafrannsóknarstofnunar. ALMANAK ÞJÓÐVINAFÉLAGSINS 1981 Almanak um næsta ár með Árbók íslands 1979 eftir ólaf Hansson fyrrverandi prófessor. FOLD OG VÖTN Úrval greina um jarðfræðileg efni eftir hinn kunna jarðfræðing Guðmund Kjartansson. c* ÍSLAND Á BRESKU VALD- SVÆÐI1914-1918 eftir Sólrúnu B. Jensdóttur sagnfræðing. Bókin f jallar um samskipti Breta og íslendinga á árum fyrri heimsstyrjaldar. ALFRÆÐI MENNINGARSJÓÐS Tónmenntir II eftir dr. Hallgrím Helgason tónskáld. ítarlegt og fræðandi uppsláttarrit um sérfræðiheiti og hug tök tónmennta. Nú eru komin út 12 bindi af Alfræðinni. BRÉF TIL JÓNS SIGURÐS- SONAR Bókin flytur safn af bréfum þjóðkunnra manna til Jóns forseta. BÓKAÚTGÁFA MENNINGARSJÓÐS OG ÞJÓÐVINAFÉLAGSINS Skálholtsstíg 7 — Reykjavík iittiij :k- iifivUö c.-. iv i.hj xivicjJv-ujfj iiiijtfiiifiiiiiinijiiui)ii]ii)niiii)i)i)mmM#uuufuouHf<«(i<fi<oiiMiiii:o:ijjnj)m

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.