Morgunblaðið - 12.12.1980, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1980
25
Samfélag dýranna í Einskislandi
eykur skilning á f ágætum tegundum
DALUR dýranna or ein af harna-
hókunum. sem út er komin. Hún
er að því leyti sérstæð að þar er á
aðgengileKan hátt reynt að sam-
ræma fróðleik um náttúruna og
sjaldgæf dýr og hins vegar
kankvis frásögn í söguformi með
litskreytinRum ok teikninRum.
Sa^t frá dýrunum i Einskisdal.
sem öll eru af tegundum. sem eru
horfin eða í útrýminsarhættu.
Enda skrifar formála Sir Pcter
Scott, stofnandi ok forseti
Alþjóðanáttúruverndarstofnun-
arinnar World Wildlife Fund.
Sir Peter Scott, sem kunnur er
fyrir, baráttu sína fyrir náttúru-
vernd, og hefur m.a. haft mikinn
áhuga á að heiðargæsinni sé ekki
útrýmt á Islandi, segir í formála
sínum: Eitt mikilvægasta hlutverk
Alþjóðanáttúruverndarstofnunar-
innar er að opna augu fólks af
öllum þjóðum heims fyrir nauðsyn
þess að forða villtum dýrum og
plöntum jarðarinnar frá útrým-
ingu, en framvinda mannkyns er
undir því komin hversu vel tekst
að halda við þessum lifandi auð-
lindum okkar. Sem forseti Al-
þjóðanáttúruverndarstofnun-
arinnar fagna ég því að dýrin í
„Einskisdal" eiga á sinn sérstak-
lega og skemmtilega hátt eftir að
stuðla að bættum skilningi og
auknum áhuga manna á nauðsyn
þess að vernda fágætar lífverur
þessarar reikistjörnu og að varð-
veita óspillt umhverfi þeirra.
Vafalaust er mikilvægasti þátt-
urinn í því að bjarga dýrum og
plöntum frá útrýmingu og land-
svæðum frá eyðileggingu að fólk
— og þá fyrst og fremst börnin —
skilji hættuna og skynji umhverfi
sitt. Þau geti þá sem fullorðin
metið og tekið ákvarðanir út frá
þekkingu á því sem um er að ræða,
þegar mannfólkið er að skipa
sínum málum í heiminum og drita
ELDFIÐRILDIÐ Villi væng
styrkur spyr hvers vegna hvítu
nashyrningarnir séu næstum út-
dauðir, hvort það hafi verið
vegna þess að þeir voru svo
nærsýnir og klunnafættir. Hvít-
ingur svarar: Nei, alls ekki. Við
vorum veiddir vegna hornanna.
fólk hélt að hornin byggju yfir
dularafli. I>au voru möluð og
notuð í lyf ... i ástardrykk.“ Ég
veit svei mér ekki hvers vegna.
En það er nærri búið að afmá
okkur.
í hreiður sitt í fávisku.
I bókinni um dal dýranna er
notuð ný aðferð til að kynna
börnum þetta málefni. Ekki reynt
að troða í þau staðreyndum, held-
ur segja skemmtisögu af samfé-
lagi dýra í Einskismannsdal. Þar
búa teiknimyndahetjur á borð við
þær, sem mjög tíðkast í lesefni
barnabóka, gerðar af leiknum
skopteiknara á dýramyndir
Michael Jupp. Sögupersónurnar
eru vandlega kynntar í upphafi,
svo að hægt að sé að átta sig á
persónueinkennum hvers og eins,
áður en söguþráður hefst. A sér-
stöku grænu blaði er svo í hverju
tilfelli sögð saga hvers dýrs í
raunveruleikanum, og það teiknað
af grafiklistamanninum Cecile
Newbold.
Örnólfur Thorlacius hefur gert
þýðinguna á fræðitextanum og séð
um útgáfuna. En Örnólfur er sem
kunnugt er mikill áhugamaður og
fróður um náttúruna og lífríkið,
sem hann kynnir af alúð. Annar
kunnur maður úr sjónvarpinu
Þrándur Thoroddsen, þýðir meg-
inmálið, en hann kemur kostu-
legum tilsvörum annarra þekktra
dýra úr sjónvarpinu, Prúðuleikar-
anna, þar yfir á íslenzku. En í Dal
dýranna hafa íbúarnir líka uppi
gamansöm tilsvör.
Bókin er skrautleg í litum.
Börnin kynnast þar í léttu efni
þessum dýrum, sem Alþjóðanátt-
úruverndarstofnunin hefur eða er
að koma til bjargar, svo sem
risaskjaldbökunum og oryxunum,
en einnig þeim sem of seint var að
bjarga, eins og dúdúfuglinum.
Þarna eru þau í gefi Einmana
Einars risaskjaldböku, Hermanns
Oryx, Hvítings nashyrnings, eld-
fiðrildisins Villa Vængstyrks,
Doða dúdúfugls og margra fleiri.
Þannig er reynt að blanda saman
skemmtiefni við barnahæfi og
fróðleik. __ E.Pá
Tíu litlir hvuttar
BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlygur
hf. hefur gefið út bók er ber
nafnið: Tíu litlir hvuttar. Er hér
um að ræða svokallaða harð-
spjaldabók, sem fyrst og fremst er
ætluð þeim yngstu og þolir jafnvel
ómjúklega meðhöndlun. Bókin er
eins upp byggð og bókin: Tíu litlir
negrastrákar sem kom út hjá Erni
og Örlygi hf. í fyrra og naut
mikilla vinsælda. Texti bókarinn-
ar, sem er rímaður, er eftir hið
kunna skáld Kristján Einarsson
frá Djúpalæk.
Bókin er filmusett í Prentstofu
G. Benediktssonar, en prentuð í
Þýskalandi.
EINSTÖK
MEÐALGÆÐAÚRA...
fyrir nákvæmni, fjölbreytt úrval og gott verð.
MICROMA SWISS úrin geta fáir keppt við. Hvort sem þú
vilt hörku karlmannsúr eða tölvuúr með 14 mismunandi
upplýsingum fyrir unglinginn. Það finna allir sitt
MICROMA úr— því er hægt að treysta.
Alþjóða ábyrgð. örugg þjónusta fagmanna.
Myndalisti. Póstsendum um land allt.
FRANCH MICHELSEN
ÚRSMÍÐAMEISTARI
LAUGAVEGI39 SÍM113462
Hvers
vegna
varst’
ekki kyrr
er virkilega
góö plata
í alla staöi.
Dreifing
Laugavegi 33 — Sími 11580.
Vilhjálmur
Vilhjálmsson
Hana nú
Öll bestu lögin
hans Vilhjálms
Vilhjálmssonar
ö»u á þessari
plötu.
/bRUNAL IÐI-Ð
MEO ELD i HJARTA
Brunaliðið
Meö eld
r
I
hjarta
Glámur og
Skrámur
í sjöunda
himni
Fróðlegt ævintýri
fyrir krakka.
Guömundur
Guöjónsson
syngur
lög eftir Sigfús
Halldórsson
viö undirleik
höfundar.
Jóla-
strengir
Ein vandaðasta
jólaplata
sem út
hefur komið.
HLJÓMPLÖTUÚTG/ÍMN hf.