Morgunblaðið - 12.12.1980, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1980
13
THERESA CHARLES ER ALLTAF JAFN VINSÆL!
NÁGRANNINN HENNAR segir frá baráttu ungrar stúlku
fyrir hamingju sinni, næstum óyfirstíganlegri baráttu
gegn sterkum fjölskylduböndum og hatrömmu, hefni-
gjörnu baktjaldamakki.
Og við höfum endurprentað 3 af vinsælustu bókum
Theresu Charles: MILLI TVEGGJA ELDA, SÁRT ER
AÐ UNNA og SEIÐUR HAFS OG ÁSTAR.
Barbara Cartland:
VÆNGIR ÁSTARINNAR
Amanda Burke var fögur
sem vorið en sárafátæk.
Ást hennar er hrein og
einlæg og hún leggur allt
í sölurnar til að bjarga
manninum, sem hún
elskar.
RAUÐU ÁSTARSÖGURNAR VERÐA
ALLTAF VINSÆLLI OG VINSÆLLI!
í þeim bókaflokki eru komnar út þrjár
nýjar bækur: ÁSTIN ER ENGINN LEIKUR
eftir Signe Björnberg, BARNLAUS MÓÐIR
eftir Else-Marie Nohr og ÖRLÖGIN
STOKKA SPILIN eftir Sigge Stark.
Einar Benediktsson: SÖGUR
Hér er að finna allar sögur Einars úr Sögum og kvæðum, Dagskrá og
fleiri blöðum og skáldsöguna Undan krossinum. Sumar smásagna hans
eru meðal allra beztu smásagna, sem ritaðar hafa verið á íslenzka tungu.
LJÓÐASAFN l-IV
Vandaðasta heildarútgáfa, sem út hefur komið af Ijóðum skáldsins.
KVÆÐASAFN
Við eigum aðeins fá eintök af hinni veglegu aldarafmælisútgáfu af
kvæðum Einars Benediktssonar. Fagurlega bundin í skinnband.
Alfred Lansing:
HARÐFENGI OG
HETJULUND
„Einhver mesta ævin-
týrafrásögn vorra
tíma, hrottalegur
lestur, en eigi að síður
hrífandi.“ — New
York Times.
Jóhannes Helgi:
SIGFÚS HALLDÓRSSON
OPNAR HUG SINN
Sigfús er afburða skemmtilegur sögumaður
og Jóhannes Helgi fer snillings höndum um
sögur hans. — Það er dauður maður, sem
ekki skemmtir sér vel við lestur þessarar
bókar!
Harold Sherman:
HVERJU MÁ ÉG TRÚA?
Einstök bók um lífsspeki eftir hinn mikla frömuð rannsókna á
yfirskilvitlegum fýrirbærum, höfund bókanna „Dularmögn
hugans,“ „Lækningamáttur þinn“ og „Að
sigra óttann“.
Halldór Pjetursson:
SÝNIR í SVEFNI OG VÖKU
Hér segir fjöldi kunnra manna frá
draumum sínum og vökusýnum. Hver
segir frá á sinn sérstæða, persónulega
hátt, en sem heild mynda frásagnir
þeirra óvenjulega bók, sem stór
hópur lesenda mun fagna.
Hendrik Ottósson:
HVÍTA STRÍÐIÐ -
VEGAMÓT OG VOPNAGNÝR
Tvær bækur í einni. Frásagnir af
átökum og baráttu á fyrstu árum
skipulagðrar verkalýðs-
hreyfingar á íslandi.
Fríða Á. Sigurðardóttir:
ÞETTA ER EKKERT ALVARLEGT
„Hér er á ferð með athyglisverðari höfundum, sem
ég hef lesið eftir bók um langa hríð,“ segir
Jóhanna Kristjónsdóttir í ritdómi. Missið ekki af
bók Fríðu, hún er bókmenntaviðburður.
ÁTJÁN KONUR, ferill þeirra og
framtak í nútímahlutverkum
Afrek þessara átján kvenna verða
öðrum fyrirmynd og hvati á braut
mennta og starfsvals. Sögu þessara
kvenna þurfa allar íslenzkar konur
að þekkja.
Eiríkur Sigurðsson:
ÆVIÞÆTTIR AUSTFIRÐINGS
Hinn mikilhæfi skólamaður og bind-
indisfrömuður stiklar á veigamestu
atburðum ævi sinnar og koma fjöldi
samferðamanna við sögu. Hlýhugur,
samúð og virðing fyrir samferða-
mönnunum mótar alla
frásögnina.
SYRPA II, sagnaþættir úr
fórum Gísla Konráðssonar
Þetta þáttasafn er hvaðanæva
af landinu. Það er fróðlegt og
skemmtilegt og ómissandi í
safn þeirra er þjóðlegum
fróðleik unna.
Gils Guðmundsson:
FRÁ YSTU NESJUM
Vinsælir vestfirzkir þættir af afreks-
mönnum og atkvæðamönnum, sérkenni-
legu fólki og fornu í lund, en víða er
slegið á gamansama strengi. Lengsti þátt-
urinn er um Holt í Önundarfirði og Holts-
presta.
Ásgeir Jakobsson:
GRIMS SAGA TROLLARASKÁLDS
Loksins sjómannabók, sem seltubragð er af!
„Þar er lífinu, veiðunum og lífshættunni á togurunum lýst af meiri
þekkingu og glöggskyggni en nokkur hefur gert áður... Mér var
sannarlega dillað við lestur sögunnar." — Guðm. G. Hagalín í Mbl.
SKUGGSJÁ