Morgunblaðið - 12.12.1980, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1980
AEG
Fyrirlestur
um eðli laga
NÆSTI fundur félags áhuga-
manna um heimspeki verður hald-
inn sunnudaginn 14. desember
1980 kl. 14.30 í Lðgbergi. Dr.
Milner Ball, bandarískur sendi-
kennari við lagadeild Háskólans,
mun setja fram kenningu sína um
sðli laga, og að því loknu mun
Garðar Gíslason borgardómari
?agnrýna kenninguna.
Efni fundarins verður flutt á
jnsku.
Sl<apa íbtin
manninn?
Það er nú kannske heldur mikið sagt.
Hins vegar breyta Terra fötin honum verulega.
Terra fötin eru í tískusniðum. Þau fást
með eða án vestis og ef óskað er, fóðruðum
buxum. Stærðirnar eru 50 og ef engin þeirra
passar, saumum við fötin sérstaklega.
H
SNORRABRAUT 56 - SÍMI 13505
Grímur Thorarensen
Hellu — Kveðjuorð
Mig setti hljóðan þegar á öldum
ljósvakans barst sú harmafregn,
að góðkunningi minn Grímur
Thorarensen kaupfélagsstjóri á
Hellu væri látinn. Það var svo
erfitt að trúa því. Hann sem ávallt
ljómaði af lífsþrótti og gleði væri
nú allur.
Grímur var fæddur á höfuðból-
inu Kirkjubæ á Rangárvöllum,
þar bjó afi hans Grímur og faðir
hans Bogi Thorarensen hrepp-
stjóri og kona hans Steinunn, þau
hjón voru systkinabörn. Bogi
hreppstjóri, faðir Gríms, var skör-
ungur í sjón og raun. Hann var
jafnan sjálfkjörinn fundarstjóri á
stórum mannfundum sökum skör-
ungsskapar og réttsýni. Geta má
þess að Grímur var bróðursonur
Egils Thorarensen (jarlsins af
Sigtúnum), eins stórbrotnasta
héraðshöfðingja vorra tíma. Thor-
arensenarnir hafa löngum sett
svip á Rangárþing. Skúli Thorar-
ensen læknir sat höfuðbólið
Móeiðarhvol í Hvolhreppi fyrir
rúmum 150 árum og niðjar hans
hafa setið þá jörð þar til fyrir
fáum árum, þeir bræður Þorsteinn
og Grímur, synir Skúla læknis,
sátu sitt höfuðbólið hvor, Móeið-
arhvol og Kirkjubæ. Frá Kirkjubæ
er fagurt útsýni til allra átta. Það
má segja að þar sé hátt til lofts og
vítt til veggja. Meginhluti hins
fagra Rangárþings blasir við sjón-
um manna og stór hluti Arnes-
AEG þvottavélarnar hafa 7 mismunandi
hitastig, 8 mismunandi löng þvotta-
kerfi, m.a.: stillanlegan vinduhraða,
forþvottakerfi og viðurkennt ullar-
þvottakerfi. Einnig er hcegtþegar við á, að
stilla á hálfa vél af þvotti.
AEG tauþurrkarinn hefur tvö hitastig
og kaldan blástur fyrir viðkvceman þvott.
BRÆÐURNIR ORMSSON %
Lágmúla 9, Simi 38820.
Þórarinn Hjálmars-
son fv. vatnsveitu-
stjóri — Minningarorð
AEG heimilistcekin eru
þekkt fyrir gceði og góða
endingu.
Komið og skoðið nýrri og
fullkomnari vélar.
Fæddur 7. febrúar 1907.
Dáinn 2. desember 1980.
Þórarinn var fæddur að Húsa-
baki Suður-Þingeyjarsýslu 7. dag
febrúar 1907, sonur hjónanna
Kristrúnar Snorradóttur og
Hjálmars Kristjánssonar. Ungur
að árum fluttist Þórarinn með
foreldrum sínum að Engidal vest-
an Siglufjarðar en hingað til
bæjarins fluttist fjölskyldan árið
1927 og hefur Þórarinn dvalið hér
síðan.
Árið 1931 kvæntist Þórarinn
Arnfríði Kristinsdóttur og áttu
þau einn son, Ásmund Óskar, sem
kvæntur er og búsettur í Garði
Gerðum.
Árið 1942 var Þórarinn ráðinn
vatnsveitustjóri hér í bæ og
gegndi því starfi þar til fyrir fáum
árum að hann lét af störfum fyrir
aldurs sakir.
Okkar kynni urðu fyrst árið
1948 í júnímánuði að ég vann hjá
vatnsveitunni við að grafa skurð
frá Dælustöðinni á firðinum og
upp Skardalsengið, þegar verið
var að leggja þá vatnsveitu, sem
hefur dugað bænum fram á þenn-
an dag. Frá þessum tíma hafa
leiðir okkar Þórarins legið saman,
mismikið, í gegnum árin í félags-
málum.
Einn er sá þáttur í lífi Þórarins,
sem ekki má gleymast, það er
leiklistarstarfsemin. Þau eru ófá
hlutverkin sem Þórarinn lék í
fyrir Stúkuna Framsókn og Leik-
félag Siglufjarðar, áhorfendum til
óblandinnar ánægju. Ég tel að
leiklistin hafi Þórarni verið í blóð
borin, enda tilfinningamaður og
túlkaði því þau hlutverk, sem
hann tók að sér, af næmni og
smekkvísi.
Öll þau ár sem ég þekkti Þórar-
in var hann virkur félagi í Stúk-
unni Framsókn, sem starfaði hér
af miklum þrótti um mörg ár.
Þórarinn missti konu sína árið
1976 eftir langan sjúkdóm. Það
vakti athygli þeirra sem til þekktu
sú nærgætni og umhyggja sem
hann sýndi konu sinni þau ár er
hún var sjúklingur.
Ekki verður skilist við þessi orð
án þess að getið verði um hugðar-
efni, sem honum var svo hugstætt,
kindurnar, þessir ferfætlingar,
sem áttu hug hans. Þórarinn átti
kindur öll þau ár er hann var hér
þar til á liðnu hausti, að undan-
teknum tveimur árum, sem sauð-
laust var hér í Siglufirði og
grennd, vegna sjúkdóms í fénu.
Eitt var það í fari Þórarins sem
laðaði fólk að honum, það voru
frásagnarhæfileikar hans og
kímnigáfa, ásamt hagmælsku, en
Þórarinn var vel hagmæltur. Það
fylgdi Þórarni hressandi andblær
og manni leið vel í návist hans.
Ekki var Þórarni kvillasamt um
ævina en fyrir um ári síðan bar á
þeim sjúkdómi, sem leiddi til
okkare» 367 \enð 77
AUCLYSINCASTOFA MYNDAMÓTA HF