Morgunblaðið - 25.01.1981, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 25.01.1981, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 1981 15 Bókmenntafélagsins er fullur vilji fyrir því að leggja fram ofurlítinn skerf til að auka fjölbreytni útgáf- unnar — sérstaklega á þeim svið- um sem aðrir útgáfuaðilar sinna ekki. Félagið hefur hins vegar lengst af skort fjármagn til að sinna þessu verkefni sem skyldi." Hver eru helztu ú tgáíu verkeínin sem Bókmenntafélagið sinnir eða hyggst fara út í á næstunni? „Ritun og útgáfa Sögu íslands hefur verið eitt viðamesta verk- efni félagsins um nokkurt skeið. Nú eru komin út þrjú bindi þessa verks og verið að vinna að því fjórða, — og raunar einnig fimmta og sjötta. Þetta ritverk er fyrsta rækilega heildaryfirlitið um sögu lands og þjóðar frá upphafi til nútíðar. Þá er að nefna útgáfu sögulegra heimilda sem verið hef- ur minni en skyldi. — Annars er undarlegt til þess að hugsa, þegar haft er í huga hversu margir sagnfraeðikennarar eru starfandi hér á landi við kennslu, að enginn skuli hafa það að aðalstarfi að sinna útgáfu sögulegra heimilda. Það er eins og fyrri daginn: Ótakmarkað fé virðist til þess að þenja út skólakerfið en nánast ekkert til að sinna fræðunum. Útgefandi heimilda myndi þó ekki einungis miðla þekkingu til þröngs hóps nemenda heldur allra sem vildu tileinka sér sögulegan fróðleik, samtímamanna og kom- andi kynslóða. Fjármunir sem færu til slíkrar útgáfustarfsemi nýttust margfalt betur en þeir sem varið yrði til kennslu. Eins og sakir standa er það forgangsverkefni hjá Bókmennta- félaginu að ljúka útgáfu Annála 1400—1800. Stærsta verkefni fé- lagsins á sviði heimildaútgáfu er útgáfa Islenzks fornbréfasafns sem er orðið 16 bindi. Það byrjaði að koma út 1857 og þyrfti að bæta við það nokkrum bindum ef vel ætti að vera. Hér á landi er nú mikil nauðsyn að efla þýðingastarfsemi þó það verkefni snúi að sjálfsögðu að fleiri aðiljum en Bókmenntafélag- inu. Þetta er allra mikilvægasta og trúlega allra vanræktasta verk- efni sem nú liggur fyrir á sviði menningarmála hérlendis. Það er til mikils vansa hversu fá af þeim ritum sem markað hafa varanleg spor í menningarsögunni eru til á íslenzku. En maður kemur alltaf að hinu sama. Ráðamenn sjá ekkert nema skólakerfið og drjúg- um hluta þjóðartekna er varið til þess á fjárlögum. Aðeins brota- brot af þessari fjárhæð rennur til útgáfustarfsemi, þ. á m. þýðinga — þó er bókin virkasti, aðgengi- legasti og ódýrasti þekkingarmið- illinn sem við höfum yfir að ráða. Bókmenntafélagið hefur reynt að sinna þessu verkefni, þó í litlu sé, með þýðingum undirstöðurita sem komið hafa út í flokknum „Lærdómsrit Bókmenntafélags- ins“ og eru það orðnar 16 bækur alls. I þennan flokk hafa verið valin ýmis öndvegisrit vísinda og heimspeki. Ég tel að félagiö vinni almenningi meira gagn með út- gáfu á undirstöðuritunum sjálfum en með útgáfu á léttum alþýðleg- um bókum eða myndabókum af sama tagi. Slíka útgáfu ber engan veginn að lasta en það er sæmi- lega fyrir henni séð af öðrum aðiljum og við viljum fremur sinna þeim verkefnum sem aðrir hirða ekki um. Með þýðingum af þessu tagi er ekki aðeins verið að færa lands- mönnum nýja þekkingu og hug- myndir, heldur og að þjálfa ís- lenzka tungu við ný viðfangsefni — auka ríki hennar, ef svo mætti segja. Það varðar miklu að undir- stöðurit sem þessi séu til á íslenzku, — bæði er að aðgengi- legra er fyrir menn að kynna sér framandi fræði fyrst á móðurmál- inu, áður en þeir leggja út í frekari lestur á erlendum tungum, og eins hitt, að ritin eru aögengileg fyrir ungt fólk, sem undantekningarlít- ið hefur ekki þau tök á erlendum málum er þarf til að geta lesið þau sér að gagni. A þessum vettvangi eru óendanleg verkefni framund- an og æskilegt væri að Bók- menntafélagið hefði bolmagn til að sinna þeim meira í framtíðinni. Einnig er hugsanlegt að félagið legði meiri stund á endurútgáfu og þá á ég við endurútgáfu á þeim ritum sem félagið hefur gefið út áður. Auðvitað heldur félagið svo áfram að gefa út einstök rit eftir því sem efni og aðstæður leyfa." Hversu margir félagar eru í Bók- menn tafélagin u ? Það munu vera um 1950 félagar í því núna og þeir mættu gjarnan vera fleiri. Eg held þó varla að stefna beri að því að Bókmennta- félagið verði fjöldafélagsskapur. Ef við hefðum 2500—3000 trausta félaga yrði hægt að efla starfsem- ina verulega. En það ríður á að félagar séu traustir og víðsýnir — taki mið af meginmarkmiðum en ekki einstökum athöfnum — ekki fólk sem gengur úr félaginu kannski vegna þess að því líkar ekki Skírnir það árið eða fellir sig ekki við einhverja bók sem félagið gefur út. Annars held ég að sá misskiln- ingur sé nokkuð ríkur að fólk telji Bókmenntafélagið ákaflega fínt eða jafnvel einhvers konar lokaða bókmenntaklíku. Allt slíkt er fjarri sanni. Félagið er öllum opið og eina skilyrðið er að greiða félagsgjaidið en í því felst áskrift að Skirni og aðgangur að öllum bókum sem félagið gefur út, á félagsverði. — Ég vildi að félaginu mætti í raun líkja við frjálsan háskóla almennings á íslandi, þar sem bókin væri kennslutækið. Og upphaflegt markmið hefur verið eitthvað í þá veru. En mikið vantar uppá að svo geti talizt, t.d. er bókaútgáfan hvorki nægilega mikil né fjölbreytt." Telurðu að Bók- menntafélagið geti aukið starfsemi sína í náinni framtíð? „Ég vona það. Félagið hefur alltaf átt við féleysi að stríða og lengst af — en einkum þó síðustu 2—3 ár — átt í erfiðleikum vegna húsnæðisleysis. Það hefur ekki átt þak yfir höfuðið fyrr en við keyptum húsið að Þingholtsstræti 2 nú fyrir skömmu. Enn vantar þó mikið á að húsið sé að fullu greitt. Við höfum snúið okkur til félags- manna um fjárframlög og margir þeirra hafa brugðizt vel við. Von- andi sjá sem flestir þeirra sér fært að styðja félagið til þess að eignast þetta hús, því annars verður varla um annað að ræða en selja það aftur — og það yrði nú heldur dapurlegt. A undanförnum árum hefur mikið af starfsorku forráðamanna félagsins farið í að flytja bóka- birgðir þess og leita að húsnæði. Vonandi er nú séð fyrir endann á því. Verður þá mun meira svigrúm til að sinna útgáfustarfseminni, auka hana og bæta.“ Er það annasamt starf að vera forseti Bókm enn tafélagsins ? „Þó nokkuð. Ég þyrfti að verja meiri tíma í þágu félagsins — en ég þarf að sinna svo mörgu öðru. Um daglegan rekstur þess og framkvæmdir sér Sverrir Krist- insson, sem er framkvæmdastjóri — eða bókavörður, eins og emb- ættið heitir í lögum félagsins. Hann vinnur starf sitt af mikilli ósérplægni og dugnaði. — Ef einhver heldur, að þetta sé andlegt virðingarstarf, þá er það frá mínum sjónarhóli séð misskiln- ingur. Flest viðfangsefni eru harla hversdagsleg. Frá því á miðju ári 1979 fram á árið 1980 var starfið til dæmis aðallega fólgið í því að skipuleggja flutning og bera kassa," sagði Sigurður að lokum. - bó. Jóhann Hjálmarsson: And- stæöur eining Ekki minnist ég þess að mikill bægslagangur hafi verið í fjölmiðlum þegar ljóðabók Snorra Hjartarson- ar, Hauströkkrið yfir mér, kom út haustið 1979. Menn skrifuðu kurteislega um bók- ina, en ekki eftir þeirri reglu að sá væri mestur sem gæti hlaðið hæstan köst úr lofs- yrðum. En það fer yfirleitt vel á því að hávaðalítið sé fjallað um ljóð. Hlédrægni hefur líka einkennt Snorra Hjart- arson. Með nokkrum rétti má segja um ljóðin í Haust- rökkrið yfir mér að sum þeirra minni á hvísl: það er áberandi hve skáldið er lág- vært. Bókin er eins konar sáttargjörð milli lífs og dauða, gleði og sorgar, vonar og angistar. Lauffall er af trúarlegum toga: Lauffallið ristir rauðar rúnir i þokuna hljóð orð leita hvildar angist og ást leita einskis og alls hjá þér móðir eilif og söm hvert lauf hvert Ijóð. Þegar Snorri sendi frá sér Lauf og stjörnur (1966) kom hann til móts við ung skáld og ekki einungis það heldur gerðist þátttakandi í nýstár- legri sköpun íslenskrar ljóð- listar sem á sér ákveðna en hæga þróun. Kvæði (1944) og Á Gnitaheiði (1952) eru glæsilegur skáldskapur og í þeim er eflaust að finna hátindana í ljóðlist Snorra. Mörg kvæðanna í þessum bókum hafa vakið athygli fyrir hve form þeirra er vandað, ómrænir eiginleikar þeirra snert strengi í brjóst- um manna og myndrænn kraftur heillað. í Laufi og stjörnum og Hauströkkrinu yfir mér er allt með einfald- ara hætti en áður hjá skáld- inu, formið óbundnara, lit- irnir færri. Það merkir ekki að skáldið hafi slakað á kröfum. En það sýnir að viss endurfæðing er nauðsynleg í skáldskap. Þótt skáld séu löngum að yrkja sama ljóðið eru tilbrigðin það sem ljær þeim vængi. Ég ætla aðeins að nefna eitt ljóð úr Laufi og stjörnum sem dæmi um list Snorra. Það er ljóðið Ég heyrði þau nálgast, mat skáldsins á vá- legum tíðindum utan úr heimi. Þar er greint frá fólki sem er statt á flóttamanns- vegi með vonina dýrmætu og leiðin liggur inn í myrkrið og nóttina. Með fáum og látlaus- um orðum segir skáldið okk- ur sögur samtíðar og allra tíma með tilvísun til Biblí- unnar. Trúarleg efni er líka að finna í Hauströkkrinu yfir mér, til dæmis í Ferðamaður sem rifjar upp píslarsögu Krists. Ég held að dómnefndar- menn Norðurlandaráðs í bók- menntum hafi eitthvað getið um náttúruna í ljóðum Snorra, persónulega náttúru- skynjun hans. Öll ljóð Snorra eru meira og minna tengd náttúrunni þótt ekki megi einblína á þann þátt. Snorri hefði varla mikið að segja okkur ef hann væri fyrst og fremst náttúruunnandi. Til- finning hans fyrir manninum og vanda hans er sterk, en það er náttúran sem oft fær skáldið til að tjá sig. Við skulum líta á lítið ljóð (flest eru ljóðin reyndar stutt í Hauströkkrinu yfir mér) til staðfestingar, þá verður fyrir valinu Ský og tré: Ský hefur tyllt sér á háar naktar greinar aldintré hvítt fyrir blómum horfðu vel myndin er hverful. Myndin er hverful segir skáldið. Er ekki þar með allt sagt um náttúruna og hug mannsins, blekkingu hins sýnilega, fró augans? í ljóði sem heitir Við Suð- urgötu yrkir skáldið um fugla sem fljúga milli trjánna, undir rótum þeirra „dánar- heimurinn myrki". Af innsæi sínu kallar skáldið heimana tvo andstæður og einingu. Ljóð Snorra Hjartarsonar eru til marks um það að skáld þurfa ekki glamuryrði til þess að á þau sé hlustað. Menningarleg afstaða er eitt af því sem ber að virða. Torvelt mun reynast að finna betri fulltrúa húmanisma en Snorra Hjartarson, jafnt andlegra verðmæta sem hins brothætta lífs. Til hamingju, Snorri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.