Morgunblaðið - 25.01.1981, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 25.01.1981, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 1981 Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guómundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 70 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 4 kr. eintakiö. Mikill samdráttur hefur orðið í sölu gosdrykkja- verksmiðjanna þriggja nú eftir áramótin og er hann talinn vera um 25—30%. Af þeim sökum hefur ein þess- ara verksmiðja þegar sagt upp 60 starfsmönnum og er það í fyrsta sinn, sem það fyrirtæki hefur orðið að grípa til uppsagna í þau nær 40 ár, sem fyrirtækið hefur verið starfrækt. Hinar verk- smiðjurnar tvær hafa enn ekki tekið ákvarðanir um uppsagnir en telja, að þær verði óhjákvæmilegar, ef engin breyting verður á stöðu iðngreinarinnar. Þessi mikli samdráttur í sölu er bersýnilega afleiðing vörugjalds, sem ríkisstjórnin ákvað að setja á gosdrykkja- iðnaðinn í desember til að afla aukinna tekna í ríkis- sjóð. Þá þegar mótmælti starfsfólk gosdrykkjaverk- smiðjanna þessari skatt- heimtu á þeirri forsendu, að hún stefndi atvinnu þess í hættu. Ríkisstjórnin og stjórnarliðið hunzaði þessi mótmæli eins og kunnugt er og afleiðingarnar blasa nú við. Samdráttur og uppsagn- ir. í samtölum, sem birtust í „Eina, Morgunblaðnu í fyrradag við starfsmenn verksmiðjanna kom í ljós, að þeir höfðu verulegar áhyggjur af því, að erfitt mundi reynast að fá aðra vinnu. Einn þessara starfsmanna sagði, að erfitt væri að fá vinnu um þessar mundir. Hann hefði verið á sjó fyrir nokkru, en síðan verið atvinnulaus í mánuð áður en hann fékk þá vinnu, sem hann nú er að missa. Aðrir starfsmenn sögðu erf- itt um vinnu nú og mörkuðu það af því, að mikið hefði verið spurt um vinnu hjá þeirra fyrirtæki að undan- förnu. „Það er mjög leiðin- legt að fá svona uppsögn í vinnu en ég hef ekki lent í slíku áður,“ sagði starfsmað- ur í einni verksmiðjunni og annar bætti við, að það væri „óskemmtileg reynsla" að missa vinnu með þessum hætti. Um 200 starfsmenn þess- ara fyrirtækja fóru í mót- mælagöngu í stjórnarráðið í fyrradag. „Það eina, sem við viljum er að halda vinnunni," sagði þetta fólk. Gunnari Thoroddsen, forsætisráð- herra, og Ragnari Arnalds, fjármálaráðherra, hafði ver- ið tilkynnt með nokkrum fyrirvara um komu starfs- mannanna, sem höfðu ætlað að hitta ráðherrana sjálfa. í ljós kom, að hvorugur þeirra var við eða gat tekið á móti fólkinu. Eru þessir ráðherrar of góðir til þess að ræða við verkafólk, sem er að missa atvinnu sína? Hefur forsæt- isráðherrann aðrar og meiri skyldur en þær, að tala við fólk, sem er að missa vinnu vegna aðgerða ríkisstjórnar sem hann ber ábyrgð á? Og hvernig er það með fjármála- ráðherra Alþýðubandalags- ins, flokksins, sem telur sig sérstakan málsvara launa- fólks í landinu, hefur hann mikilvægari störfum að gegna en þeim að tala við verkafólk, sem óttast um afkomu sína og fjölskyldna sinna? I bréfi til Gunnars Thor- oddsens, forsætisráðherra, sem afhent var í stjórnatráð- inu og fjármálaráðherra fékk afrit af, segir m.a.: „Eins og yður er kunnugt mótmæltu starfsmenn gosdrykkjaverk- smiðjanna frumvarpi til laga um vörugjald er tók síðan gildi 1.1. 1981 af ótta við að starfsöryggi þeirra væri stefnt í hættu. Nú er sá ótti orðinn að veruleika og þegar hefur komið til fjöldaupp- sagna. ... Það er því einlæg ósk okkar starfsmanna Verk- smiðjunnar Vífilfells hf., Öl- gerðarinnar Egils Skalla- grímssonar hf. og Sanitas, að þér ágæti ráðherra, beitið yður fyrir því að umrætt 30% vörugjald eða sérstakt tímabundið vörugjald verði fellt niður eða dreift á fleiri atvinnugreinar. Það er trú okkar að með því móti einu sé hægt að vinna gegn sam- drætti í okkar atvinnugrein og þar með tryggja atvinnu- öryggi okkar og komið verði í veg fyrir, að á annað hundrað manns búi við það óöryggi, sem atvinnuleysi veldur." Fregnir víðs vegar af land- inu benda til þess, að at- vinnuástand sé erfitt um þessar mundir. Það er að vísu oft í janúarmánuði en að þessu sinni gætir uppsagna í atvinnugreinum, sem ekki hafa áður þurft að grípa til slíkra aðgerða. Margar ástæður valda því, að nú er erfitt um vinnu en ein er sú, að núverandi ríkisstjórn og síðasta vinstri stjórn Ólafs Jóhannessonar hafa lagt slíkar byrðar á atvinnuveg- ina og búið þannig að þeim í verðlagsmálum og á annan hátt, að atvinnufyrirtækin eiga ekki annarra kosta völ en grípa til uppsagnar starfs- manna. Nú er t.d. svo komið, að ríkið tekur til sín 42% af verði hverrar gosdrykkjar- flösku. Það er ljóst að fátt er mikilvægara nú en einmitt það að búa atvinnufyrirtækj- unum þau skilyrði, að þau geti blómstrað og dafnað. En aðgerðir núverandi ríkis- stjórnar ganga í þveröfuga átt, eins og dæmið um gos- drykkjaverksmiðjurnar sýn- ir. sem við viljum er að halda vinnunnia | Reykjavíkurbréf l •*►♦♦♦♦♦♦«■ Laugardagur24.janúar Sönderholm Traute og Erik Sönderholm hafa verið góðir gestir á íslandi og í tíð þeirra í Norræna húsinu hefur margvísleg starfsemi verið rekin, sem sett hefur svip á borgarlífið í Reykjavík. Erik Sönderholm var mörgum íslend- ingum að góðu kunnur, þegar hann var skipaður forstjóri Nor- ræna hússins, enda hafði hann áður verið sendikennari Dana við Háskóla Islands. I samtali við þau hjón, sem birtist í Morgunblaðinu í síðustu viku, kemur fram, að Erik Sönderholm hefur dvalizt á Islandi um helming starfsævinnar og bæði eru börn þeirra hjóna fædd á Islandi. Þau hafa eignazt góða kunningja og vini hér á landi. Þeim, sem njóta starfsemi Nor- ræna hússins, eru minnisstæðar heimsóknir fjölmargra merkra Norðurlandabúa, fyrirlestrar þeirra, 3ýningar, upplestrar og tónlistarflutningur. Þau nöfn verða ekki tíunduð hér, en þó má geta þriggja mikilla skálda, þeirra Olavs H, Hauge frá Noregi, Thor- kild Björnvigs frá Danmörku og Tomas Tranströmers frá Svíþjóð, sem eru meðal fjölmargra nor- rænna listamanna í fremstu röð, sem gist hafa Norræna húsið í forstjóratíð Eriks Sönderholms. Þá hefur Erik Sönderholm einnig átt þátt í íslenzkri listsköpun í forstjórastarfi sínu og hafa nokk- ur músíkverk verið samin og flutt hér á landi að frumkvæði hans. Tónlistarbókasafni hefur verið bætt við bókasafn Norræna húss- ins í tíð þeirra hjóna og gefur auga leið, hvílíkur fengur er að því. Þá verður nú efnt til Munch- daga í Norræna húsinu. Traute og Erik Sönderholm eru fordómalaust fólk. Þau hafa rekið Norræna húsið með þeim hætti, að það hefur verið blessunar'ega laust við alla klíkustarfsemi, enda er allt slíkt andstætt eðli þeirra. En auðvitað geta menn haft sklpt- ar skoðanir á norrænni samvinnu og engir hafa spillt meira fyrir henni en vinstri menn með marg- víslegum yfirgangi. Norræna húsið hefur dafnað vel undanfarið. Þar hefur ekki verið spurt um stjórnmálaskoðanir, heldur þau verðmæti sem mölur og ryð fá seint grandað. Til þess var til hússins stofnað á sínum tíma að tengja ísland æ betur við margt það bezta í skandinaviskri menningu og það hefur tekizt vel í forstjóratíð Eriks Sönderholms, hvað sem öðru líður. En sjálfur hefur hann unnið íslenzkri menn- ingu stórmikið gagn með þýðing- um íslenzkra rita á danska tungu. Hann hefur frá því fyrsta hann kom hingað til lands verið trúr köllun sinni og lifsstarfi. Islenzkir rithöfundar eiga ekki sízt góðan vin í Danmörku, þar sem Erik Sönderholm er. Sjálfur talar hann tungu okkar með þeim hætti, að ýmsir þeir íslendingar, sem mest láta til sín heyra í fjölmiðlum nú um stundir gætu margt af honum lært. Traute og Erik Sönderholm eru hlédræg að eðlisfari, en því skemmtilegri í góðra vina hópi. Þeirra verður því saknað, þegar þau nú halda aftur heim til Danmerkur að loknu góðu dags- verki á Islandi. Þeim fylgja góðar kveðjur frá gamla Fróni. Almannavilji, einokun, lýðræðisleg stjórnun Það er að vísu komið í ljós, að útvarpsráð hefur lítil sem engin völd, enda þótt það sé kjörið á Alþingi íslendinga til að gæta þess að löggjafinn — og þar með rétt kjörnir fulltrúar fólksins — geti haft hönd í bagga með starfsemi þessa mikilvæga fjöl- miðils í eigu íslenzku þjóðarinnar. Lýðræði verður helzt virkt, þar sem valdið er sótt, í þingræðið — sótt til alls almennings, enda þótt það sé ekki fullkomið fremur en önnur stjórnarform. En við þekkj- um a.m.k. ekki annað betra. Og sá er munur á opinberum stofnunum og einkafyrirtækjum, að í hinum fyrrnefndu eiga réttkjörnir al- þingismenn að hafa umsjón með þvi að almannaviljinn sé í heiðri hafður, en fordómar og einka- hagsmunir víki, en um einkafyr- irtæki gegnir allt öðru máli, því að þar ræður sá eignarréttaraðili, sem ábyrgðina ber og getur ekki sótt annað fjármagn í rekstur fyrirtækis síns en það sem góð stjórnun gefur af sér. Ríkisstofn- anir sækja aftur á móti fjármagn sitt í vasa skattborgara. Einatt er bruðlað með fé þeirra og alltaf talin ástæða til að sækja æ meira fé i vasa borgaranna til að standa straum af bruðlinu. En Alþingi á að tryggja aðhald og eftirlit. Útvarpsráð á að vera slíkt aðhald í þágu almannaheilla. En einnig er til þess ætlazt, að útvarpsráð marki stefnuna, þótt framkvæmd- in sé í annarra höndum. Það þætti ekki góð latína, ef dagblaði væri stjórnað með þeim hætti, að umsjónarmönnum ým- issa þátta væri afhent ákvörð- unarvald um alla stefnumörkun, t.d. þannig að þeir, sem ættu að sjá um einhvern „hlaðvarpann", réðu alla gagnrýnendur viðkom- andi blaðs eftir sínu höfði, mat- vini og kunningja, sem síðan mörkuðu stefnu blaðsins í menn- ingar- og stjórnmálum, svo að dæmi séu tekin. Það getur verið viðkvæmt í fámenninu, hver fjall- ar um bók, leiksýningu, tónverk, málverk o.s.frv., enda er það stundum gert af geðþótta einum, persónulegum eða pólitískum ástæðum, meinfýsni og minni- máttarkennd og allt þar á milli. Vald gagnrýnenda kallar einatt á freistingar, sem fæstir standast alltaf, enda þarf til þess allmikið andlegt þrek, ekki sízt í fámenni eins og hér, þar sem afstaða manna ræðst af persónulegri eða pólitískri viðmiðun. En það er einnig oft gert af þekkingu og áhuga á efninu, málefnalega og rökvíst. Höfundar bera að sjálf- sögðu ábyrgð á skrifum sínum, t.d. í dagblöðum, en ritstjórar á þeirri stefnu, sem mörkuð er. Á þetta er m.a. minnzt vegna þeirrar gagnrýni, sem einatt hefur verið á ríkisfjölmiðla og geðþótta- afstöðu, sem þar veður stundum uppi, án stjórnunar þeirra sem ábyrgðina bera. Pólitísk afstaða í ríkisfjölmiðlunum er forkastan- leg, enda ættu þá þeir eigendur þeirra, sem flestir eru, að hafa þar mest rúm og mest áhrif, þ.e. kjósendur stærsta flokksins. En engum hefur dottið slíkt í hug í alvöru. Geðþóttaafstaða án málefnalegs rökstuðnings á ekki heima í ríkis- fjölmiðlum og hafa fréttamenn einatt þurft að súpa seyðið af því, sem vonlegt er — og raunar eðlilegt, ef svo ber undir. Það er því engan veginn einfalt mál að hefja gagnrýni í þessum fjölmiðli, því að hún fer eftir þeim einstakl- ingum, sem útvaldir eru í þau störf og getur komið illa niður á þolandanum, oft að ósekju. Það á ekki að vera í verkahring umsjón- armanna einstakra þátta að marka svo mikilvæga stefnu, sem hér um ræðir í ríkisútvarpinu. Allt slíkt er í verksviði útvarps- ráðs. Annað lýsir stjórnleysi, sem útvarpsráð er kosið til að koma í veg fyrir. í ríkisfjölmiðlunum færi bezt á því, að ekki færri en tveir einstaklingar legðu orð í belg — og þá gjarnan með og móti viðkomandi verki, svo að hlust- endur yrðu einhvers vísari, en sætu ekki uppi með geðþóttasnakk framtóninga eitt saman. En meðan útvarpsráð er jafn- máttvana og raun ber vitni, er kannski ekki við góðu að búast. Hitt er svo annað mál, að það er fáránlegt að láta gagnrýnendur gjalda afstöðu sinnar, ef neikvæð er. Þolendur eiga að hafa þrek til að hrista slíkt af sér. En þá er nauðsynlegt að búa svo um hnút- ana, að sem flest sjónarmið komi fram. Stefna ábyrgra dagblaða er ekki mótuð af greinarhöfundum „úti í bæ“, þótt þeir hafi alla möguleika á að koma skoðunum sínum á framfæri, heldur ritstjóra við- komandi blaðs. Þannig getur það ekki heidur verið ákveðið í kokk- húsi umsjónarmanns eins þáttar í útvarpinu, hvernig fara skuli með viðkvæmustu mál — og eitthvað mundi hvína í tálknunum á stjórnmálamönnum, sem ábyrgð- ina bera af eðlilegum lýðræðis- legum ástæðum, ef tekin yrði upp gagnrýni á störf þeirra hvers og eins í ríkisfjölmiðlunum og jafn- vel persónu þeirra — að þeim víðs fjarri. Sama máli gegnir um aðrar hliðar þjóðlífsins. I ríkisfjölmiðlunum eru margir kallaðir, en fáir útvaldir, eins og vitað er. En þá er að gæta þess að þeir útvöldu séu starfi sínu vaxnir. En það eru þeir ekki nema þeir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.